Pressan - 26.07.1990, Page 9

Pressan - 26.07.1990, Page 9
Fimmtudagur 26. júlí 1990 9 FLEKKUVÍK, Vatnsleysuströnd Sumarhúsaland, enginn búskapur, lítið ræktað. Eigendur: Pétur O. Nikulásson heildsali og Finnur Gíslason verktaki. Mynd: Mai(nús Reynir. ALJARÐIRNAR ÞRJÁR GILSBAKKI, Eyjafirdi Bóndinn hættur búskap, kvóti Ieigður. Fleiri jarðir í myndinni. Eigandi: Ólafur H. Baidvinsson bóndi. Mynd: Dagur. SLÉTTA, Reydarfiröi Takmarkaður búskapur vegna riðuskurðar. Eigandi: Sigurður Baldursson bóndi. Mynd: Austri. EIGENDUR ÁLVERSJARÐA BÍÐA Eigendur jarðanna á þeim þremur stöðum sem nú koma til greina undir nýtt álver eiga það sam- merkt að við þá hefur ekkert verið rætt um kaup eða leigu á jörðum þeirra. Þeir eru heldur ekkert yfir sig hrifnir af því að selja jarðirsínar. Það erlík- legt að þeir fái mjög gott verð fyrir eignir sínar, en verða að vara sig á því að setja markið of hátt — hægt er að taka land þeirra eignarnámi. Viðkom- andi jarðeigendur eru annars vegar athafnamenn í Reykjavík og hins vegar bændur sem hættir eru búskap að hluta eða að öllu leyti. EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON Eigendur Flekkuvíkur, Gilsbakka og Sléttu hafa ekki verið spurðir hvort þeir vilja selja jarðir sínar undir álver. Búast má við því að sá eða þeir heppnu fái mjög gott verð við sölu — en þráist þeir við er eignarnám í myndinni. I september er von á að rík- isstjórnin og Atlanlal-hópur- inn taki ákvörðun um stað- setningu fyrirhugaðs álvers. íbúar þriggja byggðarlaga bíða spenntir eftir ákvörðun- inni: íbúar Vatnsleysu- strandarhrepps fyrir sunnan. Arnarneshrepps fyrir norðan og Reyðarfjarðarhrepps fyrir austan. Ákvörðunin getur skipt sköpum fyrir þessa staði — enda er mikið togast á um staðsetninguna, bak við tjöld- in jafnt sem opinberlega. Nánari staðsetning álvers innan þessara hreppa hefur á köflum verið á reiki, en verk- smiðjulóðin þarf að vera að minnsta kosti 100 hektarar að stærð og að auki þarf lík- lega að gera ráð fyrir „vernd- arsvæði" eða „þynningar- svæði" vegna mengunar. Samkvæmt upplýsingum iðnaðarráðuneytisins er ál- málið ekki komið svo langt að rætt hafi verið við landeig- endur um kaup á jörðum þeirra. Hins vegar er fyllilega gert ráð fyrir því að viðkom- andi sveitarfélag eða ríki kaupi land og leigi það síðan til langs tíma. Einnig er inni í myndinni að Atlantal-hópur- inn kaupi viðkomandi land, en til þess þarf þó undanþágu vegna ákvæða um eignar- hald útlendinga hér á landi. Slíka undanþágu þarf hvort eð er vegna verksmiðjuhús- næðisins. Ekki er talið heppi- legt að leigja beint af einka- aðila. Heildsali, verktaki og bændur á tímamótum Núverandi áætlanir gera í öllum tilfellum ráð fyrir lönd- um sem eru í eigu einkaaðila. i Vatnsleysustrandarhreppi er reiknað með álveri í land- inu Flekkuvík (ranglega hef- ur verið talað um Keilisnes). Flekkuvíkurlandið er alls rúmlega 400 hektarar að stærð, en umrætt verksmiðju- svæði er innan 180 hektara svæðis frá ströndinni upp að gamla Keflavíkurveginum. Eigendur þessa lands eru tveir, báðir athafnamenn í Reykjavík. Þeir eru annars vegar Pétur O. Nikulásson