Pressan - 06.12.1990, Page 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER
7
Úlfar Þormóðsson starfsmaður Gallerís Borgar hefur haldið því fram að tvœr myndir
eftir Sigurð málara sem seldar voru á uppboði Gallerís Borgar á Hótel Sögu sl.
fimmtudagskvöld hafi verið röntgen- og aldursgreindar hjá fyrirtœkinu Bruun
Rasmussen í Kaupmannahöfn. Lise Buus, starfsmaður Bruun Rasmussen sem hafði
með myndirnar að gera ytra, sagðist í samtali við PRESSUNA ekki kannast við neinar
rannsóknir. Hins vegar sagðist hún hafa skoðað þœr. ,,Ég hlýt að hafa misskilið
hana," segir Úlfar. Þetta er ekki eina dœmið um vafasamar myndir í sölu hjá Galleríi
Borg. Auk myndanna eftirSigurð málara nefna heimildarmenn PRESSUNNAR dœmi
um myndir eftir Kristínu Jónsdóttur, Kjarval og fleiri.