Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 6

Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER VERÐBREYTINGAR- STUÐULL FYRIRARIÐ 1990 Samkvœmt ákvœðum 26. gr. laga nr. 75 frá 14. september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1990 og nemur hann 1,1916 miðað við 1,0000 áárinu 1989. Reykjavík 30. nóvember 1990 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ví hefur verið haldið fram að meðalaldur í landsliði íslands í knatt- spyrnu sé orðinn fullhár. Sævar Jónsson, knattspyrnumaður árs- ins, segir í viðtali í bókinni íslensk knattspyrna að hann muni ekki gefa landsliðssætið eftir baráttulaust. Hann segir einnig að ekki megi yngja liðið upp bara tii að yngja upp. . . v W innusama fyrirtækjaeigend- ur í Hamraborg í Kópavogi rak í ro- gastans einn sunnudag fyrir skemmstu þegar þeir mættu til vinnu sinnar. Við skrifstofuhúsið voru hestburðir af heyi og höfðu borist út á bílastæðin. Ekki tók betra við þegar inn var komið því þar voru heysátur í stigagöngum og sögðust menn hafa þurft að ská- skjóta sér inn. í ljós kom að þetta voru leifar af skreytingum; ungir sjálfstæðismenn höfðu sett þær upp vegna dansleiks sem þeir höfðu ÞÁ HLÓ ÞINGHEIMUR BÆNDUR Á HVUNNDAGSFÖTUM II Sögurogvísurumstjórnmálamenn. I bókinni eru skopsögur, vísur og gamanbragir um þingmenn, eftir þá og tengdir þeim á ýmsa vegu. Þessi bók Árna Johnsen 1 umar á ýmsu af baksviði stjórnmálanna, sem ætti aðgeta komið mörgum skemmtilega á óvart. I bókinni eru á annað hundrað stórkostlegar skopmyndireftirSigmund. Hérerá ferðinni bóksem erengri annarri lík; skemmtiefni í máli og myndum sem mun vafalítið kitla hláturtaugarnar hjá fólki á öllum aldri. Verð: 2.880,- krónur. Viðtalsbók Helga Bjarnasonar, blaðamanns. Á síðasta ári kom út fyrsta bindi bókar með sama nafni. Hér eru á ferðinni opinská viðtöl við fimm bændur, sem segja frá lífshlaupi sínu, DÚskap, áhugamálum ogskoðunum. Þeir sem segja fráeru: Einar E. Gíslason á Syðra-Skörðugili íSkagafirði, Benedikt Hjaltason á Hrafnagili í Eyjafirði, Örn Einarsson í Silfurtúni í Hrunamannahreppi, Björn H. Karlsson á Smáhömrum í Steingrímsfirði og Guðmundur Lárusson í Stekkum í Flóa. Bókin er fróðleiksnáma, prýdd fjölda mynda. Verð: 2.880,- krónur. GULLKORN DAGSINS Bók sem hefur að geyma fleyg orð og erindi, eitt fyrir hvern dag ársins. Þetta er forvitnileg og skemmtileg bók til notkunar við ýmis tækifæri. Vönauð vinagjöf. Ölafur Haukur Árnason valdi efnið. Verð: 1.980,- krónur. ÁSTIN OG STJÖRNUMERKIN Hverjir eru möguleikar þínir í ástamálum? Hvernig finnurðu þinn eina rétta eða þína einu réttu? Ur hvaða stjörnumerki ættirðu að leita þér maka? Ástin og stjörnumerkin er bók sem svarar þessum spurningum. Verð: Innbundin 1.390,- krónur Kilja 990,- krónur. AFMÆLISDAGAR MEÐ STJÖRNUSPÁM Ný íslensk bók eftir Amy Engilberts, sem er vel þekkt fyrir spádómsgáfu sína og dulskyggn i. í þessari bók eru reitir til þess að færa inn nöfn vina og minna þannig á afmælisdaga þeirra. Falleg og eiguleg bók. Verð: 1.580,- krónur. HORPUUTGAFAN STEKKJARHOLTI 8- 10, 300 AKRANESI SÍÐUMÚLA 29, 108 REYKJAVÍK haldið kvöldið áður í húsakynnum flokksins en hann hefur aðsetur þarna í húsinu . . . || I M inir mörgu kröfuhafar í þrotabú Skrifstofuvéla og Gísla J. Johnsen ráku upp stór augu um dag- inn þegar fréttist að fyrirtækið Norskpata á íslandi hefði ráðið Er- ling Ásgeirsson til sín og fengið honum prókúru í hendur. Ekki ein- asta eru fyrirtækin hvort í sínu gjaldþrotinu, heldur einnig Erling persónulega og þykir með ólíkind- um hversu mikið traust Norsk Data ber til þessa gjaldþrota einstakl- ings.. . l^Framsóknarmenn í Reykjavík anda nú léttara eftir slag undanfar- inna vikna en flestir gera ráð fyrir að það sé bara logn- ið á undan stormin- um. Meðal þeirra telja margir að Guð- mundur G. Þórar- insson bjóði fram sér eða jafnvel í sam- floti við Borgara- flokkinn. Borgaraflokkurinn mun efst á baugi núna meðal annars vegna þess að Guðmundi hefur ekki tekist að fá neina málsmetandi framsóknarmenn með sér á list- ann ... Elinn skiptafundur hefur verið haldinn vegna gjaldþrots Gísla-J. Johnsen/Skrifstofuvéla. Tölur um stærð gjaldþrotsins eru nokkuð á reiki og heildarupphæð krafna eru nokkuð á reiki því í raun er um sex þrotabú að ræða, Skrifstofuvéla hf., Gísla J. Johnsen sf., Erlings Ás- geirssonar, eiginkonu hans, Gunnars Ólafssonar og eiginkonu hans. Kröfuliðir í annað fyrirtækið eru um 200 og um 150 í hitt en margir þeirra munu vera hinir sömu. Meðal allra stærstu kröfuhafa eru Landsbankinn, Sparisjóður Kópavogs, IBM á Islandi, Olíufélag- ið, erlendir umboðsaðilar og Ottó Michelsen. Talið er að kröfurnar í fyrirtækin tvö séu á bilinu 450 til 500 milljónir alls en að fá megi um 200 milljónir fyrir eignirnar og gjaldþrotið því upp á 250 til 300 milljónir... A ^^Wlþýðubandalagið hefur eign- ast nýtt húsnæði en flokkurinn keypti hús Búnaðarbankans í Bankastræti á 22 milljónir króna; helmingurinn mun hafa verið greiddur út. Er flokkurinn þá ekki lengur heimilislaus. Það sem vekur athygli er að það var Sigfúsarsjóður- inn sem keypti. Þessi sjóður, sem stofnaður var um arf eftir Sigfús Sigurhjartarson, er eignarhaldsfé- lag Alþýðubandalagsins. Eru þau orðin ófá húsin sem þessi ágæti sjóður hefur keypt í endalausum til- raunum til að koma þaki yfir flokk- inn ... Nagladekk Ingi Ú. Magnússon gatnamála- stjóri mótmælir því sem kom fram í síðustu PRESSU að hann aki um borgina með nagladekk undir bifreið sinni. Þar sem hið sanna liggur fyrir skal Ingi hér með beðinn velvirðingar. Ritstj.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.