Pressan - 26.07.1990, Blaðsíða 20

Pressan - 26.07.1990, Blaðsíða 20
20 bridge Þú velur aö koma út í ómelduð- um lit þar sem þú átt 762. Hverju spilarðu? Kannski er það tískunni undirorpið. „Hátt frá hundum" var einu sinni almenn regla, síðan varð ,,MUD", miðspilið (middle, up, down), ofan á en nú aöhyllast æ fleiri pör gömlu bandarísku venj- una að spila út lægsta spilinu. Allar þessar útspilsreglur hafa sína kosti og hvað reynist best velt- ur oftast á spilunum. Spil vikunnar styður nýmóðinsvenjuna. ♦ 983 V ÁD108 ♦ ÁDG6 •?• G4 ♦ 5 V 762 + K1095 4*108763 4 Á764 V 954 ♦ 73 4» ÁKD2 Suður vekur á 1-laufi og norður svarar á 1-tígli. Austur kaus að koma ekki inn á, illskiljanleg ákvörðun að mínum dómi, og grandsögn suðurs var hækkuð í þrjú. Vestur hafði enga löngun til að koma út í litum andstöðunnar svo hann kaus skárri hálitinn. Trúr sannfæringu sinni valdi hann hjartatvistinn. Lítið úr blindum og austur sá sér leik á borði og stakk upp kóng. Skipt í spaðakóng. Sagnhafi gaf tvisvar, drap síðan á ás og valdi síðan það sem virtist augljóst í stöðunni, að svína fyrir hjartagosa upp á 9. slag. Áfall! Austur fékk slaginn og tveir spaðaslagir í viðbót hnekktu geiminu. Vitanlega hefði suður hugsanlega tapað spilinu þótt austur láti gosann nægja í 1. slag. Tvöfalda svíningin lítur betur út en að treysta á tígulkóng réttan, svo segja má að suður sitji í töpuðu spili eftir hjartatvist út. Ef útspilsreglan hefði hins vegar verið hefðbundnari, t.d. „hæsta af engu", blasir ekki við annar kostur en heppnuð tígulsvíning. ♦ KDG102 V KG3 ♦ 842 4*95 skák Dómur Euwes um Morphy Eftir Max Euwe liggur meðal annars rit í tveimur bindum þar sem hann fjallar um miðtaflið í skák. I lokakaflanum er rætt um skákstíl nokkurra fremstu meist- ara fyrr og síðar. Þar segir svo um skákstíl Morphys: í hugum margra er Morphy mesti fléttusnillingur allra alda. En þótt leikni lians í fléttum væri frábær átti hann merkileg afrek sín ekki einungis henni að þakka heldur einnig því að hann var fyrsti fullkomni stöðuskákmað- urinn — ef hægt er að kalla nokkurn mann fullkominn. En að auki bjó hann yfir afbragðs tækni. í stöðulegu innsæi var Morphy hálfri öld á undan sínum tíma. Þar sem aðrir leituðu í þoku gekk hann í heiðríkju og fann bestu leiðina áreynslulaust að því er virtist. Samtímamenn hans reyndu að flækja taflið í von um að finna einhverstaðar gull, en hann lét höggið ekki falla fyrt en staðan var undir það búin. En þá var það líka öflugt og nægði oft til að gera út um skák- ina í einni svipan. Sem dæmi um skákstíl Morphys velur Euwe skák sem hann tefldi í París 1863, fimm árum eftir að hann var hættur að tefla opinber- lega. Hann dvaldist í París um tíma meðan þrælastríðið geisaði í Bandaríkjunum og tefldi þá við nokkra vini sína, einkum Árnous de Rivére. Rivére var eldri en Morphy og einn af fremstu skák- mönnum Frakka um tveggja ára- tuga skeið. Hann tefldi á mörgum skákmótum og við ýmsa meistara meðal annars við Tsjígorín (1883) og tapaði naumlega fyrir honum (+4=1-5). Morphy — Rivére París 1864 I e4 e5 2 Rf3 Rc6 3 Bc4 Bc5 4 c3 De7 5 d4 Bb6 6 0-0 d6 7 h3 Rf6 8 Hel h6 9 a4 a5 Báðir tefla ítalska leikinn nokk- urn veginn á sömu leið og gert er enn í dag. Hér er 9 — a6 reyndar talið betra, svartur sleppir þá ekki valdi á b5. 10 Ra3 Rd8! Hvítur gat náö taki með 10 Bb5 Bd7 11 Ra3 og 12 Rc4. En nú kom svartur í veg fyrir það með 10 — Rd8. II Rc2 Be6 12 Re3 Bxc4 13 Rxc4 Rd7 14 Re3 Þessi riddari stefnir á d5 eða f5 og er hvorttveggja óþægilegt fyrir svart. Leiki hann 14 — c6 er 15 Rf5 De6 16 de5 og 17 Rd6 heldur ónotalegt. Svartur hindrar því Rd5. 14 - g6 15 Rd5 De6 16 Bxh6! f6 16 — Hxh6 17 Rg5 kostar drottn- inguna. 17 Bg7 Maróczy telur 17 Be3 vinna enn fljótar. En Morphy hótar nú ekki aðeins 18 Bxh8, heldur líka 18 Bxf6 Rxf6 19 Rg5. 17 - Hh5! 18 g4 Þetta er nauðsynlegt því að ella leikur svartur 18 — Df7. 18 - Hxh3 19 Rxf6+ Rxf6 20 Rg5 Dd7 Og hér telur Maróczy 20 — Dxg4+ 21 Dxg4 Rxg4 22 Rxh3 Kf7 23 f3 Kxg7 24 fg4 ed4 25 Kg2 ekki alveg vonlaust fyrir svart 21 Bxf6 Hh4 22 f3 ed4 23 cd4 Hh6 24 Kg2 Rf7 25 Hhl Rxg5 Hvítur vinnur einnig eftir 25 — Hxhl 26 Dxhl. 26 Hxh6 Rh7 27 Dhl! Rxf6 28 Hh8+ Ke7 29 Hxa8 Bxd4 30 Dh6 Dc6 31 Hcl Db6 32 Hxc7+! Ke6 33 He8 + Það er óhugsandi að Morphy Ijúki skák öðruvísi en með dálítilli flugeldasýningu. 33 - Rxe8 34 Dxg6+ Ke5 35 Df5 mát. GUÐMUNDUR Fimmtudagur 26. júlí 1990 krassgátan 1 2 3 4 5 17 18 19 20 21 7 8 9 10 11 12 13 14 15 Verölaunakrossgáta nr. 95 Skilafrestur er til 4. ágúst og í verdlaun er hin margfrœga ameríska nútímaskáldsaga A vegum úti eftir Jack Kerouac sem Mál og menning gefur út. Utanúskriftin er: PRESSAN — krossgúta nr. 95, Ármúla 36 Reykjavík. Dregid hefur veriö úr réttum lausnum ú krossgútu nr. 92. Lausnar- oröin voru: Oft njóta hjú góðra gesta. Vinningshafinn er María Margeirsdóttir, Barmahlíð 38 105 Reykjavík. Fær hún senda bókina Erlend ljóð frá liðnum tímum, í þýðingu Helga Háifdán- arsonar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.