Pressan - 06.12.1990, Side 15

Pressan - 06.12.1990, Side 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER 15 Ómar Kristjánsson ER BORGUNARMAOUR FYRIR 70 MILLJONUM ,, Þaö stendur ekki annad til en borga þessar fjárhœöir ef þetta verður endanlegur dómur," sagdi Ómar Krist- jánsson, adaleigandi og framkvœmdastjóri týsk-ís- lenska, en í gœr var Ómar dœmdur í Sakadómi Reykja- víkur í 15 mánada fangelsi og til að greiða 40 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Dómin- um hefur verið áfrýjað til Hœstaréttar. Guðmundur Þórðarson héraðsdómslögmaður, sem var framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska, var dæmdur í 5 mánaða fangelsi og til að greiða eina milljón í ríkissjóð. „Það hefur aldrei hvarflað annað að mér en greiða þetta staðfesti Hæstiréttur þennan dóm. Samtals gætu þetta orð- ið 70 milljónir króna og Þýsk-íslenska ræður við það. Ég get ekki sagt með hvaða hætti en hugsanlega þyrfti eignasala að koma til,“ sagði Ómar. Ómar sagði eignir, íbúðarhús og hluta í fyrirtækjum og sem hann á persónulega, standa óvarðar ef Þýsk-ís- lenska næði ekki að standa undir þeim fjárhæðum sem honum yrði gert að greiða, þ.e. staðfesti Hæstiréttur dóminn. Ómar sagði að sér þætti dómur sakadóms hreint ótrú- legur. Hann sagðist ekki hafa fengið réttláta meðferð í þessu máli. Hann sagði að sér sýndist á öllu að dómurinn væri byggður á skattaálagn- ingu en Hæstiréttur hefur álagningarmálið til meðferð- ar. „Ef Hæstiréttur tekur ekki undir álagninguna, hvað verður þá um þennan dóm? Ákæran var byggð á álagn- ingunni og dómurinn einnig," sagðL Ómar Krist- jánsson. „Hugsanlega hefur það verið refsivert hvað bókhald- ið hér var lélegt. Ég er ábyrg- ur fyrir því sem aðalstjórn- andi fyrirtækisins," sagði Ómar. Ómar Kristjánsson keypti Þýsk-íslenska árið 1976. Aður var hann starfsmaður Sam- bands íslenskra samvinnufé- laga. Hann starfaði fyrir sam- bandið í Þýskalandi og var nýkominn til landsins þegar hann keypti Þýsk-íslenska. HLUTAFE OLAFS 0. J0NSS0NAR ISTÖD TVÖ ER TIL SÖLU „Ég tel minn hlut einfaldlega óþarf- lega stóran enda ætlaði ég aldrei að hafa hann svona stóran nema tíma- bundið" segir Ólafur um 62 milljóna króna hlut sinn. Ólafur H. Jónsson, einn stœrsti einstaki hluthafinn í Stöð tvö, íhugar nú óformleg tilboð í hluta af 62 milljóna króna hlutafjáreign hans í fyrirtœkinu. Þetta svarar til um 12% af innborguðu hluta- fé. „Ég ætla ekki að selja allt hlutafé mitt, heldur hef ég hugsað mér að grynnka það aðeins enda hef ég tröllatrú á fyrirtækinu. Ég tel minn hlut einfaldlega óþarflega stóran; ég ætlaði aldrei að hafa hann svona stóran nema tíma- bundið." Ólafur segir að menn hafi rætt við sig um kaup á hluta- bréfum en vildi ekki nefna ákveðnar tölur í því sam- bandi. „Þetta fer bara eftir því hvað býðst á eyrinni og satt að segja hef ég ekki lagt mig svo ýkja mikið fram í söl- unni. Ólafur tilheyrir þeim hópi hluthafa sem nefndir hafa verið „Valsmenn" og skrifuðu sig fyrir 150 milljóna króna hlut í sjónvarpsstöðinni í harðvítugri baráttu um valdataumana. Hann segist nú sjá fram á bjartari tíma. „Allt útlit er fyrir hagnað á þessu ári og að næsta ár verði blómlegt. Fyrirtækið er á uppleið aftur og það er núm- er eitt, tvö og þrjú. Ég er að selja framtíðina en ekki for- tíðina." ENGIN LYFIA í TÍU HÆDA HÚSI Á Klapparstíg 1 í Reykja- vík er risið tíu hæða há- hýsi. Fólk er þegar flutt í flestar íbúðirnar. Þrátt fyrir það er engin lyfta komin í húsið. íbúarnir verða því að láta sig hafa að ganga upp og nið- ur stigana og að sjálfsögðu getur það verið erfitt fyrir þá sem búa á efstu hæðum húss- ins. Byggingaraðilinn, Steintak hf„ hefur lofað að koma lyftu í húsið en gefin loforð hafa ekki staðist hingað til. Sam- kvæmt nýjustu upplýsingum sem íbúarnir hafa fengið á lyfta að vera komin í húsið innan fárra daga. ** m *■ nm cm. 33- um ÖLLU STARFSFOLKI SANIMS í REYKJAVÍK SENT UPPSAGNARBRÉF Öllum starfsmönnum Sanitas í Reykjavík, á fjórða tug manna, hefur verið sagt upp „vegna end- urskipuiagningar“. Starfsmenn fyrirtækisins voru í gær og fyrradag að fá í hendur uppsagnarbréf sem dagsett voru fyrir síðustu helgi. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem öllum starfsmönnum fyrirtækisins í Reykjavík er sagt upp því í KOKID ODYRARA IHAGKAUP EN HJÁ VÍFILFELLI Hagkaup hafa verið að selja kókakóla í eins og hálfs lítra flöskum á 99 krónur. í innkaupum til verslana frá kókverk- smiðjunni Vífilfelii kostar ein slík flaska 146 krónur. Sjoppueigendur og kaup- menn hafa nýtt sér útsöluna í Hagkaupum og birgt sig upp af kóki. Meðal sjoppueigenda hefur orðið vart mikillar óánægju með hversu Hagkaup geta keypt kókið ódýrt. Einn sjoppueigandi sagði í samtali við PRESSUNA að til stæði að sjoppueigendur tækju sig saman og hættu að versla við Vífilfell vegna þess hversu Hagkaup fengju gosið ódýrt frá verksmiðjunni. haust fengu þeir sams konar bréf og sama ástæða gefin upp — endurskipulagning. Eins og þá fylgja nú vilyrði um einhverjar endurráðning- ar. ALLAR HELSTU EIGNIR PÁLS í PÚLARIS Á NAURUNGAR- UPPROU Verksmiðjuhús Sanitas á Akureyri verður selt á þriðju ogsíðustu nauðungarsölu 19. desember. Einbýlishús Páls G. Jónssonar að Vesturbrún 26 í Reykjavík verður selt á ann- arri sölu 18. janúar og verk- smiðjuhúsið að Köllunar- klettsvegi 4 í Reykjavík verð- ur selt á annarri nauöungar- sölu 30. janúar 1991. Uppboðsbeiðendur að hús- inu á Akureyri eru íslands- banki, Landsbankinn, Akur- eyrarbær, Iðnlánasjóður, Iðn- þróunarsjóður og Þróunarfé- lagið. Skuldir á húseigninni eru um 400 milljónir króna en brunabótamat hússins er um 125 milljónir. Uppboðsbeiðendur að verksmiðjuhúsinu í Reykja- vík eru íslandsbanki, Þróun- arfélagið, Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar, Gjaldheimtan í Reykjavík og Iðnlánasjóður. lUNDÍR 90XINNI I® I* Gunnar H. Krístins- 10 son 8 hitaveitustjóri — Var þessi útfelling ekki fyrirsjáanleg? „Jú, jú, það var alltaf vitað að það gæti orðið eitthvað svona." — Er þetta ekki áfall fyrir hönnun Nesjavalla virkjunar? „Nei. Þetta eru einfald lega byrjunarerfiðleikar sem skapast af við- kvæmu kemisku jafn- vægi." — Hlustuðuð þið ekki á viðvaranir Orkustofn- unar? „Það er út í hött að halda þvi fram að við vit- um ekkihvað við erum að gera með doktor i efna- fræði og aðra efnafræð- inga i vinnu hér. Slíkar ásakanir eru móðgun við starfslið Hitaveitunnar." — Þarf sérfræðinga- nefnd til að hjálpa ykk- ur? „Við erum með nóg af sérfræðingum í vinnu en þeir sem hafa verið nefndir í því sambandi hafa allir verið okkur inn- an handar hingað til." — Hafið þið einhver ráð? „Já, já, þetta er búið í bili og ég vona reyndar að þessu sé endanlega lok- ið." — Eru aðveiturörin að eyðileggjast? „Nei, hvernig dettur þér það i hug? Það er vanalegt ástand að það falli út úr rörunum þegar kólnar og það hefur gerst nú." — Kostar þetta Hita- veituna 500 milljónir? „Nei. Það sem Sigrún átti við þar er einfaldlega allt önnur leið við dreif- ingu vatnsins — leið sem verður ekki farin." Vandamál hafa komiö upp hjá Hitaveitu Reykjavikur i haust vegna útfellingar úr vatni frá Nesjavöllum. Hefur málið veriö tekið upp i borgarstjórn.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.