Pressan


Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 8

Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER Málverkin tvö eftir Sigurð Guömundsson málara, frá árinu 1852, voru hvorki röntgen- né aldursgreind fyrir uppbod á Hótel Sögu sl. fimmtudag, eins og Úlfar Þor- móðsson starfsmadur Gallerís Borgar hélt fram í fjöl- miðlum. Úlfar vísadi til þess að rannsóknir á myndunum hefðu farið fram hjá fyrirtœkinu Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn. Lise Buus, starfsmaður fyrirtœkisins sem hafði með myndirnar að gera, segist einungis hafa skoðað myndirnar. Viðmœlendur PRESSUNNAR draga fæstir í efa að myndirnar séu eftir Sigurð, en telja þœr hins vegar ófull- gerðar, það er skissur. Mynd eftir Kristínu Jónsdóttur, sem seld var á uppboði hjá Galleríi Borg í fyrra, þykir einnig vafasöm. Samkvœmt skrá gallerísins var tilgreint „óljós merking” í sýningarskrá fyrir uppboðið, en á upp- boði hjá Nellemann og Thomsen í Arósum nokkrum mánuðum áður var hins vegar tekið fram um sömu mynd að hún vœri „ekki merkt”. Mynd Kristínar Jónsdóttur Á göröum. Hún var „ekki merkt" i Árósum. en „merking óljós" í Galleríi Borg. YFIRLÝSINGAR FYRIR UPPBOÐIÐ Það er sjaldan sem myndir eftir Sigurð Guðmundsson málara koma á uppboð hér á landi og því vakti sérstaka athygli að tvær myndir Sig- urðar skyldu nú berast. Ekki dró úr að Úlfar lýsti því yfir að þær væru óféfengjanlega eftir Sigurð, þar sem þær hefðu verið röntgen- og aldurs- greindar. Slíkar rannsóknir eru hins vegar dýrar og viðamiklar. íslenskir forverðir sem PRESSAN ræddi við könnuðust ekki við að hafa gert slík- ar rannsóknir, en venjulega fylgja vottorð myndum sem hafa verið rannsakaðar með þessum hætti. Engin slík vottorð fylgdu Sigurðar- myndunum. PRESSAN hafði þá samband við Úlfar Þormóðsson sem ítrekaði að myndirnar hefðu verið rannsakaðar og tilgreindi danska fyrirtækið Bruun Rasmussen, sem er eitt þekktasta uppboðsfyrirtæki á Norð- urlöndum. PRESSAN leitaði því til danska fyrirtækisins, þar sem Lise Buus varð fyrir svörum, en hún hafði með myndirnar að gera ytra. Lise Buus neitaði að um nokkrar rannsóknir hefði verið að ræða, hins vegar hefði hún skoðað myndirnar og eftir það samþykkt þær á uppboð hjá fyr- irtækinu. Þegar staðhæfing Lise Buus var borin undir Úlfar sagðist hann lík- lega hafa misskilið hana. Það breytti þó ekki því að ummæli hennar sýndu að hún hefði talið myndirnar það öruggar að ekki þyrfti til slíkrar rannsóknar að koma, eins og fram kemur í viðtalinu við Úlfar. Mynd- irnar voru að endingu seldar Þor- valdi Guðmundssyni í Síld og fiski. Önnur þeirra fór á 1,6 milljónir króna en hin á 800 þúsund, eða samtals 2,4 milljónir króna. Fyrri eigandi myndanna segir fyr- irtækið Bruun Rasmussen hafa verið reiðubúið að taka myndirnar á upp- boð og tryggja lágmarksboð upp á 25 þúsund krónur danskar, eða um 250 þúsund krónur íslenskar. Hins vegar hefði kostnaður við rannsókn myndanna ytra orðið slíkur að það hefði ekki borgað sig, enda hafi hann talið nægilegt að hafa fengið Sigurðarmyndirnar, sem taldar eru frá árinu 1852. Fyrrverandi eigandi „gaf þeim fernis, málverkahreinsi sem kaupa má hvar sem er," segir hann. svo góða staðfestingu þess virta uppboðshaldara. Hann sagði einnig í samtali við blaðið að hann hefði hreinsað myndirnar sjálfur. „Ég gaf þeim fernis. Fékk mér málverka- hreinsi sem kaupa má hvar sem er.