Pressan - 17.01.1991, Page 23

Pressan - 17.01.1991, Page 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. JANÚAR 1991 23 ... fær Tryggvi Hubner, bara fyrir að vera eins og hann er. BÍÓIN ■■■■■ Nikita Nikita Háskólabíói kl. 5, 7, 9 og 11.15. Frakkar eiga hélst ekki að gera nema erótískar myndir. Þetta vita allir nema Besson. Hann á að baki nokkrar oflofaðar myndir og ætli þessi fari ekki í hóp með þeim. Aleinn heima Home Alone Bíó- höllinni kl. 5, 7, 9 og 11. Ef Rambó hefði einhvern tímann verið lítill hefði hann sjálfsagt hagað sér svona. Þessi mynd fyll- ir þann skemmtilega flokk mynda sem allir geta látið fram- hjá sér fara. Ryd Regnboganum kl. 5, 7, 9 og 11. Tilvalið tækifæri fyrir þá sem voru farnir að ryðga i íslenskum myndum. Þeir sem nenna að biða eftir endinum verða ánægð- ir. Reykjum, etum, drekk- um og verum glöð og liggjum í leti okkur lystir! það er að segja fciri maður á kaffihús. Þrír menn og lítil dama Three Men and a Little Lady Bíóborg- inni og Bíóhöllinni kl. 5, 7, 9 og 11. Sum barnsfaðernismál fara bara beint í vaskinn og þetta er greinilega eitt af þeim. Á mörkum lífs og dauða Flat- /mersStjörnubíói kl. 4.50, 6.55, 9 eins og ÓLAFUR H. TORFASON tónlistin mmm Sinfóníuhljóinsveitin heldur þrenna tónleika næstu daga. Ný- árstónleikar heita þeir og á dag- skránni er Vínartónlist. Fimmtu- dag og laugardag í Háskólabiói en á föstudag bregður hljóm- sveitin sér austur til Selfoss og spilar í íþróttahúsinu. Upplyfting verður á Gauki á Stöng fimmtudag og föstudag. Það er ótrúleg þrautseigja í Upp- lyftingu sem nú spilar í fyrsta sinn á Gauknum. BÓKIN ■■ Rauðir pennar eftir dr. Orn 01- afsson er nýútkomin hjá Máli og menningu. Dr. Örn hefur allar forsendur til þess að fjalla um hina máttugu bókmenntahreyf- ingu sósialista sem var borin uppi af mönnum eins og Halldóri Laxness, Steini Steinarr, Halldóri Stefánssyni, Jóhannesi úr Kötl- um og Kristni E. Andréssyni. Þetta var þegar bókmenntir og þjóðfélagsbarátta voru eitt og hið sama; Örn hefur aflað fanga viða og bregst ekki fræði- mennskan. Ráðabrugg Intrigue fimmtudag- inn 17. janúar kl.23.15. Nýleg bandarísk um hefðbundnar erjur KGB og CIA, lífshættu í Moskvu, svikara, konur og vodka. Sögu- leg upprifjun á kalda stríðinu og spennandi á köflum. Skuggalegt skrifstofuteiti Off- ice Party föstudaginn 18. janúar kl.23.00. Sá kostulegi skugga- baldur David Warner er í aðal- hlutverki í mynd sem fjallar um skrifstofublók sem tekur vinnu- félaga í gíslingu. Warner er ná- ungi sem lætur drauminn rætast. SJÓNVARPIÐ LJÓSMYND: SIGURÞÓR HALLBJÖRNSSON VEITINGAHÚSIN ■ Gamalt brennivín Café Mílanó Faxafeni 11 var hleypt af stokkunum síðasta sumar í glæsilegu húsnæði. Míl- anó státar af listilegum innrétt- ingum og ljúfu andrúmslofti. Matseðillinn miðast einkum við þá sem skjótast úr vinnu i há- Ásthildur á Café Mílanó af- greiöir kaffi með sveiflu. degi, samanstendur af fiskrétt- um, brauði og pastaréttum. Verðið er með því lægsta sem