Pressan - 07.03.1991, Síða 25

Pressan - 07.03.1991, Síða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MARS 1991 25 EKKI EINU SINNI EINN AF HVERJUM HUNDRAÐ Framboðslistar sem í þingkosningum i lýðveldistímabilinu fengu innan við eitt prósent atkvmða og efstu menn þeirra. Flokkur/framboö Ár Kjördæmi Atkvæði Hlutfall 1. Lýöræðisflokkurinn Freysteinn Þorbergsson fv. skólastjóri 1974 Reykjanesi 126 af 49.969 0,09% 2. Lýöræðisflokkurinn Jörgen Ingi Hansen framkvæmdastjóri 1974 Reykjavík 67 af 47.969 0,14% 3. Bandal. jafnaöarm. Þorgils Axelsson tæknifræöingur 1987 Reykjanesi 84 af 35.565 0,24% 4. Fylkingin Ragnar Stefánsson jaröskjálftafræöingur 1979 Reykjanesi 51 af 20.716 0,25% 5. Kommúnistasamtökin Gunnar G. Andrésson rafvirki 1974 Reykjavík 121 af 47.969 0,25% 6. Kommúnistafl. fsl. Gunnar G. Andrésson rafvirki 1978 Reykjavik 126 af 49.344 0,26% 7. Bandal. jafnaðarm. Anna Kristjánsdóttir bankastarfsmaður 1987 Reykjavrk 162 af 59.682 0,27% & Fylkingin Ragnar Stefánsson jaröskjálftafræöingur 1974 Reykjavík 149 af 47.969 0,31% 9. Hinn flokkurinn Helgi Friðjónsson nemi 1979 Reykjavík 158 af 48.897 0,32% 10. Lýðræðisflokkurinn Tryggvi Helgason flugmaður 1974 N-eystra 42 af 12.115 0,35% 11. Sólskinsflokkurinn Stefán Karl Guöjónsson nemi 1979 Reykjanes 92 af 25.582 0,36% 12. Fylkingin Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur 1978 Reykjavík 184 af 49.344 0,37% 13. Stjórnmálaflokkur Ólafur E. Einarsson forstjóri 1978 Reykjavík 284 af 49.344 0,58% 14. Flokkur mannsins Skúli Pálsson mælingamaður 1987 N-vestra 48 af 6.453 0,74% 15. Stjórnmálaflokkur Eiríkur Rósberg tæknifræðingur 1978 Reykjanes 202 af 24.769 0,82% 16. Flokkur mannsins Methúsalem Þórisson 1987 Austurland 69 af 8.034 0,86% skrifstofumaður I 17. Flokkur mannsins Þór Örn Víkingsson afgreiðslumaður 1987 Vestfirðir 57 af 5.996 0,95% 1& Fýfinngtfr Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur 1979 Reykjavík 480 af 48.897 0,98% 19. Flokkur mannsins Sigrún Þorsteinsdóttir húsmóðir 1987 Suðurland 122 af 12.406 0,98% dýraeyðir. „Eftir allt það sem á und- an hafði gengið, viðskilnað Guð- mundar, Stefáns og hinna, stefndi allt í eina átt. Það virðist vera e.k. lögmál í þessu. Það koma fram ein- staklingar fullir af eldmóði, sem ná á skömmum tíma góðum árangri. Eftir fáeina mánuði hefur fólkið kynnst betur og skoðanamunur skerpist. Menn uppgötva að þeir eiga ekki eins mikla samleið og þeir töldu. Og þá er málið búið. Hjá BJ 1987 skorti tilfinnanlega fjármuni og í slikri stöðu ber framboð feigð- ina í sér, ef ekki er þeim mun betur að málum staðið. Svo stendur gamla apparatið traustum fótum. Því er erfitt að breyta án þess að hafa sterka karaktera." FRAMBJÓÐENDUM RAÐAÐ Á LISTA EFTIR VÍTASPYRNUKEPPNI 1979 leit dagsins ljós grínframboð Hins flokksins í Reykjavík og Sól- skinsflokksins í Reykjanesi. Fyrirmyndin var Framboðsflokkurinn eða O-flokkurinn 1971, sem náði furðu góðum árangri, hættulega góðum að eigin mati. Lista Hins flokksins leiddi Helgi Fridjónsson núverandi gjörningalistamaður, sem á síðasta ári var sýknaður af Hæstarétti eftir að hafa sýnt sig ber- an í listrænum tilgangi! Hjá Sól- skinsflokknum var efstur Stefán Karl Gudjónsson, öðru nafni Stebbi í Fræbblunum, en að öðru leyti voru flestir á þessum listum nemendur í hinum ýmsu skólum. Helstu bar- áttumál Hins flokksins voru for- dæming á útþenslustefnu Færey- inga, að bjórinn yrði leyfður og „ís- lenski hesturinn heim“, en hjá Sól- skinsflokknum „meira sólskin". ... OG SEX VONLAUSUSTU FRAMBOÐIN TIL SVEITARSTJÓRNA Framboðslisti Ár Staður Atkvæði Hlutfall Flokkur mannsins 1986 Keflavík 24 af 3864 082% Fl. ungra kiósenda 1974 Neskaupst. 