Pressan


Pressan - 26.07.1990, Qupperneq 4

Pressan - 26.07.1990, Qupperneq 4
4 Fimmtudagur 26. júlí 1990 litilræði af útilegu Mikið voðalega finnst mér gaman í útileg- um. Og ekki bara mér, heldur konunni minni líka. Stundum er mér nær að halda að henni þyki enn meira gaman í útilegum en mér. Hún er svo mikið fyrir svoleiðis. Vera útí náttúrunni í tjaldi, hlusta á fjallalæki, mófugla, sauðkindajarm og þögnina. Njóta þagnarinnar. Það er málið. Og grilla til að koma á jafnvægi í sambúð- inni. Liggja svo úr sér streituna í tjaldi og láta draumana rætast í svefni og vöku. Eða einsog konan mín segir stundum: — Maður sefur hvergi eins vært einsog í tjaldi útí guðsgrænni náttúrunni fjarri skarkal- anum í ómengaðri kyrrð. Nei, það veit guð. Og hvar hvílist maður betur? Ég bara spyr. Nú er ég á sjötugsaldri og konan mín á sex- tugsaldri og þegar við hleypum heimdragan- um til að ferðast um landið okkar segi ég stundum ofur varlega áður en lagt er af stað: — Eigum við nú ekki, elskan mín, að prufa ferðaþjónustu bænda? Eða panta herbergi þar sem við komum til með að eiga næturstað? — Ég held þú sért ekki normal, segir þá kon- an mín. Við verðum í tjaldi. Og hún meinar það. Mikil ósköp. Og það kemur einsog köggull fyrir brjóstið á mér, þið vitið svona kvíðaköggull sem tekur sér svo oft bólfestu í hjartabrjóstinu á gömlu fólki. Og þegar köggullinn er kominn verð ég stundum svolítið spenntur, en af því ég er svo ballanséruð og elskuleg manneskja hugsa ég sem svo: — Það væri nú lítið varið í lífið og tilveruna ef engin væri spennan. Svo fellst ég á að eyða nokkrum votviðra- sömum sumardögum í tjaldi og hverfa til upp- runa míns með því að brölta um í lágreistu tjaldinu, á fjórum fótum í faðmi náttúrunnar, einsog það er kallað, og til að kóróna alsæluna Ijóslaus, síma- og salernislaus, hrjáður, kaldur og kvalinn í rysjóttu veðri. Þetta segir konan mín að sé toppurinn á til- verunni og ég trúi því bara vel, svona að vissu marki. Því til staðfestingar segi ég ofur blíðlega: — Ertu sýstematískt að reyna að drepa mig? En hún svarar með því að skipa mér að fara að ná í tjaldið. — Það er framí geymslu, súlurnar, hælarnir og allt, ef krakkarnir eru þá búnir að skila því. Og nú vaknar hjá mér veik von, því krakkarn- ir skila auðvitað aldrei nokkrum sköpuðum hlut og ef þau skila einhvern tíma einhverju þá er vísast búið að týna úr því bæði súlúm og hælum. Að sjálfsögðu er tjaldið á sínum stað, aldrei þessu vant, súlur, hælar og allt og ég hugsa sem svo: — Fyrr má nú vera skilvísin. Þegar ég kem framá hlaðið sé ég að konan mín er að ferma bílinn minn og er greinilega búin að prójentéra útgerðina, því hún sveiflar fullum plastikpoka af „la-la-la-lamba" og öðr- um af „sví-sví-sví-svína" inní skottið á bifreið- inni við hliðina á ferðagrillinu sem notað er til að brasa la-la-la-lamba og sví-sví-sví-svína þegar maður er í tjaldi útí náttúrunni að hvíla sig, slappa af og njóta kyrrðarinnar. Og nú segi ég, ákaflega elskulega: — Þú ert ekki normal. Þá tekur hún svo til orða: — Taktu grillhanskana, svuntuna þína og Ali-húfuna með og gítarinn. — Hvað ætlarðu að vera lengi með mig í þessari útilegu? spyr ég fremur gætilega af því mér er alltaf svo mikið í mun að halda friðinn. — Bara svona nokkra daga. — En ég sé ekki betur en þú sért með vistir til fleiri mánaða. — Æ þú veist nú hvað þau eru alltaf svöng litlu greyin á þessum hestamannamótum. Taka aldrei nokkurn skapaðan hlut með sér. Og þá er mér orðið Ijóst að við erum að fara á landsmót hestamanna til að vera þar í tjaldi, hvíla okkur og slappa af með því að ég grilli la- la-la-lamba og sví-sví-sví-svína fyrir mann- skapinn og spili undir á gítar. Og mér finnst ég ekki ungur í annað sinn. Ég man hvað mér þótti himneskt, þegar ég var yngri, að sofna á hestamannamótum í tjaldi. En það var þegar maður var og hét og fór að sofa um ieið og hinir. Fyllikliðurinn var að hljóðna og stöku hross hneggjaði innan hljóð- máls, en fuglar svona umþaðbil að vakna. Betra vögguljóð get ég í minningunni ekki hugsað mér. Ekki meir um það. Við heiðurshjónin tjölduðum semsagt gamla tjaldinu okkar á svæði sem merkt var „fjölskyldusvæði" á hestamannamótinu og varla var hún búin að tjalda þegar hún tók svo til orða: — Nú grillar þú. Ég missti snöggvast stjórn á mér, en lét ekki á neinu bera. Maður af minni stétt og stöðu og kominn af léttasta skeiði verður að gæta stillingar þeqar aðrir sjá til. — A hestamannamótum ríður á að grilla, sagði maðurinn í næsta tjaldi og hló rosalega þegar hann sá að ég fattaði ekki brandarann. Hann var einmitt að grilla með vinstri en drakk úr vodkaflösku með hægri. Konan hans og börnin lágu íyrir inní tjaldinu og grétu. Svo komu gestir og einn heimilisvinur hjón- anna þarna í næsta tjaldi barði húsráðandann í höfuðið með tómri brennivínsflösku. Svo fóru allir að slást, æla og elskast. Kódel- etturnar og glóandi viðarkolin dreifðust útum víðan völl og eitthvað af tjöldum stóð í björtu báli og brann til kaldra kola. Fjölskyldubúðirnar höfðu á svipstundu breyst í blóðugan vígvöll, menn veltust um í forinni, konur og börn grétu, en uppá hól sat þrefaldur kvartett og söng fjórraddað „Inní heiðanna ró". Þá var það að ég sagði við konuna mína: — Eigum við ekki bara að fara að leggja okk- jr? Svo gerðum við það. Og hvílík nótt. NÝIR BÍLAR Á HAGSTÆÐU VERÐI HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN Sudurlandsbraut 16, Reykjavík, gengið inn frá Vegmúla. • Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor- olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station • FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta- tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol, Toyota Landcruiser, Ford Econoline • 5—12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5—7), Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11), Toyota Litace (8), Ford Econoline (12) BILALEIGAN ÍGfYSn sími: 688888

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.