“ EFASEMDIR UM HÖFUND MYNDANNA Það hafa verið uppi vissar efa- semdir um að umræddar myndir séu eftir Sigurð Guðmundsson mál- ara. Þær má þó skoða sem beina af- leiðingu af þeim rangfærslum sem Úlfar lætur hafa eftir sér í fjölmiðl- um, því enginn þeirra sérfræðinga sem PRESSAN leitaði til treysti sér til að fuflyrða að myndirnar væru ekki eftir Sigurð. Einkum er tvennt nefnt sem gerir myndirnar vafasamar. Þær þykja í lágum gæðaflokki miðað við aðrar myndir Sigurðar sem eru flestar varðveittar á Þjóðminjasafni. Það kann þó að eiga sér þá skýringu að myndirnar eru málaðar á skólaár- um Sigurðar og tók hann stöðugum framförum á þeim tíma. Að sögn Viktors Smára Sæmunds- sonar forvarðar hjá Listasafni Is- lands er undirskrift Sigurðará myndunum einnig á skjön við þann hátt sem hann hafði almennt á und- irritun mynda sinna. Hann málaði nafn sitt yfirleitt undir myndirnar eða skrifaði undir þær. Úppboðs- myndirnar eru merktar með greypt- um stöfum, það er upphafsstafir Sig- urðar hafa á öðru málverkinu verið ristir í með nagla eða nál, og á hinu fullt nafn. En erfitt er þó að greina eftirnafnið. FLEIRI VAFASAMAR MYNDIR Myndirnar tvær eftir Sigurð mál- ara eru ekki eina dæmið um vafa- samar myndir sem hafa verið seldar á uppboði hjá Galleríi Borg. Fræg- asta dæmið er málverkið af biskups- hjónunum Ara Magnússyni og Krist- ínu Guðbrandsdóttur, sem selt var í nóvember í fyrra. Fyrir uppboðið hélt Úlfar því ítrekað fram að mynd- in væri um 400 ára gömul, jafnvel þótt rannsókn hjá forverði hefði leitt annað í ljós. Vafi leikur á um merkingu mynd- ar eftir Kristínu Jónsdóttur, sem seld var á uppboði hjá Galleríi Borg þann 30. nóvember í fyrra. Myndin var sögð „ekkert merkt" á uppboði hjá Nelleman og Thomsen í Árósum, en á uppboðinu hjá Galleríi Borg var notað orðalagið „óljós merking“. Ríkharður Hördal hjá Morkinskinnu ITREKAÐAR EFASEMDIR UM ASGRIMSM YNDINA Að sögn Júlíönu Gottskálksdótt- ur hjá safni Ásgríms Jónssonar skodadi hún myndina Fagurhóls- mýri Örœfi á sýningu fyrir uppbod. „Þad fyrsta sem mér datt í hug var ad myndin vœri eftir einhvern sem vœri ad líkja eftir Asgrími Jóns- syni. Eigandinn hafði reyndar samband vid mig daginn sem upp- bodid fór fram og kalladi ég þá til listmálara sem hefur verid í tengsl- um vid safnid. Hann var á þeirri skoðun að þörf vceri á saman- burði við aðrar myndir Asgríms. Þar sem uppboðið átti að fara fram um kvöldið var ekkert hœgt að aðhafast." Að mati Péturs Friö- riks listmálara, sem talinn er þekkja gleggst til mynda Ásgríms, er myndin Fagurhólsmýri Örœfi ekki eftir Ásgrím. Að sögn Júlíönu er hvorki hægt að sanna né afsanna neitt í þessu máli nema myndirnar séu rann- sakaðar. Hún sagði að það væri að sjálfsögðu æskilegt að galleríin hefðu samband við listfræðinga í tæka tíö svo að þeir hefðu svigrúm til að gefa faglegt álit. Mánudaginn 3. desember síð- astliðinn fullyrða listmálararnir Pétur Friðrik og Veturliði Gunn- arsson í DV að myndin sé ekki og geti ekki verið eftir Ásgrím Jóns- son. Rökin sem þeir færa fyrir því eru m.a. að Ásgrímur hafi aldrei málað á hessianstriga en á slíkan striga er umrædd mynd máluð. Ásgrímur hafi heldur ekki verið á Fagurhólsmýri um það leyti sem myndin var máluð. Þeir segja að Axel Einarsson hafi málað mynd- ina. Pétur Friðrik kveður Úlfar ekki segja satt hvað varðar kynningu á myndinni. Hún hafi verið kynnt á uppboðinu sem mynd eftir Ásgrím Jónsson og saga eiganda myndar- innar lesin upp. „Björn Bogason bókbindari frá Brennistöðum í Borgarfirði, fæddur 1888, fór með mig, Kristínu Björnsdóttur, fædda 1920, til Ásgríms Jónssonar í kringum 1930 og keypti myndina fyrir sitt heimili. Faðir minn gaf mér síðan myndina í brúðargjöf 14/11 1947 og hefur myndin verið í minni vörslu síðan." í samtali við PREiSSUNA sagðist Pétur Friðrik álíta að þetta væri misminni eigandans eða hrein fölsun. Myndin væri ekki eftir Ás- grím Jónsson og það ættu allir að vita sem eitthvað þekktu til verka hans. Pétur sagðist ennfremur hafa látið uppi þessa skoðun við Úlfar Þormóðsson fyrir uppboðið og kallað marga aðra listmálara til vitnis um það. Úlfar hafi á hinn bóginn ekki svarað þessum stað- hæfingum.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.