6 af 925 085% Græna framboðið 1990 Revkiavík 565 af 56.112 181% Flokkur mannsins 1990 Revkiavík 594 af 56.112 186% Friálslyndi fl. 1974 Revkiavik 541 af 46.701 1,16% 1986 Mosfellshr. 1,23% „Þetta var mjög gaman," segir Helgi. „Allir hinir tóku okkur illa nema Vilmundur heitinn Gylfason. Öðrum fannst þetta óvirðing við hina heilögu stofnun Alþingi. Við urðum varir við að fjölmargir ungir kjósendur sögðust ætla að kjósa okkur, en flestir hafa guggnað í kjör- klefanum. Þetta var á þeim tíma þegar prófkjörin voru að byrja og við ákváðum að hafa okkar prófkjör með vítaspyrnukeppni. Ég var ákaf- lega lélegur í fótbolta og hitti ekki {íann og'Birna^Þóröar'h^a stofnaö flokkinn „Vinstri vængunnn 1 markið í fyrstu tilraunum. í þriðju tilraun tókst mér að hitta markið og markmanninum rétt tókst að hlaupa frá. í sjónvarpsumræðum fengum við lítinn tíma og í stað ræðuhalda gáfum við stjórn- andanpm epli og öðrum gjafir. Við gáfum Geir Hallgrímssyni hjálm með forláta nefhlíf og Steingrími Hermannssyni 15 kerta peru með von um að það myndi kvikna á henni. Ákaflega skemmtilegt." ARONSKAN VINSÆL EN EKKI STJÓRNMÁLA FLOKKURINN Árið 1978 bauð sig fram Stjórn- málaflokkurinn í Reykjavík og Reykjanesi, talinn hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Þrátt fyrir að mikil alvara fylgdi máli tókst ekki betur til en svo að í Reykjavík, þar sem Ólafur E. Einarsson forstjóri var efstur, fengust 284 atkvæði eða 0,58 prósent og í Reykjanesi, þar sem Eiríkur Rósberg tæknifræðing- ur leiddi, fengust 202 atkvæði eða 0,82 prósent. Umfram annað voru tvö mál á dagskrá flokksins, aðskiln- aður framkvæmda- og löggjafar- valds og gjaldtaka af hernum — ar- onska. Þetta eru hvoru tveggja mál sem margir aðhyllast, en það skilaði sér ekki í kjörkassana. „Á þeim tíma var öll kosningabar- átta mjög erfið,“ segir Eiríkur í dag. „Blöðin voru einhliða flokkspólitísk og ríkissjónvarpið og útvarpið í slíkri samtryggingu með stóru flokkunum að helst komst enginn annar að. Það þurfti framboð í öllum kjördæmum. Við reyndum af veik- um mætti að koma því til skila að ráðherrar ættu ekki bæði að semja lög og framkvæma þau og að sjálf- sagt væri að taka gjald af hernum og láta það alfarið renna til samgöngu- mála. En við vorum kannski á röng- um tíma með þetta. Áttum auk þess enga peninga til að básúna þessum góðu málefnum. í dag sér fólk vafa- laust betur að samgöngumálin eru aðal byggðastefnumálið, því á því sviði höfum við horft upp á algert skipbrot." MARX, LENÍN, MAÓ OG TROTSKÍ: HORFNAR HETJUR Af öðrum vonlausustu þingfram- boðunum ber mest á þeim sem voru yst á vinstri vængnum fyrir 12 til 17 árum, annars vegar Fylkingunni, hins vegar Kommúnistasamtökun- um og Kommúnistaflokki Islands, marx-lenínistum. Þessi samtök hafa fyrir löngu lagt upp laupana, flestir forsprakkanna horfnir sjónum, nema þeir frægustu í Fylkingunni, sem hafa undanfarin ár reynt fyrir sér í Alþýðubandalaginu. 1974 fékk Fylkingin í Reykjavík, með Ragnar Stefánsson jarðskjálfta- fræðing í efsta saeti, 149 atkvæði eða 0,31 prósent. í Reykjanesi fékk flokkurinn 51 atkvæði eða 0,25 pró- sent og þar var efstur Guömundur Hallvardsson. 1978 fékk Fylkingin í Reykjavík 184 atkvæði eða 0,37 pró- sent og Ragnar aftur efstur. 