Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER
Medeigandinn kœrir til rannsóknarlögreglunnar
Sigurjón Helgason, útgeröarmaöur og hestamaöur í
Stykkishólmi, hefur veriö kœröur til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Ákœrandi er Ólafur Sighvatsson, fyrrum
medeigandi Sigurjóns í útgerðarfyrirtœkinu Rœkju-
nesi/Björgvin. Ólafur sakar Sigurjón um ad hafa dregid
sér um 90 milljónir króna frá fyrirtœki þeirra.
Ólafur situr nánast eignarlaus eftir. Ádra sögu er ad
segja af Sigurjóni. Hann á einbýlishús í Stykkishólmi,
„búgard“ íSkógarstrandarhreppi, að ógleymdu fyrirtœk-
inu sem þeir Ólafur áttu áður saman. Hann er sagður
eiga fleiri eignir, meðal annars sumarhús á Flórída.
Ólafur og Sigurjón hófu útgerð
saman árið 1967. Fyrirtaekinu var
gefið nafnið Björgvin hf. Upphaf-
lega áttu þeir einn bát en fljótlega
fjölgaði bátunum og þegar mest var
átti fyrirtæki þeirra sjö báta. Árið
1977 keyptu þeir fiskvinnslu,
Rækjunes hf. Fyrirtækin voru sam-
einuð og nefnd Rækjunes/Björgvin
hf.
Árið 1974 varð mikið ósætti milli
Ólafs og Sigurjóns. Sigurjón hafði
annast fjármál útgerðarinnar. Ólafi
þótti Sigurjón hafa farið heldur
óvarlega með fé hennar og kærði fé-
laga sinn til lögreglunnar. Sættir
tókust eftir að milliliðir höfðu skor-
ist í deiluna og Ólafur dró kæruna til
baka.
HLUTABRÉF ALDREI GEFIN ÚT
Árið 1988 var staða fyrirtækisins
orðin mjög slæm, samkvæmt orð-
um Sigurjóns sem þá keypti hlut Ól-
afs. Ólafur telur nú að Sigurjón hafi
villt um fyrir sér þegar kaupin voru
gerð. Hann kveður Sigurjón hafa
sagt að fyrirtækið væri þá nær
gjaldþrota. Ólafur segist hafa komist
að því síðar að eiginfjárstaða fyrir-
tækisins hafi verið mjög góð á þess-
um tíma eða yfir 150 milljónir. Þá
var gert ráð fyrir að bátarnir væru
einungis metnir samkvæmt trygg-
ingarverðmæti.
Ólafur heldur því fram að ekki
hafi verið gengið frá sölu á hans
hluta með eðlilegum hætti. Notast
var við bráðabirgðaafsal þar sem þá
átti eftir að gefa út endanleg hluta-
bréf í fyrirtækinu. Því verki er enn
ólokið og er mat Ólafs að gerningur
þeirra Sigurjóns standist ekki lög.
MIKLIR FJÁRMUNIR
FÆRÐIR TIL
Hlutur Ólafs í Rækjunesi/Björg-
vin var 34,89%. Hann segir að haft
hafi verið af sér stórfé þegar hann
afsalaði til bráðabirgða hlut sínum
til Sigurjóns. Sigurjón hafði þá stofn-
að hlutafélagið Sigurjón Helgason
hf. en það er í eigu Sigurjóns og fjöl-
skyldu hans.
Ölafur telur að miklir fjármunir
hafi verið fluttir frá Rækju-
nesi/Björgvin yfir til Sigurjóns
Helgasonar hf. og einnig til Sigur-
jóns persónulega. Hann hefur nefnt
sjö fjárfestingar. Þær eru: bygging
húss við Síðumúla í Reykjavík, 7
milljónir; kaup á búgarðinum
Stóra-Langadal og uppbygging þar,
30 milljónir; kaup á bátnum Andra,
6 milljónir; kaup á bátnum Andey,
12 milljónir; kaup á íbúðarhúsi í
Reykjavík, 10 milljónir; kaup hluta-
fjár í Trésmiðjunni Ösp, 4,3 milljón-
ir; og loks kaup hlutafjár í Arnar-
flugi, 20 milljónir.
