Pressan - 17.01.1991, Page 14

Pressan - 17.01.1991, Page 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991 Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Kitstjórar: Gunnar Smári Egilsson Kristján Þorvaldsson Blaðamenn: Friðrik Pór Guðmundsson Hrafn Jökulsson Sigurður Már Jónsson Sigurjón Magnús Egilsson Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Ljósmyndari: Sigurþór Hallbjörnsson Útlitsteiknari: Jón Óskar Hafsteinsson Prófarkalesari: Helgi Grímsson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson Setning og umbrot: Leturval Prentun: Oddi hf. Ritstjórn og skrifstofur. Ármúla 36, simi: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 18 66. Áskriftargjald 550 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1100 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 170 kr. eintakið. Hvaö kostar Súgandi? í PRESSUNNI í dag er grein um Suðureyri við Súgandafjörð. Öll helstu atvinnufyrirtæki þorpsins og hreppurinn sjálfur eru á opinberu framfæri. Suðureyri er ágætt dæmi um byggðastefnu tveggja undan- farinna áratuga. Þar er eitt frystihús, einn togari og ein höfn. Þessari atvinnueiningu var komið upp fyrir opinbert lánsfé. Hún átti að standa undir 300 til 400 manna sveitarfélagi og þeirri þjónustu sem af því er vænst. Auðvitað gekk þetta ekki upp. Svona eining stendur ekki einu sinni undir sjálfri sér hvað þá litlu byggðarlagi. Þá skiptir engu þótt höfnin sé byggð fyrir fé úr ríkissjóði og frystihúsið og togarinn fái endalaust lánað í Byggðastofnun. Endirinn var fyrirsjáanlegur. Byggðastofnun, eða einhver álíka stofnun, hiaut að sitja uppi með fyrirtækið, hreppinn og fólkið. Suðureyri er ekkert einsdæmi. Á áttunda áratugnum voru sambærilegar atvinnueiningar, höfn, togari og frystihús, settar niður í nánast hvert einasta þorp hringinn í kringum landið. Síðar hefur komið í ljós að þessi eining stendur ekki undir sér. Sjávarútvegurinn í heild líður síðan fyrir að hann er samansett- ur úr mörgum, smáum og vanmáttugum fyrirtækjum. Það hef- ur svo áhrif á þjóðfélagið allt. Islendingar búa við verri lífskjör en þeir þyrftu að gera. Þetta vita svo sem allir. Það hefur hins vegar verið samkomu- lag allra stjórnmálaflokka að svokölluð byggðasjónarmið séu öllu æðri. Það má ekki spyrja hvað þau kosta. Allir vita líka að þetta er ekki gert vegna ástar á íbúum þorp- anna. Þeir hefðu það miklu betra ef þeir yrðu aðstoðaðir við að flytja burt og koma sér fyrir á lífvænlegri stöðum. Vegna kjördæmaskipunar hafa þingmenn hag af því að vernda at- kvæði en ekki fólk. Sú er sjálfsagt ástæða þess að engin tilraun hefur verið gerð til að meta hvað kostar að halda Suðureyri í byggð — eða öðr- um álíka þorpum — þrátt fyrir allar byggða- og þjóðhagsstofn- anirnar. Hvað það kostar að veita jafnfámennu byggðarlagi sömu þjónustu og stærri sveitarfélögum. Hvað það kostar að halda allt of smáum fyrirtækjum á floti. Á meðan slíkt er ekki gert er byggðastefnan trúarbrögð á sama hátt og landbúnaðar- stefnan. Stjórnvöld halda því leyndu fyrir skattborgurunum sem borga brúsann hvað gamanið kostar. Með þessu er verið að gera lítið úr lýðræðinu. Undirstaða þess er að almenningur sé