Pressan - 31.05.1990, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 31. maí 1990
15
Pó unga fólkinu þyki þaö kannski ótrúlegt átti fólk ekki í neinum
vandrœöum meö tómstundir sínar hér áöur fyrr þegar ekki voru
til frjálsar útvarpsstöövar eöa sjónvarp, bílaeign var í lágmarki
og utanlandsferöir nánast óþekktar.
Pað er nánast vonlaust að segja nútímabörnum frá því að
einu sinni, og ekki fyrir svo ótrúlega löngu, hafi sjónvarp ekki
verið til nema á einstaka heimili. Pegar talið berst svo að sum-
arfríum ogmaður segir að Mallorca hafi ekki verið sjálfsagður
dvalarstaður barna um þriggja vikna skeið á sumrin þá stækka
augu nútímabarnanna ennþá meira. Og að ætla að segja frá
þeim tíma þegar Barbie-húsgögn voru búin til úr eldspýtu-
stokkum eða frá því þegar gestir sátu í rólegheitum og spjöll-
uðu við húsráðendur, þá liggur við að spurt sé hvort Fjalla-Ey-
vindur hafi verið skemmtilegur maður.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR EINAR ÓLASON
Þeir eru margirsem fullyrda ad sjónvarpið
hafieydilagtþettaalltsaman. Allarskemmti-
legu heimsóknirnar, öll rólegheitin, allar
samrædur. Núordið talar fólk ekki saman,
segja menn og andvarpa. Sjónvarpið er alls
staðar í gangi og það er til lítils að skreppa
eitthvert í heimsókn íþeirri von að geta talað
um heima og geima. Annaðhvort horfir
maður á sjónvarpið heima hjá sér eða heima
hjá vinum sínum. Annað stendur ekki til
boða.
Hvað gerði fólk þá???
En það er ekki aðeins sjónvarpið sem
breytt hefur lífsmynstrinu. Aukin bifreiða-
eign landsmanna gerir flestum kleift að
komast ferða sinna um landið, sumarfrí eru
algengari og mun lengri en áður tíðkaðist og
ferðaskrifstofur bjóða hina dæmigerðu
þriggja vikna pakka á sólarstrendur á verði
sem margir ráða við.
En hvað gerði fólk í „gamla daga" þegar
það gat hvorki hlaupið út á myndbanda-
leigu, stillt á Stöð 2, valið milli útvarpsstöðva
né skellt sér til útlanda í sumarfríinu? PRESS-
AN leitað til fjögurra þekktra aðila og bar
þessa spurningu upp við þá. („Gömlu dag-
arnir" hér eru á árunum 1950—1965.)
Nú eru allir að horfa
á sjónvarpið
Haukur Clausen tannlæknir, sem var