Pressan - 28.02.1991, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. FEBRÚAR 1991
príSSan
Útgefandi:
Blað hf.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Ritstjórar:
Gunnar Smári Egilsson,
Kristján Þorvaldsson
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar
Hilmarsson
Ritstjórn, skrifstofur og aug-
lýsingar: Hverfisgölu 8-10.
sími 62 13 13. Faxnúmer:
62 70 19. Eftir lokun skipti-
borðs: Ritstjórn 62 13 91,
dreifing 62 13 95, tæknideild
62 00 55. Áskriftargjald 550
kr. á mánuði. Verð i lausasölu
170 kr. eintakið.
Látiö oftar
skerast í odda
PRESSAN fagnar því að sjálf-
stæðismenn skuli þurfa að kjósa
um formann sinn.
Það er alltaf fagnaðarefni þeg-
ar fólk stendur frammi fyrir því
að velja á milli tveggja kosta eða
fleiri í stað þess að því sé rétt ein-
hver málamiðlun upp í hendurn-
ar. Fyrir utan hvað það er
skemmtilegt þá er það lýðræðis-
legra.
Eitt mesta mein stjórnmálanna
er hversu þeir sem í þeim vasast
eru hræddir við átök. Jafnvel þó
þingmenn sanni á sig algjört
getuleysi er þeim haldið á þingi
af einhverjum misskildum ótta
við breytingar. Vissulega hræðist
fólk að standa frammi fyrir vali á
rnörgum kostum en eftir á eru
allir því fegnir.
Þetta á ekki eingöngu við um
val á milli manna heldur ekki síð-
ur um val á leiðum. Ef stjórn-
málamenn hefðu haft þor til þess
að taka raunverulegar ákvarðan-
ir í atvinnu- og byggðamálum á
undanförnum áratugum væri
hér blómlegri byggð. En i stað
þess þá hafa endalausar frestanir
og málamiðlanir skilið eftir sig
frost og staðnað ástand.
Vonandi verður formannskjör
sjálfstæðismanna til þess að
hleypa kjarki i stjórnmálin hér á
landi.
FJÖLMIÐLAR
Það kom vel í Ijós í síðustu
viku hversu bæklað Morgun-
blaðið er.
Blaðið birti síðast allra fjöl-
miðla fréttina um hugsanlegt
framboð Davíðs Oddssonar
til formanns á næsta lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins.
Það skal enginn ljúga því að
mér að það hafi verið vegna
þess að þeir við Aðalstrætið
hafi verið síðastir til að frétta
af því.
Þegar Morgunblaðið
neyddist til að segja frá því
var það gert eins og um ein-
hverja smáfrétt væri að ræða.
Það skal enginn Ijúga því að
mér að það hafi verið vegna
þess að þeir við Aðalstrætið
flokki það sem smámál hver
leiði Sjálfstæðisflokkinn í
næstu kosningum.
Af minna tilefni en þessu
hefur Morgunblaðið húrrað
upp fréttaskýringu. En í stað
þess að láta Agnesi Braga-
dóttur, helsta stjórn-
mála-fréttaskýranda blaðs-
ins, í málið var hún send út á
ballarhaf að lýsa lífinu um
borð í frystitogaranum Frera.
A meðan þurftu lesendur
Morgunblaðsins að leita
frétta af formannsslagnum í
öðrum fjölmiðlum.
Þetta mál sýnir vel hug
Morgunblaðs-ritstjóranna til
óháðrar blaðamennsku. Þeir
gerðu hlé á fréttaflutningi af
formannsraunum sjálfstæðis-
manna á meðan þeir voru að
gera upp hug sinn til málsins,
eins og þeirra prívat skoðanir
komi lesendum eitthvað við.
Þetta er náttúrlega van-
virðing við lesendur. Blaða-
menn eiga að þjónusta les-
endur sína eins og aðrar þjón-
ustustéttir sína viðskiptavini.
Viðskiptavininum kemur
ekkert við hvernig kallinn í
efnalauginni er stemmdur.
Hann vill sin föt hrein og
pressuð á réttum tíma.
Gunnar Smári Egilsson
„Prestar verða að
lifa eins og aðrir.
yjctlcUt,?
Pad á ad fara aö búa til sér-
staka tveggja og hálfs árs
námsbraut til aö mennta
mennina sem keyra sjákrabíl-
ana.
KREMLÓLÓGIA
,,Ihaldssemi er oft mikil
dyggð og þegar um er ad
rœða óbyggöir íslands er
íhaldssemi til fyrirmyndar."
