Pressan


Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 17

Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 17
17 Fimmtudagur 13. sept. 1990 Pressan heimsækir Ræktina í nýju húsnædi og spjallar við Hallqrím Valberq Jónsson Úr leikfimisal. „FJÖLDI NÝRRA VIÐSKIPTA- VINA Á HVERJUM DEGI" Ræktin heitir líkamsræktarstöð sem lengi vel var starfrækt íÁnanaustum, íhúsi Stjórnunarfé- lagsins. Þessi stöð hefur nú verið flutt um set og erkomin í næsta nágrenni félagsaðstöðu Vestur- bæjarljónanna í Frostaskjólinu, KR. Þar hefur verið byggt u.þ.b. 600 fermetra húsnæði undir starfsemina og er ekki annað að sjá en aðstaðan sé öll hin glæsilegasta. Það er hátt tii lofts og vítt til veggja í Ræktinni en húsnæðinu er skipt í tækjasali, leikfimi/þolfimisal, þarsem dýna þek- ur allt gólfpláss, búningsklefa karla og kvenna, gufuböð, Ijós og fleira. Hallgrímur Valberg Jónsson, eigandi Ræktarinnar, segir það muna miklu að vera kominn í nýtt húsnæði. „Fólk dæmdi gjarnan húsnæði okkar við Ánanaust sem alltof lítið en nú hefur svo sannar- lega verið bætt úr slíku enda lætur árangurinn ekki á sér standa. Ég myndi giska á að hingað kæmu 6—10 nýir viðskiptavinir á hverj- um degi og á meðan er ekki nokk- ur leið að kvarta.“ „Mest ungt fólk sem hingað sækir“ „Uppistaðan í viðskiptavina- hópnum er ungt fólk, jafnvel þó innan um sé eldra fólk. Ég held nú reyndar að þannig sé það víðast hvar nema kannski einna helst hjá Mætti. Pað er algengt að fólk hópi sig saman og komi hingað til dæmis af vinnustöðum, kunn- ingjahópar eða skólafélagar. Við veitum þeim að sjálfsögðu hópaf- slátt sem slíkt gera. Áhuginn á líkamsræktinni er að mínu mati enn að aukast, saman- ber þann fjölda nýrra viðskipta- vina sem kemur hingað á hverjum degi. Vafalaust á breytt staðsetn- ing þar einhvern hlut að máli en ég verð samt var við að fólk vill í enn auknum mæli komast í að halda sér í formi og jafnvel byggja meira upp." , ,Ofurh ugarnir gefast upp“ „Við fylgjumst grannt með þeim sem hingað koma því það er einu sinni svo að margir þeir sem eru að byrja að æfa eru nokkurskonar ofurhugar. Þeir gera sér ekki grein fyrir í hvaða ástandi líkami þeirra er og ráðast oft í prógrömm sem þeir ráða engan veginn við. Afleið- ingarnar láta heldur ekki á sér standa. Þetta eru þeir sem iðulega gefast upp eftir 1,2,3 vikur og koma ekki aftur. Við erum leiðbeinendur hér og það er okkar starf og okkar hagur að fylgjast með fólkinu sem æfir hérna. Við ráðleggjum fólki að byrja hægt og fylgjumst með því þróa æfingar sínar. Það er rétta leiðin að góðum árangri; byrja á byrjuninni. Til að fólk geti fylgst enn betur með eigin ástandi bjóðum við líka upp á þrekpróf, fitumælingar og bióðþrýstingsmælingar. Þessir hlutir eru unnir af læknanemum sem hjá okkur starfa og eru hluti af réttri uppbyggingu." „Ymsir möguleikar“ „Hjá okkur starfa sex rnarrns, þjálfarar og fleiri. Við bjóðum upp á þolfimi, leikfimi, tækjaþjálfun og nú í haust hefjum við á ný kennslu í karate. Hjá okkur verður norskur þjálfari sem er með svarta beltið og ég hef trú á að þetta mælist vel fyrir. Við verðum með kennslu í öllum aldurshópum frá 7 ára og upp úr.“ I Ræktinni er öll aðstaða önnur en ljósaböð innifalin í verði mán- aðarkorta, þar með talið gufubað. Nuddpottar, sem verið er að setja upp, verða það einnig. Fyrir þá sem vilja ná brúnum lit á kroppinn jafnharðan og hann stælist eru hinsvegar tilboðspakkar í gangi þar sem mánaðarkort og tíu tíma ljósakort fást fyrir sanngjarnt verð. / •• / / Medal annars bækur • p* * /1 * • / • / X • X . 1 • , • stjornun, ipti, auglýsingabækur, EB-bækur ALVÖRU BÓKABÚO bók/&.lk /túdeivtö. Sérpantanir • Bækur • Ritföng • Ljósritun Disklingar ■ Gjafapappír ■ Kort ■ Tfmarit Sendum bóka- og verðlista • Póstkröfuþjónusta Bóksala stúdenta við Hringbraut. Sími: 615961, fax: 19113. Opið I ágúst frá 9-17 og frá 1. september frá 9-18. Erum flutt í Nútíð -Faxafeni 14-108 Reykjavík. Símar68 7480,68 75 80 og 37878 Síðustu innritunardagar, fimmtudag og föstudag. Kennsla hefst á laugardag. OKKAR DANSAR ERU SPENNANDI ÞAÐ GETA ALLIR LÆRT AÐ DANSA Innritun daglega í símum 68 74 80 og 68 75 80 og í Faxafeni 14.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.