Pressan - 13.09.1990, Side 10
10 rr
FimrrftO0ÉigliT=1G/se]it.:>,l!99ar’r'i:
Hreppurinn greip óvœnt inn í framkvœmdir
Pósts og síma ó Keilisnesi
Flutningur á möstrum og vidtökustöd Pösts
og síma af Gufunesi á Keilisnes var samþykkt-
ur, jördin leigö og teikningar tilbánar — en þá
setti staöarval álvers strik í reikninginn.
BOKADI SER ALVER
í STAÐINN!
/ apríl síðastlidnum voru ráðamenn í
Vatnsleysustrandarhreppi svo öruggir um
að álver risi á Keilisnesi (Flekkuvík) að
þeir sendu Pósti og síma bréf, þar sem
stofnunin var vöruð við áframhaldandi
samningsbundnum áformum um að reisa
nýja viðtökustöð á Keilisnesi. Inn í sam-
þykkt svæðisskipulag væri búið að setja
stórt iðnaðarsvæði ogþetta vildu þeir láta
Póst og síma vita. Stofnunin, sem varið
hafði drjúgum tíma og nokkrum fjármun-
um í leit að heppilegu svæði, varð því að
hefja leitina upp á nýtt.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÖR GUÐMUNDSSON
Póstur og sími (P&S) hafði
leitað ítarlega að svæði undir
stöðina og loks gert leigu-
samning við ríkið um 60—70
hektara á Keilisnesi, vorið
1989, á sama tíma og skrifað
var undir sölusamning við
Reykjavíkurborg um sölu á
um 90 hektara landi við Gufu-
nes — sem borgin þurfti
vegna áframhaldandi upp-
byggingar íbúðarhverfis.
Viðbótarleit með
ærnum tilkostnaði
Borgin þurfti með öðrum
orðum á landinu að halda og
þá þurfti P&S að fjarlægja
þaðan fyrirferðarmikil loft-
net. Stofnunin fór ,,í mjög
mikla könnun á nýju svæði,
enda getur svona stöð ekki
verið hvar sem er og ekki ná-
lægt truflunarvöldum. Það
fór drjúgur tími í leitina, en
við völdum loks Keilisnes og
gerðum samning við ríkið
jm leigu á landinu. Við vor-
um búnir að mæla landið og
kanna, en sem betur fer vor-
um við ekki komnir verulega
af stað með framkvæmdir",
segir Þorvarður Jónsson,
íramkvæmdastjóri tækni-
;viðs P&S. „Viðbótarleit hafði
ið sjálfsögðu aukakostnað í
ör með sér, en út úr henni
com hluti jarðarinnar Þver-
holts á Mýrum."
Reykjavíkurborg hefur
samþykkt að greiða 88%
kostnaðarins við flutning loft-
netanna, 230 milljónir af 255
milljónum.
Hvað Reykjavík nánar
snertir gæti komið til þess að
seinkun yrði á afhendingu
landsins við Gufunes. „Við
áttum að afhenda landið i árs-
byrjun 1992. Það er hætt við
að það dragist eitthvað, en
það er óvíst, kannski vinnum
við þetta upp," segir Þorvarð-
ur.
Hreppurinn
samþykkti en
sendi síðar
viðvörun
Það vekur óneitanlega at-
hygli að hreppsnefnd Vatns-
leysustrandarhrepps skuli
strax i vor hafa gripið til svo
róttækra aðgerða, sem bend-
ir til mjög mikillar bjartsýni
um að álver yrði staðsett á
Keilisnesi (Flekkuvík). Ómar
Jónsson, þáverandi oddviti
hreppsins, segir málið hins
vegar einfalt í eðli sínu.
„Póstur og sími sótti um að
setja loftskeytastöð niður á
þessum stað og það var ekk-
ert því til fyrirstöðu. Hins
vegar var síðar samþykkt
skipulag þar sem gert var ráð
fyrir iðnaðarsvæði í nágrenn-
inu. Þá varð ljóst að það gætu
hlotist óþægindi af því fyrir
Póst og síma. Við réðum þeim
því frá því að vera með loft-
netin þarna, en ef þeir vildu
það samt væri það þeirra
mál. Það er ekkert leyndar-
mál að auðvitað hafði spurn-
ingin um staðarval fyrir álver
áhrif á þetta."
Jón Gunnarsson, núver-
andi oddviti, tekur í sama
streng. „Það var tekið já-
kvætt i erindi Pósts og síma.
Síðar, þegar stofnunin sendi
teikningar af fyrirhuguðum
framkvæmdum, var komin
upp umræðan um álver og
auk þess búið að staðfesta
svæðisskipulag þarna með
iðnaðarsvæði. Undir öllum
kringumstæðum lá ijóst fyrir
að um mikla orkuflutninga
yrði að ræða á svæðinu og þá
hættu á truflunum. Þetta mál
leystist síðan í bróðerni."
Fær Póstur og sími
leiguafslátt í
staðinn?
Ekki hafa komið fram vil-
yrði frá ríkinu um að bæta
stofnuninni upp óþægindin
og viðbótarkostnaðinn.
