Pressan - 26.07.1990, Síða 27

Pressan - 26.07.1990, Síða 27
Firti&tÍicifeííj uteft' ‘ffi kvikmyndir helgarinnar a? 27 dagbókin hennar dúllu FIMMTUDAGUR 26. júlí Stöö 2 kl. 22.15 HVERJUM ÞYKIR SINN FUGL FAGUR** (To Each His Own) Ný bresk sjónuarpsmynd Leikstjóri: Moira Armstrong Við höfum fáar upplýsingar um þessa sjónvarpsmynd og kvik- myndahandbækur geta hennar að engu. Virðist vera hér á ferð býsna vönduð saga sem greinir frá mistök- um á fæðingardeild þar sem börn- um er ruglað saman. Þegar sann- leikurinn kemur í Ijós reynist hæg- ara sagt en gert að leiðrétta mistök- in og senda króana til sinna réttu foreldra. Stöð 2 kl. 00.15 NÆTURKOSSAR*** (Kiss the Night) Áströlsk bíómynd frá 1988 Leikstjóri: James Ricketson Adalhlutverk: Patsy Stephens, Warwick Moss og Gary Aron Cook Vönduð smíð frá Astralíu. Spennu- mynd sem er engan veginn við hæfi barna. Segir hér frá ungri stúlku sem lifir djörfu næturlífi og veitir blíðu sína endurgjaldslaust hverjum sem vill. Hún tengist einum við- skiptavini sínum tilfinningaböndum en það reynist henni dýrkeypt þeg- ar hún kemst að ýmsu vafasömu úr fortíð mannsins. FOSTUDAGUR 27. júlí Stöö 2 kl 21.20 LESTARRÁNIÐ MIKLA**1/2 (The Great Train Robbery) Bresk bíómynd frá 1978 Leikstjóri: Michael Crichton Adalhlutverk: Sean Connery, Donald Sutherland og Lesley-Anne Down Sean Connery er hér í hlutverki glæsilegs en ófyrirleitins náunga sem velur sér félaga til að hjálpa sér við að ræna gullstöngum úr járn- brautarlest. Til þess að ráðabruggið heppnist þurfa þau að bregða sér í ýmis dulargervi og hafa heppnina með sér. Þetta er viðfelldin útfærsla á gamalli glæpasögu en verður stöku sinnum á í messunni hvað varðar hraða og smekkvísi. Ríkissjónvarpiö kl. 21.55 TUNGLSKINS- SKÓLINN**'/Í (Full Moon High) Bandarísk bíómynd frá 1981 Leikstjóri: Larry Cohen Aöalhlutverk: Adam Arkin, Alan Arkin, Ed McMahon og Elizabeth Hartman Sé skopskynið í lagi má hafa ærið gaman að þessari fáránlegu skop- mynd sem er bráðfyndin á köflum. Fjallar hún um fótboltahetju (Alan Arkin) sem leggur land undir fót ásamt föður sínum og halda þeir feðgar til Transylvaniu. A ferðalagið eftir að hafa mikil áhrif á þá. Litríkar persónur og furðuleg grínatriði gera myndina að bærilegri afþreyingu. Stöð 2 kl. 23.30 HÚS SÓLAR- UPPRÁSARINNAR** (House of the Rising Sun) Ný bandarísk bíómynd Leikstjóri Greg Gold Adalhlutverk: John York, Bud Davis og Deborah Wakeham Fréttakona í Los Angeles fær þær upplýsingar hjá vændiskonu að eitt- hvað stórt sé í aðsigi í undirheimum borgarinnar. Fréttakonan lætur ekkert aftra sér frá góðri frétt og dulbýr sig sem vændiskonu og stofnar lífi sínu í hættu í samskiptum við stórglæpona. Þetta er spennu- mynd sem töluvert hefur verið lagt í en útkoman er samt ekkert sérstök þrátt fyrir sannfærandi handrit og góða myndatöku. Frumleikann skortir. Rokkstjörnurnar Tina Turn- er og Bryan Ferry voru fengin til að ljá myndinni kraftmikla rokkmúsík sína. Stöö 2 kl. 01.00 LEYNIFÉLAGIÐ** (The Star Chamber) Bandarísk bíómynd frá 1983 Leikstjóri: Peter Hyams Adalhlutverk: Michael Douglas, Hal Holbrook og Yaphet Kotto Osköp venjuleg sakamálamynd um ungan dómara sem kemst á snoðir um leynilegt réttarkerfi sem þrífst á bak við tjöldin. Það skortir ekki að myndin er vel gerð og vel leikin en öll framvinda sögunnar er fyrirséð og því kemur ekkert á óvart. LAUGARDAGUR 28. júlí Stöð 2 kl. 14.30 Á UPPLEIÐ**1/z (From the Terrace) Bandarísk bíómynd frá 1960 Leikstjóri: Mark Robson Adalhlutverk: