Pressan - 26.07.1990, Page 23

Pressan - 26.07.1990, Page 23
Fimmtudagur 26. júlí 1990 23 Til hægri: Lögreglan lokar Tunglinu rétt fyrir tólf á föstudagskvöldið. Hér má sjá sex lögregluþjóna. Breska sjónvarpsstöðin BBC 2 var að gera sjón- varpsþátt í Tunglinu og að sögn viðstaddra voru gerðar upptökur af þætti lögreglunnar. Æsileg land- kynning það. Lengst til hægri: Alþjóð- lega tímaritið Newsweek gerði úttekt á nýju tónlist- ar- og hippabylgjunni sem gengur yfir heiminn og gat þess að „æðið" hefði náð allt til íslands. staönum Tunglinu. Aðstandendur hátíðarinnar voru Pakkhús postulanna, í samvinnu við 26. maí-hópinn. Eins og flestir vita varð hátíðin íTunglinu heldur snubbótt, því lögreglan ruddi staðinn á föstudagskvöldið og lokaði honum það sem eftir var helgarinnar. Á föstudagskvöldið náði The Band of Holy Joy ásamt Júpiters að halda fyrstu tónleika hátíðarinnar og Mark Wigan og Konfekt sýndu lifandi mynd- list. Hápunktur kvöldsins nálgaðist. Hljómleikar The Brain Club með villtri tónlist. Þrjár hljómsveitir áttu að spila, Mr. Monday með MC Eusebee, Or- bital og If. Plötusnúðarnir Glen Gunner, Harvey og Sean Mc Clusky ásamt trumbuslagaranum Pablo áttu að reka endahnútinn á kvöldið með heitri danstónlist og sveittri trumbublöndu. En þá þustu að stórir og sterkir lögregiuþjónar, að sögn unglinganna í tugatali. Lögreglunni sjálfri telst til að þeir hafi ekki verið mjög margir. Ástæðan fyrir Listahátíöarfólk úti á götu, áöur en lögreglan leysti upp hópinn. „Sorglegt aö lögreglan skuli hafa svona neikvæð viðhorf gagnvart hóp sem berst fyrir nýjum gildum og vímulausum skemmtunum," segir tals- maður 26. maí-hópsins. Breskir næturhrafnar. Fremst er D.J. Harvey, hippi og víðfrægur plötusnúður í sérflokki. Nýja línan: Tvær íslenskar stúlkur á tískusýn- ingu. að Tunglið var rutt mun hafa verið öðrum þræði að veitingastaðurinn hafði farið frjálslega með vínveitingaleyfið, en einnig lágu aðstand- endur Listahátíðar næt- urlífsins undir grun um að hafa fleiri vímuefni en áfengi um hönd. Pakk- hús postulanna og 26. maí-hópurinn ætla ekki að sitja þegjandi undir aðdróttunum lögregl- unnar og íhuga meið- yrðamál. Það er engin nýjung að tónlistar- og lífsstílsbyltingar unga fólksins þurfi að þola grunsemdir um eitur- lyfjaneyslu og sá grunur hefur oft átt við rök að styðjast. Það gæti orðið erfitt að sakast við lögregluna fyrir að vera ekki frum- legri í hugsun en að sér detta í hug að nætur- hrafnar nýju stefnunnar væru dópaðir. Hinsvegar á það eftir að koma í Ijós hvort harkaleg viðbrögð lögreglunnar um helgina áttu rétt á sér eða ekki. Eftir að hafa verið fleygt út úr Tunglinu hélt Listahátíð næturlífsins ótrauð áfram í Holly- wood á laugardags- kvöldið og fór vel við mikla stemmningu, að sögn viðstaddra. Mr. Monday viö hljóm- borðið.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.