Pressan


Pressan - 17.01.1991, Qupperneq 19

Pressan - 17.01.1991, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991 19 ætla að bjóða Ólafi Ragnari Grimssyni bíl sinn til kaups, Mitsubishi Galant með núm- erið XG 169. „En maður þarf sem betur fer ekki að kjósa flokkinn þótt númerið sé á bílnum. Ef ég finn fyrir óbærilegum þrýstingi sel ég." Ingvar Ragnarsson í Stykk- ishólmi var hins vegar hepp- inn. „Ég hef alltaf verið yfir- lýstur alþýðubandalagsmað- ur og keyri því rogginn um.“ Enn ftýja Itonmarnir í fllþýíuflokkinn Krötum hefur tekist að veiða hvern kommann á fætur öðrum yfir í Alþýðu- flokkinn: Þröst Ólafsson, Össur Skarphéðinsson og fleiri slíka. Samkvæmt auglýsingu frá Alþýðuflokknum í Alþýðu- blaðinu á þriðjudaginn eru þetta þó ekki nema smáfiskar miðað við þann stóra sem nú er genginn í Alþýðuflokkinn. Það er enginn annar en Mikj- áll Gorbatsjov, sá sem stjórn- aði Sovét þar til herforingj- arnir tóku völdin. Hann virð- ist nú hafa fundið skjól undir handarjaðri Jóns Baldvins — eins og Össur, Landsbergis og fleiri góðir menn. Nær 200 bíleigendur hafa fengið hápólitísk bíl- númer og fá engu þar um breytt. Ef þeir vilja ekki vera akandi auglýsingar fyrir stjórnmálaflokka verða þeir einfaldlega að selja bílinn. „Þú segir mér fréttir! Mér dettur sem bisnessmanni fyrst í hug að selja einhverj- um G-manni bílinn," sagði Vídir Finnbogason í Teppa- landi. Hann er ekki búinn að fá Pajero-jeppann sinn, XG 163. „Ég ætti kannski að reyna við Ólaf Ragnar. Ekki hef ég áhuga á því að auglýsa fyrir hann. Annars er þetta ekkert stórmál." „Ég bauð Guðmundi Odds- syni bílinn en ég held að hann vilji ekki Lödu. En bíll- inn er ágætur og ég ek kinn- roðalaust um á honum," sagði Björn Þorsteinsson, bæjarrit- ari í Kópavogi, með XA 250 á Lödunni sinni. Kratar hafa eignað sér Björn en hann gef- ur ekkert upp. „En þetta hrjá- Slysadeild Borgarspitalans. Þar héngu uppi á vegg þær greinar úr lögum um opinbera starfsmenn sem kveöa á um refsingar viö því að skamma þá og hrakyrða. Aðgát skal höfð í nær- veru opinberrar sálar Þeir sem hafa Iagt leið sína á slysavarðstofuna hafa rekið augun í Ijós- ritað plagg uppi á vegg. Þar er að finna það sem starfsmönnum slysa- varðstofunnar þykir máli skipta úr lögum um opinbera starfsmenn en það eru ákvæði sem hóta þeim sem láta hnjóðs- yrði falla í garð hinna op- inberu réttlátum refs- ingum. Það er því vissara fyrir þá sem koma á slysavarðstof- una með steypustyrktar- járn í gegnum hausinn að gæta orða sinna og sitja prúðir þar til röðin kemur að þeim. Annars gætu þeir endað á Hrauninu með járnið enn á sínum stað. Þegar Ijósmyndari PRESSUNNAR hugðist taka mynd af ljósritinu af laga- textanum á slysavarðstof- unni varð uppi fótur og fit. Afgreiðslustúlka tók hann niður og fór með hann til vakthafandi hjúkrunar- konu. Sú tilkynnti ljós- myndaranum að honum væri ekki heimilt að taka mynd af honum. IÚÞURHAR FÁ SINN BANKA The Icelandic Halibut- bank Ltd. er tvímælalaust forvitnilegasta nýja fyrir- tækið á Islandi. Þetta er enska nafnið á íslenska lúðubankanum hf., nýju fyrirtæki suður í Höfnum. Stofnendur eru nokkrir einstaklingar, íslenskir og sænskir. Þótt það séu brot á öllum góðum blaðamennskuregl- um ætlar PRESSAN ekki að upplýsa hvaða starfsemi fer fram í lúðubankanum. Það gæti truflað frjálst flug les- enda þegar þeir reyna að ráða í nafnið. Erobikk er hsettulegt í óhófi Þá er loksins orðið ljóst að eróbikkið er stórhættu- legt í óhófi eins og flest ánnað sem er gott eða skemmtilegt. Bandarískur læknir hefur komist að því að eróbikk leiðir til heyrn- artjóns, svima og jafnvæg- isleysis. Það eru stökkin og hoppið í bland við háværa tónlist sem leika iðkendurna svona. ir mig svo sannarlega ekki." Sigurjón Pétursson, aðstoð- arforstjóri Sjóvár-Almennra, fékk XS 387 á vélsleðann sinn. „Mín fyrsta hugsun var að ég yrði að skipta um og fá XD. En það fæ ég víst ekki. Og úr því þetta er vélsleðinn sætti ég mig við orðinn hlut." „Mér líst ágætlega á þetta, ég er ekki haldinn neinum fordómum," sagði Jónas Gud- laugsson, rafveitustjóri í Hafnarfirði. Toyotan hans hefur númerið XA 187. Jónas gaf hins vegar ekki upp óska- bókstafinn. „Aðalatriðið er að mér líkar vel við bílinn." „Þetta er að sjálfsögðu af- leitt fyrir harðsnúinn krata eins og mig. Þessir menn sækja að mér úr öllum átt- um!