finnst, dýrasti rétturinn kostar 690 krónur. Þá er og fjölbreytt úrval af gómsætum kökum og meðlæti og kaffið er eins og sæmir stað með ítölsku nafni. Mílanó er opið frá 9—19 virka daga og 12—18 á sunnudögum en á kvöldin er hægt að leigja staðinn fyrir einkasamkvæmi. Og eitt enn: Ýmsir veitingamenn ættu að gera sér ferð á Café Míl- anó til að komast að því hvað góð þjónusta er. Meö því aö kæla þaö nógu mikið má skella því í sig í töluverðu magni, óblönduðu. Gamalt brennivín er aö flestra mati skárri kostur en venjulegt brennivin ef drekka á brennivín óblandaö, t.d. á þorra- blótum sem nú ganga í garð. Kúmenbragðið er ekki jafnyfirgengilegt og í venjulegu brennivíni sem fær aðeins að standa í þrjá mánuði áð- ur en það fer á markaö- inn. <7o5v'TfrÍ Fjallasveitin High Mountain Rangers föstudaginn 18. janúar kl.22.15. B-mynd út í gegn sem Conradfjölskyldan gerði sér til dundurs. Hvaða Conradfjöl- skylda? Þeir sem nenna að glápa komast að þvi. Lögguhasar í fjallshlíðum. '91 ástöðinni laugardaginn 19. janúar kl.20.40. Þeir eru komnir! Þeir eru komnir! Spaugstofu- menn gefa þjóðinni kúrsinn í skammdeginu. Prinsinn og betlarinn The Prince and the Pauper laugar- daginn 19. janúar kl.21.55. Kyn- legt leikaragallerí í mynd sem byggð er á sögu eftir Mark Twain: Ernest Borgnine, Raquel Welch, George C. Scott, Oliver Reed. Ljúfsár mynd — en bókin var betri. .. Tryllt ást Wild atHeart Háskóla- biói kl. 5.10, 9 og 11.15. Ein af þeim myndum sem maður getur slegið um sig með á kaffihúsum, og 11.10. Furðulegt afbrigði ný- aldarinnar sem sýnir okkur að ekki er sama að vera dauður og vera dauður. Spennan fín en ekki merkileg. MYNDLISTIN ■■ Hallgrímur Helgason á Kjar- valsstöðum. Stórsýning sem spannar fimm ár úr lifi og Iistum eins af bestu málurum okkar. Skemmtileg og frjó sýning. Arngunnur Yr á Kjarvalsstöð- um. Verk unnin með ýmsum hætti, veggmyndir úr viði, gleri, hálmi og málmum í bland við hefðbundin olíumálverk. 18 æskulistamenn i Nýlista- safni. Forvitnileg sýning á verk- um íslenskra „naívista" sem einu sinni voru kallaðir einfarar eða alþýðulistamenn. Listamenn sem varðveittu barnið í sér, yfir- leitt án mikillar fyrirhafnar. Berglind, Hrafnhildur og Ingi- ríöur í menntamálaráðuneyt- inu. Nú ættu sem flestir að gera sér ferð um myrkviði skriffinnsk- unnar við Sölvhólsgötu og skoða þessa heillandi og dularfullu sýn- ingu. LEIKHÚSIN ■■■ Fló á skinni eftir Georges Fey- deau í Borgarleikhúsi á fimmtu- dag. Einfaldlega skemmtilegasta sýningin í bænum. Ættarmótið eftir Böðvar Guð- mundsson hjá Leikfélagi Akur- eyrar föstudag, laugardag og sunnudag. Norðanmenn þyrpast á Ættarmótið sem er skemmti- lega þjóðlegt eins og búast mátti við af Böðvari. r 7— 5“ 9— 1Ó p r N ■ ■ L ■ 1 ■ 43 t 47 „ ■ L ÞUNGA GATAN LÁRÉTT: 1 menn 6 húfu 11 þungi 12 galli 13 fléttað 15 útöndun 17 baks 18 dýrka 20 fiður 21 fussa 23 gröf 24 tögur 25 loftferju 27 við- burðarás 28 gunga 29 þögul 32 yfirhöfn 36 dá 37 sytru 39 spaða 40 hlé 41 stakri 