Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 20
20
FimmtuclagUr 13. sept. 1990
PRESSAN HELDUR STÖÐUPRÓF í ENSKU:
4
Engin svipbrigöi voru sjáanleg á Þórunni, en eins og hin fullnýtti hún
tímann í skriflega prófinu.
Svanhildur sökkvir sér niður i
skriflega hlutann.
Til vinstri: „Þetta var skrýtiö,"
sagöi Davíð Scheving Thor-
steinsson, þegar hann frétti aö
hann heföi dúxað. Þórunn Hjart-
ardóttir var líka ánægð með ár-
angurinn. „Ég les mikiö á ensku
og heföi ekki tekið þátt í þessu
nema af því ég bjóst viö að þaö
yrði í lagi." Svanhiidur Kaaber
fjærst á myndinni sat lengst frá
segulbandinu og átti í erfiðleik-
um meö hlustunarprófið. „Ég er
bara farin að heyra illa, ætli það
sé ekki ellin," segir hún.
„Ótrúlega góður árangur hjá öllum,“ segir Ing-
veldur Sveinbjörnsdóttir enskukennari. „Eg hefði
aldrei trúað því að neinn fengi eins háa einkunn og
Davíð Scheving Thorsteinsson í svona þungu
enskuprófi“
Tveir aðrir nemendur, Þórunn Hjartardóttir og
Svanhildur Kaaber, stóðu sig einnig með prýði, en
sá fjórði, Svavar Gestsson menntamálaráðherra,
féll á mætingu.
EFTIR BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR MYNDIR EINAR ÓLASON
fræði. Davíð og Þórunn eru með
toppeinkunn og þyrftu líklega ekki
að læra meiri málfræði í mennta-
skóla, en slyppu þó varla við að taka
eina önn í viðbót í 3. bekk, með
áherslu á bókmenntir. Svanhildur
Kaaber slyppi við fyrstu þrjár ann-
irnar en yrði að byrja eftir jól í 2.
bekk og blaðamaður kemst á sama
stig, en þyrfti trúlega að læra betur
heima.
Af Svavari Gestssyni er það eitt
segja að hann yrði að byrja í fyrsta
bekk.
Enskuprófið, sem áðurtaldir aðil-
ar tóku fyrir PRESSUNA, er vísinda-
lega samið stöðupróf, til þess ætlað
að prófa menntaskólanema sem
eiga von um að sleppa við einhverja
áfanga eða bekki í menntaskóla.
Davíð Scheving Thorsteinsson
var maðurinn úr viðskiptalífinu sem
kom sá og sigraði. Þórunn Hjartar-
dóttir, sjónvarpsþula og myndlistar-
kona, náði einnig mjög hárri ein-
kunn og nokkuð fast á hæla henni
fylgdi Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambands íslands. Blaða-
maður PRESSUNNAR, náði slakasta
árangrinum en lenti þó á sama þrepi
og Svanhildur. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra, sem einnig
hafði lofað að taka þátt í leiknum,
komst ekki í prófið vegna anna,
þrátt fyrir að reynt væri að sníða
próftímann sérstaklega að þörfum
hans.
ISiðurstöður
Endanlegar einkunnir urðu þann-
ig að Davíð náði 196 stigum af 200
mögulegum, sem er ótrúlegur
árangur. Hann var jafnvígur á hlust-
un og málfræði og með 93 stig í
hvorum tveggja hlutum prófsins.
Þórunn var næsthæst með 182
stig, 93 stig í hlustun eins og Davíð,
en 89 stig í málfræðinni. Svanhildur
fékk 174 stig, henni gekk vel í mál-
fræðinni með 91 stig en fór niður í
83 stig í hlustun. Lestina rak svo
blaðamaður PRESSUNNAR með
166 stig, 87 í hlustun og 79 í mál-
Ingveldur Sveinbjörnsdóttir enskukennari útskýrir stöðuprófið,
en þetta próf er haldið í Hamrahliö á hverju hausti fyrir nemendur
fjölbrauta- og menntaskóla sem vilja sleppa einhverjum áföngum
í ensku.