Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 24

Pressan - 06.12.1990, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. DESEMBER 9it)jnr Í0lCIl!?IUU' ^jóð^ögttr í sjómannaverkfalli fyr- ir mörgum árum kom til orðaskipta milli formanns verkalýðsfélagsins á Hell- issandi og Sigurðar Krist- jónssonar, sem var skip- stjóri á Skarðsvík SH. Sig- urður var mikil aflakló og hafði verið aflahæstur allra á Vesturlandi í ára- raðir. Þrátt fyrir að verkfallið hefði staðið yfir í nokkra daga gerði Sigurður sér lítiö fyrir og kallaði alla sína menn til skips. Þar sem færri fengu pláss hjá Sigurði en vildu þorðu mennirnir ekki annað en mæta um borð. • Þegar allir voru komnir sagði Sigurður hásetun- um að gera klárt til brott- farar. Þótt mönnunum væri Ijóst að fremja ætti verkfallsbrot dirfðust þeir ekki að gera annaó en skipstjórinn bauð þeim. í þann mund sem verið var að taka inn fastsetn- ingarenda bátsins kom formaður verkalýðsfé- lagsins á bryggjuna, mjög ákveðinn á svip. Hann kallaði til Sigurðar og spurði hvað hann væri að gera. Sigurður svaraði því til að hann væri að fara á sjó. „Það er verkfall og þér er óheimilt að róa," svar- aði fcrmaður félagsins. „Ég ræ samt," sagði Sigurður. „Þér er óheimilt að róa og ef þú lætur þér ekki segjast neyðumst við til að beita þig sektar- ákvæðum," svaraði verkalýðsformaðurinn, ákveðinn mjög. „Nú, og hvað er sektin há?" spurði skipstjórinn. „Tólf hundruð krónur," svaraði formaðurinn. Sigurður virti verka- lýðsformanninn ekki frek- ara viðlits, heldur kallaði hátt til háseta sinna: „Sleppa strákar!" (Úr sjómannasögum) Þekktur raupari lét eitt sinn vel af „velgengni" sinni í kvennamálum. Einu sinni þegar hann, mætti til vinnu á mánu- degi gat hann ekki annað en sagt öllum frá „ár- angri" sínum, burtséð frá því hvort nokkur hefði áhuga á frásögninni. Honum mæltist svo: „Ég náði mér í sérstaka píu, algjöra hippapíu. Ég fór með henni heim til hennar. Hún býr í komm- óðu." (Úr mismaelasögum) Osturínn er lifibrauðið — Björgvin Guðmundsson er ostameistari Osta- og smjörsölunnar en nýlega hlaut fyrir- tœkid sjö gullverdlaun og fimm silfurverdlaun á sýningu í Danmörku. „Nei, nei, osturinn er ekki það eina sem kemst að í lífi mínu. En hann er mitt lifi- brauð ef þannig má komast að orði!" Viðmælandinn er Björgvin Guðmundsson mjólkurfræð- ingur og ostameistari hjá Osta- og smjörsölunni í Reykjavík. Nýlega hlutu ís- lenskir ostar tólf gullverðlaun og ellefu silfurverðlaun á ostasýningu í Danmörku, þar af ostar frá Osta- og smjörsöl- unni sjö gull og fimm silfur. Björgvin stjórnar ostafram- leiðslu fyrirtækisins og var okkur tjáð að hann ætti heið- urinn af flestum verðlauna- ostunum. „Nei, ég er ekki heilinn á bak við þessi verðlaun. Flest- ir smurostanna voru t.d. til þegar ég kom hingað og for- veri minn, Guðmundur Geir Gunnarsson, og fleiri áttu stóran hlut í þessu." Gullverðlaun hlutu ostar sem fengu einkunn yfir 12. „15 er hæsta einkunn sem gefin er. Ég veit ekki til þess að neinn ostur hafi fengið hana, að minnsta kosti þætti mér gaman að sjá þann ost.