Paul Newman og Joanne Woodward Paul Newman leikur hér fyrrv. stríðshetju sem reynir að ávinna sér virðingu föður síns með því að ná góðum árangri í fjármálaheiminum. Þetta verður til þess að hann van- rækir eiginkonu sína og hún leitar á önnur mið. Myndin er byggð á skáldsögu James O’Hara. Þung- lamalegt fjölskyldumelódrama. Vel leikin en skortir neistann sem þarf til að halda athyglinni vakandi og skifja eitthvað eftir sig. Ríkissjónvarpið kl. 21.10 DRENGURINN SEM HVARF**1/2 (Drengen der forsvandt) Dönsk bíómynd Leikstjóri: Ebbe Nyvold Aðalhlutverk: Mads Nielsen, Kirsten Olesen og Millie Reingaard Vönduð dönsk mynd við allra hæfi, þar sem segir frá þrettán ára strák sem er langþreyttur á erjum for- eldra sinna og ákveður að strjúka að heiman. Stöö 2 kl. 21.20 SAGAN UM KAREN CARPENTER** (The Karen Carpenter Story) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1989 Leikstjóri: Joseph Sargent Aðalhlutverk: Cynthia Gibb, Mitchell Anderson og Peter Micha- el Goetz Þessi mynd er byggð á raunveruleg- um atburðum um hina kunnu söng- konu Karen Carpenter sem þjáðist af megrunarveiki og varð það henni að aldurtila. Greint er frá uppgangi hennar til frægðar og frama og bar- áttunni við þennan óvenjulega sjúk- dóm, lystarstol. Eins og gefur að skilja prýða mörg lög Carpent- er-systkinanna myndina sem er hin þokkalegasta að allri gerð. Ríkissjónvarpiö kl. 22.30 HÆTTULEG ÁSTRÍÐA*1/2 (Dangerous Affection) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1987 Leikstjóri: Larry Elikann Aðalhlutverk: Judith Light, Jimmy Smits og Audra Lindley Spennumynd í gamansömum tón um barnshafandi konu og son henn- ar sem eru hundelt af morðingja sem drengurinn einn veit hver er. Slarkfær afþreying. Stöð 2 kl. 22.55 HUGARFLUG** (Altered States) Bandarísk bíómynd frá 1980 Leikstjóri: Ken Russel Aðalhlutverk: William Hurt og Blair Brown Sálarlífeðlisfræðingur notar af- skynjunarhólk til að komast á frum- stig mannlegrar þróunar og í því ástandi fer hann á stúfana til að drepa. Þetta er skondið tilbrigði við Jekyll og Hyde. Hér er snyrtilega að öllu staðið en-sálarlífeðlisfræðin í sögunni er öllu forvitnilegri en myndin sjálf sem er nokkuð brokk- geng. Stöð 2 kl. 01.20 ALCAP0NEi (Capone) Bandarísk bíómynd frá 1975 Leikstjóri: Steve Carver Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, John Cassavetes og Susan Blakely Glæpaforinginn Al Capone hefur löngum verið kvikmyndagerðar- mönnum hugleikið viðfangsefni. Hér er saga Capone útfærð í gróða- skyni og megináherslan lögð á held- ur hvimleitt ofbeldi. SUNNUDAGUR 29. júlí Stöö 2 kl. 13.00 FULLT TUNGL***1/2 (Moonstruck) Bandarísk bíómynd frá 1987 Ijeikstjóri: Norman Jewison Aðalhlutverk: Cher, Olympia Dukakis, Nicolas Cage, Danny Ai- ello, Julie Bovasso og Feodor Chaliapin Afburða góð og raunsönn mynd um vandamál innan fjölskyldu sem er af ítölsku bergi brotin. Vandaður leikur og handrit frábært. Myndin nældi í þrenn Óskarsverðlaun á sín- um tíma og það verðskuldað. Bestu meðmæli. Ríkissjónvarpiö kl 20.30 GUÐ ER EKKI FISKMATSMAÐUR** (God is not a Fish Inspector) Kanadísk sjónvarpsmynd Leikstjóri: Allan A. Kroeker Aðalhlutverk: Ed McNamara og Rebecca Toolan Litlar upplýsingar er að hafa um þessa kanadísku sjónvarpsmynd sem gerð er eftir smásögu vestur-ís- lenska rithöfundarins W.D. Valgard- son. Gerist sagan á elliheimili í Gimli og segir frá Fúsa nokkrum Bergman sem er ekki á því að gefast upp fyrir Elli kerlingu. Við gefum henni tveggja stjörnu