54 MILLJÓNIR ÚR ENGU
Vorið 1989 kom fram að höfuð-
stóll Sigurjóns Helgasonar hf. var 54
milljónir króna en fyrirtækið var
eignarlaust fjórum árum fyrr eða ár-
ið 1985.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem PRESSAN hefur aflað sér hafði
fyrirtækið Sigurjón Helgason hf. litl-
ar eða engar rekstrartekjur á þess-
um árum.
Ólafur Sighvatsson álítur að um
gífurlegar eignatilfærlsur hafi verið
að ræða frá fyrirtæki þeirra, Rækju-
nesi/Björgvin, yfir til Sigurjóns
Helgasonar persónulega og til Sig-
urjóns Helgasonar hf.
40 TIL 60 MILLJÓNIR
TÖPUÐUST í
BANDARÍKJUNUM
Rækjunes/Björgvin tapaði um-
talsverðu fé vegna viðskipta við fyr-
irtækið Ocean Harvest í Boston í
Bandaríkjunum. Sigurjón Helgason
var einn eigenda þess. Ocean Har-
vest keypti hráefni af Rækju-
nesi/Björgvin. í fyrstu virtist fyrir-
tækið í Bandaríkjunum ganga vel
en á árinu 1987 kom í ljós að Rækju-
nes/Björgvin hafði tapað einni
milljón dollara vegna viðskipta við
Ocean Harvest. Það jafngildir um
60 milljónum króna.
Sigurjón Helgason átti stóran hlut
í Ocean Harvest. Fleiri íslendingar
áttu í fyrirtækinu með honum.
Þeirra á meðal voru Halldór Helga-
son en hann var framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Bjarni Magnússon hjá
Islensku umboðssölunni, Einar
Kristinsson hjá Sjöstjörnunni og
Gudmundur Runólfsson, útgerðar-
maður í Grundarfirði.
BERST Á í EINKALÍFINU
Sigurjón Helgason virðist berast
mikið á í einkalífinu. Hann á meðal
annars meira en 100 hesta hús í
Stóra-Langadal í Skógarstrandar-
hreppi. Skoðun Ólafs er sú að ,,bú-
garðurinn" hafi að stórum hluta ver-
ið byggður fyrir fé sem tekið var frá
Rækjunesi/Björgvin og að auki hafi
tveir til þrír starfsmenn fyrirtækis-
ins verið í byggingarvinnu á sveita-
setri forstjórans.
Sigurjón mun hafa á annað hundr-
að hross á sveitasetrinu. Að
Stóra-Langadal er stórt hesthús,
íbúðarhús með öllum þægindum og
reiðhöll. Einnig hefur Sigurjón naut-
gripi á setrinu.
Einum báta fyrirtækisins var
breytt í sérhæft kúfiskveiðiskip. Það
er báturinn Anna SH. Kunnugir
segja að lán, sem fengust til breyt-
inga á bátnum, hafi verið mun hærri
en sem nam kostnaði við að breyta
honum. Mismunurinn á að hafa
runnið til byggingarinnar að
Stóra-Langadal.
Þá segir Ólafur að Sigurjón hafi
sölsað undir sig tvo af bátum Rækju-
ness/Björgvins, Andra og Andey.
ATVINNUTRYGGINGASJÓÐUR
HJÁLPAR
Fyrr á þessu ári voru miklir erfið-
leikar í rekstri Rækjuness/Björg-
vins. Atvinnutryggingasjóður kom
til hjálpar með um 40 milljónum
króna og Byggðastofnun með um 5
milljónum. Ef þessir sjóðir hefðu
ekki komið til er líklegt að fyrirtæk-
ið hefði orðið gjaldþrota.
Sigurjón M. Egilsson