Pressan - 26.07.1990, Blaðsíða 28
28
PRESSU
MOJLAR
^Fyrirtækið Benco hf sem krafið
er um 55 milljónir vegna skattsvika
er enn að nafninu til í eigu Róberts
Þórs Bender enda þótt hann hafi
selt lager, umboð o.fl. til Títans hf.
Ifram heldur Stöö 2 að missa
sterka starfskrafta til annarra sjón-
varpsstöðva. Nú er það Maríanna
Friðjónsdóttir framleiðslustjóri
Stöðvarinnar sem er að halda til
starfa í Danmörku á næstu dögum
ásamt eiginmanni sínum Birgi Þór
Bragasyni íþróttafréttamanni. Þar
hefur Maríönnu boðist staða yfir-
manns innlendrar dagskrár-
gerðar hjá Kanal 2 sjónvarpsstöð-
inni. Mikil viðurkenning fyrir þessa
gamalreyndu dagskrárgerðar-
konu. . .
Róbert var settur í fárbann af
hæstarétti að kröfu rannsóknar-
lögreglunnar þegar rannsókn stóð
yfir í málinu. Róbert er nú farinn
utan og sagður kominn til Portú-
gal. Hann er með fleiri fyrirtæki í
takinu; haustið 1988 stofnaði hann
fyrirtækið Oríent hf ásamt eigin-
konu sinni og syni. Hlutverk þess er
kaup og sala fasteigna og fleiri fjár-
'i málaviðskipti. Stofnfé þess var
óvenjumikið miðað við fyrirtæki af
þessari tegund eða 7,1 milljón
króna og er það skv. hlutafélagaskrá
staðsett í Lágmúla 7 þar sem Benco
er til húsa. Þá hefur Róbert starf-
rækt skrifstofu í Armúla 19 en
henni hefur nú verið lokað. . .
b
^^■reytingar á þættinum 19:19
á Stöð 2 eru í burðarliðnum. Fréttir
verða á sínum stað kl. 19:19 og
standa til kl. 20 en að því loknu taka
við vinsælir fjölskylduþættir á milli
kl. 20 og 21 en þá heldur magasín-
hluti 19:19 áfram í hálftíma. Er Ijóst
að Stöðvarmenn telja ekki vænlegt
lengur að vera með fréttatengt efni
á Stöðinni á sama tíma og fréttir
Ríkissjónvarpsins standa yfir.
Umsjónarmenn þessa hluta þáttar-
ins verða Helga Guðrún Johnsen
og Sigmundur Ernir Rúnarsson
sem ætla að gera fréttum og frétta-
tengdu efni af ýmsu tagi ítarlegri
skil en í fréttunum sjálfum. Breyt-
ingarnar taka væntanlega gildi með
haustinu.. .
A
■^instæður sportbíll hafði við-
komu hér á landi síðustu dagana.
Benz-verksmiðjurnar í Þýska-
landi framleiða á hverju ári tak-
markaðan fjölda af 500 sl Merce-
des Benz, sem er mjög sjaldgæfur,
dýr og eftirsóttur sportbíll. Vegna
mikillar eftirspurnar ákveður fram-
leiðandinn ákveðinn kvóta á lönd
og nú var komið að því að ísland
fengi einn til ráðstöfunar. Umboðs-
aðilinn Ræsir keypti bílinn og var
fyrirfram búinn að selja hann
dönskum manni, sem búsettur er í
Englandi og á Spáni. Hér gat hann
keypt hann skráðan á sérstakt toll-
númer, þannig að tollar greiðast er-
lendis. Frá framleiðandanum kostar
bíllinn sem svarar rúmlega 4 millj-
ónum króna, en ef eðalvagn þessi
hefði farið á sölu innanlands með
öllum tilheyrandi gjöldum og tollum
hefði hann kostað um 7—8 milljón-
ir króna. Þeir eru vafalaust fáir Is-
lendingarnir sem gætu snarað slíkri
upphæð út sársaukalaust. . .
d
^^■hugamenn um tölvubrans-
ann ráku að vonum upp stór augu
þegar Óli Kr. Sigurðsson í Olís og
Sund tók sig til og keypti þrotabú
Gísla J. Johnsen /Skrifstofuvéla.
Með Óla í ráðum var Friðrik Frið-
riksson sem nú stýrir hinu nýja fyr-
irtæki. Friðrik er fyrrum markaðs-
og fjármálastjóri IBM á íslandi og
því kom það nokkuð á óvárt að hið
nýja fyrirtæki skyldi ekki vera
áfram söluaðili IBM-búnaðar eins
og keypta fyrirtækið. Hefur læðst
að mönnum sá grunur að ekki sé of
gott samband milli Gunnars M.