1979 náðist besti árangur Fylkingarinnar, 480 atkvæði eða 0,98 prósent og enn leiddi Ragnar. Árangur marx-lenínistanna var svipaður. í Reykjavík 1974 fengu Kommúnista- samtökin 121 atkvæði eða 0,25 pró- sent og í Reykjavík 1978 fékk Kommúnistaflokkur íslands 126 at- kvæði eða 0,26 prósent. Báða lista leiddi Gunnar G. Andrésson raf- virki. Flokkur mannsins hefur náð allt að því bokkalegum árangri í Reykja- vík, en tilraunir annars stáðár iiafá verið ákaflega misheppnaðar. Nefna má að hlutfallslega lélegasti árangurinn sem fannst í sveitar- stjórnarkosningum var framboð Flokks mannsins í Keflavík 1986, þegar hann fékk 24 atkvæði eða 0,62 prósent — og var þó erfitt að slá við Pétri Óskarssyni á Neskaupstað! Áhrif ofangreindra smáflokka á þjóðfélagsþróunina hafa vitaskuld verið afar, afar takmörkuð. En þeir gegndu ákveðnu hlutverki. Þeir voru valkostur og lífguðu upp á kosningabaráttuna. Og auðvitað brugðust þeir ekki; það gerðu kjós- endur! Friðrik Þór Guðmundsson að getur dregið dilk á eftir sér, að neita fréttamanni um viðtal. Það mun Viggó Sigurdsson handbolta- þjálfari og íþrótta- kennari hafa fengið að reyna á dögun- um. Viggó hefur um árabil rekið leik- tækjasali í borginni og Sigurður G. Tómasson dag- skrárgerðarmaður á Rás 2, fyrrum borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, sá ástæðu til að kalla hann í hljóð- stofu vegna tiltekins máls sem teng- ist þeirri starfsemi. Viggó mun hins vegar hafa tekið ósk fréttamannsins fálega og enduðu samskipti þeirra með því að Sigurður klagaði til Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Um innihald klögubréfsins segir í fund- argerð:....hann skýrir frá því að hann hafi í starfi sínu komist að því að spilakassar er staðsettir eru í næsta húsi við Melaskóla og börn noti séu í eigu Viggós Sigurðsson- ar, kennara við Melaskóla." Á fundi ráðsins var samþykkt samhljóða að fela fræðslustjóra að kanna erindið og grípa til ráðstafana reyndust full- yrðingar fréttamannsins réttar. Við- brögð Viggós voru hins vegar, að klaga Sigurð til útvarpsstjóra ... s Helgj * ■——______ grin af gömf flokks^ns9j^0^st^T'--- I aa °9 koll- koðanakönnun sem DV birti um stuðftíílg við þá **oi»tein Páls- son og Davíð Oddsson í formanns- slagnum í Sjálfstæð- isflokknum kom sem reiðarslag yfir stuðningsmenn beggja, sem höfðu gert sér vonir um mun meira fylgi við framboð sinna manna. Davíðsmenn munu hafa tal- ið að framboð hans nyti mun víð- tækari stuðnings óbreyttra sjálf- stæðismanna ... að hefur gengið á ýmsu hjá körfuknattleiksliðunum í úrvals- deildinni varðandi þá erlendu leik- menn sem hér hafa verið. Hafa hvorki fleiri né færri en sjö þeirra verið reknir á þessu ári. Eru forráða- menn liðanna orðnir mjög þreyttir á að kaupa alltaf köttinn í seknum en þessir leikmenn koma vanalega hingað án þess að neinn hafi séð þá í leik. Eru uppi hugmyndir um að fara í hópferð til Bandaríkjanna fyr- ir næsta haust og versla inn leik- menn. Um leið fá forráðamennirnir hina skemmtilegustu ferð . . . okkuð Ijóst þykir að Borg- araflokksmenn telji ekki fýsilegan kost að láta Guðmund Ágústsson eða Ásgeir Hannes Eiríksson leiða lista sem þeir standa að í Reykjavík í kom- andi kosningum. Óli Þ. Guðbjartsson og Júlíus Sólnes munu hafa rætt þessi mál opið við Guðmund á dög- unum, en Guðmundur er sagður hafa tekið þeim fálega. Hins vegar hefur heyrst að Ásgeir geti hugsað sér sérframboð. Andstæðingar Áseirs innan Borgaraflokksins hafa kallað væntanlegt framboð hans „framboð ofar snælínu", en sem kunnugt er býr Ásgeir í Breiðholt- inu ...

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.