Pressan - 06.12.1990, Page 30
íslenskur stúdent á ítaliu
HEFUR SETIÐ SEX
ÁR í FANGELSI
VEGNA MATAR
SENDINGAR FRÁ
MÖMMU OG PARRA
— Þaö voru einkum sviðin og
tópasinn sem vöktu grun-
semdir — sagði Jónas Stein-
grímsson er GULA PRESSAN
heimsótti hann.
UMHV ERFISRÁÐ HERRA FÆR SÉR
NÝJAN BÍL FYRIR KOSNINGARNAR
— Finnst ég öruggari gagnvart umhverfinu — segir Július
Sólnes.
Ný þjónusta þjóðkirkjunnar
BÝÐUR GIFTINGAR MEÐ ÓKEYPIS
SKILNAÐARRÁÐGJÖF INNIFALINNI
Sjálfstœdisflokkurinn
VILL AÐ ÞORSTEINN FARI
TIL AÐ FRELSA GISLA
Reykjgvík, 6. desember
Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins og aðrir helstu
forystumenn flokksins
haf a farið þess á leit við ut-
anríkisráðuneytið að það
heimili að Þorsteinn Páls-
son, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, fái aö fara til
Bagdad og freista þess að
frelsa Gísla Sigurðsson
lækni.
„Við viljum leggja okkar af
mörkum," sagði Davíð Odds-
son, varaformaður flokksins,
í samtali við GULU PRESS-
UNA. „Við teljum Þorstein
um margt heppilegan til far-
arinnar. Þorsteinn getur kom-
ið vel fyrir og okkur vitan-
lega hefur Saddam Hussein
ekki neitt á móti honum."
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir tókst GULU PRESSUNNI
ekki að ná tali af Þorsteini.
Hann hefur ekki komið út úr
skrifstofu sinni í Valhöll frá
því að fundur forystumanna
flokksins hófst þar á mánu-
dag eftir að viðbrögð við
samþykkt þingflokksins um
bráðabirgðalögin komu í Ijós.
Sérstakt dansgólf
fyrir gömln
dansana
Reykjovík, 5. desember
„Við teljum að réttur
okkar haf i verið fyrir borð
borinn á undanförnum ár-
um,“ sagði Óiafur Úlfars-
son, formaður nýstofn-
aðra samtaka áhugafólks
um gömiu dansana.
„Nýir skemmtistaðir eru
alls ekki hannaðir með þarfir
okkar í huga. Þar er allt mið-
að við að dansaðir séu nýju
dansarnir. Við viljum snúa
þessari þróun við. Fötluðum
tókst á sínum tíma að fá
skemmtistöðum breytt með
hliðsjón af sínum þörfum. Við
stefnum að hinu sama,“ sagði
Ólafur.
Á fyrsta fundi félagsins var
samþykkt ályktun þar sem
skorað er á Svavar Gestsson
menntamálaráðherra að
beita sér fyrir lagasetningu
sem skyldi alla skemmtistaði
til að bjóða jafnframt upp á
dansgólf og dansmúsík sem
henti gömlu dönsunum.
„Þetta er sniðug hugmynd
og vel athugandi," sagði
Svavar í samtali við GULU
PRESSUNA. „En þar sem ég
er lítiil dansmaður skaut ég
málinu til Óla Þ. Guðbjartsy
sonar sem er miklu liðtækaijí
í gömlu dönsunum."
Sérstakar ráðherraakreinar
Reykjavík, 5. desember
Ríkisstjórn Islands hef-
ur samþykkt að leggja um
1,6 milljarða í stórátak í
vegamálum. í því felst að
lagðar verða sérstakar ak-
reinar við flestar götur í
þéttbýli, aðeins ætiaðar
ráðherrum og eriendum
þjóðhöfðingjum sem hing-
að koma í heimsókn.
„Hugmyndin varð til þegar
þrír af ráðherrunum komu of
seint á ríkisstjórnarfund um
daginn," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra. „Þetta var helvíti
bagalegt þar sem það voru
einu ráðherrarnir sem voru á
landinu þá stundina. Þeir
sögðust allir hafa lent í um-
ferðaröngþveiti á leiðinni á
fundinn. En með þessum
breytingum ættum við að
geta haldið fundi á réttum
tíma framvegis. Það er til
mikilla bóta,“ sagði Stein-
grímur.
Björn Bjarnason og Kjartan
Gunnarsson hafa fært Þor-
steini mat.
