Pressan - 17.01.1991, Page 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991
Helgi og óg
vorum ósammála
úm nánast allt
„Ég sagði upp starfi mínu sem
dagskrárstjóri á Aðalstöðinni
fyrir tíu dögum vegna faglegs
ágreinings við Helga Pétursson
útvarpsstjóra," segir Margrét
Hrafnsdóttir sem nú hefur hafið
störf á Rás 2. Margrét er kunn
fyrir störf á Bylgjunni og Aðal-
stöðinni en nú er hún sein sagt
komin til „stóra bróður“ — Rík-
isútvarpsins.
En hvað þýðir „faglegur ágrein-
ingur“, nánar tiltekið? Margrét: „Við
Helgi vorum ósammála um nánast
allt sem viðkom dagskrárgerð, við
vorum algerlega á öndverðum
meiði. Hann hafði sitt fram og menn
geta heyrt árangurinn ef þeir kæra
sig um," segir Margrét og er greini-
lega ekki hrifin.
En hvernig kann Margrét við sig
sem ríkisstarfsmaður? „Eg býst við
að ég verði enn þá harðari andstæð-
ingur ríkisrekins útvarps eftir að
hafa unnið hérna. En þetta er lær-
dómsríkt eftir að hafa unnið í einka-
geiranum. Þetta leggst vel í mig."
Margrét Hrafnsdóttir: Verö harðari
andstæðingur ríkisútvarps ...
MYND: E.OL.
,,Þad er ekki svo flókiö ad velja
stúlkurnar, þœr veröa ad hafa
ákveðna líkamsbyggingu og við
metum svo hvort það þarf að bœta
á þœr kilóum eða ná þeim af. En
það er hin náttúrlega fegurð sem
skiptir mestu máli, sú fegurð sem
kemur að innan,“ sagði Gróa Ás-
geirsdóttir, starfsmaður Hótels ís-
lands og ein þeirra sem leita uppi
fegurstu stúlkur landsins til þátttöku
í fegurðarsamkeppni Islands en hún
fer fram hinn 24. apríl í vor.
A síðasta ári kepptu 22 stúlkur til
úrslita en þar af komu sjö utan af
landi eftir að hafa sigrað í kjör-
dœmakeppni. Gróa kvað undirbún-
ingsnefndina þá hafa tekið 100
stúlkur til athugunar og fjöldinn
yrði sjálfsagt svipaður nú. En
hvernig fegurð er í tísku um þessar
mundir? Gróa: ,,Heilsusamlegt líf-
erni er „inn“, og þaö er ekki í tísku
að mála sig mikið. Nú gildir að
rœkta líkamann en við erum ekki
að leita að lifandi gínum heldur
stúlkum sem búa yfir fleiru en ytri
fegurð
Gróa sagði að ýmsum aðferðum
vœri beitt til þess að hafa uppi á
fegurstu stúlkunum. Ein þeirra sem
í nefndinni sitja vinnur á líkams-
rœktarstöð, önnur kennir djassball-
ett. Og Gróa kvaðst sjálf líta í kring-
um sig á skemmtistöðum. Þá berst
mikill fjöldi ábendinga sem þarf að
sinna, ýmist frá stúlkum sem sjálfar
vilja vera með, kunningjum eða
öðrum aðdáendum. Og það eru
margar kallaðar en fáar útvaldar.
Fegurðarsamkeppnin hefur verið
vinsœl síðustu árin enda ekkert til
sparað og stúlkurnar hafa sumar
hverjar slegið í gegn í útlöndum.
Gróa: „Auðvitað er erfitt að halda
fegurðarsamkeppninni á toppnum
svona lengi. Og sumir hafa spáð að
áhuginn fari að minnka og keppnin
að dala. En við sem að þessu stönd-
um reynum alltaf að gera betur og
betur.“
„Birgir er ákaflega traustur og áreiðanleg-
ur maður. Eg tel að höfuðkostir hans séu
hversu rólegur og yfirveg-
aður hann er,“ sagði Sigur-
jón Pétursson borgarfull-
trúi. „Það er afskaplega
gott að vinna með Birgi Is-
leifi og undir hans stjórn.
