Pressan - 17.01.1991, Síða 8

Pressan - 17.01.1991, Síða 8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17 JANÚAR 1991 í GJALDÞROTA ÞORPÁ 0PIN6ERU FRAMFÆRI Sudureyri viö Súgandafjörö heyr þessa dagana erfida baráttu fyrir tilvist sinni. Hreppurinn er íraun gjaldþrota :>g liggur á ,,gjörgœsludeild“ félagsmálaráðuneytisins. Hann er í greiðslustöðvun og samningum um niðurfell- 'ngu skulda. Framkvœmdir á vegum hreppsins hafa að mestu legið niðri undanfarin ár, einkum vegna vanskila Fiskiðjunnar Freyju. Fyrirtæki þetta er um leið komið í opinberar hendur; meirihlutaeigandi er Hlutafjársjóður. Kúfiskveiðifyrirtœkiö Bylgjan fór að auki á höfuðið 1989 >g fékk mikinn skell. Þetta gerist þrátt fyrir að lánafyrirgreiðsla Fram- kvæmdasjóðs, Byggðasjóðs, Hlutafjársjóðs og Atvinnu- 'ryggingasjóðs hafi numið um 600 milljónum króna að lúvirði á tímabilinu 1978 til 1990. Á Suðureyri eru aðstæður að því leyti ákjósanlegar að þaðan er stutt i fengsæl mið. Á hinn bóginn er ein- angrun mikil og samgöngur afar erfiðar. íbúar voru flestir árið 1978 eða 526. I desember síðastliðnum voru þeir aðeins 367 eða 159 færri. Fólksfækkunin á tólf árum er því rúm 30 prósent. Þar af hefur íbúun- um fækkað um 62 á síðustu þremur árum. Þeir hafa ekki verið færri frá því á fimmta áratug aldarinnar. Á síðasta ári leitaði hreppurinn til félagsmálaráðuneytisins vegna þess að fjárþröng hans var svo mikil að hann gat ekki staðið í skilum. 30. október ritaði Jóhanna Siguröar- dóttir félagsmálaráðherra bréf til Endurskoðunar hf. og bað um rann- sókn á fjárreiðum og rekstri hrepps- ins. VERKALÝÐSFÉLAGIÐ TÓK AÐ SÉR AÐ FJÁRMAGNA SUNDLAUG Vanskil Freyju/Hlaðsvíkur löm- uðu framkvæmdagetu hreppsins. Framkvæmdir hafa verið í algjöru Iágmarki ef undan eru skildar fram- kvæmdir vegna nýju hitaveitunnar. Það er til marks um fjárþröng sveit- arsjóðsins að sjúkrasjóður Verka- lýðsfélagsins Súganda hefur tekið að sér að fjármagna kaup á nýrri einingasundlaug og varið til þess 4 til 5 milljónum króna. Annað dæmi um fjárþröng hreppsins er nýja hitaveitan. í árslok 1988 gerði hreppurinn samning við fjármálaráðuneytið, sem fól m.a. í sér að ríkissjóður yfirtæki 20 millj- ónir af skuldum hitaveitunnar. Yfir- taka þessi hefur hins vegar ekki átt Lilia Rafnev Magnúsdóttir. oddviti Suðurevrar JARBGðMIN IVFVIOKKUR AFBOTNMUM ,,/ mínum huga er mikilvœgast ad atvinnulífib komist í fastar skordur. Ýmislegt fleira þarf ad koma til og vil ég sérstaklega nefna höfnina, sem þarf ad lag- fœra. En ég tel ad botninum sé nád og aö allt stefni uppá viö í framtíö- inni," sagdi Lilja Rafney Magnús- dóttir, oddviti hreppsnefndar, um stöðu hreppsins og möguleika. ,,Við hljótum að horfa til þess að jarðgöngin komist í gagnið sem allra fyrst. Framkvæmdir eiga að hefjast í sumar og skapast þá strax atvinnutækifæri. Jarðgöngin koma til með að auka atvinnu- tækifærin og auðvelda aðgang að ýmissi þjónustu. Við finnum þegar fyrir