upplýstur um hvað er gert við fjármuni hans. Þá getur hann fyrst valið og hafnað. Umbótaáætlanir Nokkrir ungir hagfræðing- ar vinstri flokkanna birtu á liðnu ári hugleiðingar sínar um allt það sem betur mætti fara hér á landi. Framsóknar- maðurinn Bolli Héðinsson skrifaði grein í Morgunblað- ið um málið, alþýðuflokks- maðurinn Birgir Árnason kom sjónarmiðum sínum á framfæri hér í Pressunni og Guðmundur Ólafsspn og fleiri lýstu hinu nýja íslandi í Þjóðlífi og kölluðu þeir Guð- mundur hugsmíð sína hvorki meira né minna en 500 daga áætlun. Þetta framtak er allrar virð- ingar vert. Sá galli er þó á að þessir róttæklingar eru ekki nægilega róttækir. Þeir varpa hugmyndum fram en rekja þær ekki út í hörgul. Birgir og Guðmundur ganga til dæmis ekki nægilega langt í hug- myndum um sölu ríkisfyrir- tækja. Breyta á ríkisstofnun- um í hlutafélög og selja sum þeirra. Hvers vegna má ekki selja þau. öll? Þá eru þessir hagfræðingar hlynntir auð- lindaskatti og Bolli greinilega bundinn af þröngsýni flokks síns í landbúnaðarmálum. Ef færa á hagkerfi íslend- inga í nútímalegt horf þá eru aðalatriðin að mínum dómi þrjú: 1) Selja þarf atvinnufyrir- tæki í eigu opinberra aðila. Fyrst þarf að leggja niður fjár- festingarsjóðina sem hafa þann tilgang einan að halda á floti fyrirtækjum sem hefðu fyrir löngu sokkið af sjálfs- dáðum. Síðan ber að selja al- menningi ríkisbankana tvo. Þá má selja Póst og síma, Sementsverksmiðju ríkisins, Síldarverksmiðjur ríkisins, Landsvirkjun, veitustofnanir í eigu sveitarfélaga, hafnir og flugvelli og mörg fleiri fyrir- tæki. Örva má söluna með skattafslætti og auðvitað líka með viðráðanlegu verði hlutabréfa. Andvirði fyrir- tækjanna má nota til þess að auðvelda fólki úti á landi að- lögun að nýjum aðstæðum. 2) Tryggja þarf að kvóta- kerfið skili raunverulegum árangri. Það gerist með frjáls- um kvótamarkaði svo að þeir lendi í höndum þeirra sem skipulagt geta veiðar sínar með lægstum tilkostnaði. Koma verður í veg fyrir til- hneigingu opinberra aðila til að endurreisa bæjarútgerðir með því að sveitarfélög og ríki veiti óhagkvæmum út- gerðarfyrirtækjum aðstoð svo að þau missi ekki kvóta. Það er mótsögn í því að segja að fiskiskipaflotinn sé of stór en berjast síðan af öllu afli gegn minnkun hans í frjáls- um viðskiptum með kvóta. 3) Gerbreyta þarf skipan peningamála. Seðlabankinn er vitagagnslaus og ber að leggja hann niður hið fyrsta. Verðbólga hjaðnar ekki niður í það sem hún er í nágranna- löndum fyrr en íslenska krón- an er horfin úr sögunni en önnur og traustari mynt kom- in í umferð, til dæmis þýsk mörk (eða íslensk mörk jafn- gild hinni þýsku). Eru ekki sjálfsögð mannréttindi að fá að gera samninga í þeirri mynt sem menn vilja? Birgir Árnason virðist að einhverju leyti skilja þetta, ef marka má nýlega grein hans um pen- ingamál í Pressunni, en hin- ir hagfræðingarnir úr röðum vinstri sinna gera sér því mið- ur ekki grein fyrir því. Ein örstutt ábending að lokum: Framtíðarskipan efnahagsmála snýst um mannréttindi fremur en hags- muni. Hún varðar frjálst val einstaklinga, ekki sálarlaust silfrið. Höfundur er lektor i stjórn- málafræði. ÉG SKRIFAÐI BARA Á MIÐA TIL MÖMMU