Pressan - 17.01.1991, Síða 28

Pressan - 17.01.1991, Síða 28
likil harka er nú komin í kosningabaráttuna innan Dags- brúnar en kosið verður eftir rúma viku. Mótframboðið við Guðmund J. Guðmundsson hef- ur nú fengið til sín tvo nýja liðsmenn sem einnig eru fyrr- verandi stjórnar- menn í Dagsbrún. Það eru þeir Páll Valdimarsson, sem er kunnur af briddsafrekum sínum, og Sigurður Olafsson, trúnaðarmaður hjá B.M. Vallá. Telja andstæðingar Guðmundar að 600 nýir félagar hafi gengið í félagið að undanförnu og eigna þeir sér þá alla . . . l frumvarpi að fjárhagsáætlun kemur fram að það mun kosta 25 milljónir að reka borgarráð og borg- arstjórn, það er æðstu stjórn borgar- innar. Laun á skrif- | stofu Davíðs Odds- I ] sonar borgarstjóra 4 llj verða um 36 milljón- ~ ir á þessu ári. Þá kemur fram að borg- inni er skylt að horfa á eftir 32,5 milljónum króna til Sinfóníuhljóm- sveitar íslands (og Reykjavíkur). . . M ■ V ■ikil valdabaratta fer nu fram innan Félags íslenskra stór- kaupmanna. Aðalfundur félagsins verður seinna í mánuðinum og hef- ur formaður þess, Haraldur Har- aldsson í Andra, lýst yfir áhuga sín- um á að vera áfram. Haraldur hefur verið formaður félagsins tvö kjör- tímabil og samkvæmt lögum þess má hann ekki vera lengur formaður. Stuðningsmenn Haralds hafa hins vegar rætt um að leggja fram tillögu um lagabreytingu á aðalfundinum til að framboð hans megi heppnast. Margir félagsmenn eru því mjög mótfallnir og telja rétt að skipta um formann, meðal annars vegna þess að umsvif Haralds á Stöð 2 hafi ekki verið heppileg auglýsing. Helst er rætt um Birgi Rafn Jónsson í Magnúsi Kjaran hf. sem mótframj- óðanda gegn Haraldi. . .. C Cwem kunnugt er brotnaði gífur- legur fjöldi rafmagnsstaura á Norð- urlandi í óveðrinu fyrr í mánuðin- um. Tjón Rafmagnsveitnanna er metið á um 50 milljónir króna enda brotnuðu um 500 staurar. Þrátt fyrir að veðrið hafi verið slæmt var það ekkert einsdæmi og telja menn að það sé ekki eina skýringin á tjóninu. Hefur verið bent á að víða, þar sem tjónið varð mest, hafi verið nýbúið að setja upp þriggja fasa kerfi. Við það er bætt einni línu sem eykur að sjálfsögðu þyngslin þegar ísingin hleðst upp. Rekja menn það til Kristjáns Jónssonar rafmagns- veitustjóra að ákvörðun var tekin um að styrkja ekki linuna. Sparnað- urinn þá hafi orsakað tjónið nú . . . M ■ W ■ikil óánægja er meðal margra matvörukaupmanna vegna þess hversu verð á vörum getur ver- ið lágt í Bónusversl- ununum. Heildsalar bera af sér að Jó- hannes Jónsson í Bónus fái afslátt um- fram aðra. Þessu vilja aðrir kaup- menn ekki trúa. Nokkrir þeirra hafa rætt um að hætta viðskiptum við þá heildsala sem flytja inn vöru r sem fást á lægra verði í Bónus en hjá heildsölunum sjálfum. Hvers vegna kaupmennirn- ir versla ekki hjá Jóhannesi í stað þess að versla hjá heildsölunum er ekki vitað . . . v W egna aukinna umsvifa Pharmacos í viðskiptalífinu fara nú fram miklar breytingar á starfsemi fyrirtækisins. Öllum þeim fyrirtækj- um sem nú eru í eigu Pharmacos verður stjórnað frá aðalskrifstofum fyrirtækisins. Nú er verið að setja upp tölvunet svo að hægt verði að fylgjast með og stjórna öllum fyrir- tækjunum úr höfuðstöðvum Pharmacos í Garðabæ. Það stefnir í mikið og aukið starf hjá Sindra Sindrasyni og hans fólki á skrif- stofu Pharmacos . . . l* ramboði Guðmundar Þ. Jónssonar er einkum stefnt gegn Guðrúnu Helgadóttur og nýtur hann meðal annars stuðnings Ás- mundar Stefánssonar og þeirrar verkalýðsforystu sem enn lætur að sér kveða innan Alþýðubandalags- ins. Þá munu Guðmundur og Árni Þór Sigurðsson vera í óformlegu kosningabandalagi en Árni er starfsmaður Steingríms J. Sigfús- sonar í samgönguráðuneytinu ... v alsmenn standa í stappi þessa dagana við að fá greitt fyrir Sigurð Sveinsson handknattleiks- ----------- mann. Sigurður, ico Madrid á Spáni fyrir einu og hálfu ári. Munu Valsmenn ----------- lítið sem ekkert hafa fengið af þeim peningum sem Atlet- ico átti að greiða fyrir vinstri handar skyttuna skotföstu ... • |J ■ ^lú hefur Sigurður Péturs- son sagnfræðingur — og eiginmað- ur Olínu Þorvarðardóttur — verið ráðinn kosningastjóri Alþýðuflokks- ins vegna komandi alþingiskosn- inga. Þá er einnig í bígerð að Sig- urður Jónsson, dreifingarstjóri Al- þýðublaðsins, taki að sér kosninga- stjórn í Reykjavík . . . í* restur vinnuveitenda til að skila launamiðum rennur út á mánudaginn, 21. janúar. Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri hef- ur auglýst dagsetninguna stíft en þegar launagreiðendur ætluðu að sækja launamiða í tölvutæku formi á skrifstofu skattstjóra í gær fengust þau svör að þeir væru í prentun. Það virðist því stefna í helgar- og nætur- vinnu í mörgum fyrirtækjum . • • ■ ^lýr forseti Hæstaréttar, Guð- rún Erlendsdóttir, er vanhæf sem dómari í nokkrum málum sem koma til kasta Hæstaréttar. Það er í þeim málum sem Örn Clausen, einn af þekktari lögmönnum lands- ins, flytur. Ástæðan er sú að Guðrún og Örn eru hjón . .. 68 55 22 Mi/lf

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.