Pressan - 17.01.1991, Page 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17 JANÚAR 1991
íðlcnéUnt*
|ijoð§ogitr
Vinnufélagar á eyrinni
eyddu mörgum kaffitímum
í umræöur um hversu
þreyttir þeir væru á vinnu
sinni. Einn þeirra gekk þó
sýnu lengst i þessum um-
ræöum. Þótt sagt sé frá af
fullri varfærni er ekki hægt
aö segja annað en aö sá
hafi ekki stigiö í vitið.
Þessi vitgranni eyrarkarl
varö fljótlega óvinsæll fyrir
hversu mikið hann tuöaöi
um hvaö vinnan væri leiö-
inleg.
Eftir hádegi einn daginn
kom hann Ijómandi til
vinnu. Hann gekk rakleiðis
til verkstjórans og óskaöi
þess aö fá klukkutíma fri
síðar um daginn. Þaö var
auðsótt mál. Þegar friiö var
fengið gekk hann til vinnu-
félaga sinna og sagði þeim
aö hann væri aö hætta í
vinnunni, að minnsta kosti
fljótlega.
„Hvaö, ertu búinn aö fá
aöra vinnu?"
„Nei, ekki enn en ég fæ
örugglega vinnu."
„Ætlar þú aö hætta áöur
en þú færð annaö að gera?"
„Nei. í útvarpinu var ver-
iö aö auglýsa eftir manni i
vinnu sem er eins og sniöin
fyrir mig. Kókakóla var aó
auglýsa eftir dyraverði og
ég ætla aö sækja um og er
viss um aö ég fæ ..."
Áöur en honum tókst aö
Ijúka setningunni þreiddist
bros yfir andlit nokkurra
vinnufélaga hans. Þeir
höföu einnig heyrt auglýs-
inguna. Þaö var ekki verið
aö auglýsa eftir dyraveröi
heldur birgöaveröi. Maður-
inn gekk vestur í bæ, á skrif-
stofur kókakóla, og sótti
um starf dyravarðar. Hann
starfaði áfram á eyrinni.
(Ur einfeldningasögum)
Fáir sjónvarpsþættir hafa
náð ámóta vinsældum og
Dallas geröi þegar best lét.
I fyrstu voru þættirnir
sýndir í Ríkissjónvarpinu.
Þaö uröu margir ósáttir
þegar sjónvarpiö tók þætt-
ina af dagskrá en þá voru
vinsældirnar hvaö mestar.
Þegar það var gert brást 01-
ís skjótt viö og tryggði sér
Dallas á spólum. Þá var
hægt aö fá Dallas á bensin-
stöövum. Aðsóknin var slík
aö panta varö þættina með
löngum fyrirvara. Síöar
tókst Stöö 2 aö veröa sér
úti um Dallas og enn eru
þættirnir á dagskrá stööv-
arinnar. Þaö eru aö minnsta
kosti fimm ár frá því aö
sjónvarpið hætti aö sýna
Dallas.
Þegar eingöngu var
hægt aö fá Dallas á spólum
á næstu Olísstöð skapaöist
oft sérstakt ástand. Skip-
stjóri á litlum vertíðarbát á
Vesturlandi sagöi eitt sinn
viö undirmenn sína:
„Viö verðum aö vera í
landi í fyrra fallinu í kvöld."
„Hvers vegna?" spuröi
einn mannanna.
„Konan er með tvo Dall-
asþætti á leigu og hún
verður aö skila þeim á
morgun," svaraði skipstjór-
inn.
„Megum viö koma aö
horfa?" spuröi einn háset-
anna.
(Úr sjómannasogum)
ESUS
'AR
SANNUR
MAÐUR
Útgefandi umdeildrar bókar
um friðarboðskap Jesú Krists tekinn tali
„Einn klerkur setti þetta
þannig upp að Jesús kæmi út
eins og brjálaður gúrú,“ segir
Ólafur Ragnarsson, þýðandi
og útgefandi umdeildrar bók-
ar, Friðarboðskapur Jesú
Krists. Lærisveinninn Jó-
liannes er skrifaður fyrir bók-
inni, sem færð var í letur á ar-
ameísku á fyrstu öld eftir
Krists burð. Þessi vitnisburð-
ur Jóhannesar rataði aldrei í
félag með guðspjöllunum
enda af talsvert öðrum toga
spunninn. Formála hinnar
nýju íslensku útgáfu skrifaði
Edmond Székely árið 19117
og er talsvert harðorður um
það sem haft er eftir Jesú í
Nýja testamentinu, segir að
orð hans þar hafi verið
„hræðilega afbökuð og mis-
þyrmt".