því að brottflutt fólk er að koma aftur." Lilja sagði að nú væri verið að semja við ýmsa lánardrottna og þar vægju þyngst ýmsir opinberir sjóðir. Hreppurinn gæti hins vegar vart selt eignir upp í skuldir. „Það er takmarkað sem við getum selt af eignum. Við urðum að breyta 27,5 milljónum af skuldum Freyju í hlutafé og eins og staða fyrirtæk- isins er nú eru litlar líkur á því að hægt sé að selja þennan hlut. Aðr- ar eignir til að selja eru í raun eng- ar.“ SKULDIR HREPPSINS OG STOFNANA HANS 300 MILLJÓNIR Rannsókn Endurskoðunar leiddi n.a. í ljós að nettóskuld sveitarsjóðs- ns og stofnana hreppsins, að nýrri hitaveitu undanskilinni, var í árslok 1989 um 200 milljónir króna að nú- virði eða yfir hálf milljón króna á hvern íbúa. Á tímabilinu 1982 til 1989 höfðu rekstrargjöld og fjárfest- ngar verið 40 milljónum króna hærri en tekjur til ráðstöfunar. 1 lok september 1990 var staðan tú að skammtímakröfur og hand- bært fé hreppsins og stofnana hans voru 40,5 milljónir en skammtíma- skuldir 109,5 milljónir. Heildar- skuldir voru 185 milljónir og skuldir nýju hitaveitunnar 110 milljónir til viðbótar. Til marks um mikla fjárþröng vegna skammtímaskulda hreppsins má nefna að 30. september hljóð- uðu áfallnir og ógreiddir vextir upp á tæpar 40 milljónir króna, afborg- anir 1991 og gjaldfallnar afborganir 1990 upp á aðrar 40 milljónir og skuldheimtumenn veifuðu auk þess reikningum upp á 22 milljónir. Fyrir þessu voru engir peningar til því úti- standandi kröfur hreppsins fengust ekki greiddar. í desember ákvað ráðherra að beita ákvæðum gjaldþrotalaga og veita hreppnum greiðslustöðvun til þriggja mánaða. Orsakir afar bágborinnar stöðu hreppsins eru margvíslegar. Bæði gamla og nýja hitaveitan hafa reynst hreppnum þungur baggi. En hið einhæfa atvinnulíf á staðnum er sjálfsagt meginástæðan. Lang- stærsti atvinnurekandinn er Freyja og dótturfyrirtækið Hlaðsvík. Fjár- hagsstaða þessara fyrirtækja hefur verið afar bágborin síðustu árin og söfnuðu þau upp miklum skuldum við hreppinn. lána ásamt vöxtum, alls yfir 20 millj- ónir króna. Freyja var um árabil í meirihluta- eign SÍS. Þegar fjárþröng og fram- kvæmdaleysi tóku að hrjá hreppinn horfðu íbúarnir til SÍS um lausn. Yfir 100 manns hafa haft atvinnu hjá fyr- irtækinu, sem samsvarar helmingi íbúa Suðureyrar 15 til 60 ára. En lausnin kom aldrei. FREYJA í MEIRIHLUTAEIGN SJÓÐS FYRIR SUNNAN Rekstur fyrirtækisins hefur komið út með tapi um árabil. 1989 var svo komið að fyrirtækið fékk greiðslu- stöðvun i fimm mánuði og síðan hefur ríkt stanslaus „fjárhagsleg endurskipulagning". 