„Hann segist hlakka til far-
arinnar," sagði Kjartan við
GULU PRESSUNA. „Við höf-
um fært honum bækur um ír-
ak og arabana í eyðimörk-
inni. Davíð Scheving Thor-
steinsson hefur auk þess boð-
ist til að láta Þorstein hafa
vatn til fararinnar."
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR ráð-
gera sjálfstæðismenn að
senda Þorstein til írak jafnvel
þótt utanríkisráðuneytið
samþykki ekki ferðina.
„Ég tel víst að Þorsteinn
fari,“ sagði Friðrik Sophusson
í samtali við GULU PRESS-
UNA. „Ef ekki til írak þá eitt-
hvað annað."
Ljósmyndari GULU PRESSUNNAR náði þessari mynd af Þor-
steini í gegnum glugga á skrifstofu hans í Valhöll. Stuttu síð-
ar leiddi Björn Bjarnason hann frá glugganum.
Fjárlagagatið flutt vestur á firði
ísafirði, 6. desember
Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra
lýsti því yfir á opnum
borgarafundi á ísafirði í
gær að til stæði að leysa
samgönguvanda Vest-
firðinga fyrir næstu
kosningar.
„Sú hugmynd hefur skot-
ið upp kollinum að flytja
fjárlagagatið til Vestfjarða,“
sagði Ólafur meðal annars í
ræðu sinni þegar hann fjall-
aði um jarðgangagerð á
Vestfjörðum.
„Ef gatið verður sett á
fjöllin milli fjarðanna ættu
Vestfirðingar að geta keyrt
í gegnum það. Þetta gæti
orðið til þess að byggða-
kjarnarnir á fjörðunum
yrðu að einu atvinnu-
svæði."
■■W———
FYRRUM FOR-
STJÓRI SVIKINN UM
EFTIRLAUN
Keflavík, 6. desember____
„Þar sem ég ólst upp
voru samningar samning-
ar og menn stóðu við orð
sín,“ sagði Eysteinn Stein-
grímsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri laxeld-
isfyrirtækisins Vonarlax í
Keflavík, en hann hefur nú
höfðað mál á hendur
þrotabúinu vegna van-
efnda á eftirlaunasamn-
ingi.
Samkvæmt samningnum á
Eysteinn að fá full forstjóra-
laun það sem hann á eftir ólif-
að eða um 650 þúsund krón-
ur á mánuði auk ýmissa fríð-
inda.
Bústjórar þrotabúsins hafa
neitað að greiða Eysteini
samkvæmt þessum samn-
ingi.
„Þetta er fyrirsláttur og
ekkert nema fyrirsláttur,"
segir Eysteinn um rök bú-
stjóranna. „Fyrirtækið stóð í
blóma meðan ég var við
stjórnvölinn. Að minnsta
kosti man ég ekki til þess að
hafa þurft að bíða eftir að fá
útborgað einn einasta mán-
uð.“
Svik í byggingarídnadi
RABHÚSIB RF.YIMPIST
VERA HUNDAKOFI
Grafarvogi, 6. desember
„Þetta eru svik og ekk-
ert nema svik,“ sagði Run-
ólfur Matthíasson, einn
þeirra sem fengu afhentan
lykil að nýrri íbúð í rað-
húsahverfi í Grafarvogi
um helgina.
„Þegar við gerðum samn-
inginn voru okkur sýndar
teikningar að húsunum. Sam-
kvæmt þeim virtust þetta
vera myndarleg raðhús. Þeg-
ar húsin eru komin upp þá
kemur í ljós að þau eru varla
stærri en hundakofar. Ég
bara trúi ekki að maðurinn
komist upp með þetta," sagði
Runólfur.
Þormóður Höskuldsson
byggingarverktaki segir að
um leiðan misskilning sé að
ræða hjá Runólfi.
„Á teikningunum kom
glögglega í ljós í hvaða mæli-
kvarða þær voru. Það er ekki
við mig að sakast þótt Runólf-
ur sé lélegur í rúmfræði,"
sagði Þormóður.
Þó að Runólfur telji sig hafa
verið svikinn segist hann
hafa neyðst til að flytja inn.
„Sem betur fer er ég nýskil-
inn. Ég veit ekki hvernig
ástandið væri ef konan þyrfti
að búa hér líka. Að minnsta
kosti byði ég ekki í það ef
samlífið væri eins og undir
það síðasta."