“ sagði Ingvar Hallgríms- ENN HVERFA HESTARNIR Nú er liðið hartnær hálft ár síðan Kolskeggur, 15 vetra bleikálóttur góö- hestur, hvarf úr hesthúsi á hestamannamótinu að Faxaborg í Borgarfirði. Þrátt fyrir eftirgrennslan Guðmundar Jónssonar, bónda á Bjarnastöðum og eiganda hestsins, hefur ekkert til hans spurst. Guðmundur bóndi segir líklegast að hesturinn hafi verið fjarlægður af manna- völdum, það er að segja stol- ið. Þó skal ekkert um það full- yrt því eins og menn rekur minni til blönduðust álfar og fleiri vættir í hvarf nokkurra hesta í Mývatnssveit fyrir rúmu ári. Það var ekki fyrr en að annan hvern landsmann hafði dreymt hvar þeir voru niðurkomnir að þeir fundust dauðir. fremur viljað fá XG. Konunni minni líkar þetta hins vegar ágætlega." Hreidar Grímsson, bóndi að Grímsstöðum í Kjós, var líka fremur óhress, fékk XB 090 á Subaru sinn. „Ég hefði viljað fá D. Ég hef verið spurður hvort ég hafi skipt um flokk en ég tek þetta ekki nærri mér.“ Jón T. Valentínusson, bíla- sali á Seltjarnarnesi, sagðist Keppir haltur og hjartveikur „Ég spilaði keilu fyrst af einhverri alvöru þegar ég var í Kóreu að kenna fisk- veiðar," sagði Halldór Halldórsson en hann er einn af lykilmönnum fyrstu deildar liðs KR í keilu. „Ég hugsa ekki þannig," svaraði Halldór þegar hann var spurður hvort honum þætti ekki undarlegt að vera að keppa með mönnum sem allir gætu verið synir hans, aldursmunarins vegna. Reyndar er einn félaga Hall- dórs í keiluliðinu sonur hans. Sá heitir Halldór Ragnar Halldórsson og er íslands- meistari einstaklinga í keilu. „Ég var í Kóreu í þrjú ár, frá 1970 til 1973. Eftir að keilu- salurinn í Öskjuhlíð opnaði í febrúar 1985 byrjaði ég að spila aftur. Ég hef spilað tals- vert en það hefur stundum verið erfitt þar sem ég er sjó- maður og hef því ekki alltaf getað æft eins og ég hefði helst viljað." Halldór er skipstjóri. Hann hefur verið á sjó yfir 40 ár. Lengst af var hann skipstjóri á Baldri KE og Reyni GK. Halldór fékk fyrir hjartað 1983. Hann varð fyrir því í miðjum keiluleik fjórum ár- um síðar að hjartað stoppaði. „Þeir störtuðu mér aftur, strákarnir. Ég var mættur í mót sex vikum síðar og spii- aði þá seríuna á 574." 1960 keppti Halldór í spjót- kasti. Hann kastaði tæpa 60 metra. Tveimur árum síðar varð hann í fyrsta sæti á landsmóti UMFI. Halldór seg- ist aldrei hafá æft spjótkast. Halldór átti lengi vel ís- landsmet í þriggja leikja röð, eða seríu eins og það er kall- að meðal keilara. Meðan blaðamaður ræddi við Hall- dór í keilusalnum í Öskjuhlíð lék Halldór eina seríu. Hann skoraði 631 stig eða 210 að meðaltali í leik. „Þetta er gott. Ég er að skipta aftur í beina bolta. Ég ætla að hvíla snúninginn að- eins." „Keila er nákvæmnisíþrótt og ég valdi hana frekar en golfið þar sem minni tími fer í keilu og hún er iðkuð innan- húss og því hægt að stunda hana í hvernig veðri sem er. Ég er ekkert að hætta í keilu og ætla að vera með áfram. Það er verst með hnén á mér. Þau eru slitin og ég þarf sennilega að láta skipta um liði. Þetta hefur háð mér nokkuð," sagði þessi tæplega sextugi eldhressi keiluspilari að lokum. son, rafvirkjameistari í Kefla- vík. Hann fékk númerið XD 024 á Pajero-jeppa sinn. „Þetta breytir litlu en ekki fer ég á kjörstað á bílnum í vor. Ég á hesta og fer sjálfsagt ríð- andi á kjörstað. Það má kannski setja rós á númerið?" Óskar K. Elíasson á Súða- vík var ekki ýkja hress með að fá númerið XD 343 á tjald- vagninn sinn. „Þetta snertir mig ekki mikið en ég hefði ■ : •' --- m.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.