Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 27

Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 27
rvfvr* ► +,- rr«: n Fimmtudagur 13. sept. 1990 ac 27 BRUNAVORÐURIKAUFORNIU: Einsfakt að kynnast ísiensku fjölskySdulífí unni á íslandi og horfði á öldurnar skella á klettunum fannst mér ég vera kominn til Ha- waii. Það eru líka margir staðir sem eru mjög líkir. Fólkið er einnig mjög svipað. — Ég dvaldi á Islandi í tólf daga í þessari fyrstu ferð en við höfðum enga viðdvöl í Reykjavík. Við héldum beint áfram til Vestmannaeyja," seg- ir hann á góðri íslensku. Tveimur árum síðar ákvað hann að þiggja boð foreldra Einars vinar síns um að koma til íslands til lengri dvalar: ,,Ég get ekki sagt að ég hafi hrifist svo af landinu að ég hafi orðið að koma aftur,“ segir hann brosandi. „Það var fremur það að ég vildi prófa eitthvað nýtt. Pabbi Einars hafði sagt mér að hann myndi geta útvegað mér vinnu. Hann stóð við það og hafði talað við Hörð Adolfsson, eiganda Skútans. Það var mjög skemmtilegt að lenda í Vestmannaeyjum," segir hann brosandi. „Þegar foreldrar Einars höfðu heilsað mér og við vorum á leið út úr flug- stöðinni gekk Hörður að mér og heilsaði mér. Ég hafði hitt hann augnablik í fyrri ferð- inni en þekkti hann ekkert. Ég hélt að hann væri þarna að sækja matarbirgðir eða annað fyrir veitingahúsið, en hann var þá viðstadd- ur í þeim tilgangi að heilsa mér og tryggja að ég kæmi að vinna hjá sér! Hann var mér sér- lega góður og ég er feginn að ég fór að vinna hjá honum. Eg fór að vinna í Skútanum sem þjónn og eftir fyrstu vikuna kunni ég nú ekki mjög mikið í íslensku. Þá bað t.d. maður mig um reikning en ég hélt að hann væri að spyrja hvort rigndi, en það orð hafði ég heyrt daginn áður í úrhellisrigningu. Ég hljóp út að glugga, opnaði hann og hallaði mér út til að gá hvort rigndi. Ég gleymi aldrei svipnum á gestinum! — Það var svolítið hallærislegt að þurfa sífellt að útskýra fyrir viðskiptavinun- um að ég kynni ekkert í íslensku. Þjónn á ís- lensku veitingahúsi sem ekki skilur gest- ina ...!“ Hann segir þó að allir hafi sýnt sér fyllsta skilning og talað við sig ensku: „Þeir sem voru feimnir við að tala ensku þögðu bara þangað til ég kom með íslending til þeirra!“ Til starfa með löndunargenginu Hann rifjar upp siglingar í kringum eyjarn- ar, útreiðartúra og lundaveiðar: „Hörður var mjög almennilegur við mig og sýndi mér allt sem hægt var að sjá. Ég hjálpaði honum að búa til matseðil á ensku og þetta var skemmtilegur tími. Launin hjá þjónum eru mjög Iiá hérna, en aftur mjög lág á íslandi. Þetta starf mitt gerði það að verkum að ég missti af ýmsum stórum hátíðum eins og sjó- mannadeginum og þjóðhátíð, því það voru þeir dagar sem mest var að gera á veitinga- staðnum. Ég fór á böll um hverja helgi og kynntist þannig fjölda manns. Einn þeirra sem ég kynntist starfaði hjá Samfrosti og þangað vantaði fólk í vinnu. Mér fannst freistandi að prófa eitthvað nýtt, því það var í rauninni ekkert ólíkt að vera þjónn í Vest- mannaeyjum eða í Kaliforníu." Hann segir á íslensku: „Ég var í löndunar- genginu. Fyrirtækið átti sjö togara og við unnum við að afferma þá. Vinnudagurinn var ekki mjög langur — nema þegar þeir komu inn með 200 tonn af fiski! Það var eitt af því áhugaverðasta sem ég vann við á ís- landi." Hann bjó hjá foreldrum Einars vinar síns, Elsu Einarsdóttur og Sigurði Guðmunds- syni, og kynntist þvj systkinum Einars, Jón- ínu, Elísabetu og Arna, sem keppti í sundi fyrir íslands hönd á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984. Hann segir að þótt á því heim- ili hafi allir viljað allt fyrir sig gera hafi sér fundist nauðsynlegt að búa út af fyrir sig: „Ég leigði íbúð af strák sem ég hafði kynnst hjá Samfrosti. Það var líka ný reynsla. Hér eru íbúðir ýmist leigðar með húsgögnum eða án — en það er alltaf ísskápur og eldavél í öllum íbúðunum! Þegar ég leit inn í galtóma íbúðina hélt ég að þetta væri bara tímabund- ið og sá sem leigði mér myndi mæta með öll rafmagnstækin. Annað sem kom mér á óvart var að þurfa að greiða ársleigu fyrirfram. Ég bjó þó ekki í þeirri íbúð nema í um tvo mán- uði því eigandinn þurfti að fá íbúðina sína aftur. Ég hafði tekið allt í gegn, rifið af vegg- fóður og málað . . . En hann endurgreiddi mér þó!