Pressan - 13.09.1990, Blaðsíða 32
Iðalfundur Heimdallar, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna, var
haldinn í gærkveldi. I síðustu viku
var í gangi mikil smölun fyrir fund-
inn bæði af hálfu stuðningsmanna
formannsins, Birgis Armannsson-
ar, og andstæðinga hans, sem hugð-
ust tefla fram Lárusi Blöndal. Eftir
helgina var hins vegar hætt við öll
átök og saminn friður milli þessara
stríðandi fylkinga. Málamiðlunin
felst í því að Birgir verði áfram for-
maður en Lárus fái sæti í stjórninni
ásamt einhverjum fleirum úr hópi
stuðningsmanna. Lárus mun reynd-
ar hafa óskað eftir stól varafor-
manns, en um það náðist ekki sam-
komulag. Stuöningsmenn Birgis
telja þetta vísbendingu um að and-
stæðingum hans hafi ekki gengið
smölunin nógu vel, en á stuðnings-
mönnum Lárusar er hins vegar að
skilja að ráðamönnum í flokknum
liki ekki alls kostar að efna til stór-
átaka í Heimdalli rétt fyrir kosning-
ar. Svo mikið er víst að samkomu-
lagið milli hinna stríðandi fylkinga
var handsalað í viðurvist Þorsteins
Pálssonar formanns og Davíðs
Oddssonar varaformanns . . .
■ eyndar er það ekki Lárus
Blöndal heldur Árni Sigfússon
borgarfulltrúi sem er hinn óskoraði
leiðtogi andstæðinga Birgis Ár-
mannssonar i Heimdalli. Árni hef-
ur verið orðaður við borgarstjóra-
embættið þegar Davíð Oddsson
fer alfarinn yfir í landsmálapólitík-
ina. Davíð sjálfur er hins vegar sagð-
ur vilja hafa hönd í bagga með vali
eftirmanns síns og er ekki talinn sér-
staklega hrifinn af Árna. Það virðist
styðja þessa tilgátu að meðal ein-
örðustu stuðningsmanna Birgis Ár-
mannssonar í Heimdalli er Þor-
steinn Davíðsson, sonur borgar-
stjórans. Ef til vill bendir það í sömu
átt að það er talið hafa komið einna
harðast niður á Árna Sigfússyni að
ekki skyldi viðhaft prófkjör þegar
raðað var á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Flestir sem til þekkja virðast á þeirri
skoðun að í prófkjöri hefði Árni lent
mjög ofarlega . . .
rmbætti Inspectors scolae í
Menntaskólanum í Reykjavík
þykir fylgja talsverð virðing. Nú
gegnir þessu embætti Þorsteinn
Davíðsson. Hann fetar þar í fótspor
föður síns, Davíðs Oddssonar
borgarstjóra, sem einmitt var in-
spector fyrir réttum 20 árum . ..
■ Lögbirtingablaðinu sjáum við
að nú er loksins lokið gjaldþrota-
skiptum á búi Sjónvarpsbúðarinn-
ar, sem einu sinni var til húsa í Lág-
múlanum. Engar eignir fundust í bú-
inu þannig að lánardrottnar fengu
ekki krónu í sinn hlut. Skuldir voru
samtals tæpar 50 milljónir króna.
Aðaleigandi Sjónvarpsbúðarinnar á
sinni tíð, Þóroddur Stefánsson, er
hins vegar sagður aka um á ágætri
bifreið af gerðinni Mercedes
Benz.. .
lu hefur kvisast að Edda
Andrésdóttir fái það hlutverk á
Stöð 2 að sjá um nýja tegund viðtals-
þátta sem reyndar eru sniðnir eftir
enskri fyrirmynd. Þar í landi nefnast
þættirnir „Here is your life" og
hafa notið feikimikilla vinsælda.
Sömu sögu er að segja úr Svíþjóð
þar sem þessi uppskrift hefur verið
notuð um allmörg ár. Sá galli þykir
hins vegar á gjöf Njarðar að erfitt
kunni að reynast að koma viðmæl-
endum á óvart í svo litlu samfélagi
sem því íslenska. Að koma viðmæl-
andanum í opna skjöldu er nefni-
lega það sem allt byggist á. Hann
fær ekki að vita um þáttinn fyrr en
rétt áður en útsending hefst og þess
eru dæmi að menn hafi verið boð-
aðir í sjónvarp undir allt öðru yfir-
skini. Stjórnandi þáttarins er hins
vegar vel undirbúinn og þekkir ævi-
sögu viðmælandans býsna vel. í
þættinum eru svo leiddir fram á
sjónarsviðið gamlir vinir og kunn-
ingjar sem viðmælandinn hefur
ekkí séð árum eða áratugum sam-
an. Það verður vissulega spennandi
að sjá hvernig Eddu tekst upp við
gerð þátta af þessu tagi. . .
■ eykjavíkurborg mun ekki
ætla að taka þátt í kaupstefnu sem
hefst í Ungverjalandi í næstu viku.
Ætlunin er að ísland og Finnland
verði einkum í sviðsljósinu á kaup-
stefnunni. í tilefni af fyrirhuguðu
samstarfi íslendinga og Ungverja á
sviði jarðvarma og hitaveitu var
Hitaveitu Reykjavíkur boðið að
vera með. Jóni Sigurðssyni iðnað-
arráðherra og Davíð Oddssyni
borgarstjóra var sérstaklega boðið
til kaupstefnunnar. Af einhverjum
ástæðum munu borgin og hitaveit-
an ekki ætla að þiggja boðið. Sú
ákvörðun mun komin frá Davíð
sjálfum og fylgir sögunni að hann
hafi hætt við þegar hann komst að
raun um að iðnaðarráðherra væri
einnig boðið . . .
pinnamat ofan í 20 manns og okkur
er sagt að reikningurinn hafi hljóð-
að upp á 50 þúsund krónur . . .
b
'ýflugnadrottningin danska,
Lis Petersen, sem hér var á ferð í
síðustu viku til að kynna íslending-
um býflugnagel, er sögð fremur
óhress með viðtökur íslenskra fjöl-
miðla. Hún boðaði til blaðamanna-
fundar og hugðist veita fjölmiðla-
fólki pinnamat og hvítvín. Til að
geta áætlað hversu mikill matur
færi ofan í fólk við þetta tækifæri
var hringt á alla fjölmiðla og frétta-
stjórar spurðir hvort þeir hygðust
senda mann. Svör voru í langflest-
um tilvikum jákvæð. Þátttakan var
hins vegar ekki í samræmi við svör-
in, því auk blaðamanns PRESS-
UNNAR mættu einungis blaða-
menn frá íþróttablaðinu og Vik-
unni. Þessu til viðbótar sendi svo
Morgunblaðið ljósmyndara. Bý-
flugnadrottningin sat því uppi með
f
I yrirhuguð uppreisn í Dags-
brún miðar fyrst og fremst að því að
steypa Guðmundi J. Guðmunds-
syni sem formanni. Er nú talið að sú
hallarbylting gæti líklegast tekist. Ef
hin gamla forysta Dagsbrúnar hryn-
ur er álitið mjög líklegt að bylgjurn-
ar teygi sig inn í önnur launþega-
samtök og gætu haft áhrif á stöðu
Ásmundar Stefánssonar, forseta
ASÍ, en einkum formennsku Magn-
úsar L. Sveinssonar í VR. Magnús
mun liggja undir því ámæli meðal
félagsmanna sinna að hafa of lítinn
tíma í félagsstörfin sakir anna í
borgarstjórn og borgarráði...