Hann er í góðu jafnvægi og
léttur í skapi. Þá er hann af-
ar glöggskyggn og vinnu-
samur og verður fínn seðla-
bankastjóri," sagði Guð-
mundur Magnússon,
sagnfræðingur og fyrr-
verandi aðstoðarmaður
Birgis. „Hann er afskap-
lega þægilegur og oft mjög
sanngjarn. Hann hafði góð tök á stjórn
borgarinnar en það var hans blómaskeið,"
sagði Þorbjörn Broddason lektor.
„Birgir ísleifur er afskaplega hæfur maður
og athugull en það gerði auðveldara fyrir
mig að koma með uppástungu um hann
sem borgarstjóra á sínum tíma. Hann hefur
reynst farsæll í sínu starfi," sagði Albert
Guðmundsson sendiherra í París.
„Birgir er stundum ívið of daufgerður,
sem fer auðvitað oft saman við það að
menn eru rólegir,“ sagði
Sigurjón Pétursson. „Yms-
um finnst hann fara of
hægt og rólega í sakirn-
ar og sé ekki nógu af-
dráttarlaus í skoðunum.
Einnig að hann leggi of
mikið upp úr samning-
um og málamiðlunum.
Ég held að þetta sé að
ýmsu leyti rétt en ég
minni á að hann hefur
tekið umdeildar ákvarð-
anir og ekki bognað und-
an þrýstingi og gagnrýni
í kjölfar þeirra,“ sagði
Guðmundur Magnússon. „Hann átti til að
detta í stuttbuxnadeildina fram eftir
öllum aldri. í borgarstjórn brá þá fyrir
sömu rökum og heimdellingar notuðu
en það var sem betur fer ekki oft,“ sagði
Þorbjörn Broddason. „Birgir ísleifur fór
sér hægt í málum og vildi ekki koma
nálægt hlutum sem honum líkaði ekki
en ég lít ekki á það sem neikvætt,“ sagði
Albert Guðmundsson.
DEBET
KREDÍT
Birgir ísleifur
Gunnarsson
alþingismaður
Birgir ísleifur Gunnarsson alþingismaður hefur verið útnefndur bankastjóri i Seðlabankanum. Birgir ísleifur
er fyrrverandi borgarstjóri og menntamálaráðherra.
Lyfsala
verðup
bifreiða-
verkstæði
I Lögbirtingablaðinu
birtist tilkynning til firma-
skrár Eskifjarðar þess efn-
is að nafni fyrirtækisins
Lyfsala lækna á Eski- og
Reyðarfirði sf. hafi verið
breytt í Bifreiðaverkstæð-
ið Afréttarinn sf. Jafn-
framt er tilkynnt aö til-
gangur fyrirtækisins sé
ekki lengur lyfsala heldur
rekstur bifreiðaverkstæð-
is.
Hvað er að gerast?
Er apótekarinn farinn að
gera við bíla ?
Það er von að spurt sé.
En því miður er þetta
ekki saga af manni sem
loksins hefur fundið
draumastarfið heldursaga
af kerfinu. Málið er þannig
vaxið að læknarnirá Reyð-
ar- og Eskifirði skráðu lyf-
söluna en komust síðan að
því að óheimilt var að skrá
tvær lyfsölur þarna fyrir
austan. Þeir sátu því uppi
með ónýtt fyrirtæki á skrá.
Þá vildi svo til að sonur
annars þeirra ætlaði að
stofna bílaverkstæði. I
stað þess að borga tvíveg-
is til firmaskrár var nafni
lyfsölunnar því bara
breytt. Það var ódýrara.
KYNLÍF
Sifjaspell og
veruleikinn
JÓNA
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
Sifjaspeli eru framin hér
á landi. En hvers vegna
fremja menn þau? Þetta er
spurning sem ég hef svo oft
verið spurð að ég er hissa á
sjálfri mér að hafa ekki
svarað henni hér fyrr.
Kannski er ein ástæðan sú
að ég hef átt jafnerfitt og
aðrir með að skilja hvers
vegna sifjaspell eru framin
og þar af leiðandi beinlínis
sneitt hjá svona erfiðu máli.