“ Mikils virði að kynnast íslensku heimilislífi Á þessum tíma hafði Ian eignast íslenska kærustu, Rakel Óskarsdóttur, og segist hafa eytt mestum hluta sólarhringsins á heimili hennar: „Mér var alltaf boðið þangað í mat og svaf þar meira og minna. Foreldrum hennar, Ingu Andersen og Óskari Þórar- inssyni, fannst fáránlegt að ég væri að borga húsaleigu fyrir íbúð sem ég var sjaldan í og þau buðu mér að flytja til sín. Þar bjó ég í átta mánuði, eða þar til árið mitt á íslandi var á enda. Það, að kynnast íslensku fjöl- skyldulífi, fannst mér eitt það mikilvægasta við þessa dvöl mína á íslandi. Á heimilinu bjuggu einnig systkini Rakelar og hálfsystk- ini, þau Sindri Óskarsson, sem er mjög góður golfleikari, Kristín Kjartansdóttir og Knútur Kjartansson. Þröstur, bróðir Rakelar, bjó hins vegar á Akureyri á þessum tíma þar sem hann starfaði með handbolta- liði. Þarna kynntist ég því óvenjulega fjöl- skyldumynstri að heimilisfaðirinn væri fjar- verandi fimm daga vikunnar og móðirin sæi um allt. Svona þekktist ekki hér í Bandaríkj- unum eða á Hawaii. Sjómenn í Monterey eða Hawaii eru sjaldan lengur í burtu en einn dag. En mér fannst ágætt að búa í bæ þar sem konur voru í meirihluta alla vikuna!" segir hann hlæjandi. íslendingar hafa ekki glatað hefðunum Annað sem hann nefnir að sér hafi þótt gaman að kynnast er hversu fast Islendingar halda í hefðir: „Næstum allir undirbúa og halda jól og páska á sama hátt,“ segir hann. „Hér í Bandaríkjunum sér maður hluta af alls konar siðum. Það hafði mikil áhrif á mig að kynnast þessum hefðum íslendinga. Það sama gildir um fjölskyldutengslin. Ég hugsa að það hafi tíðkast hér í Bandaríkjunum fyrir einhverjum tugum ára að fjölskyldur söfnuð- ust saman á stórhátíðum eins og þið gerið, en það hefur breyst. Evrópubúar, og þá kannski sérstaklega Islendingar, virðast ekki hafa glatað þessum siðum og þeir eru einstæðir, þótt ykkur finnist þeir sennilega mjög sjálf- sagðir þar sem þið þekkið ekki annað." Hann segist hafa eignast góða vini í Vest- mannaeyjum, auk Harðar Adolfssonar og Ingva Rafnssonar, sem starfaði með honum í Skútanum: „Aðrir tveir bestu vinir mínir voru Eysteinn Ómarsson og Kári Vigfús- son, sem unnu sem matreiðsjumeistarar í Skútanum. Við höldum ennþá sambandi og Eysteinn er að koma til mín í heimsókn hing- að.“ Heimjirá er nokkuð sem lan þekkir ágæt- lega: „Ég fékk heimjirá til Carmel, ekki Ha- waii," segir hann. „Ég hafði búið hér frá '79 og fannst þetta vera heimili mitt. Þegar ég fékk heimþrá á íslandi gerði ég eitt af þrennu: hringdi í einhvern, skrifaði bréf eða las bækur. Ég las margar bækur Johns Stein- beck á íslandi, en þær hafði ég aldrei lesið fyrr.“ Þegar árið var á enda flutti Ian aftur til Car- mel með kærustu sína og þau gengu þar í hjónaband. „Rakel fékk vinnu í fataverslun hér í Carmel en ég gerðist aftur þjónn. Við skildum tveimur árum síðar og Rakel býr núna í Palo Alto, þar sem Stanford-háskól- inn er. Hún vinnur fyrir Macy’s þar sem hún er yfirmaður kvenfatadeildar og stendur sig mjög vel. Já, við höfum alltaf samband," seg- ir hann aðspurður. Mývatn er fallegt í sjónvarpinu . .. Ian réð sig til starfa hjá brunaliðinu í Car- mel fyrir tveimur árum. „Ég byrjaði í hluta- starfi en fann fljótt að ég hafði mikinn áhuga á þessu. Ég settist því á skólabekk og lærði um starf brunavarða, tók gráðu í faginu og er ánægður í þessu starfi." Hann segist alveg ákveðinn í að heim- sækja ísland á næsta ári: „Mér leið mjög vel í Vestmannaeyjum," segir hann. „Ég vildi óska þess að ég gæti heimsótt eyjarnar árlega. Mig langar líka að sjá aðra staði á íslandi og á næsta ári fæ ég 38 daga sumarfrí og stefni þá að því að fara til íslands. Flestir skipta sumarfríinu sínu eitt- hvað niður, en mér veitir ekki af þessu langa fríi til að gera það sem ég vil á Islandi. Ég ætla að ferðast um landið. Mig langar mikið að sjá Mývatn — það virðist svo fallegt í sjón- varpinu —, mig langar að heimsækja Akur- eyri og ísafjörð. Síðan langar míg í ferð um hálendið og svo er ég ákveðinn í að vera á þjóðhátíð í Eyjuni." Einn annan stað nefnir harin, Jökulsár- lón, og vitnar þar í James Bond-myndina. Þegar ég segi honiím að ég hafi leikið þar hlutverk í sjónvarpsþáttum í fyrra en verið klippt út af Þjóðverjum segist hann þekkja þá tilfinningu: „Ég fékk aukahlutverk í Turn- er & Hootch með Tom Hanks í aðalhlut- verki. Ég var þó ekki klipptur alveg út, held- ur bara frá hálsi!!!! Hér eru oft teknar myndir og fyrirtæki hér í bænum sér oft um tökur. Þeir fá þá gjarnan íbúa í aukahlutverk, en reynsla mín af því virðist ekki vera ábending til mín um að snúa mér að leiklist!" Við ströndina í Carmel. Þar hefur lan búið í nokkur ár en hann er uppalinn á Hawaii.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.