heildsali í samnefndu fyrir- tæki og mágkona hans Margrét Kristinsdóttir og hins vegar Finnur Gíslason í HF verktökum. Fasteignamat jarðanna er ekki hátt, alls 1,3 milljónir króna. Ræktað land er ekki nema alls 6 hektarar og eng- inn búskapur á jörðunum, en sumarhús — þar af eitt veg- legt í byggingu hjá Finni. I Eyjafirði er nákvæm stað- setning hugsanlegs álvers enn nokkuð á reiki, en þó er gert ráð fyrir að svæðið verði að mestu í landi Gilsbakka í Arnarneshreppi. Eigandi jarðarinnar er Óiafur H. Baldvinsson bóndi, en hann hefur hætt búskap og er flutt- ur til Akureyrar. Oljóst er hversu jörðin er stór, en fast- eignamat hennar og bygg- inga er 2,8 milljónir. Sam- kvæmt heimildum PRESS- UNNAR er unnið að breyting- um á staðsetningunni „til að gera svæðið hagstæðara" og gæti staðsetningin þá snert aðrar jarðir. í því sambandi er minnst á jarðirnar Búland, Páimholt, Hvamm og Ytri- Bakka. í Reyðarfirði er gert ráð fyr- ir að verksmiðjulóðin verði að mestu í landi Sléttu, en hugsanlega einnig á land- svæði sem er í eigu hrepps- ins. Sléttu á bóndinn Sigurð- ur Baldursson. Heildar- landareign hans er mjög stór, þegar fjalllendi og beitarland eru meðtalin, en sléttlendi í hans eigu skiptir eitt sér hundruðum hektara. Fast- eignamatið á landinu öllu og byggingum er aðeins 8 millj- ónir króna. Sigurður er a.m.k. í bili hættur eiginlegum búskap vegna riðuniðurskurðar fyrir tveimur árum, en hefur haft uppi áætlanir um að taka lömb í haust. Flekkuvík: Landeigendur bíða rólegir Það er sammerkt með þessum landeigendum að við þá hefur mest lítið verið talað um hugsanleg kaup á löndum þeirra, þótt mælingar hafi farið fram. Þó munu þeir hafa fengið bréf nýverið um að viðræður fari fram verði land þeirra fyrir valinu. „Við höfum tekið jákvætt í þetta mál,“ segir Pétur O. Nikulásson um hugsanlega staðsetningu álvers í Flekku- vík. „Reyndar held ég að við höfum ekkert val í málinu, hvort við viljum álver á jörð- ina og þá selja eða ekki. Sem stendur er ekkert að gerast í málinu. Ég geri ráð fyrir að menn reikni með kaupum á jörðinni, líklega þá hreppur- inn því ég hygg að útlending- arnir megi ekki eiga jörðina. Það hefur ekkert verið rætt um verð og ég hef reyndar leitt slík mál hjá mér meðan ekkert er ákveðið ennþá. En ég geri ráð fyrir því að um pottþétta kaupendur yrði að ræða." Aðspurður sagði Pétur að auðvitað yrði eftirsjá af jörð- inni. „Við erum búin að njóta þess að vera í sumarbústað þarna í 45 ár. Það yrði fyrir bí, því ekki yrði gaman að dvelj- ast þarna nálægt álveri. En út af fyrir sig get ég sætt mig við þessa niðurstöðu, ef af verð- ur, því ég er orðinn um sjö- tugt og sum börnin komin með eigin bústaði." Finnur Gíslason tekur þess- um hlutum rólega eins og Pét- ur. „Það hefur út af fyrir sig ekkert verið rætt við mig um kaup á jörðinni eða hluta hennar. Ég tek þessu heldur ekkert rosalega alvarlega, því áætlanir um álver og ann- að í þeim efnum hafa áður riðlast. Ég geri mér engar gyllivonir og fyrr en samn- ingar hefjast er ég ekkert að velta þessu of mikið fyrir mér.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.