meðmæli fyrirfram svona vegna íslandstengslanna og frumlegrar nafngiftar. Stöð 2 kl. 22.45 S0FÐU RÓn PRÓFESSOR ÓLÍVER*1 (Sleep Well Professor Oliver) Bandarísk bíómynd frá 1989 Leikstjóri: John Patterson Aðalhlutverk: Louis Gosset Jr. og Shari Headley Óhugguleg spennumynd um pró- fessor nokkurn sem fer að rannsaka óupplýst sakamál sem hann telur að eigi rætur meðal djöfladýrkenda. Engan veginn við hæfi barna. Mér hefur aldrei á ævinni liðið jafnhræðilega. Það hefur nefnilega eitthvað ægilegt komið fyrir hann Magga og 'ég fæ ekki nokkurn stuöning frá fjölskyldunni, þó ég sé að drepast á sálinni. Pabbi og mamma hafa verið alveg viðurstyggileg við mig frá því ég kynntist Magga, en eftir að við trú- lofuðum okkur hafa þau bókstaf- lega verið í herferð gegn honum, greyinu. (Auðvitað er hann kannski ekki nákvæmlega eins og foreldrar vilja helst að tengdasynir séu, en ég elska hann út af lífinu og þá finnst mér að þau ættu a.m.k. að reyna að láta sér líka við hann. En þau bara leita uppi gallana á honum með stækkunargleri.) Við Maggi höfum ekki enn fengið samþykki fyrir því að búa saman í herberginu mínu og það hefur ékki verið sjéns að fá mömmu til að plana brúðkaupið með mér. Það átti sko að vera í sept- ember, en núna er ég ekki viss hvað gerist. Það er soldið erfitt að undir- búa brúðkaup, þegar brúðguminn er horfinn sporlaust af yfirborði jarðar... Þetta byrjaði allt með því að lögg- an mætti hérna á tröppurnar um síðustu helgi, þegar við Maggi vor- um í ellefubíó. Yfirlöggan sagðist vera að rannsaka dópmál og hann þyrfti að spjalla aðeins um það við Magga. Pabbi trompaðist alveg og sat fyrir okkur, þegar við komum blásaklaus heim úr bíóinu og ætluð- um að kela smá í bílnum fyrir utan. Sá gamli vippaði upp hurðinni, dró mig út með harðri hendi og sagði Magga að löggan væri að leita að honum og það væri best fyrir hann að láta ekki sjá sig hér aftur. Aum- ingja Magga dauðbrá náttúrulega, þó hann sé að sjálfsögðu sárasak- laus, og bíllinn barasta hvarf á tveimur hjólum fyrir næsta horn. Ég hef ekkert séð hann síðan, en dóplöggurnar eru alltaf hringj- andi og komandi og allt. Þær segja, að Maggi hafi sent „kærustuna sína" í kókaíninnkaupaferð til Amster- dam og hún hafi verið gripin glóð- volg í tollinum fyrir helgi. En það getur sko ekki verið, því Maggi er harðtrúlofaður mér með hring og öllu saman! Það er greinilega verið að rugla honum saman við ein- hvern annan gaur, þó löggan þykist vera alveg pottþétt á þessu og pabbi og mamma trúi þeim eins og fífl. Ég má varla vera að því að vera reið út í gamla settið, vegna þess að ég hef svo svakalegar áhyggjur af honum Magga. Hann er gjörsam- lega gufaður upp og vinir hans verða voða vandræðalegir, þegar ég spyr um hann. Ég er skíthrædd um að löggan hafi tekið hann í yfir- heyrslu og slasað hann hryllilega eða eitthvað. Maður hefur nú oft séð í bíó hvernig löggur fara með alsak- lausa menn, sem þeir yfirheyra þeg- ar enginn sér til. Ég fæ svoleiðis fer- legar martraðir, þar sem löggur henda Magga ósjálfbjarga út í Hafn- arfjarðarhraun eða Þingvallavatn. Það er á mörkunum að ég þori að sofna á kvöldin, maður. Eg meina það. .. Núna er ég búin að panta tíma hjá forseta íslands og ætla að biðja hana um að láta rannsaka hvað varð um Magga minn, blásaklausan borgar- ann í þessu lýðræðisríki. Amma á Einimelnum ætlar m.a.s. að koma með mér, því hún er alvön að mæta hjá forsetanum út af ýmsum málum.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.