Pressan


Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 16

Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER Útgefandi Blað hf. Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson Ritstjórar Gunnar Smári Egilsson Kristján Þorvaldsson Blaðamenn Friðrik Þór Guðmundsson Hrafn Jökulsson Sigurður Már Jónsson Sigurjón Magnús Egilsson Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Ljósmyndari Sigurþór Hallbjörnsson Útlitsteiknari Jón Óskar Hafsteinsson Prófarkalesari Helgi Grímsson Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri Sigurður Jónsson Setning og umbrot Leturval Prentun Oddi hf. Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Áskriftargjald 550 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1100 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 170 kr. eintakið. Löggiltir fúskarar í PRESSUNNI í dag er frétt um viðskipti íbúa fjölbýlishúsa við verkfræðistofuna Verkvang. Þar kemur fram að verkfræðistof- an hefur gert úttektir á steypuskemmdum á blokkum og lagt fram kostnaðaráætlanir um viðgerðir á þeim. Þessar áætlanir hafa ekki staðist. I raun eru þær ekki í námunda við raunveru- leikann því íbúarnir hafa þurft að greiða allt að 160% hærra verð fyrir viðgerðirnar en áætlanir verkfræðinganna sögðu til um. Sjálfsagt er búið þannig um hnútana í þessum málum að verkfræðistofan sé ekki ábyrg fyrir vanáætlunum sínum. Ekki er hægt að krefja hana um skaðabætur fyrir að hafa lagt fram áætlanir sem urðu til þess að íbúarnir réðust í viðgerðir sem reyndust miklu dýrari en aðrir kostir, til dæmis klæðning. Hið eina sem íbúarnir geta gert er að skipta ekki við viðkomandi verkfræðistofu næst þegar þeir þurfa að láta gera við steypu- skemmdir. Einhvern tíma á næstu öld. En þetta mál varpar dálitlu ljósi á hvernig íslendingum er gjarnt að stunda viðskipti. Hérlendis fá menn löggildingu sem sérfræðingar í öllu milli himins og jarðar. Öllum öðrum er bannað að taka að sér þá þjónustu sem hinir löggiltu veita. Með löggildingunni telur við- skiptavinurinn að hann hafi ákveðna tryggingu fyrir því að sá sem selur honum þjónustuna standi sig í stykkinu. En því fer náttúrlega fjarri. Löggildingin segir ekkert annað en að viðkomandi hafi klárað tiltekið nám. Löggilding er nefni- lega ekki fyrir viðskiptavininn heldur er hún tæki sem margar stéttir nota til að klekkja á honum. Með henni er hægt að tak- marka framboð á þjónustunni og halda verðinu uppi. Þrátt fyrir þetta hefur löggilding oft veitt neytendum falskt öryggi. Þeir sljóvgast því og kaupa ósjaldan rándýra vöru eða þjónustu án þess að kanna orðspor seljandans. Þeir hafa flutt ábyrgðina á viðskiptum yfir á ríkið eða eitthvert annað þoku- kennt fyrirbrigði. Þetta er svo vandlega greypt í flesta að þeir trúa því að kenn- ari sé kennari og læknir læknir og síðan ekki söguna meir. Þeir eru hættir að gera ráð fyrir því að til séu góðir kennarar og slæmir, góðir læknar og hættulegir. Sjálfsagt væri það best fyrir neytandann að þessum löggild- ingum yrði hætt. Þá mundi fólk spyrjast fyrir um lækninn áður en það færi í heilaskurðaðgerð, spyrja kunningjana hvort þeir vissu um einhvern góðan trésmið og athuga feril verkfræð- ingsins áður en það léti hann gera kostnaðarúttekt. ALVARLEG BLINDA Fyrir skömmu barst mér einkennileg sending ofan af íslandi. Var það afrit af grein