43 land 44 kjánann 46 göfugmenni 48 sargi 49 skaði 50 vorkennir 51 ílát. LÓÐRÉTT: 1 miskunnarverk 2 fimleikatæki 3 viðkvæm 4 steinteg- und 5 hóp 6 sprett 7 minnka 8 mundi 9 belti 10 eyddri 14 gjald 16 dund 19 hættuleg 22 tjón 24 árstíð 26 dvaldist 27 liðug 29 illmennin 30 atlaga 31 dánum 33 sjávardýrið 34 himna 35 eflir 37 slappir 38 bolta 41 slægjuland 42 starf 45 rölt 47 uppistaða. Yinsœlustu myndböndin 1. Internal Affair 2. We are no Angels 3. A Shock to the System 4. Always 5. A Cut Above 6. Loose Cannons 7. Look Who's talking 8. A Dry White Season 9. Glory 10. Sisters NÆTURLÍFIÐ Rokkað á liimnum á Hótel Is- landi fór af stað í haust, mikil skrautsýning þar sem miklu er kostað til. Af söngvurum má nefna Björgvin Halldórsson, Sig- ríði Beinteinsdóttur og Eyjólf Kristjánsson. Hljómsveitin Stjórnin heldur uppi fjörinu og tólf dansarar sýna listir sinar; Helena Jónsdóttir samdi dans- ana. Með þessum herlegheitum fylgir matur sem gestir velja sjálfir af níu rétta matseðli. 4400 krónur kostar þessi pakki. Fyrir þá sem vilja rokka á himnum með þotuliði. . . FJÖLMIÐLAR Ásgeir Friðgeirsson, ann- ar tveggja fastra fjölmiðla- skríbenta Moggans, skrifar um smáfréttir PRESSUNN- AR og Sandkorn DV í blaðið sitt um helgina. Hann spyrð- ir þetta tvennt saman og kallar „sáðkorn illvilja og jafnvel haturs", segir þarna vera á ferðinni „uppspuna öfundar og óvildar" og að siðferðislega hafi smáfrétta- deildir umræddra blaða „margsinnis farið á haus- inn". Ásgeir segir auk þess að þessar fréttir hafi kostað „þá sem ekkert liafa til sekt- ar unnið Iífsafkomu, frama- vonir og jafnvel hamingju". Ja, hérna. Eins og í fyrri greinum sín- um telur Ásgeir sig ekki þurfa að finna orðum sínum stoð í raunverulegum dæm- um. Hann eltir einungis pennann og lætur hann leiða sig út í ofhlaðnar setn- ingar og illa grundaðar full- yrðingar. Því er engin ástæða til að svara Ásgeiri. Hins vegar mirtnir greinin okkur á ákveðna gildru sem við getum fallið í með hugs- anir okkar. Mörg okkar eiga það til að heimfæra upp á ís- lenskt þjóðfélag ýmislegt sem gerist í útlöndum. Marg- ir sem hafa dvalið erlendis flytja þannig með sér heim flokkun á dagblöðum sem tíðkast þar; annars vegar éru gæðablöð og hins vegar sorpblöö. DV lendir einna verst í þessu. Þótt það sé tiltölulega huggulegt dagblað og næst- um óguðlega huggulegt síð- degisblað hefur það mátt þola alls konar þýddar skammir sem upphaflega var beint gegn blöðum á borð við Bild, The Sun eða The News of the World. Og á meðan fólk er upptekið við að leita að ósómanum í DV sést jrví yfir þá afbökun á raunveruleikanum sem á sér stað á flokksblöðunum; Tím- anum, Alþýðublaðinu, Þjóð- viljanum og — því miður enn þá — Mogganum. Ef menn eins og Ásgeir Friðgeirsson leituðust við að finna meinsemdirnar í ís- lenskum blöðum í stað þess að heimfæra upp á |rau ein- hverja vá aö utan mundu jreir finna sorp víðar en þeir leita að því núna. Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.