Hanssonar forstjóra IBM og Frið-
riks, fyrrum starfsmanns hans. IBM
kaus heldur að taka upp samstarf
við Sameind um sölu á búnaði. íþví
sambandi vekur athygli að áður
voru söluaðilar. IBM þrír, þ.e. Ör-
tölvutækni, Skrifstofuvélar og
Gísli J. Johnsen, en öli hafa þessi
fyrirtæki orðið undir í bransanum.
Loks taka menn aftir því að Gísli
Maack er kominn í sérverkefni fyrir
Sameind, en Gísli pr að verða ansi
sjóaður í vandamálarekstrinum,
hefur áður séð um erfið verkefni
fyrir Flugleiðir, Arnarflug, Gunn-
ar Asgeirsson og Ólaf Laufdal. . .
||
■ Húsnæðisstofnun hefur sent
áminningarbréf til 5.700 launa-
greiðenda, sem hafa á sínum
skrám 17.000 launþega. Viðkom-
andi launagreiðendur eru áminntir
um að þeir hafi ekki gert skil á
skyldusparnaði fyrir launþega
sína árið 1988 og að slík vanskil
varði refsingu. Margir ofangreindra
launþega hafa að líkindum undan-
þágu, en þó er vitað til þess að á ár-
inu 1988 voru um 200 launþegar á
sérstakri skrá stofnunarinnar, þ.e.
höfðu leitað sérstaklega til hennar
um aðstoð, árið 1989 komu inn 370
ný mál, þ.a. mál 150 launþega gjald-
þrota fyrirtækja, og í ár eru þegar
komnar 246 kærur af þessum toga.
Eitthvað mun þegar hafa verið
greitt af þessu, en þó er vitað að
mörg mál hafa komið inn á borð
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Af
einhverjum ástæðum virðast fjöl-
margir launþegar fylgjast lítt með
því hvort vinnuveitendur þeirra
skili inn afteknum skyldusparnaði
og glatast þá féð eftir ákveðinn
tíma. Ábyrgð í þessum efnum virð-
ist mjög takmörkuð og eru t.d.
greiðslur skyldusparnaðar úr Ríkis-
ábyrgðarsjóði vegna gjaldþrota
takmarkaðar við 6 síðustu vinnu-
mánuði hvað forgang varðar. Það er
því full ástæða til að hvetja fólk á
skyldusparnaðaraldri, sem er
16—26 ára, til að fara vandlega yfir
yfirlitin, nú á þessum verstu gjald-
þrotatímum. . .
AUGLÝSANDI
í sainlcsnum auglýsingum á Rás I og 2:
• Nærðu eyrum þorra þjóðarinnar. Par með þínum
markhópi. • Þú getur valið úr 15 auglýsingatímum
á virkum dögum. • Auglýsingarnar birtast
samdægurs. • Auglýsingaféð nýtist vel.
(Snertiverð er hagstætt)
Auglýsing í samlestri á Rás 1 og 2 ber árangur hvort
sem hún er ein stök eða hluti af herferð.
Auglýsingadeildin er opin: Kl. 08-18 virka daga.
Ki. 08-12 laugardaga. Kl. 10-12 sunnudaga.
Starfsfólk auglýsingadeildar er þér innan handar
- hringdu! Síminn er 693060.
r «fi#
RÍKISÚTVARPIÐ
AUGLÝSINGADEILD
SlMI693060
ER1. ÁGÚST r
^—/ U ) _/ C/ wgj|jjgipH S r)K / irfSPiJT i oWmT* X Wl v / ) 1 T i /( ' ) f—' r~y^ t I fW jjj. W ! V. .# h' W ' / " ^ C V *—->. j 1 ■ / —v | ' a N**'\ L í} / ! í /Sv Jr /ti GF jl & í 'L-.. i '—v V ( J ! \ — Íf f TN NNII MYNDINNl HJÁ ÞÉR?
- # t j v**1*” 'l. L « J Jjl í t 'M \ / < Jj "*—' v'wrr */ M C~L— IjJ ín ju ^ i-pr1 fn Æ - Gjalddagi húsnœðislána er 1. ágúst. Gerðu ráð fyrir honum í tœka tíð.
\ ••■-/ / {! M My' V W t j'. jll / JVX- ) ( ’-J C~ Jr nV-. niri'í/1 \\ UJKJr - vJ JrJ v 1 f /V s rJ C) u xa / í-j ! - ,i UL 1 16. ágúst leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu. 1. september leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislána eru: 1. febrúar - 1. maí - 7. ágúst - 1. nóvember. Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.
SAMEINAÐA/SÍA * V ^ • - SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM OG HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
Xplllgfe \ \ Æl HUSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900