Pressan - 29.11.1990, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. NÓVEMBER
19
egar eru komnar á flot vanga-
veltur um hver verður kosinn
íþróttamaður ársins 1990 og beinast
augu manna eink-
um að tveim mönn-
um. Það eru þeir
Pétur Guðmunds-
son kúluvarpari og
Bjarni Friðriks-
son júdómaður.
Bjarni hefur unnið
glæsileg afrek að undanförnu og er
talinn sigurstranglegri þrátt fyrir að
Pétur hafi sett glæsilegt íslandsmet
fyrir skömmu. Það spillir fyrir
möguleikum Péturs að hann hefur
ekki unnið neinasigra á mótum. Þá
mun það hafa sitt að segja að
íþróttafréttamenn eru enn með
samviskubit yfir því að Bjarni fékk
KAFFIFILTER
1 SÍMI: 91-24000
ekki titilinn 1984 þegar hann vann
bronsið á Ólympíuleikunum ...
Ef þeir Einar Már Sigurðsson
og Björn Grétar Sveinsson ná
ekki að velta Hjörleifi Guttorms-
syni úr sessi í forvali
Alþýðubandalagsins
á Austurlandi, þá
þykir næsta víst að
þeir taki ekki sæti á
listanum. Sá mögu-
leiki er sagður opinn
að þeir taki sæti á
lista heimastjómarmanna eystra, en
sjálfir munu þeir gjarnan vilja setj-
ast ofarlega á lista Aiþýðuflokks-
ins . . .
lEkkert þokast áleiðis varðandi
íþróttahöll þá sem á að byggja fyrir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik. Innan
bæjarstjórnar Kópa-
vogs er stöðugt rætt
um málið en niður-
staðan lætur á sér
standa. Kemur fyrir
lítið þó Jón Hjalta-
lín Magnússon,
formaður Handknattleikssambands
íslands, reki stöðugt á eftir því. Nú
munu menn hins vegar vera farnir
að spá í þann möguleika að kaupa
stálgrindarhús frá Bandaríkjunum.
Það er talið geta orðið mun ódýrari
kostur en að steypa upp nýtt hús...
lELginn asi er við undirbúning
lista Alþýðuflokksins í Reykjavík
fyrir næstu kosningar. Hins vegar
bætast smátt og
smátt fleiri nöfn á
lista yfir hugsanlega
kandídata. Nú hefur
Magnús Jónsson
veðurfræðingur lýst
því yfir að hann gefi
kost á sér. Þá hefur
komið fram í PRESSUNNI að Birgir
Árnason hagfræðingur hjá EFTA,
fyrrum aðstoðarmaður viðskipta-
og iðnaðarráðherra, íhugi málið,
svo og Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri KRON, og Össur
Skarphéðinsson, aðstoðarfor-
stjóri Reykvískrar endurtryggingar.
Og þá gerist sá orðrómur æ sterkari
að Ellert B. Schram, ritstjóri DV og
fyrrum þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, skelli sér í slaginn ...
Varðan opnar viðskiptavinum Landsbankans
leið inn í bankaþjónustu framtíðarinnar.
Varða er nafn á víðtækri fjármála-
þjónustu Landsbankans sem er
sérsniðin fyrir einstaklinga 60 ára og
eldri. Með Vörðunni vill Landsbankinn
efla sérstaklega tengslin við þessa
viðskiptavini sína, sem margir hverjir
hafa skipt við bankann áratugum
saman, og veita þeim persónulegri
bankaþjónustu sem er mun
yfirgripsmeiri en áður hefur þekkst.
Varðan er samsett úr mörgum þjónustu-
þáttum. Þar á meðal er að sjálfsögðu
ávöxtun sparifjár, verðbréfaþjónusta,
lánafyrirgreiðsla og greiðslukorta-
viðskipti. En í Vörðunni er einnig veitt
ráðgjöf og þjónusta á sviði trygginga-
og skattamála, aðstoðað við gerð fjár-
hagsáætlana og leiðbeint um útfyllingu
ýmissa gagna og umsókna, s.s. til Trygg
ingastofnunar. Ennfremur er Vörðu-
félögum veitt aðstoð vegna húsnæðis-
skipta.
Hafðu samband við Vörðu-
þjónustufulltrúann á næsta
afgreiðslustað bankans og
fáðu nánari upplýsingar.
Varðan er félagsskapur sem
borgar sig að eiga aðild að.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna