Pressan - 06.12.1990, Síða 9

Pressan - 06.12.1990, Síða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER 9 segir einnig í samtali við PRESS- UNA að merking myndarinnar sé ólík öllum öðrum myndum sem hann hafi séð eftir Kristínu. Myndin hafi verið merkt með upphafsstöf- um á miðri hlið, hægra megin. Rík- harður segir að allar myndir sem hann hafi séð eftir Kristínu hafi ver- ið merktar með olíuiitum að neðan. Þá fullyrðir einn viðmælenda PRESSUNNAR að mynd sem seld var á uppboði hjá Galleríi Borg í fyrra og sögð eftir Kjarval sé eftir Jó- hönnu Sigurðarson, sem málaði á sínum tíma mikið í anda Kjarvals. Úlfar Þormóðsson svarar því ein- ungis til, að þessi ummæli séu runn- in beint undan rifjum öfundar- manna Gallerís Borgar. GALLERÍ BORG LÉT EKKI PLATA SIG Ljóst er að Gallerí Borg hefur sjálft þurft að glíma við vafasamar mynd- ir sem því berast. í 5. tölublaði fréttabréfs Gallerís Borgar er nefnt dæmi um slíkt: ,,Á dögunum bar svo til sem oftar að til okkar barst olíumálverk sem við vorum beðin um að reyna að finna út hver hefði málað, en myndin var ómerkt. Ekki treystum við okkur til að veita neinn úrskurð þar um né heldur þeir sérfræðingar, listmálarar og fræðimenn sem við leituðum til. Var myndin síðan sótt til okkar og enginn úrskurður upp kveðinn um höfund hennar. Nokkr- um vikum síðar berst hún svo í hús til okkar og er þá búið að merkja hana. Á hana hafði verið skrifað með stórum stöfum „S.A.“ og átti að standa fyrir Snorra Arinbjarnar og var hún föl sem slík fyrir ríflega hundrað þúsund krónur. í þessu til- viki tókst að koma í veg fyrir að hrekklaus málverkasafnari yrði fyr- ir barðinu á falsara. ..“ RÆTT UM FRAMKVÆMD LAGANNA Það er viðskiptaráðuneytið sem veitir leyfi til listmunauppboða. Inn- an Félags listfræðinga hefur nokkuð verið rætt um hvernig megi standa betur að framkvæmd laga og reglu- gerðar um þessi mál. Guðbjörg Kristjánsdóttir, formaður félagsins, sagði í samtali við blaðið að t.d. væri full þörf á að lögin kvæðu skýrar á um hvernig uppboðshaldari skýrði frá eigendasögu myndanna. Á upp- boðum erlendis fylgdi jafnan vönd- uð úttekt hverju verki, þannig að kaupandi vissi eftir því sem kostur væri allt um það verk sem hann væri að kaupa. Tvö ár eru síðan lögin tóku gildi og hefur að sögn Jóns Ögmundar Þormóðssonar, skrifstofustjóra í við- skiptaráðuneytinu, ekki komið sér- staklega til tals að breyta þeim. Hins vegar hafi verið fjallað um hvort haga mætti framkvæmdinni betur. Sem dæmi hefur ágreiningur komið upp á milli myndlistarmanna og uppboðshaldara varðandi skil á fylgiréttargjaldi, það er höfundar- réttargjaldi. í mörgum tilvikum eru myndir slegnar eigendum sínum og þá hefur sú venja skapast hér að gjaldið falli niður. Nú þykir myndlist- armönnum sem óeðlilega margar myndir heyri undir þennan flokk og benda þeir á að víða erlendis komi gjaldið jafnt á allar myndir án tillits til þessa. Mun eðlilegra væri að eig- endur myndanna drægju -þær til baka áður en hamarinn félli. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ásamt Krist- jáni Þorvaldssyni. Úlfar Þormódsson ÞAB GETUR VERIB AB ÉG HAFISAGT OF MIKID Gallerí Borg seldi myndir fyrir rúmar 9 milljónir ó uppbodum á síöasta ári, að sögn Úlfars Þormóös- sonar, starfsmanns gallerísins. Af andvirði sölu fara 10 prósent í höf- undarréttarsjóð. Þóknun söluaðila er að hámarki 20 prósent, en yfir- leitt mun lœgri. Síðustu ár hafa ver- ið haldin 5 til 6 uppboð að jafnaði. Eigendur Gallerís Borgar ásamt Úlf- ari eru dr. Ragnar Árnason prófess- or, Pétur Þór Gunnarsson, starfs- maður gallerísins, Arnmundur Backman hœstaréttarlögmaður og Sigurmar K. Albertsson, hœstarétt- arlögmaður. — Þú heldurþví fram að myndirn- ar eftir Sigurð hafi verið röntgen- og aldursgreindar og segir þœr hafa verið rannsakaðar hjá fyrirtœkinu Bruun Rasmussen í Kaupmanna- höfn. Samkvœmt upplýsingum Lise Buus starfsmanns Bruun Rasmussen er þetta ekki rétt. „Það er ekkert óeðlilegt við þess- ar myndir, en það getur verið að ég hafi sagt of mikið, að þær hafi verið röntgenlýstar. Þær voru hjá Arne Bruun og þeir „godkendtu" þær. Ef einhver vafi er á ferð gegnumlýsa þeir þær, ef ekki þá sleppa þeir því, vegna þess að það kostar um 60 þús- und krónur. Ef Lise Buus hefur ekki gegnumlýst þær, þá hefur hún ekki talið neina ástæðu til þess, enda eru þær merktar Sigurði á nákvæmlega sama hátt og hann merkir önnur verk sín. Þjóðminjasafnið á tvær oi- íumyndir eftir Sigurð. Önnur þeirra er merkt nákvæmlega á sama hátt og önnur þessara mynda, á hlið upp með kantinum." — Hvers vegna sagðir þú að þœr hefðu verið röntgen- og aldurs- greindar? „Ég hef einfaldlega misskilið Lisu Buus vegna þess að hún sagði að þær hefðu verið „godkendtar" fyrir uppboð. Hún hefur ekki talið þörf á að eyða peningum í röntgengrein- ingu.“ — Einn viðmcelenda PRESSUNN- AR fuUyrðir í samtali við okkur að Gallerí Borg hafi í fyrra selt mynd á uppboði sem sögð var eftir Kjarval, en mun vera eftir Jóhönnu Sigurö- arson. „Ég kannast alls ekki við þetta mál. Eins og svo margt annað er það runnið undan rifjum sömu öfundar- manna. Eftir að myndir Sigurðar Guðmundssonar komu inn höfum við ekki gert annað en verja okkur fyrir rógi frá starfsmanni Listasafns Islands, Viktori Smára, og fleirum. Það hefur t.d. verið látið í það skína og komið á framfæri við DV, að við höfum verið að selja falsaðan Ásgrim. Þetta er ekkert annað en at- laga að okkur.“ — Afhverju vandið þið ekki betur til varðandi eigendasögu mynda? „Þú getur haft samband við hvaða uppboðshús sem er í heimin- um, eigendasaga mynda fylgir stundum, stundum ekki. Langoftast er hún ekki birt vegna þess að selj- endur óska nafnleyndar. Þess vegna vitum við oft miklu meira um eig- endasöguna en við getum sagt.“ — Þú vitnar til listfrceðinga um Ásgrímsmyndina. Um hvaða list- frœðinga ertu að tala? „Til dæmis á Listasafni íslands. Sú manneskja sem hefur tekið laun frá Ásgrímssafni hefur séð þessa mynd. Hún segir þeim sem áttu myndina, að það séu allar líkur til þess að þetta sé Ásgrímur. Áður en við selj- um myndina segjum við að það sé vafi hver hafi málað hana. Við greindum frá þessu á uppboðinu og nefndum Axel Einarsson sem Pétur Friðrik hélt fram að hefði málað hana. í þessu tilviki lásum við einnig upp eigendasögu myndarinnar, sem staðfesti að hún var keypt heima hjá Ásgrími árið 1930. Meira þurfa skynsamir menn ekki. Myndin var slegin á 320 þúsund og þeim sem keypti hana er fullkunnugt um þess- ar efasemdir. Þá má nefna að Bera Nordal forstöðumaður Listasafnsins kom hingað á sýningu fyrir uppboð og sagði að það væri engin ástæða til að efast um að þetta væri mynd eftir Ásgrím Jónsson.“ — Hvernig skýrir þú að mynd eftir Kristínu Jónsdóttur sem þið eruð sagðir hafa keypt á uppboði hjá Nellemann og Thomsen í Árósum var þar skrásett „ekki merkt" en kemur síðar á uppboð hjá ykkur þar sem stendur í sýningarskrá „óljós merking"? yVið höfum aldrei farið á uppboð í Árósum þannig að við keyptum ekki þessa mynd.“ — En hvernig skýrir þú það ósam- rcemi sem er á milli merkingar myndanna hjá ykkur og danska uppboðshaldaran um? „Hjá flestum uppboðum er ekki tekið fram að mynd sé ómerkt. En oft er það með myndir að signatúr kemur í ljós við hreinsun. Margar myndir hafa tekið á sig tjöru og óhreinindi sem hylja merkingar. Því sendum við oft myndir til hreinsun- ar og við hreinsanir hafa merkingar stundum komið í ljós. Þá er ekki óal- gengt að merkingar finnist þegar myndir eru teknar úr ramma, þótt ég treysti mér ekki til að fullyrða hvort það gilti um þessa tilteknu mynd. En ef við segjum að hún sé „óljóst merkt", þá er hún það." — Hefuröu listfrœöinga á þínum snœrum? „Ef við erum í einhverjum vafa og getum ekki fengið staðfestingu í bókum eða í þeirri eigendasögu sem fylgir með til okkar, þá leitum við til listfræðinga." — Hverjir eru þetta? „Við leitum til þeirra sem við telj- um að viti best um viðkomandi mái- ara hverju sinni.“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.