Pressan - 29.11.1990, Page 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. NÓVEMBER
17
ftiöngum hefur verið talið að ein-
ing rikti um Halldór Ásgrímsson í
röðum sjávarútvegsmanna á Aust-
fjörðum, í kjördæmi
sjávarútvegsráðherr-
ans. Að minnsta
kosti hafa þeir ekki
haft jafnhátt og koll-
egar þeirra úr öðr-
um kjördæmum þeg-
ar meintir misbrest-
ir á kvótakerfinu eru til umræðu. Nú
bregður hins vegar svo við að tveir
staðir eystra hafa misst fiskiskip og
kvóta úr byggðarlaginu. Fáskrúðs-
firðingar sjá á eftir vertíðarbátnum
Þorra, ásamt 500 tonna botnfisk-
kvóta og síldarkvóta, og Breiðdæl-
ingar sjá á eftir nýja togaranum sín-
um, Andey, ásamt kvóta. Á þessum
tveimur stöðum gerast raddir nú allt
í einu háværari um ágæti kvótakerf-
isins...
||
■ lið ótrúlega gerðist í sölum
borgarstjórnar á dögunum að til-
laga frá Ólínu Þorvarðardóttur,
fulltrúa Nýs vett-
vangs, var ekki felld
heldur vísað til borg-
arráðs að tillögu
Davíðs Oddssonar
borgarstjóra. Tillag-
an sem Ólína flutti
felur í sér að einka-
og kennsluflug frá Reykjavíkurflug-
velli verði fært út fyrir borgarmörk-
in ...
A
^^^ðstoðarmaður Steingríms
J. Sigfússonar landbúnaðarráð-
herra, Álfhildur Ólafsdóttir bú-
fræðingur frá
Vopnafirði, tekur
þátt í forvali Alþýðu-
bandalagsins á Áust-
urlandi. Álfhildur
mun tilheyra Hjör-
leifsarminum og
engum öðrum ...
s
A9á ráðherra sem hefur ferðast
dýrast á þessu ári er ÓIi Þ. Guð-
bjartsson dómsmálaráðherra.
Hann hefur verið
níu daga á ferðalög-
um og eytt um 1,3
milljónum. Það jafn-
gildir um 140 þús-
und krónum á dag.
Sá sem kemur á eftir
Óla er Steingrímur
Hermannsson sem eyddi um 66
þúsund krónum á dag þá 56 daga
sem hann var erlendis. Ef allir ráð-
herrarnir hefðu ferðast jafndýrt og
Óli hefðu ferðalög ráðherranna
allra kostað um 52 milljónir en ekki
20 milljónir það sem af er þessu
ári...
v
wf iðleitni Karvelsarmsins í Al-
þýðuflokknum á Vestfjörðum til að
ná fulltrúa í annað af efstu sætum
listans virðist ekki ætla að verða
árangursrík. Pétur Sigurðsson,
forseti Alþýðusambands Vestfjarða,
sem hingað til hefur fylgt Sighvati
Björgvinssyni að málum í erjum
við Karvel Pálmason, þykir lang-
líklegastur til að skipa annað sæti
listans...
135W
71OW, stiglaus rofi, aftur/áfram, taska.
S KRÚFJÁRH
Átaksstillir, beygjanlegt, m.veggfest. ofl.
550W, stiglaus rofi, aftur/áfram, taska.
Ide line, hlaðanleg, veggfest. ofl.
400W, stiglaus rofi, aftur/áfram
B.B. Byggingavörur, Suðurlandsbraut 4 / Brynja, Laugavegi 29 / Byggingamarkaðurinn, Mýrargötu 2
Byggingavörur, Ármúla 18 / Dröfn, Hafnarfirði / Gos, Nethyl 3 / Húsasmiðjan, Skútuvogi 16 / Húsið,
Skeifunni 4 / ísleifur Jónsson, Bolholti 4 / Jes Zimsen, Ármúla 42 / Jes Zimsen, Hafnarstræti 21
Rafbraut, Bolholti 4 / Rafkaup, Ármúla 24 / Rafvörur, Langholtsvegi 120 / Smiðsbúð, Garðabæ
SÖLUSTAÐIR UM LAND ALLT:
Arnarfell, Akranesi / Brimnes, Vestmannaeyjum / Byggingavöruverslun Hveragerðis, Hveragerði
Byggir, Patreksfirði / FRAM kaupfélag, Neskaupstað / Harald Johansen, Seyðisfirði1 Hegri, Sauðárkróki
Jón Fr. Einarsson, Bolungarvík / Kaupfélag V.-Húnvetninga, Hvammstanga / Kaupfélag Þingeyinga,
Húsavík/Pensillinn, ísafirði / S.G. Búðin, Selfossi / Skapti, Akureyri / Skipavík, Stykkishólmi
Stapafell, Keflavík / T.F. Búðin, Egilsstöðum / Valberg, Ólafsfirði / Versl. Torgið, Siglufirði / Versl. Vík,
Ólafsvík / Þríhyrningur, Hellu
K R . 13.5 XH K R . 4.4 QÐB
K R . 8.9 EDB K R. 3.7