Pressan


Pressan - 26.07.1990, Qupperneq 22

Pressan - 26.07.1990, Qupperneq 22
22 Ooor íli' i f\C i! infth: itrnmi^ Fimmtudagur 26. júlí 1990 NY BYLGJA NÆR ISLANDI ÞAÐ GANGA MIKLAR SÖGUR AF NÝRRI BRESKRI TÓNLISTARBYLTINGU SEM BREIÐIST EINS OG ELDUR í SINU ÚT UM ALLAN HEIM. HREYFINGIN ER í EÐLI SÍNU STJÓRNLAUS OG HÚN ER ENN OF UNG TIL ÞESS AÐ HAFA ÖÐLAST NAFN. TRÚBOÐ- AR ÞESSARAR NÝJU BRESKU BYLTINGAR VORU Á ÍSLANDI UM HELGINA, VIÐ LÍTINN FÖGNUÐ YFIR- VALDA OG LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK. EFTIR BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR MYNDIR DANÍEL GUÐJÓNSSON, KRISTIN BOGADÓTTIR OG ARNÓR BJÖRNSSON „Ný bylting er hafin. Þaö þarf aö breyta gildunum í þjóöfélaginu. Viö höfum bara 40 ár til aö bjarga jöröinni," segir einn af aödáendum nýju stefnunnar. Hluti hljómsveitarinnar The Band of Holy Joy. Er að grípa um sig nýtt æði? Er eitthvað í líkingu við hippatímabilið í uppsiglingu? Krakkarnir sem steypa sér út í hringiðu nýrrar tónlistar í gallabuxum og annars fjölbreyttum klæðnaði, minna á bylting- una sem hófst árið 1967. Auðvitað ekki eins — þetta er blanda af mörgu. Þessir krakkar voru alls ekki fædd 1967. Hins- vegar getur vel verið að foreldrar þeirra hafi ein- mitt blómstrað á hippa- tímabilinu. Bómullarbol- ir, langar perlufestar eða kross um hálsinn, sokka- buxur og hattar með blómamynstri eða bara hvað sem er, þau geta verið ber að ofan ef því er að skipta. Tónlistin og skemmtunin er aðalat- riðið. Uppreisnin fylgir í kjölfarið — sagan endur- tekur sig. Uppákoma Bretanna á íslandi var fjölbreytt. At- burðurinn var kallaður Listahátíð næturlífs- ins og átti að fara fram 19.—20. júlí á skemmti- Fatahönnuðurinn Dóra Einars ásamt næturhrafni. Islensk stúlka og breskur sjentilmaöur bera saman tungur sínar. rapParinn í algleymi.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.