sem hafði birst í tímaritinu Þjóðlífi undir fyrirsögninni „500 daga áætlun. Leið Is- lands til markaðsbúskapar". Höfundar voru skráðir Óskar Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson, Jóhann Antonsson og „fleiri ráðgjafar um efna- hagsmál". Fyrirmyndin að þessari grein var auðvitað sú 500 daga áætlun um umbreyt- ingu á sovésku efnahagslífi sem rússneski hagfræðingur- inn Shatalín reyndi árangurs- laust að fá Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, til að fallast á og framkvæma. Ég ætla ekki að reyna að rekja efni þessarar greinar. Slíkt væri að æra óstöðugan. En ég get ekki stillt mig um að koma á framfæri nokkrum athugasemdum. Höfundar gera mikið úr því að margt sé líkt með ástand- inu á íslandi og í Sovétríkjun- um. Þetta er einfaldlega út í hött. Sovétríkin eru að niðurlot- um körnftn. Framleiðsla í flest- um greinum fer þar minnk- andi. Það fást engar vörur í verslunum. Þau geta ekki lengur brauðfætt íbúana og þau eru að liðast í sundur í deilum einstakra þjóða og þjóðarbrota. Ástandið er raunar með svipuðu móti í allri Austur-Evrópu. Nú er auðvitað víða pottur brotinn í íslensku efnahagslífi og margt sem betur má fara en verslanirnar eru fullar af vöru þótt flestir vildu örugg- lega hafa meira fé handa á milli til að kaupa fyrir. Þetta liggur hins vegar í eðli mark- aðsbúskapar. í Sovétríkjun- um og víðar þar sem mið- stýrð áætlanagerð hefur ver- ið stunduð er þessu öfugt far- ið. Þar er yfirleitt nóg af pen- ingum en engar vörur til að kaupa. Það er til marks um alvar- lega blindu á íslenskt samfé- lag að leita sér samlíkinga og lausna í Sovétríkjunum. Engu er líkara en hinir mörgu ráð- gjafar um efnahagsmál sem greinina skrifuðu hafi til skamms tíma hrærst í annar- legum hugarheimi í litlum tengslum við íslenskan veru- leika en skyndilega fengið nýja vitrun úr austri. 500 daga áætlunin fyrir Is- land ber þessum uppruna vitni. Þar ægir öllu saman, hlutum sem búið er að fram- kvæma og hlutum sem eng- um heilvita manni dettur í hug að hægt sé að gera inn- an tilskilins tíma. Sem dæmi um hið fyrra nefni ég aukið frjálsræði í gjaldeyrismálum sem þegar hefur verið stað- fest með reglugerð frá við- skiptaráðuneytinu og um hið síðara róttæka endurskoðun á fiskveiðistefnunni með upp- töku kvótaleigu. Veiðileyfasala — eða kvóta- leiga — er auðvitað markmið sem þarf að stefna að en það er að berja hausnum við steinínn að ætlast til þess að hún verði tekin upp í umtals- verðum mæli á 500 dögum, með öðrum orðum fyrir lok næsta árs. Til þess skortir pólitískar forsendur á íslandi. Það er reyndar annar höf- uðgalli umræddrar greinar að þar er hvergi bent á hvern- ig skuli koma umbótamálun- um fram á vettvangi stjórn- málanna. íslensk stjórnmál, eins og reyndar stjórnmál annars staðar, snúast ekki um tæknilegar umbætur heldur hagsmuni og þó aðallega verndun sérhagsmuna á kostnað almannahags. Það er til lítils að leggja fram um- bótaáætlun ef engin eru um- bótaöflin sem stuðning hafa til að hrinda henni í fram- Jívæmd. Birgir er hagfræðingur hjá EFTA í Genf. FISKURINN TELST LÁTINN VIÐ ALGERAN HEILADAUÐA EN ÞESSI ER ENN Á LÍFI OG ÞÁ MÁTTU FLAK'ANN! TEIKNING: ÓMAR STEFÁNSSON „ÞJÓÐARSÁTTIN HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Nú keppast menn við það hver um annan þveran að lof- syngja hina svonefndu þjóð- arsátt