“ ost." Osta- og smjörsalan stóð sig langbest íslenskra framleið- enda. Er mikil samkeppni þeirra á milli? „Ekki er hægt að segja það. Auðvitað keppast menn um að hafa bestu vöruna en það er engin hatrömm barátta, t.d. í slíkum keppnum. En við erum vitanlega mjög ánægð- ir með að hafa fengið helm- inginn af íslensku verðlaun- unurn." Hvernig atvikaðist það að Björgvin varð atvinnumaður í osti? „Allt saman byrjaði þetta með því að ég fór að vinna hjá Mjólkursamlaginu á Hvammstanga sem sumar- strákur. Ég var tekinn á samn- ing hjá Brynjólfi Sveinbergs- syni fyrir norðan og fór síðan í nám og útskrifaðist frá Dal- um í Danmörku 1979. Það var svo í nóvember 1982 að mér bauðst starf hjá Osta- og smjörsölunni fyrir sunnan." Björgvin segir að ostur sé Björgvin Guðmundsson ostameistari fékk sjö gullverðlaun, eins og Mark Spitz. góð fæðutegund og hafnar heimskulegum tilgátum blaðamanns um að hann hljóti að fá nóg af fnyknum! „Þú færð auðvitað ekki góðan ost nema einhver lykt fylgi. En staðreyndin er sú að Islendingar vilja fremur milda osta eða bragðlitla. Þér dytti eitthvað annað í hug færir þú inn í danska ostabúð. Þeir borða meira af sterkum, eldri ostum. Ætli það sé ekki ísbúinn frá KEA sem kemst næst þessum dönsku og teld- ist þó mildur í Danmörku." Þeirri hugmynd að Björg- vin hljóti endrum og sinnum að verða dauðleiður á ostum og forðist þá jafnvel í einkalíf- inu er einnig snarlega hafn- að. „Ég borða mikinn ost dag- lega, það er ekki hægt að verða leiður á honum. Ég get þó ekki gert upp á milli ein- stakra osttegunda. í góðum veislum borðar maður ekki brauðost en hann er bestur ofan á brauð. Að öðru leyti er sama hverjar kringumstæð- urnar eru, ostur er alltaf góð- ur." Loks fær blaðamaðurinn nokkra uppreisn æru þegar hann spyr varfærnislega hvort Björgvin hljóti nú ekki oc að eiga sér önnur áhugamál r? en ostinn? <0 „Ég er mikið í veiðiskapn- um, aðeins farinn að kunna lagið á flugunni og fluguhnýt- ingum. Ég er einnig áhuga- samur um tónlist, var fyrir norðan að gutla með hljóm- sveit sem hét Lexía, spilaði á gítar. Þá stundaði ég fyrrum mikið fótbolta og körfubolta með USVH .. „USAH?" spyr blaðamaður- inn. „Nei, nei, nei! USVH. Ung- mennasamband Vestur-Hún- vetninga. Þú ert að fara hættulegar brautir ef þú skrif- ar annað!" SJÚKDÖMAR OG FÓLK Um fleiri sérgreinar læknisfræðinnar Ég fór í bíó um daginn til að sjá flunkunýja kvik- mynd frá Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þetta var ósköp venjuleg mynd um venjulegt alþýðufólk. Eig- inkonu söguhetjunnar var nauðgað í byrjun myndar- innar af nokkrum atvinnu- lausum körfuboltamönn- um. Að því loknu börðu þeir hana til bana og drápu síðan húsvörðinn og tvo lögregluþjóna á leiðinni út. En inn við beinið voru þetta sómapiltar því að þeir hlífðu ketti og kanarifugli dóttur húsvarðarins. Sögu- hetjan kom heim og fylltist óhug og réttlátri reiði, tók fram vélbyssuna sína og sprengivörpuna sem hann geymdi í bílskúrnum og veitti körfuboltaliðinu eftir- för. Hann kynntist fljótlega kærustu illvirkjaforingjans en hún virtist mikil ágætis- stúlka. Þegar allir þorpar- arnir höfðu verið drepnir á hroðalegan hátt og körfu- boltaliðið þeirra þar með fallið úr keppni giftust þau og leiddust inn í framtíðina með bros á vör og eld- flaugabyssu um öxl. Þetta fannst mér góð mynd. í hlé- inu fékk ég mér meira popp og kók. Þá hitti ég virðuleg- an lækni, gamlan kunn- ingja minn. Hann var á allt annarri og menningarlegri mynd ásamt dóttur sinni og hneykslaðist þegar ég sagði honum á hvað ég væri að horfa. — Það er ekkert eins hressandi í skammdeginu og gott of- beldi, sagði ég vandræða- lega. — Já, sagði hann. Þú ert alltaf að skrifa í PRESS- UNA og hnýtir í heimilis- lækna, beinalækna, lyf- lækna og alla aðra en segir ekki múkk um geðlækna. Þú ert jú sjálfur í geðiækn- ingum svo heimatökin ættu að vera hæg. Annars finnst mér allir geðlæknar hálf- skrítnir, bætti hann við. Það er alveg typískt fyrir verð- andi geðlækni að stunda ofbeldismyndir. Hann tók í hönd dóttur sinnar, leit á mig með