Pressan - 17.01.1991, Síða 15

Pressan - 17.01.1991, Síða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991 15 l slenskir skákunnendur geta glaðst yfir því að Guðmundur Sig- urjónsson stórmeistari hefur ákveðið að setjast að tafli aftur. Hann verður með á Is- landsmótinu í at- skák sem verður nú um helgina en langt er síðan hann tók þátt í skákmóti. Guðmundur hefur undanfarið unn- ið sem fasteignasali en hann er lög- fræðingur að mennt. Á atskákmót- inu verða þvi fimm stórmeistarar en Helgi Ólafsson er sá eini þeirra sem verður fjarverandi en honum hefur verið boðið á hið sterka mót í Sjávarvík í Hollandi. .. | frumvarpinu að fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir þetta ár kemur fram að í Ráðhússjóð fara 680 millj- ónir króna. Þegar bygging hússins var kynnt á sínum tíma sagði borg- arstjórinn, Davíð Oddsson, að kostnaðurinn yrði ámóta þeirri fjár- hæð sem fer t. Ráðhússjóðinn á þessu ári. Til áhaldakaupa fyrir stjórn borgarinnar eiga að fara 65 milljónir . . . að er misjafnt hversu miklu menn og stofnanir eyða í veisluhöld þegar tilefni gefast, eða gefast ekki. Rafmagnsveita Reykjavíkur á af- mæli á árinu. Búið er að ákveða að eyða sjö milljónum í veisluhöld . . . ir H^ÁR-ingar eru greinilega byrj- aðir að yngja upp hjá sér í fótboltan- um. Yngri bróðir Péturs Péturs- sonar, Bjarki, er genginn til liðs við Vesturbæjarliðið. Bjarki er framlínu- maður eins og bróð- ir hans og var einn af lykilmönnum Skagaliðsins í fyrra. Eins og kunnUgt er eru þeir bræður Akurnesingar. Sama er að segja um yngri bróður Björns Rafnssonar sem lengi hefur spilað við hlið Pét- urs í framlínu KR-liðsins. Sá heitir Rafn og hefur verið aðalmarka- skorari Snæfells í Stykkishólmi en þaðan eru þeir bræður ættaðir . . . Talsverður skriður er kominn á Heimastjórnarsamtökin sem voru formlega stofnuð í haust og útlit fyr- ir að mönnum takist það ætlunarverk að bjóða fram í öllum kjördæmum. Líklegt er að aldursforseti Alþingis, Stefán Valgeirsson, verði í framboði á Norður- nýlegu fréttabréfi Sinfóníu- hljómsveitar Islands er sagt frá grænni tó’nleikaröð. Um þetta segir meðal annars: „Þessi tónleikaröð hentar því sérstaklega vel þeim tón- leikagestum sem ekki eru vanir að hlýða á æðri tónlist." Það er svo annað mál að ekki eru allir sam- mála um hvað er æðri og hvað er óæðri tónlist. . . || ■ M inn hái hótelreikningur Óla Þ. Guðbjartssonar dómsmálaráð- herra hefur orðið tilefni bréfaskrifa. Jón Oddsson hæstaréttarlögmað- ur hefur ritað Ólafi Ragnari Gríms- syni tvö bréf vegna þessa. I fyrra bréfinu bauðst Jón til að hafa milligöngu um leiðréttingu á hótelreikningnum. Jón fullyrti að verðið hafi verið hærra en gefið er upp á nokkru hót- eli í Finnlandi. Jón hefur skrifað ráð- herra á ný þar sem ekkert svar hefur borist við fyrra bréfinu. Jón segist fyrst hafa heyrt um þetta dýra ferða- lag vegna fyrirspurna frá Inga Birni Albertssyni, þingmanni þriggja flokka, eins og Jón orðar það í bréfinu . . . ■ ú er útlit fyrir að ekkert al- þjóðlegt skákmót verði hér á landi í vetur. Undanfarin ár hefur verið haldið að minnsta kosti eitt alþjóð- legt mót á ári en nú verður líklega hlé á því. Það sem veldur þessu er afskaplega slæm fjárhagsstaða Skáksambands Islands, sem skapast af húsakaupum í Faxafeni. Eru skák- menn gramir yfir því að ekki skuli fást almennileg aðstoð við að byggja yfir skákhreyfinguna á með- an ný og glæsileg íþróttahús risa um allt land . . . landi eystra en á laugardaginn verð- ur stofnað til formlegra samtaka í kjördæminu. Vestfirðingar eru einn- ig farnir að hugsa sér til hreyfings og kjarni þeirra sem tóku þátt í fram- boði Þjóðarflokksins síðast starfar með samtökunum, m.a. Svein- björn Jónsson á Suðureyri sem skipaði annað sæti listans þá. Á Suð- urlandi vinnur Björn Jónsson, for- maður Ungmennafélagsins Skarp- héðins, að framboði heimastjórnar- manna og norðan heiða er annar ungmenriafélagi starfsamur, Jó- hann Ólafsson, formaður Ung- mennafélags Eyjafjarðar. Gamli ungmennafélagsandinn var einmitt helsti drifkraftur Framsóknarflokks- ins framan af öldinni... lloðnuleysið hefur skapað mikil vandræði víða um land. Einnig er Ijóst að mikill styr kemur til með að standa um lausn á vandanum. Lands- byggðarmenn munu til dæmis ekki vera hrifnir af þeirri hug- mynd Kristjáns Ragnarssonar, for- Tmanns LÍÚ, að láta loðnuflotann fá kvóta úr Hagræð- ingarsjóði fiskiðnaðarins. Þar eru til staðar 7000 til 8000 þorskígildi og óttast landsbyggðarmenn að minnst af því komi út á land. Telja þeir að útgerðarmenn muni sitja einir að þeirri skiptingu á meðan vandi loðnuverksmiðjanna verði óleystur. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, hefur tekið undir til- lögur Kristjáns . . . C l^taða Jóns Baldvins Hanni- balssonar, formanns Alþýðu- flokksins, var orðin veik á meðal flokksmanna í Reykjavík og alveg á huldu hvernig honum reiddi af í prófkjörinu sem fer í hönd. Nú virð- ist hins vegar sem atburðirnir í Eystrasaltslöndunum gefi Jóni byr undir báða vængi enda þykir Jón hafa staðið sig mjög vel og raunar átt frumkvæði á alþjóðavettvangi í málefnum þessara þjáðu ríkja . . . Launamiðum ber að skila í síðasta lagi 21. janúar Allir sem greitt hafa laun á árinu 1990 eiga nú að skila launamiðum á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra. Skilafrestur rennur út 21. janúar. RSK RIKISSKATTSTJÓRI HUGSUM HNATTRÆIUT NOTUM EMDURUIUMAR PAPPÍRSVÖRUR í SÉRFLOKKI UÓSRITUNARPAPPÍR i TÖLVUPAPPÍR « PRENTPAPPÍR UMSLÖG BRÉFSEFNI ÍSKAUPHF. FLÓKAGÖTU 65 SÍMI 62 79 50 FAX62 79 70 < o SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL... Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir I sima 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum HELGARFERÐ FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐ JUDAGS HÓTEL MUSEUM TVEIR í HERB. KR. 32.610 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.