Pressan - 13.09.1990, Side 31

Pressan - 13.09.1990, Side 31
kvikmyndir helgarinnar -'•sJl FIMMTUDACUR 13. september Stöö 2 kl. 23 EKKI MÍN MANNGERÐ*** (But IMot for Me) Bandarísk bíómynd frá 1959 Leikstjóri: Walter Lang Aðalhlutverk: Clark Gable, Carroll Baker, Lilli Palmer Fáguð gamanmynd af gamla skól- anum með úrvalsleikurum. Gable í hlutverki leikhúsmanns sem verður fyrir ágangi ástsjúks ritara, en hann telur hag sínum betur borgið hjá annarri konu sem þykir fágaðri og fínni. FOSTUDACUR 14. september Stöö 2 kl. 21.25 BEINN í BAKI’2 (Walk Like a Man) Bandarísk bíómynd frá 1987 Leikstjóri: Melvin Frank Adalhlutverk: Howie Mandel, Christopher Lloyd, Cloris Leachman Hallærisleg og ófyndin gaman- mynd í samræmi við aulalegan söguþráð: Bobo Shand varð viðskila við fjölskylduna í óbyggðum þegar hann var barn en úlfar tóku hann í fóstur. Tuttugu og fimm árum síðar er honum komið til fjölskyldu sinn- ar á ný en fyndni myndarinnar á að byggjast á skorti hans á mannasið- um. Akaflega barnaleg hugmynd að gamanmynd og leiðinleg afskræm- ing á efni sem á sér hliðstæður og er í raun allrar athygli vert, hinum svo- nefndu villibörnum. Ríkissjónvarpið kl. 22.30 BORGARASTRÍÐ*** (Latino) Bandarísk bíómynd frá 1985 Leikstjóri: Haskell Wexler Aðalhlutverk: Robert Beltran, Annetta Cordona, Tony Plana Stríðsmynd um bandarískan hern- aðarráðgjafa kontraskæruliða sem fær efasemdir um réttmæti þeirra aðferða sem honum er ætlað að beita í baráttunni við sandinista. Þó að myndin geti orkað sem áróður á suma (á meðan aðrir eru sammála boðskapnum) verður að hrósa að- standendum hennar fyrir vönduð vinnubrögð. Góð stríðsmynd sem vekur til umhugsunar, þó þetta mál sé e.t.v. ekki í brennidepli núna. Stöö 2 kl. 23.15 GLÆPAHEIMAR** (Glitz) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1988 Leikstjóri: Sandor Stern Aðalhlutverk: Jimmy Smiths, Markie Pbst, John Diehl Sæmileg spennumynd gerð eftir metsölubók Elmores Leonard. Sag- an greinir frá lögreglumanni sem er að rannsaka morðið á vinstúlku sinni. Hann nýtur aðstoðar söng- konu sem leiðir hann um refilstigu undirheimanna þar sem mannslíf eru lítils virði. Meðalmynd með meðalleikurum, dæmigerð sjón- varpsmynd af skárri sortinni. Stöö 2 kl. 00.50 BRESTIR*** (Shattered Spirits) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1986 Leikstjóri: Robert Greenwald Aðalhlutverk: Martin Sheen, Melinda Dillon, Matthew laborteaux, Lukas Haas Atakanleg mynd um örlög fjöl- skyldu þar sem heimilisfaðirinn hneigist til flöskunnar. Sheen stend- ur sig vel í hlutverki fyllibyttunnar. LAUCARDACUR 15. september Ríkissjónvarpið kl. 21.00 í MESTU VINSEMD*** (Just Between Friends) Bandarísk bíómynd frá 1986 Leikstjóri: Allan Burns Aðalhlutverk: Mary Tyler Moore, Ted Danson, Christine Lahti, Sam Waterston Tvær konur kynnast og verða vin- konur, en hvorug þeirra veit að þær deila einum og sama karlmannin- um. Önnur er gift honum en hin er ástkona hans. Myndin er mjög vel leikin en of slétt og felld miðað við sláandi söguþráðinn. Vönduð fram- leiðsla. Stöð 2 kl. 21.20 f NÆTUR- HITANUM**** (ln the Heat of the Night) Bandarísk bíómynd frá 1968 Leikstjóri: Norman Jewison Aðalhlutverk: Rod Steiger, Sidney Poitier, Warren Oates Margföld óskarsverðlaunamynd og ein frægasta mynd Sidneys Poitier. Lögreglustjóri í Suðurríkjunum verður að leita aðstoðar þeldökks lögregluþjóns í erfiðu morðmáli. Spennumynd sem tekur á kynþátta- hatrinu. Frábær leikstjóri, frábærir leikendur, mynd