í nafni hjöðnunar verð- bólgu. Ein ástæðan kann að vera sú að íslenskir hagfræð- ingar ( svo að ekki sé minnst á fréttamenn) hafa svikist um að upplýsa almenning um raunverulegt eðli málsins. Sannleikurinn er sá að engin tengsl eru á milli verðbólgu og þjóðarsáttarinnar svo- nefndu. Verðbólga hlýst ætíð og alls staðar af peninga- þenslu, annaðhvort vegna beinnar seðlaprentunar eða lánsfjárþenslu. Ferill verð- bólgunnar um hagkerfið er að vísu flókinn en lögmálið sjálft um hana er þó tiltölu- lega einfalt: Peningar falla í verði sé framleitt of mikið af þeim. Og varanlegt verðfall peninganna eða verðhækk- un vöru kallast verðbólga. Ein mikilvægasta vara hag- kerfisins er vitaskuld þjón- usta launþega en laun eru ekkert annað en verð henn- ar. Við peningaþenslu hækk- ar sú vara í verði eins og allt annað. Þegar stjórnvöld ráð- ast á laun í því skyni að hemja verðbólgu einbeita þau sér þess vegna að afleiðingu, ekki orsök. Þau eru þá að berjast við eigin sköpunar- verk. Þau eru að glíma við draug sem þau hafa sjálf vak- ið upp og fóðrað. Peninga- þenslan sem stjórnvöld hleyptu af stað, til dæmis með erlendum lántökum, yfir- drætti ríkisins í seðlabanka eða valdboðinni lágvaxta- stefnu, knýr upp launin en síðan er reynt að stöðva þá þróun með valdboði. „Þjóðarsáttin" margnefnda er nafn á þessari viðleitni til að frysta eða stöðva kaup- hækkanir með tilskipunum að ofan. Þetta er nýtt og fal- legt nafn á gömlu og ljótu fyr- irbæri, launastefnu (incomes policy). Fyrir því er löng og mikil reynsla að launastefnu er ekki unnt að fylgja nema í mjög skamman tíma, eitt eða tvö ár: Reynt er að halda launum niðri með handafli, án þess að uppsprettan sjálf, það er að segja peningaþensl- an, sé stöðvuð. Fyrr eða síðar brestur stíflan. Ln kynlegt er að sjá yfirlýsta einkafram- taksmenn og markaðssinna eins og ritstjóra Morgun- blaðsins og DV skrifa þessa dagana ástarjátningar til þjóðarsáttarinnar, hundruð- ustu tilraunarinnar til að fylgja launastefnu á íslandi. Hvað vilja raunverulegir markaðssinnar? Þeir vilja í fyrsta lagi beita ströngu að- haldi í peningamálum, fram- leiða hóflega mikið af pen- ingum og hafa vexti nægi- lega háa til þess að of mikið fé streymi ekki úr bönkum. Þá verður engin verðbólga. Markaðssinnar vilja í öðru lagi að aðilar vinnumarkað- arins semji á eigin ábyrgð um kaup og kjör. Ef fyrirtæki semja um kaup sem þau geta síðan ekki greitt þá verða þau að fara á höfuðið. Ef verka- lýðsfélög knýja kaupið upp úr því sem unnt er að greiða þá verða þau á sama hátt að sætta sig við atvinnuleysi. Vitaskuld verða líka að gilda almennar leikreglur á vinnu- markaðnum, svo að einstök verkalýðsfélög geti ekki með ofbeldi eða hótunum um of- beldi neytt kaup félaga sinna upp úr því sem um gæti sam- ist í frjálsum samningum. „Þjóðarsátt" eða launa- stefna getur raunar átt rétt á sér við ákveðin skilyrði og um mjög skamman tíma, sér- staklega til að auðvelda að- lögun að nýjum og erfiðum aðstæðum. En sé reynt að fylgja launastefnu lengi jafn- gildir það því að markaðsöfl- in séu tekin úr sambandi. Þá rís upp kerfi þar sem verka- lýðsrekendur, atvinnurek- endur og atvinnustjórnmála- menn skammta saman kaup og kjör, korpóratismi. Og þá er úti um atvinnufrelsið. Höfundur er lektor í stjórn- málafræði.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.