Reykjavíkurbréf Morgun-
blaösins
HÚN ER OF HÆGRI-
SINNUD FYRIR MIG
„Vinstri menn og verka-
lýðssinnar hljóta að hafna
stefnu núverandi ríkisstjórn-
ar og þar með framlengingu
hennar."
Birna Þórðardóttir
LEWIS
SÆLIR ERU LÍTILLÁTIR
„Jerry Lee Lewis er Jerry
Lee Lewis og hann er námer
eitt. Við erum að tala um
Jerry Lee Lewis. Jerry Lee Le-
wis er einstaklingur og hann
er Jerry Lee Lewis og það
verður aldrei til annar eins og
Jerry Lee Lewis."
Jerry Lee Lewis
| SR. JÓN DALBÚ HRÓBJARTSSON
Hvað sögðu lögin
um bennan
Mi
verknað
fvrir
breytingu?*
i?*K
4
„En ef til dœmis foreldrar
hefðu lagst gegn því að við
toekjum barn þeirra úr sam-
bandi viö öndunarvél eftir að
það var heiladáið, þá býst ég
við að við hefðum hikað við
að gera það.“
Þorsteinn Svörfuður Stefáns-
son, yfirlæknir á gjörgæslu-
deild
(um ný lög sem miða dauða við
heiladauða. Þorsteinn er að
lýsa ástandinu fyrir lagasetn-
inguna).
Gamall hani
Það má vel vera að þeir fyr-
ir norðan sjái mikinn pólitík-
us í Halldóri Blöndal. Við
hérna fyrir sunnan sjáum
hins vegar einungis stór-
bokka utan af landi í eilifri
kaupstaðarferð.
Það getur verið gaman að
rekast á svona drengi í góðra
vina hópi á einhverju verts-
húsinu. Það er hins vegar
mikil pína að sitja uppi með
þá í púltinu niðrá þingi. Sér-
staklega ef þeir dvelja þar
langdvölum. Og það gerir
Halldór.
Pólitík Halldórs er pólitík
hanasiagsins. Og eins og
margir hanar hefur hann dá-
lítið gleymt sér í slagnum.
Það er eins og það skipti
hann litlu máli lengur um
hvað er slegist. Aðalatriðið er
Hæstarétt í Þjóðleikhúsið!
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra og formað-
ur Alþýðubandalagsins, hef-
ur þann hvimleiða sið að
belgja sig ótt og títt yfir jafnt
smáu sem stóru. Hann lætur
iðulega sem himinn og jörð
hefðu farist hefði hann ekki
komið til skjalanna og kippt
einhverju smáræðinu í liðinn.
Mér sýnist þó sennilegast að
hann kunni einfaldlega ekki
að gera greffiarmun á aðal-
atriðum og aukaatriðum.
Eg prísa mig sælan að
dvelja nú um stundarsakir er-
lendis og þurfa hvorki að
horfa né hlusta á Ólaf Ragnar
þenja sig í íslenskum Ijós-
vakafjölmiðlum. Ég geri mér
góðar vonir um að hann
verði horfinn úr ráðherrastóli
þegar ég sný aftur heim. En
BIRGIR ÁRNASON
þrátt fyrir fjarvistir úr land-
inu fer ég ekki alls kostar var-
hluta af þeim vaðli sem út af
Ólafi Ragnari og hans mönn-
um í fjármálaráðuneytinu
gengur því ég fæ sendar allar
fréttatilkynningar þeirra og
þær eru ófáar.
Ein slík stakk mig sérstak-
lega í augun nýverið. Hún
fjallaði um kaup ríkisins á
húsi Útvegsbankans gamla
við Lækjartorg og áform um
að hýsa þar framvegis héraðs-
dómstólinn í Reykjavík. í
fréttatilkynningunni var
ágæti þessarar ráðstöfunar tí-
undað út í hörgul. Þar bar
tvennt hæst. Annars vegar
myndi starfsemin í hinu nýja
dómshúsi verða miðbæ
Reykjavíkur mikil lyftistöng
og hleypa í hann nýju blóði.
Hins vegar væri nú tryggt að
í framtíðinni myndu hinar
þrjár megingreinar ríkis-
valdsins eiga sér höfuðaðset-
ur í Kvosinni — löggjafarvald-
ið í alþingishúsinu við Austur-
völl, framkvæmdavaldið í
stjórnarráðshúsunum um-
hverfis Arnarhól og dóms-
valdið í nýju dómshúsi við
Lækjartorg. Einn skugga bar
þó á fögnuð Ólafs Ragnars og
félaga og kom í veg fyrir að
úr yrði alsæla. Ekki er enn
búið að finna hæstarétti
landsins nýtt og glæsilegt
húsnæði.