„Það er of snemmt að segja
til um hvort ríkið kemur til
móts við okkur, t.d. í leigunni,
en það má vel vera að það
geri það. Endanlegir samn-
ingar um leiguskilmála eru
ekki fyrir hendi. Hitt liggur
fyrir að leigan á jörðinni Keil-
isnesi átti að vera tiltölulega
há miðað við að þetta var
eyðijörð, raunverulega lóðar-
leiga. Ég hygg að landbúnað-
arráðherra hafi viljað miða
við raunverulegt gangverð,
þannig að ekki liti út fyrir að
ríkið væri að láta Póst og
síma fá þetta ókeypis eða því
sem næst,“ segir Þorvarður
Jónsson.
ISLANDSMÓTIÐ f KNATTSPYRNU
Leikir í 1. deild karla: Möguleikar liðanna: Athyglisverðir leikmenn:
FRAM VALUR LAUGARDALSVELLI laugardaginn 15. sept. kl. 14 Úrslit í þessum leik koma til með að ráðast mikið af hugar- fari leikmanna. Fram er í raun- inni með pálmann í höndun- um, sigur í þessum leik dugar til þess að liðið sigri á íslands- mótinu á hagstæðari marka- tölu en KR. Spurningin er hvað Valsmenn gera. Meistaravonir þeirra eru langsóttar því fæstir eiga von á því að ÍBV eða KR tapi leikjum sínum, en það þarf að gerast til að Valur geti orðið íslandsmeistari. Stóra spurn- ingin er hvort tilhugsunin um að enda í fjórða sæti á mótinu ef leikurinn tapast færi Vals- mönnum baráttuanda. Við eðlilegar aðstæður mætti búast við hörkuviðureign þess- ara liða en margt bendir til þess að Frammarar verði ákveðnari í þessum leik, meistaratitillinn er innan seilingar. Spennandi verður að sjá hvernig ungu mennirnir spjara sig í leikjunum, Þórður Birgir Bogason, Anthony Karl Greg- ory og fleiri hjá Val, Jón Erling Ragnarsson, Baldur Bjarnason og fleiri hjá Fram. Eldri máttar- stólpar liðanna munu án efa standa fyrir sínu.
KR KA KR-VELLI laugardaginn 15. sept. kl. 14 Flest bendir til þess að KR sigri í þessum leik. KR-ingar hafa leikið mun betur en KA- menn í sumar og þessi leikur skiptir þá öllu en KA-menn engu. Sigur tryggir KR annað sætið í deildinni og hugsanlega meistaratitil ef Fram tapar stigi á móti Val. Að öðrum ólöstuðum hafa Ólafur Gottskálksson, Rúnar Kristinsson og Ragnar Mar- geirsson verið fremstir meðal jafningja í KR-liðinu undanfar- ið. Athygli vekur að Pétur Pét- ursson hefur leikið undir getu í sumar en Atli Eðvaldsson stóð sig vel á móti Skagamönnum í síðasta leik. Eins og í flestum liðum má finna efnilega ein- staklinga í röðum KA þó að ekki hafi gengið vel í sumar. Framherjinn Þórður Guðjóns- son og varnarmaðurinn Stein- grímur Birgisson þykja efnileg- ustu menn liðsins um þessar mundir.
ÞÓR VfKINGUR AKUREYRI laugardaginn 15. sept. kl. 14 Ómögulegur leikur. Þórsarar fallnir í aðra deild og Víkingur hvorki í toppbaráttu né fall- hættu. Leikur sem skiptir engu máli. Hvernig væri að hleypa varamönnunum inn á? Bjarni Sveinbjörnsson hefur verið einna skæðastur Þórsara í síðustu leikjum en meiðsli Lúka Kostic hafa mjög dregið máttinn úr liðinu. Víkingar hafa verið jafnir og þegar besti leik- maður liðsins, Goran Micic, er í banni eins og nú er er erfitt að nefna einn leikmann öðrum fremur.
ÍBV STJARNAN VESTMANNAEYJUM laugardaginn 15. sept. kl. 14 Þetta verður skemmtilegur leikurfyrir heimamenn, sem að öllum líkindum tryggja sér þriðja sætið í deildinni. Stjörnumenn hafa að engu að keppa og í fljótu bragði séð erfitt að ímynda sér að þeir gefi sig alla í leikinn. Vestmanney- ingar þar að auki mjög sterkir um þessar mundir. Júgóslavinn Andrei Jerina hefur verið mjög sterkur í liði ÍBV undanfarnar vikur eftir daufa leiki framan af mótinu. Ragnar Gíslason er einna eftir- tektarverðastur af yngri leik- mönnum Stjörnunnar.
FH ÍA HAFNARFIRÐI laugardaginn 15. sept. kl. 14 Til að knattspyrnuleikir geti verið spennandi þarf eitthvað að vera í húfi. Svo er því miður ekki í þessum leik. Skagamenn eru fallnir í aðra deild og FH-ingar um miðja deild. Það eina sem vekur eftir- væntingu fyrir þennan leik er spurningin hvort Hörður Magnússon tryggir sér marka- kóngstitilinn annað árið í röð, en hann hefur nú skorað 13 mörk i deildinni.
STAÐAN í FYRSTU DEILD:
leikir u j t mörk stig
Fram 17 11 2 4 36:14 35
KR 17 11 2 4 29:17 35
ÍBV 17 10 4 3 35:29 34
Valur 17 10 3 4 27:18 33
Stjarnan 17 8 2 7 22:23 26
FH 17 6 2 9 22:28 20
Víkingur 17 4 7 6 16:20 19
KA 17 5 1 11 18:26 16
Þór 17 3 3 11 9:23 12
ÍA 17 3 2 12 18:34 11