Pressan - 28.02.1991, Blaðsíða 25
FTMMTUDAGÚR PRESSAN 2Í FEBRÚAR 1991
,,sólbrúnn, med flagaraklút, húlsmert og allt
þad. Alveg ótrúlega hallœrislegur".
Par fór Hugh Hefner-týpan fyrir lítid.
MARGIR FLOTTIR
Þeir sem oftast voru nefndir voru þeir
Valdimar Flygenring og Sœvar Jónsson. Fast
á hœla þeirra komu sídan Birgir Árnason,
Sigursteinn Másson, Stefán Jónsson, Hans
Kristján Arnason, Arnór Benónýsson og Lár-
us Ýmir Óskarsson. Næsta hóp fylltu Svavar
Egilsson, Richard Scobie og Vidar Þórarins-
son.
En þaö voru miklu fleiri nefndir:
Heimir Karlsson íþróttafréttamadur,
Glúmur Baldvinsson Hannibalssonar blaöa-
madur, Willum Þór Þórsson íþróttakappi,
Þorgils Ottar Mathiesen handboltamadur,
Arni Jörgensen fulltrúi ritstjóra Morgun-
bladsins, Halldór Baldursson og Gunnar
Pálsson módel, Jón Óttar Ragnsson, Kristján
Arnason málfrœöingur, Jón skuggi í Langa
Sela og skuggunum, Þorsteinn Kragh um-
boðsmaður Bubba og Diddi markaðsstjóri
Casablanca og fleiri og fleiri.
Eins og sjá má af upptalningunni hér að
ofan og myndunum á opnunni þá eru margir
flottir gœjar á landinu ekki enn komnir í
sambúð. Sumir eru sexí, aðrir klárir og enn
aðrir ríkir en flestir eru eitthvaö afþessu öllu
og sumir kannski allt.
Gunnar Smári Egilsson
með aðstoð hóps valinkunnra smekk-kvenna.
SVAVAR EGILSSON
41 árs bisnessmaður
„Ein vinkona mín sagði
mér um daginn að Svavar
væri á lausu og keypti sér
nýja dragt í tilefni dags-
ins," sagði ein kvenn-
anna. „Það er flott þegar
karlmenn nota peninga á
karlmannlegan hátt eins
og Svavar."
Svavar Egilsson er
fjörutíu og eins árs bis-
nessmaður. Hann vakti
feiknarlega athygli þegar
hann kom utan frá námi
upp úr miðjum síðasta
áratug og keypti og seldi
hvert fyrirtækið af öðru;
meðal annars Naustið og
Stöð 2. Hann kom einnig
við sögu í Arnarflugi og
bauðst þar til að reiða
fram 200 milljónir. Hann á
nú stærsta hlutann í
Ferðamiðstöðinni Veröld.
Svavar er naut.
HANS KRISTJÁN
ÁRNASON
43 ára viöskipta-
fræðingur
„Hann er eins og mað-
ur hugsar sér pipar-
sveina; vel menntaður,
vel stæður, vel útlítandi,
hefur ferðast mikið og er
indæll og skemmtilegur,"
var sagt um Hans Kristján
Arnason. „Mér finnst
hann og félagi hans Jón
Ottar einu íslensku karl-
mennirnir sem hafa
svona pipar-
sveina-ímynd."
Hans Kristján Árnason
er fjörutíu og þriggja ára
viðskiptafræðingur. Hann
er kunnastur fyrir þátt
sinn i uppbyggingu
Stöðvar 2 og síðan af
þeim darraðadansi sem
frumkvöölarnir stigu við
núverandi eigendur.
Hans Kristján er Vog.
VIÐAR ÞORARINSSON
25 ára barþjónn
„Barinn á Glaumbar
hallar þeim megin sem
Viddi er og stelpurnar
skrolla út dauöadrukknar
eftir að hafa látið hann
snúast í kringum sig allt
kvöldið," sögðu stelpurn-
ar um Viðar Þórarinsson,
sem er átrúnaðargoð
þeirra yngri.
Viðar er tuttugu og
fimm ára og afgreiðir á
barnum á Glaumbar.
Hann á lika vel heima
hópi flottustu piparsvein-
anna þar sem hann er for-
maður í sérstöku félagi
piparsveina. Á meðan
hann bjó á Akureyri stóð
hann fyrir miklum veisl-
um piparsveina og fram-
reiddi eftirrétti sem litu út
eins og konubrjóst. Viddi
er nefnilega útlærður
kokkur.
Viðar er Ijón eins og
svo margir þeirra sem
oftast voru nefndir.