Það sem ég furða mig mest
á er að fjármálaráðuneytis-
mönnum skuli ekki hafa dott-
ið í hug að leita á náðir Svav-
ars Gestssonar menntamála-
ráðherra. Hann ræður yfir
stóru og glæsilegu, nýendur-
byggðu húsi í næsta nágrenni
við fjármálaráðuneytið og
núverandi húsnæði hæsta-
réttar handan Lindargötunn-
ar. Ólafur Ragnar, hefði ekki
verið þjóðráð að slá allar
flugurnar í sama högginu og
tilkynna samtímis kaupin á
Útvegsbankahúsinu og flutn-
ing hæstaréttar í Þjóðleikhús-
ið? Hefði þá ekki margbrotið
mannlíf verið tryggt í miðbæ
Reykjavíkur um aldur og
ævi?
Allt er þetta heldur dapur-
legt. Undir forystu Davíðs
Oddssonar borgarstjóra og
annarra sjálfstæðismanna
hefur miðbær Reykjavíkur
smám saman glatað lit sínum
og lífi. Nú hefur ríkisvaldið í
mynd Ólafs Ragnars Gríms-
sonar lagst á sömu sveif.
Reykjavík mun verða æ leið-
inlegri því lengur sem ráða-
menn með þann hugsunar-
hátt að iðandi mannlíf og
menning spretti upp í kring-
um ráðhús, hvort sem er fyrir
borgina eða ríkisvaldið, þing-
hús eða dómhús, en verslun-
ina og menningarstarfsemina
megi að ósekju flytja í stein-
steypuvirki i úthverfum.
Birgir er hagfræðingur hjá
EFTA i Genf.
að ná að gogga í einhvern og
víkja sér undan goggum ann-
arra.
Halldór er reyndar ekki
lengur sérlega góður í því síð-
arnefnda. Hann er gamall
hani og á erfitt með að víkja
sér undan. Hann situr því
sem fastast og treystir á að ef
hann verði goggaður þá nái
hann bara að gogga þann
sama enn fastar.
Halldór væri sjálfsagt
skemmtilegur þingmaður ef
hann væri yngri. Það er til
dæmis hægt að hafa mjög
gaman af ungu hönunum í at-
inu hjá Morfís. En hanaslagur
eldist illa hjá mönnum. í stað
kappseminnar kemur skap-
illskan og í stað leikgleðinnar
kemur þrjóskan.
Halldór er því eins og mið-
aldra maður í fótbolta. Hann
man hvað hann gat en
þyngslin minna hann stöðugt
á hvað hann getur ekki í dag.
Það fer með skapið. Eins og
fótboltamaðurinn mundi
grípa til tuddabragða þannig
grípur Halldór til fúkyrða til
að hylma yfir getuleysið.
Halldór er einn af þeim
þingmönnum sem stefna
hærra en þeir munu nokkru
sinni ná. Éinu sinni var ekki
útilokað að hann yrði ráð-
herra. Þó sjálfstæðismenn
hafi afskrifað þann mögu-
leika virðast þeir ekki hafa
gert Halldóri grein fyrir því.
Hann er því hálfgert vand-
ræðamál innan flokksins.
Hann er fyrirferðarmikill og
hávaðasamur en það sem
hann segir hefur litla vigt.
Þetta er eitt af því sem er
Ijótt við pólitík, að skilja Hall-
dór eftir goggandi í ræðupúlti
efri deildar og láta hann
halda að hann sé að þoka sér
áfram í goggunarröðinni.
ÁS
A-Há Héf2 REiZÍ GMNLLtflWfi. SlfnUd
S£>1 HhtJM HEfíÆ £nAp Wi£n4.
'A iSOVJbi
UJ£/VC(ú'S 77AI/KMÚ
bETTA iitAtmCW* ]
FYfc.p NMfCt m FEU.a
Þ(, pÁ fX.r£f-4Ffufí
kyyúkHJ A
i/gwr at ueci ffulj
VEBA ‘ð GO*W‘
fjí', Nlh AÓLBGiB. ST&Mfl! EKKi SjorpA
Mi& UPP STVAA/ EC ÉR. AUS ENGiM
LÍSTF&ttiVMZ' É& LAVG ÞVt &W\ TÍL
AP fk sryöc UE NöCWftAtJDASSÓpi o&
KOMAST
ffíi
>l*\A
é& MFPi HiN£ Vf£AR HuéfAp
MÉfí Af> <VoTA MEST AF FÉNia
TiL At> &ÖM Vi’f> VmfF-
AUT6 miTPYt&MN VíWm-
9AM f)ÍN&!
Framhald i næsta blaöi