Prestum landsins er ekki
skemmt eins og langar ádeil-
ur í blöðum bera glöggt vitni
''um. En hver er ástæðan fyrir
því að prestar taka bókinni
svona illa? Ólafur: ,,Það er fá-
fræði. Og ekki bara fáfræði,
heldur taka þeir þetta til sín
persónulega. Við vitum að
kirkjan hefur sinn djöful að
draga. Það er sagan. Og ljót
saga geymist alltaf best.
Prestarnir virðast finna hjá
sér hvöt til að verja kirkjuna
í einu og öllu.“
I þessari umdeildu bók má
meðal annars lesa hvernig
Jesús leggur lærisveinum sín-
um lífsreglurnar í smáu sem
stóru. Þar er til dæmis að
finna uppskrift að brauði að
hætti frelsarans og hann
leggur ríkt á við lærisveinana
að borða ekki kjöt. Hann út-
skýrir einnig hina umdeildu
lífsspeki um auga fyrir auga
og tönn fyrir tönn. ,,Menn
hafa löngum túlkað innihald
þessara orða sem yfirlýsingu
um hefnd. En það er ekki
svo,“ segir Ólafur. „Jesús út-
skýrir fyrir lærisveinum sín-
um að sá sem drepur mann
bakar sér hatur annarra. Það
er eins ef maður stelur, þá
þarf hann að svara fyrir það
og taka afleiðingum gerða
sinna. En Jesús boðar ekki
hefndina. Aldrei."
Ólafur kvað viðbrögð við
bókinni vera meiri en hann
þorði að vona. „Fólk sem hef-
ur ekkert endilega verið trú-
að og jafnvel hrætt við trúar-
brögð hefur lýst ánægju sinni
með þessa bók,“ sagði hann.
Fleiri rit eru til sömu ættar og
hafa ekki komið út á íslensku
en Ólafur kvaðst ekki hafa
ákveðið hvort hann réðist í
útgáfu á þeim.
Friðarboðskapur Jesú
Krists verður trúlega deilu-
efni á síðum blaðanna á næst-
unni ef marka má fyrstu við-
brögð kennimanna. En hvað
segir maðurinn sem gefur út
trúarrit úr frumkristni, hver
er afstaða hans til Jesú? Ólaf-
ur: „Hann var einstaklingur
sem hafði alla þá bestu kosti
sem við höfum enn furtdið
meðal manna. Jesús var
maður vísdóms og þekking-
ar. Hann sýndi okkur leiðina
frá fáfræði og ringulreið til
hins fullkomna manns. Jesús
var sannur maður."
Ólafur Ragnarsson:
Einn klerkur setti
þetta þannig upp að
Jesús kæmi út eins
og brjúlaður gúrú.
SJÚKDÓMAR OG FÓLK
Tíöahvörf
mmk óttar
' gudmundsson
Það hringdi til mín kona
eitt kvöldið. Hún kynnti sig
og sagðist yfirleitt lesa pistl-
ana mína í PRESSUNNI.
— Þetta er stundum bara
gott hjá þér, væni minn,
sagði hún, en skelfing vildi
ég að þú skrifaðir einhvern
tíma um tíðahvörfin. Ég er
49 ára og blæðingarnar að
hætta og ég er farin að finna
fyrir alls konar einkennum
sem ég skil hvorki né þekki.
Skrifaðu nú einu sinni um
eitthvað sem máli skiptir og
án allra fimmaurabrandara
um lækna og spítala.
MISMIKIL EINKENNI
Þegar konur eldast minnk-
ar hormónaframleiðslan,
blæðingarnar verða óreglu-
legri og hætta síðan algjör-
lega. Eggjastokkarnir bregð-
ast ekki lengur við örvun
stýrihormónanna frá heila-
dingii svo að frjósemin
minnkar. Eftir fertugt fækk-
ar egglosum og á tímaskeið-
inu 48—52 ja ára hætta blæð-
ingarnar alveg og konan fer
úr barneign. Stór hluti
kvenna finnur fyrir líkam-
legum óþægindum þegar
blæðingarnar hætta en ein-
ungis fáar leita sér aðstoðar,
sem bendir til þess að ein-
kennin lagist með tímanum.
