Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 2

Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 2
‘^Pmmtóaagtir'lS^fe^í’fððo c2 ANNA KRISTINE MAGNÚSDÓTTIR EINAR ÓLASON LJÓSMYNDARI Nýjasti dansinn, barna-lambada. Börnin höföu aðeins einu sinni hist til að æfa dansinn fyrir hátíðina, en þau hafa greinilega tekið vel eftir! Ungi maðurinn á þessari mynd er ekki aldeilis að sýna fyrirlitningu sína með því að reka út úr sér tunguna. Hann fer þvert á móti að dæmi hljómsveitarmanna sjálfra, sem hafa gert þessa athöfn að eins konar vöru- merki. Til hægri: Hermann Ragnar afhjúpaði mynd af fyrstu heiðurslistamönnum dansskólans við vígslu nýja húsnæðisins. Hljómsveitin T T lllvviJlHtlVv hélt fræga hljómleika í Reiðhöll- inni á föstudag og laugardag. Haft var eftir lögreglumönnum sem voru viðstaddir að hávaðinn hefði verið geysilegur. Þessar myndir sem hér birtast sýna að minnsta kosti að stemmningin var gríðar- leg. Þó eru þessar myndir teknar á seinni hljómleikunum, þegar aðal- söngvarann vantaði. Dansskóli Hermanns Ragnars Stefánssonar hóf 33. starfsár sitt um helgina í nýjum húsakynn- um í Faxafeni 14. Þangað var boðið nemendum, foreldrum þeirra og öðrum velunnurum skól- ans og var skemmtunin vel sótt. Nokkrir nemendur skólans sýndu dansa, þeirra á meðal hinn nýja barna-lambada. Að sögn Hermanns Ragnars Stefánssonar ákvað stjórn skólans að velja sérstaka heiðurslista- menn, en sú hugmynd er upprunalega erlend og tíðkast þetta til dæmis í Þýskalandi og Dan- mörku. Er þá valið fólk eða einstaklingur sem hefur gengið vel á listabrautinni og hefur fram- komu sem þykir til eftirbreytni. „Þótt þessi hugmynd sem slík sé sótt til útlanda hef ég oft hugs- að um að félagasamtök eða hópar sem hittast reglulega eigi að veita athygli og styðja við bakið á þeim listamönnum sem vel gengur," segir Hermann Ragnar. „Við í stjórn skólans ákváðum því að velja þann listamann eða listafólk sem veriö hefur áberandi á þessu ári. Fyrstu heiðurslistamenn skól- ans eru þau Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson.' Hermann Ragnar segir aö þeir sem valdir séu hverju sinni þurfi ekki endilega aö vera tónlistarfólk; alveg eins geti verið um að ræöa listmálara, leikara eða aðra listamenn. Á sunnudaginn var af- hjúpuð mynd af heiðurslistamönnunum en svo óheppilega vildi til að þau Sigríður og Grétar voru veðurteppt á ísafirði og gátu því ekki mætt til að taka á móti heiðursskjali og gullmerki skólans. H Börnin sem unnu keppnina í Lækjargötu á 17. júní, um hver næði best hreyfingum Sigríðar og Grétars í Eurovision-keppninni, sýndu 0|§||||Esfs®|^. þann dans undir laginu „Eitt lag enn" og sagði Hermann að þaö lag ■r # ' yrði mikið notað í skólanum í vetur: ■T „Við munum til dæmis kenna tvo dansa við lagið „Eitt lag enn" — jive og boogie," segir hann. „í vetur verður náið samstarf milli skólans, Sigríðar og Grétars og koma þau til með að líta inn í kennslustundir ásamt því aö koma fram á eða vera viðstödd hátíöir skólans." Börnin í Dansskóla Hermanns Ragnars, sem biöu spennt á sunnu- daginn eftir að sjá átrúnaðargoðin sín, geta því strax farið aö hlakka til að sækja danstimana, því aldrei er að vita í hvaða tíma W' ___ það verður sem þau Sigríður og Grétar heilsa upp á nemendurna. Hafiö þiö áður séö þríhentan gítarleikara? Hrifningin leynir sér ekki, þrátt fyrir fjarveru aðalsöngvarans. Öryggisverðir vökv- uðu mannskapinn reglulega til aö koma í veg fyrir að fólk fengi aðsvif. m ~ 1 :■ . ■ rltt | r . Jj 'íy ; ,'f? V » i : Jm jH

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.