þóttasvip og fór. Ég ákvað að skrifa grein um geðlækna í úttekt minni á sérgreinum læknis- fræðinnar. JUST DET, EINMITT ÞAÐ! Þegar ég var að byrja að starfa í Svíþjóð kom eitt sinn til greina að ég færi að vinna inni á geðdeild. Mér leist ágætlega á það en fannst það ákveðinn mein- bugur að ég kunni eigin- lega ekkert í sænskunni. — Það er ekki mikið mál, sagði viðmælandi minn, þú lærir bara að segja just det (einmitt það), og eftir það eru þér allir vegir færir. Þú hallar þér aftur í stólnum og lætur sjúklinginn tala sem lengst og segir just det á réttum stöðum í alls kon- ar tóntegundum. — En ef ég skil ekki hvað hann seg- ir? spurði ég. Á ég samt að halda áfram að segja just det? — Já, og enginn tekur eftir því. Annars vegar eru þeir sem segja ekkert en humma, jánka eða segja just det á stöku stað og reyna þannig að fá sjúkling- inn til að segja sem mest. Aðrir geðlæknar eru and- stæður þessara og tala sjálf- ir út í eitt. Sjúklingurinn hlustar á lækninn sem gengur honum í föðurstað, ráðleggur, ávítar, hrósar og fyrirgefur. Sumir geðlækn- ar gera hvort tveggja, þegja ýmist eða tala mikið. Þetta ruglar yfirleitt sjúklinginn mjög í ríminu og styrkir þannig áframhaldandi meðferðarsamband. Segðu barajustdet, hummaðu og jánkaðu á réttum stöðum og þá áttu eftir að ná langt í þessum fræðum. VANDAMÁL Á VANDA- MÁL OFAN Þessi vinur minn talaði sig upp í æsing og sagði: — Geðlæknar eru menn sem taka að sér að greiða úr sálarflækjum fólks og skilgreina vanda- mál. Margir þeirra hafa sjálfir flækjur í sálinni og drjúgan skerf af vandamál- um og telja sig þess vegna vel til þess fallna að fást við þessi mál. Sumum tekst að nota eigin vandamál til að hjálpa sjúklingnum, öðrum tekst að nýta sjúklinginn til að greiða úr sínum flækjum og enn öðrum lánast hvorki að leysa eigin vandamál né heldur vandamál sjúklings- ins. Stöku sinnum aukast bæði vandamál læknis og sjúklings í meðferðinni en þá ættu báðir að skipta um meðferðaraðila. Best er ef sjúklingur og læknir eiga við keimlík vandamál að stríða og geta jafnvel farið að metast um hvor eigi erf- iðari daga. Hann hélt enn áfram: — Góður geðlæknir þarf að vera mörgum kost- um búinn. Hann situr mikið á fundum og ræðir við sjúklinga og aðstandendur þeirra eða með öðrum meðferðaraðilum og ræðir um sjúklinga og aðstand- endur þeirra. Á þessum fundum er drukkið ómælt kaffi svo að hver einasti geðlæknir verður að hafa sterkan og þolinn maga. Þessar miklu setur krefjast j að auki þess að menn hafi sterkan og vellagaðan sitj- anda sem ekki þreytist þó að mikið sé setið. Hann hætti nú ræðu sinni og ekk- ert varð úr ráðningu minni á geðdeild í þetta sinn. SKILGREININGAR OG AÐRAR GREININGAR Mér fellur sérlega vel hve geðlæknar eru færir í að skilgreina atburði líðandi stundar út frá hugmyndum geðlæknisfræðinnar. Ég heyrði einn tala um það að trúlega hefði Saddam Hussein verið rekinn of snemma á koppinn í frum- bernsku og hataði þess vegna öll valdboð. Bush og Thatcher hefðu sennilega vakið upp hjá honum nei- kvæðar hugsanir gagnvart foreldrum hans og því fór sem fór. Annar sagði minni- máttarkennd og öryggis- leysi sumra stjórnmála- manna eiga rætur að rekja til æskuáranna þegar þeim var strítt í sturtunum. Marg- ir geðlæknar eru stöðugt að skilgreina umhverfi sitt á þennan hátt og sjá óleyst vandamál í hverju horni og er það vel. Án geðlækna væri tilveran óskiljanlegri en hún er og án geðlæknis- fræðinnar fengju margir læknar enga aðstoð sjúkl- inga sinna við að leysa eig- in vandamál.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.