sem gleymist ekki. Ríkissjónvarpiö kl. 22.50 HEFNDARÞORSTI * (Hennessy) Bresk bíómynd frá 1975 Leikstjóri: Don Sharp Aðalhlutverk: Rod Steiger, Lee Remick, Trevor Howard íri reynir að koma fram hefndum gegn Englendingum eftir að fjöl- skylda hans verður fyrir skotum frá enskum hermanni í götuóeirðum í Belfast. írinn hyggst greiða fyrir sig með því að sprengja þinghúsið í London í loft upp. Óskiljanlega smekklaus mynd sem fjallar á subbulegan hátt um viðkvæmt mál- efni. Útilokað að sjá tilganginn með þessu nema verið sé að halda þeirri skoðun fram að allir írar séu brjál- æðingar. Furðulegt að þessir úrvals- leikarar sem hér eru á ferðinni skuli hafa látið hafa sig út í þetta. Stöð 2 kl. 23.05 TIGER WARSAW*1/z (Tiger Warsaw) Bandarísk bíómynd frá 1987 Leikstjóri: Amin O. Chaudri Aðalhlutverk: Partick Swayze, Barbara Williams, Piper Laurie Tiger snýr aftur til heimabæjar síns eftir 15 ára fjarveru og kemst að því að margt hefur breyst. Ekki eru allir jafnánægðir með endurkomu hans því seint fyrnast gamlar syndir. Heldur slöpp spennumynd og Swayze ekki sannfærandi í hlut- verki fyrrverandi dópista. Þegar einlægni og ákveðni vantar í mynd- ir sem taka á erfiðum vandamálum er ekki von á góðri útkomu. Stöö 2 kl. 00.35 LESTARRÁNIÐ MIKLA*** (The Great Train Robbery) Bresk bíómynd frá 1982 Leikstjóri: Michael Crichton Aðalhlutverk: Sean Connery, Donald Sutherland, Lesley-Ann Down Spennumynd um eitt glæfralegasta lestarrán 19. aldar. Sean Connery er hér í hlutverki illræmds snillings rem kgi eftir Mike Atkinson_ I KISI/R EL-SKT/j NÝJA 1 1 /<ATT4M4TfKlM ÞVKKU KIÖT- SOSUNNI EG SfClL þ»ErTA EKKI. . . KAKIN5KI ER PAV TÆfcNI IEGT VANJ D4HAI------ E'KKI QOtTIÐ í HOG... 'lHMsLL- EM ÞAÐER VERr UMHU6SUAJAR- EFbJ/... AF HVERJU FR EKKI T)L KATTAMATl/R ME£> MÚSA- sem með aðstoð fagurrar konu og dugmikils manns tekst á hendur að ræna verðmætum úr járnbrautar- lest. Vönduð og skemmtileg afþrey- ing með úrvalsleikurum. Meðmæli. 16. september Stöð 2 kl. 21.50 L0F0RÐ UM KRAFTAVERK*** (Promised a Miracle) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1988 Leikstjóri: Steven Gillenhaal Aðalhlutverk: Rosanna Arquette, Judge Reinhold Byggð á sönnum atburðum: Ung hjón eiga sykursjúkan son. Prédik- ari nokkur sannfærir þau um að guð hafi læknað drenginn og hann gangi nú heill til skógar. Þau hætta því allri lyfjagjöf en án lyfja getur drengurinn ekki lifað lengi. Atakan- leg mynd um afleiðingar trúarof- stækis, vel gerð og leikin. Meðmæli. Ríkissjónvarpiö kl. 22.00 SPAGHETTI (Spaghetti) Ný dönsk sjónvarpsmynd Leikstjóri: Peter Eszterhas Aðalhlutverk: Carmen Zahrau, Jesper Olsen, Birthe Neumann, Henrik Larsen Franka er 14 ára og skráir marga ímyndaða og óhugnanlega atburði í dagbókina sína. Þó kemur að því að þeir atburðir gerast í nánasta um- hverfi hennar sem ekki eru síður ógnvekjandi. Við höfum ekki séð þessa mynd en hún er álitleg; Danir hafa gert góðar myndir undanfarin ár og söguþráðurinn virðist spenn- andi. Stöð 2 kl. 23.25 HÆTTULEG KYNNI** (Fatal Attraction) Bandarísk bíómynd frá 1987 Leikstjóri: Adrian Lyne Aðalhlutverk: Michael Douglas, Glenn Close, Anne Archer Ofmetin kvikmynd um framhjá- hald. Vakti gríðarlega athygli á sín- um tíma en er lítið annað en vel gerð, innantóm og tilgangslaus spennumynd nema fólk taki eftirfar- andi boðskap alvarlega: Þú skalt ekki halda framhjá konunni þinni, viðhaldið gæti verið haldið morð- æði!

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.