1989 kom til kasta Hlutafjársjóðs sem lagði 97 milljónir króna í fyrirtækið og eign- aðist meirihluta eða um 55 prósent. SÍS á enn um 20 prósent og hreppur- inn um 15 prósent. Um leið og Hlutafjársjóður lagði inn nýtt 97 milljóna króna hlutafé og aðrir aðilar 55 milljónir voru felldar niður kröfur upp á 145 millj- ónir króna. Auk þessa hefur Atvinnutrygg- ingasjóður útflutningsgreina veitt Freyju 85 milljóna króna skuldbreyt- ingalán og 19 milljónir til hlutafjár- kaupa, eða 104 milljónir króna. Enn fremur má það heita fyrir- greiðsla við fyrirtækið að í maí 1990 gerði það upp 50 milljóna króna skuld við hreppinn þannig að 20 milljónir voru greiddar í fé en 27,5 milljónum var breytt i hlutafé og 2,5 milljónir afskrifaðar. Um þessi hlutabréf hreppsins seg- ir Endurskoðun hf.:...með tiliiti til fjárhagsstöðu félaganna er afar líklegt að hlutabréfaeign hreppsins í Fiskiðjunni Freyju hf. sé ekki mikils virði um þessar mundir". TILRAUN MEÐ KÚFISKVEIÐAR KLUÐRAÐIST MEÐ GLANS Meira um glatað fé. Bylgjan var stofnuð í júní 1986 um veiðar og Byggöastofnun. Frá byggðastefnusjóðunum hafa runnið 600 milljóna króna lán, styrkir og hlutafé til Suðureyrar á tólf árum. Þetta samsvarar 1,6 milljónum á hvern núverandi ibúa eða 6,5 milljónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu. sér stað. Ástæðan er sú að hreppur- inn hefur ekki getað staðið við skil- yrði um greiðslu á stofnframlagi til hitaveitunnar og uppgjöri á skuld sinni við hitaveituna, samtals 23 milljónir króna að núvirði. Þá má nefna að fimm verka- mannabústaðaíbúðir hafa verið seldar á nauðungaruppboði og átti hreppurinn fjórar þeirra. Veðdeild Landsbankans átti hæstu tilboð en samþykkt hefur verið að hreppur- inn gangi inn í tilboðin. Hann þarf um leið að greiða að minnsta kosti 2,5 milljónir til að fá íbúðirnar. Lög- fræðingur Landsbankans telur hins vegar að þrátt fyrir uppboðin skuli staðið við greiðslu áhvílandi veð- Suðureyri. íbúar voru flestir árið 1978 eða 526. í desember siðastliðnum voru þeir aðeins 367 eða 159 færri. Fólksfækkunin á tólf árum er því rúm 30 prósent. Þar af hefur íbúunum fækkað um 62 á síðustu þremur ár- um. vinnslu á kúskel, með Byggðastofn- un sem stærsta hluthafann og fjár- mögnunaraðila. Villi Magg, sér- smíðað skip, var keypt frá Hollandi og sérstakar vélar smíðaðar. En fyr- irtækið var stofnað meira af ósk- hyggju en fyrirhyggju. Viðmælend- ur PRESSUNNAR eru sammála um að markaðsmöguleikar hafi lítið sem ekkert verið kannaðir. Þegar ekki tókst að selja kúfiskinn til Bandaríkjanna var hann seldur sem beita innanlands og voru undirtekt- ir góðar. En vegna þess að gæðun- um tók að hraka sneru viðskiptavin- ir sér annað. Bylgjan varö gjald- þrota 1989. Byggðastofnun afskrif- aði hlutafé og lán, 133,5 milljónir. Stofnunin leysti til sín íbúðarhús sem var í eigu þrotabúsins. Villi Magg var keyptur á uppboði og seldur í lok ársins. Frá 1978 hefur lánafyrirgreiðsla Byggðasjóðs, Framkvæmdasjóðs, Hlutafjársjóðs og Atvinnutrygg- ingasjóðs hljóðað alls upp á tæplega 600 milljónir króna að núvirði. Þetta samsvarar 1,6 milljónum króna á hvern núverandi íbúa eða 6,5 milljónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Af þessum 600 milljónum hefur hreppurinn fengið

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.