Algengast er hitakóf sem
lýsir lsér eins og hitatilfinn-
ing í efri hluta líkamans, roði
og sviti. Þessi kóf standa
mislengi, sumar konur finna
fyrir þeim í nokkrar sekúnd-
ur, aðrar lengur. Margar kon-
ur finna fyrir höfuðverk,
svima, svefntruflunum og
kláða, sem þó er mjög mis-
munandi og einstaklings-
bundið.
ALDURSBREYTINGAR
I þekktu dægurlagi eftir
Magnús Eiríksson um
Möggu í bragga segir: „Þá
færðist aldur yfir eins og
gáldur," og það má til sanns
vegar færa að margt breytist
með þeim galdri. Á líkaman-
um verða breytingar; eggja-
stokkarnir minnka og horm-
ónaframleiðslan dregst sam-
an, eggjaleiðararnir skreppa
saman og styttast og legið
rýrnar, teygjanleiki leggang-
anna minnkar og slímhimn-
ur verða þynnri, stökkari og
aumari, vegna östrogen-
skorts. Brjóstin breytast og
missa stinnieika sinn og
festu. Eitt alvarlegasta ein-
kennið samfara tíðahvörfun-
um er minnkað kalkmagn í
beinum (osteoporósis),
sem veldur því að konunni
verður hættara við beinbrot-
um. Þunglyndi og ýmis
geðræn einkenni láta á sér
kræla eftir tíðahvörf og
margir hafa þá tilhneigingu
að kenna breytingatimanum
um allar geðsveiflur eða
vandamál sem upp koma.
Margar konur finna fyrir
pirringi, minnisleysi og
kvíða og auknu næmi fyrir
alls konar áreiti. Flestir telja
þó að þessi andlegu óþæg-
indi hafi verið orðum aukin
og menn hafa ekki fundið að
alvarlegum geðsjúkdómum
fjölgi á þessu tímabili.
Áhugi á kynlífi virðist
minnka hjá mörgum konum
við tíðahvörfin og samförum
fækkar. Reynsla flestra er þó
sú að hafi kynlífið verið lé-
legt áður en tíðahvörfin
urðu versni það en hafi það
verið gott breytist það ekki
mikið. Konur virðast þó eiga
erfiðara með að fá fullnæg-
ingu en áður. Áframhald-
andi kynlíf konunnar eftir
tíðahvörf er að verulegu
leyti undir manninum kom-
ið. Ef hann er hraustur og
fullur af kynorku getur
ágætt kynlíf haldið áfram en
sé hann sjúkur og áhugalítill
breytist það til hins verra.
Konur sem lifa einar eða
r.tissa menn sína eftir tíða-
hvörfin fara sjaldnast og
stofna til nýrra kynferðis-
legra sambanda.
MEÐFERÐ
Margar konur fá horm-
ónapillur á þessu skeiði og
gefur það ágæta raun gegn
höfuðverknum, pirringnum,
kvíðanum, gleymskunni,
depurðinni og hitakófunum.
Konur geta haldið áfram að
lifa ágætu kynlífi þrátt fyrir
tíðahvörfin. Oft þarf að nota
mýkjandi smyrsl i leggöng
og sköp þar sem slímhimn-
urnar verða annars aumar
og viðkvæmar fyrir snert-
ingu. Viðbrögð konunnar
við tíðahvörfunum byggjast
að verulegu leyti á persónu-
leika hennar og þeim að-
stæðum sem fyrir hendi eru
hverju sinni. Margir finna
fyrir tómleika og tilgangs-
leysi á þessum árum, börnin
farin að heiman og tækifær-
um lífsins virðist fara hrað-
fækkandi. Þessi tilfinning
kemur bæði yfir konur og
karla og virðist ekki hafa
neitt með breytt hormóna-
magn að gera heldur al-
menna lífsnautn, lífsskoðun
og afstöðu til tilverunnar.
Tíðahvörf eru eðlilegar
breytingar sem fylgja því að
eldast. Hver manneskja
verður að sætta sig við það
þangað til uppskriftin að ei-
lífri æsku verður almenn-
ingseign og dauðlegir menn
geta drukkið af ódáinsveig-
um guðanna á Ólympsfjalli,
sem héldu þeim síungum.
S.ÞÓR