Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 11

Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 13.' sept. 1990 - > ■■ ^ PRESSU MOJUAR c ^Vtefán Friðfinnsson, aðstoð- armaður utanríkisráðherra, fer hörðum orðum um DV og blaða- mann þess. DV birti á mánudaginn frétt þar sem Stefán taldi ómaklega vegið að utanríkisráðuneytinu og lét hann þau orð falla í viðtali sem birtist í DV daginn eftir að það væri bæði blaðinu og blaðamanninum til stórskammar að hafa birt þessa frétt. Svo vill hins vegar til að stjórn Blaðs hf. hefur nýlega ráðið þenn- an sama blaðamann ritstjóra PRESSUNNAR frá næstu mánaða- mótum. Stjórnarformaðurinn heitir reyndar Stefán Friðfinnsson. Nú velta menn því fyrir sér hvort stjórn- arformaðurinn muni ekki taka upp hanskann fyrir nýráðinn ritstjóra sinn og segja nokkur vel valin orð við aðstoðarmann utanríkisráð- herra í einrúmi... L ■ Heimildir okkar úr flugbrans- anum herma, að Arnarflugsævin- týrið sé úti og nær óhugsandi að flugfélagið fái aftur flugleiðirnar. Óttast nú margur að Flugleiðir hreppi endanlega flugleiðir Arnar- fiugs og öll fargjöld hækki á svip- stundu. Reyndar neyddust Flugleið- ir til að draga til baka beiðni sína um hækkun á fargjöldum á dögunum til að beiðnin liti ekki út sem harðsvír- uð græðgi meðan fjörbrot Arnar- flugs færu fram. Hins vegar hefur ríkt ósamkomulag milli forráða- manna Arnarflugs um hvernig halda skyldi á málum á undanförn- um mánuðum. Aðaleigendur Arn- arflugs munu hafa lagt á það ofur- kapp að láta Arnarflug fara á haus- inn en fá samgönguráðherra til að samþykkja flutning á flugleiðum Arnarflugs yfir á ísflug, sem er dótturfyrirtæki Arnarflugs. Þannig hefðu aðaleigendur Arnarflugs get- að byrjað aftur á núlli með hinar gömlu flugleiðir sínar, samninginn við KLM og framtíðarsamstarf við hið írska flugfélag Emerald Air, sem sýnt hefur seimstarfsáhuga við Arnarfiug. Sumir stjórnenda Arnar- flugs munu ekki hafa verið sáttir við þessa leið og viljað halda áfram að berjast fyrir Arnarflugi sem slíku. Nú er sagt að þetta ósamkomulag um leiðir hafi að öllum líkindum valdið því að hvorug leiðin var farin. Á sama tíma munu Flugleiðamenn hafa notað tímann vel og unnið sína heimavinnu og náð góðum sam- böndum í samgönguráðuneytinu. Því sé nú aðeins tímaspurning hve- nær Arnarflug fari í gjaldþrotaskipti og flugleiðirnar verði endanlega yf- irteknar af Flugleiðum. . . I síðustu viku var haldin í Reykja- vík heilmikil samnorræn ráðstefna um vandamál þau sem stafa af neyslu áfengis og vímuefna. Til ráð- stefnunnar voru boðaðir fulltrúar flestallra stofnana og samtaka sem fást við þessi vandamál — nema SÁÁ, sem hvergi fékk að koma ná- lægt. Gárungar halda því fram að ástæðan sé sú að SÁÁ hafi fátt til málanna að leggja og geti ekki sýnt fram á neitt — nema árangur . . . Stórleikur á Hlíðarenda miðvikudaginn 19. september kl. 18.30 Valwr — FH MÆTUM ÖLL VniUR €R íiisiÁI LIDID Allt að 12 mánaða greiðslukjör VONDUD LEISUREWISE HEIMIUS - án útborgunar Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum afborgunarkjörum. Korthafar Vísa og Euro geta nýtt sér raðgreiðslur og fengið Leisurewise þrekhjól á ailt að 12 mánaða afborgunartímabílí. Staðgreisluverð aðeins kr,Ít.ÍÖD, Afborgunarver𠧫r«2§.S®í>» Héluin elntilgí - Röðrarvéiar. - Hlaupabrettí. - Leikfímirimla o.fl. Leisurewise þrekhjólin eru létt, sterk, meðfærileg og sértak- lega ætluð til heimilisnota. Reglubundin notkun þrek- hjóisins stuðlar að auknu bióðstreymí, styrkir hjarta og lungu og heldur vöðvum og liðum 1 þjálfun. Og á Letsurewise þrekhjóli þarftu aldrei að hafa áhyggjur af veðrinu! Lelsarewl®© þr«kli|Öliii eru iil» étal kostum: « Tölvu sem mæiir m.a. vegaiertgd og kalóríubrennslu. ■ Sætið er stiiianlegt, stöðugt og mjúkt. « Átaksþyngdín er stillanieg. » Ólar yfir ristar. «JÖfn spyrna. » Plastpúðar verja góiftð. Breska verslunarfélagið Faxafeni 10 - Hú$i Framtiðer 108 Reykjavik Pöntunarsími: 9P8226S 11 01 l' c *.’

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.