RICHARD SCOBIE
30 ára rokkari
„Hann er svakalegur
töffari," var sagt um Ri-
chard Scobie, söngvara í
Loðinni rottu og áður
Rikshaw. „Hann er líka
með sítt hár. Við viljum
að karlmenn skarti því á
meðan þeir hafa það."
Richard Scobie, þrjátíu
ára, var söngvari i Riks-
haw sem naut mikilla vin-
sælda þó þær hafi ekki
verið almennar. Nú er
hann aðalsprautan í Loð-
inni rottu sem er ein heit-
asta hljómsveitin í dag.
Richard er sporðdreki.
LARUS YMIR
OSKARSSON
41 árs kvikmynda-
gerðarmaður
„Lárus hefur alltaf ver-
ið sjarmerandi og svo
hefur hann bullandi hæfi-
leika og getu til að vinna
úrþeim/'yarsagtum Lár-
us Ými Óskarsson kvik-
myndagerðarmann.
Lárus Ýmir er fjörutíu
og eins árs og á nokkrar
kvikmyndir að baki, flest-
ar gerðar í Svíþjóð. Nýj-
asta myndin og sú fyrsta
sem hann gerir á íslandi
er Ryð, sem nú er sýnd í
Regnboganum við ein-
róma lof gagnrýnenda en
dræma aðsókn. Hann
fékk kvikmyndaverðlaun
DV í fyrri viku.
Lárus á afmæli á morg-
un, verður fjörutíu og
tveggja, og er því fiskur.
25
að hljóp heldur betur á snær-
ið hjá Sameinuðu auglýsingastof
unni um daginn þegar Pepsí gerði
auglýsingasamning
við stofuna. Pepsí er
talinn einn af fimm
stærstu auglýsend-
unum hér á landi
þannig að þarna er
um að ræða pakka
upp á um 50 milljón-
ir króna. Eigendur Sameinuðu aug-
lýsingastofunnar eru þeir Magnús
Bjarnfreðsson, Vilhelm Kristins-
son og Bjarni Grímsson. Stofan
varð til úr samruna Kynningarþjón-
ustunnar, Gylmis og Striksins og
hefur víst ekki gengið of vel til
þessa. Samningurinn við Pepsí ætti
að bjarga því. . .
að er ekki á hverjum degi sem
íslenskir blaðamenn leggja land
undir fót til að elta viðmælendur
sína. Eiríkur Jóns-
son fréttamaður fór
á dögunum erinda
tímaritsins Mannlífs
til Strassborgar að
ræða við Guðmund
G. Þórarinsson al-
þingismann, sem
þar sat fundi á vegum Evrópuráðs-
ins. I viðtalinu í Mannlífi, sem kemur
út í næstu viku, gerir Guðmundur
upp fortíð sína í Framsóknarflokkn-
um. Þar segir hann að forystu Fram-
sóknar hafi verið ljúft að sjá eftir sér
úr pólitíkinni, endi vilji hún einung-
is hafa jábræður sér við hlið. Enn-
fremur segir Guðmundur að hann
hafi verið langt kominn með að
undirbúa sérframboð, slagorðið hafi
meira að segja verið komið á hreint
og sótt í smiðju Roosevelts sáluga:
„Stokkum upp — gefum aftur"...
i^^^iklar vangaveltur eru nú í
gangi um það hvað gerist á komandi
aðalfundi Flugleiða. Innan fyrirtæk-
isins er talað um að
það megi búast við
fjörugum fundi og
gera Flugleiðamenn
almennt ráð fyrir
því að Höröur Sig-
urgestsson, for-
stjóri Eimskips,
muni sækjast eftir sjórnarformanris-
embættinu og leysi þar með Sigurð
Helgason af hólmi. Er staða Harðaf
talin traust og nánast talið formsat-
riði að útkljá kosninguna .. .
A
^^Vtkveðið hefur verið að halda
stjórnarfund hjá Sambandinu þann
7. mars. Fyrir fundinum liggja tillög-
ur nefndar að breytt-
um samþykktum
Sambandsins, en
fjallað var ítarlega
um þær í PRESS-
UNNI á dögunum.
Sagt er að Siguröur
Markússon stjórn-
arformaður leggi áherslu á að menn
haldi friðinn á næstu vikum þannig
að tillögurnar geti gengið sinn eðli-
lega gang innan samvinnuhreyfing-
arinnar, burt séð frá ágreiningi um
framtíð Guðjóns B. Ólafssonar
sem forstjóra. Ekki er talið að nein
sérstök ákvörðun verði tekin á fund-
inum, heldur verði einungis skoð-
anaskipti um tillögurnar, þær síðan
sendar til umfjöllunar hjá kaupfé-
lögunum áður en þær komi til af-
greiðslu á aðalfundi. . .