Pressan - 26.07.1990, Blaðsíða 7
7
,")oejr i!tv, flo mr)r;hM*r;irrri"-l
Fimmtudagur 26. júlí 1990
PRESSU
MOiAR
^^yrr á þessu ári stóð fjármála-
ráðuneytið fyrir auglýsingaher-
ferð fyrir því að sjóðvélar væru
viðhafðar í viðskiptum, enda áttu
allir á þeim vettvangi að hafa tekið
upp vélarnar fyrir nokkru. Heimild-
ir okkar greina frá því að ráðuneytið
sé nú með í höndunum niðurstöður
könnunar sem á að kynna á næst-
unni. Niðurstöðurnar eru taldar all
hrikalegar og staðfesta grunsemdir
ráðuneytismanna um að sjóðvélarn-
ar séu alls ekki eins víða og vera ber.
Einna lakast er ástandið í ýmsum
sérverslunum, í bílasölu og í bygg-
ingariðnaði, en einna skást í mat-
vöruverslunum. Ráðuneytismenn
munu iíta svo á, að búið sé að „sýna
silkihanskann“ og nú eigi „járnhnef-
inn að taka við“. Með öðrum orðum
eru í bígerð aðgerðir og herðing
refsiákvæða...
t
■ ímaritið Þjóðlíf hefur átt í
erfiðleikum það sem af er árinu og
leitað sparnaðar á öllum sviðum.
Hafa blaðamenn t.d. eingöngu unn-
ið í lausamennsku við blaðið frá ára-
mótum. En Þjóðlífsmenn hyggjast
ekki leggja árar í bát og hefur Svan-
ur Kristjánsson stjórnarformaður
Félagsútgáfunnar hf. gengið í að
rétta reksturinn við og rífa blaðið
upp ásamt ritstjóranum Óskari
Guðmundssyni. Er fyrirhugað að
styrkja eiginfjárstöðu fyrirtækisins
á næstu mánuðum. Vegna þessara
erfiðleika munu tölublöðin í júní og
júlí verða sameinuð í eitt og er það
væntanlegt á götuna á næstu dög-
um en síðan vonast Þjóðlífsmenn til
að geta gefið blaðið út mánaðarlega
sem fyrr. Hyggjast þeir hefja mikla
sókn sem á að rétta dæmið við og
munu því fylgja nokkrar breytingar
á blaðinu s.s. varðandi útlit o.fl. ..
1»
að fór eins og búast mátti við
að Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála-
ráðherra skipaði Pál A. Pálsson
sérstakan saksóknara í Hafskips-
málinu í stað Jónatans Þór-
mundssonar. í þarsíðustu Pressu
sögðum við frá því á þessum vett-
vangi að Páll væri frímúrari eins
og Öli og ýmsir Hafskipsmenn, en
við nánari eftirgrennslan kom í ljós
að upplýsingar okkar voru rangar.
Það er allt annar Páll A. Pálsson sem
gerðist frímúrari 1985. Er Páll Arnór
Pálsson hér með beðinn velvirðing-
ar á mistökum þessum...
að sannaðist um síðustu
helgi á hestamannamótinu á Murn-
eyrum í Arnessýslu að fjölskyldan
í Vestra-Geldingaholti er ein
helsta hestamannafjölskylda lands-
ins. Á mótinu kepptu fimm fjöl-
skyldumeðlimir og sigruðu eða
komust í úrslit í öllum flokkum.
Þetta eru hjónin Rosemarie Þor-
leifsdóttir og Sigfús Guðmunds-
son og börn þeirra Guðmundur,
Annie og Sigfús Brynjar. En út yf-
ir tók þegar það kom í Ijós að vinnu-
konan í Geldingaholti, Sara Dögg
Ásgeirsdóttir, hafði smitast svo
mjög af hestamennskunni að hún
bar sigur úr býtum í flokki unglinga.
í Geldingaholti snýst lífið um hesta á
hverjum degi og þar er rekinn elsti
reiðskóli á landinu, en hann varð
25 ára í fyrra. . .
GARÐURINN
Kringlunni
*í
Mlt innifalið í verði, þ.e. tjaldstæði
bílastæði, skemmtanir og dansleikir.
E*Tl*Ht*lviU*
SftMft VERO ÖG í FYRRA: KR. 8.000
1 911 91 9 91 9 IH9 P9 Hftl m 1 H H ■■ ■ H 1 H Inl 1 H H HIB iK 9 9é9W' 9bb9h9 j9 99199 9i9 91
3-- S. ACUST 1990 1
Ath. Sama verð og í fyrra, kr.6.( >00,-