Pressan


Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 25

Pressan - 06.12.1990, Qupperneq 25
25 LISTAPOSTURINN Stórvirki T.S. Eliot í íslenskri þýðingu Bókaútgáfan Iðunn gefur út ljóðabálkinn The Waste Land eftir bandaríska skáldið T.S. ELI- crr í þýðingu sverris hólmars- SONAR. Bókin nefnist Eyðiland- ið og auk ljóðabálksins birtast ennfremur ljóð T.S. Eliot á ensku ásamt skýringum skáldsins, auk þess sem Sverrir gerir ítarlega grein fyrir skáldskapnum og skáldinu. Sinfóníuhljómsveitin Markads- setning bætt „Það þarf að markaðssetja hljómsveitina betur og nýta bet- ur þá miklu opinberu styrki sem hún fær,“ sagði runólfur birgir leifsson, sem ráðinn hefur ver- ið framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar íslands, þegar hann var spurður um það hvað hann teldi brýnast að gera er hann tæki við. Runólfur tekur til starfa 1. janúar næstkomandi en stjórn sinfóníunnar tók ákvörðun um ráðningu hans á þriðjudaginn. Runólfur starfar nú sem rekstr- arstjóri sinfóníunnar en hefur meðal annars unnið fyrir fjár- veitinganefnd Alþingis. „Þá stefni ég að því að hljóm- sveitin nái betur út til almenn- ings og einnig er ætlunin að gera breytingar á skrifstofu hennar," sagði Runólfur. Hann sagði að væntanlegar breytingar á skrif- stofu hefðu í för með sér svipað- an starfsmannafjölda en breytt- ar áherslur. „Að skrifa þessa bók var fyrirætlun sem ég var alitaf í vafa um.' Eins og blóm í garði ii Steinunn Sigurðardóttir í spjalli um Lýting Jónsson, framlífið og .. „Það er kannski erfitt fyrir fólk ad ímynda sér að einhver síflissandi kvenmadur geti verid alvarlegur. Þad þótti fínt i útvarpi fyrir fimmtán árum en þykir þad því midur ekki lengur. Þœr flissa allar út í eitt þess- ar konur." Við erum sestar inn í stofu hjá Steinunni og ég spyr hvort það hafi verið erfitt að hasla sér völl sem al- varlegur rithöfundur fyrir tuttugu árum. „Ég er ekki nema 19 ára þegar ég gef út fyrstu ljóðabókina mína. Svo koma út tvær aðrar ljóðabækur og síðan tvö smásagnasöfn. Ég fékk mjög góða og allt upp í frábæra dóma en þetta seldist hins vegar ekki mjög vel. Ljóðabækurnar frek- ar illa eins og ljóðabækur gera en smásagnasöfnin svona sæmilega. Það er ekki fyrr en ég hef gefið út bækur i sextán ár að ég fæ virkilega góðar viðtökur og Tímaþjófurinn er ennþá í umræðu og umfjöllun." „HÚN LAS NOKKUR LÍTIL, PEN LJÓГ — Áður en Tímaþjófurinn kom út fannst mér eins og þér væri stund- Enn skrifar MacLean að handan „Það hefur nú ekki verið farið neitt leynt með það hvernig þessar bækur eru skrifaðar," sagði JÓN KARLSSON hjá bóka- forlaginu Iðunni þegar hann var spurður um útgáfu á spennubók- inni NÆTURVÓRÐUM. Bókin er skrifuð „í anda“ Alistairs Mac- Lean sem lést fyrir nokkrum ár- um. Það er maður að nafni Alistair MacNeal sem hefur tekið að sér að halda við sagnahefð þessa meistara spennusagnanna. MacNeal þessi byggir á handrit- um með rissuðum söguþræði sem MacLean skildi eftir sig. Sumir nefna svik í þessu sam- bandi en Jón harðneitar því og segir að aldrei hafi verið gerð til- raun til að dylfa uppruna þeirra. Bækur þessar hafa verið met- sölubækur hér á landi jól eftir jól og áfram má búast við bókum úr smiðju MacLeans því að minnsta kosti fimm „söguþræðir" eru enn eftir. um ýtt út úr bókmenntalegri um- ræðu með athugasemdum eins og: „Hvernig finnst þér að vera falleg- asti kvenrithöfundurinn í dag.“ Það datt hins vegar engum í hug að spyrja Guðberg sömu spurningar. „Þeir eru nú nokkrir sem veita Guðbergi harða samkeppni. Það hefði kannski verið nær að spyrja Guðberg: „Hvernig er að vera sá karlrithöfundur á Islandi sem held- ur sér best?“ En svona í alvöru talað þá er annað að vera karlrithöfundur á íslandi en kvenrithöfundur. Það ætti ekki að vera nein aðgreining þarna á milli en hún er til staðar. Við erum spurðar öðruvísi spurninga en kallarnir og bækurnar okkar eru bornar saman innbyrðis. Þetta er óskaplega pirrandi en sem betur fer að lagast. Það er ekkert meira líkt með bókum eftir íslenskar konur en bókum eftir íslenska karla cg það á alls ekki að fjalla um þaer í einhverj- um sérstökum pakka. Ég man eftir því að til dæmis var sagt opinber- lega: „Hún las nokkur lítil, pen ljóð.