AÐ ÉG VÆRI FARIIMIM AÐ BERJA Á SATAN HUSSEIN. ÉG VONA BARA AÐ STRÍÐIÐ VERÐI EKKI BÚIÐ ÁÐUR EN ÉG KEM. TEIKNING: ÓMAR STEFÁNSSON \ 111 naudsyn BIRGIR ÁfíNASON Stríð er ekkert fagnaðar- efni en getur verið ill nauð- syn. Brjótist út styrjöld fyrir botni Persaflóa á næstu dög- um eða vikum eru allar líkur á því að tugir ef ekki hundruð þúsunda farist, að stærstum hluta óbreyttir írakskir borg- arar í gegndarlausum loft- árásum bandamanna. Er hægt að réttlæta slíkt blóð- bað? Já, ef það kemur í veg fyrir annað og verra^síðar. Saddam Hussein Traksfor- seti er ekki geðveikur í venju- legum skilningi þess orðs en hann er valdasjúkur og skirr- ist einskis til að efla völd sín og áhrif. Hano hefur um langt skeið alið með sér stór- veldisdrauma, drauma um að verða leiðtogi araba í heilögu stríði þeirra gegn ísrael og Vesturlöndum. Hann er greinilega reiðubúinn að kosta öllu til — þar á meðal þjóð sinni — til að gera þenn- an draum að veruleika. Hussein hóf undirbúning að smíði kjarnorkuvopna í írak á áttunda áratugnum og væri það ekki fyrir snarræði ísraelsmanna réði hann nú yfir slíkum gereyðingartól- um. Hann háði átta ára blóð- uga styrjöld við íran á níunda áratugnum. Árið 1988 beitti hann eiturefnavopnum gegn þegnum sínum og murkaði líftóruna úr þúsundum Kúrda. Hann hefur alla tíð skotið skjólshúsi yfir öfga- fyllstu hryðjuverkamenn. Og í fyrra réðst hann inn í Kúvæt og hugði augljóslega á frekari landvinninga. Arabísku furstadæmin og Saúdí-Arabía Ferill Saddams Husseins hefur verið blóði drifinn. Það verður engin breyting þar á éf látið verður undan einni einustu kröfu hans í yfir- standandi deilu. Undanláts- semi Vesturlanda nú þótt í iitlu væri yrði ekki til annars en að efla orðspor hans með- al araba og gera hann enn hættulegri nágrönnum sín- um og friði í heiminum yfir- leitt en hann er nú. Það þarf enginn að fara í grafgötur um það að hann mundi fyrr eða síðar láta til skarar skríða, bú- inn betri vopnum en hann ræður nú yfir, með skelfileg- um afleiðingiim, skelfilegri en við horfum fram á í kom- andi hildarleik. Það er ekkert annað ráð sem dugir en að koma Hussein frá með góðu eða illu. hefðu orðið næstu áfanga- staðirnir í herför hans hefði hún ekki verið stöðvuð í tæka tíð. Hvað með viðskiptabann ekki verið ráð að gefa því Sameinuðu þjóðanna? Hefði lengri tíma til að hafa áhrif? Um þetta sýnist sitt hverjum. Mér sýnist að viðskiptabönn hafi allajafnan fremur tákn- ræna þýðingu en raunveru- lega. Sem slík geta þau auð- vitað þjónað nokkrum til- gangi. Það er hins vegar ólík- legt að viðskiptabannið gegn írak skilaði nokkurn tíma til- ætluðum árangri. í fyrsta lagi eru takmarkaðar líkur á því að það héldi nógu lengi. í öðru lagi vottar ekki fyrir þeim öflum innan íraks sem losað gætu það heljartak sem Saddam Hussein heldur þjóð- inni í. í þriðja lagi eru allar líkur á því að Hussein mundi hefja styrjöld fyndist honum viðskiptabannið vera farið að sverfa illilega að sér, t.d. með árás á ísrael í því skyni að fá önnur arabaríki í lið með sér. Það er því varla eftir nokkru að bíða. Höfundur er hagfræðingur hjá EFTA i Genf.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.