Þegar ég var í skóla á sín-
um tíma átti ég góða vin-
konu. Hún treysti mér fyrir
því að pabbi hennar hefði
notað hana til kynmaka
þegar hún var lítil stelpa —
í nokkur ár. Mörgum árum
seinna hitti ég föður henn-
ar á förnum vegi í miðbæn-
um. Mér varð mikið um og
allan tímann á meðan ég
var að spjalla við hann um
daginn og veginn brann á
vörum mér að ásaka hann
og spyrja hvort hann gerði
sér grein fyrir því hvað
hann hefði gert einni dótt-
ur sinnh Þetta var óþægileg
stund. Ég stillti mig um að
hella mér yfir hann því ég
veit að það að bjóða ger-
anda sifjaspella birginn á
þennan hátt er vonlaust —
álíka vonlaust og að spyrja
virkan alkóhólista í afneit-
un hvort hann taki ekki eft-
ir því að neyslan sé að eyði-
leggja hann og aðstand-
endur hans. Varnir hans og
afneitun verða bara enn
sterkari og gagnárásir
byrja, þar til þér sem spurð-
ir finnst þú vera klikkaður
að láta þér detta þetta í
hug! Menn sem fremja sifja-
spell eru nefnilega ekkert
heimskir en þeir eru fastir í
neti afneitunar og lyga.
Eftir að umræðan byrjaði
af einhverri alvöru fyrir ári
hafa vafalaust einhverjir
reynt að bjóða gerendun-
um birginn með því að
standa augliti til auglitis við
þá og kalla þá til ábyrgðar.
Ég hef séð afar reiða menn,
maka þolenda sifjaspella,
sem eiga erfitt með að
skilja hvers vegna þessi leið
dugir ekki. Að „konfront-
era" gerandann krefst mik-
illar skipulagningar og
rannsóknarvinnu og gerist
ekki með því að einn hlaupi
til og ásaki gerandann.
Fjölskyldan, heilbrigðis-
kerfið — allir — þurfa að
taka þátt. Þetta segja þeir
sem eitthvað hafa unnið að
ráði með sifjaspellamál er-
lendis. Enn sem komið er
eru íslenskar heilbrigðis-
stéttir að stíga fyrsta skref-
ið, með því að viðurkenna
að vandinn sé til staðar —
melta áfallið eins og sagt er.
Áfall er ekki auðvelt að
melta. Ekki fyrr en að því
loknu verður farið að huga
að næsta skrefi — að
mennta heilbrigðisstéttir,
fóstrur, kennara, lögreglu
og þá sem eru í þeirri að-
stöðu að vera trúað fyrir
sifjaspellunum af hendi þol-
anda. Það þarf næmi og
þjálfun til að taka eftir ein-
kennum sifjaspella sem
umlukt eru neti leyndar-
máls og afneitunar.
Það sem er einna erfiðast
að horfa upp á — að mér
finnst — er hversu langan
tíma þetta meltingarferli
tekur. Á meðan halda sifja-
spellin áfram. Þau eru alls
ekki hætt þó að umræðan
hafi dofnað. Það var því Ijós
í myrkri að Stígamót —
. æ fleiri til-
felli eru aö koma
upp á yfirboröiö
þar sem þol-
andinn er strákur
og gerandinn
kvenkyns að-
standandi.“
samtök kvenna gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi — tóku til
starfa. Þar er staður þar
sem þolendur geta leitað
stuðnings og ef til vill í
fyrsta skipti trúað einhverj-
um fyrir því sem átt hefur
sér stað. Einkum konur
sækja þangað aðstoð, í
formi viðtala, vinnuhópa
og námskeiða. En sifjaspell
einkennast fyrst og fremst
af því að vera leyndarmál,
eins og áður sagði, og flest-
ir trúa því hér á landi — og
lesa meira að segja um það
í flestum fræðiritum — að
þolandinn sé yfirleitt stelpa
og gerandinn yfirleitt karl-
kyns aðstandandi. Á sama
tíma og flestir trúa þessu
bárust þær fréttir í haust
með meðferðaraðila sem
heimsótti klakann að æ
fleiri tilfelli séu að koma
upp á yfirborðið þar sem
þolandinn er strákur og
gerandinn kvenkyns að-
standandi. Þetta eitt segir
manni að ekki eru öll kurl
komin til grafar enn.
Ég ætlaði að reyna að
svara spurningunni hvers
vegna menn fremja sifja-
spell en pistillinn þróaðist í
aðra átt. Svona getur verið
erfitt að komast út úr af-
neituninni! Ég er greinilega
enn að melta áfallið. Ætli
ég geri ekki aðra heiðar-
lega tilraun í næsta pistli.
Sæl að sinni (eða ættum við
að segja: Verið sæl í sinn-
inu?).