“ Ljóðin mín hafa nú aldrei verið neitt sérstaklega pen svo orð væri á ger- andi.“ „ÞAÐ VORU EKKI MÍN ORГ — En hvað þá um feminíska bók- menntagreiningu? Nú skrifaði Helga Kress mjög umfangsmikinn ritdóm um Tímaþjófinn. „Það sem Helga Kress gerði var alveg stórmerkilegur hlutur. Mér finnst ég standa í þakkarskuld við hana. Hún tekur þarna bókina mína og skrifar hálfgerða doktorsritgerð um hana — og gerir það síðan alveg svakalega vel. Hún er einn af bestu fræðimönnum okkar á bókmennta- sviðinu og les oft mjög skemmtilega úr því sem er skrifað. Hitt er svo annað mál að ég var ekki endilega sammála henni. Ég fór vestur í Odda með hjartað í buxunum þegar Helga var að fjalla um þetta og það var fullt út úr dyrum. Þar sem ég kom aðeins of seint lendi ég í því að standa og stend milli virðulegra roskinna kvenna sem fylgjast grannt með viðbrögðum mínum undir lestrinum. Að því kemur að Helga les kafla úr bókinni og dregur ályktun sem var: „Allir karlar eru nauðgarar". Þá leit ég á þessar góðu konur sem stóðu mér næstar og sagði: „Það voru ekki mín orð.““ HÖFUNDUR Á BARA AÐ SKRIFA ÞAÐ SEM HANN VILL — Eru einhver brögð að því að höfundar skrifi fyrir kenningarnar? „Höfundur á bara að skrifa það sem hann vill og getur. Allar teg- undir bóka eiga rétt á sér svo fram- arlega sem þær eru góðar. Mér finnst t.d. ekki að það eigi að vera að slíta upp úr þessari flóru allan gleym-mér-eiastofninn. Mér finnst að öll blómin eigi að fá að vera hlið við hlið eins og blóm í garði. Fíflar eða sóleyjar, rósir og hvað sem er. Ef höfundur aftur á móti stendur sig ekki í stykkinu og skrifar vonda og hallærislega bók verður að láta hann vita það. Ef maður sest niður með það að leiðarljósi að skrifa met- sölubók þá er ég til dæmis viss um að það verður mjög slæm bók. Eins er þegar höfundar falla í þá gryfju að predika gegnum bækur sínar.“ LÝTINGUR JÓNSSON — Hvað með Lýting Jónsson og nýju bókina þína? „Þetta er safn af eftirmælum um ætt Öldu ívarsen þótt hún sjálf liggi að mestu óbætt hjá garði. Einnig eru þarna athugasemdir útgefanda sem er Lýtingur Jónsson og ein lífs- játning, auk nokkurra sendibréfa héðan og að handan. Ég nota síðan þetta efni til að segja sögu. Bókin er náttúrlega sérkennileg að því leyti að hún er að hluta til paródía á minningargreinar en bara að hluta til. Ég nota þessa aðferð einnig til að afhjúpa fólk. Það sveiflast svolítið hratt á milli alvöru og gamans sem gerir að verkum að svolítið erfitt er að velja kafla til að lesa upp úr bókinni. Ef ég vel fyndinn kafla heldur fólk að hún sé tómt grín og ef ég vel alvarlegan kafla heldur fólk að hún sé öll al- vörugefin. Að skrifa þessa bók var fyrirætlun sem ég var alltaf í stöðugum vafa um. Það er náttúrlega stórt vanda- mál að búa til bók sem er samansett úr svona mörgum greinum og eftir svona marga höfunda. Þetta er bæði stílvandamál og samsetningarvandamál. Ég náði áttum með jöfnu millibili í kofa uppi í sveit. Ég lokaði mig þar inni eða fór í göngutúra og kom svo í bæinn og talaði út í eitt. Þá var ég kannski ekki búin að tala við neinn í viku.“ AÐ LIFA ÁFRAM — En hvað með framlífið sem Steinunn gerir svo mikið grín að í bókinni? Eru bókmenntirnar fyrir höfundinum ekki angi af þessu sama framlífi? „Mér finnst nú frekar notaleg til- finning að skrifa bækur. Ég man að þegar ég var að vinna á útvarpinu, sem ég kunni nú mjög vel við að mörgu leyti, hugsaði ég með mér: Svo fer þetta bara út í loftið og eyðist fyrir vindinum. Mér leið einhvern veginn betur að vera að gera eitt- hvað sem kæmi á bók og mundi svo lifa mig. Ég væri fífl ef ég ætlaði að halda því fram að ég vissi að ekkert líf væri eftir þetta líf. Ég held að ef það er annað líf þá sé allt miklu stórkost- legra en okkur órar fyrir. En sé það þetta lummulega framlíf sem miðl- arnir eru alltaf að lýsa vil ég gjarna sleppa við það.“ Þóra Kristin Ásgeirsdóttir

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.