Pressan - 03.10.1991, Side 2

Pressan - 03.10.1991, Side 2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991 leoncie. íslenskir tónlistarmenn eru rasistar. atli gíslason. Var stjórnarformaöur hins gjaldþrota KRON og ákærir aöra stjórnar- menn fyrir slælegt eftirlit meö rekstri. STUNDUM OG STUNDUM EKKI Atli Gíslason hæstaréttar- lögmaður hefur verið sak- sóknari í tveimur umfangs- miklum fjársvikamálum að undanförnu. Fyrra málið var svokallað Töggsmál og hitt er Ávöxtunarmálið. í Töggsmál- inu voru stjórnarmenn ákærðir og dæmdir. Þeir voru sóttir til saka fyrir að hafa ekki fylgst nægilega vel með rekstri Töggs. I Ávöxtunarmálinu ákærir Atli ekki einu sinni formenn stjórnarinnar, þá Pál Sig- urðsson lagaprófessor og arftaka hans, Gísla Gíslason lögmann. Þetta hefur vakið nokkra athygli meðal lög- manna og annarra áhuga- manna um dómsmál. í Ávöxt- unarmálinu eru aðeins fjórir menn ákaerðir; Pétur Björnsson, Ármann Reyn- isson, Reynir Ragnarsson endurskoðandi og Hrafn Bachmann, kenndur við Kjötmiðstöðina. Stjórnar- mennirnir sleppa hins vegar undan hugsanlegri ábyrgð. í málflutningi í Töggsmál- inu sagði Atli meðal annars um einn stjórnarmannanna að ekki væri hægt að segja; ,,ég er hættur, farinn", og verða þar með laus allra mála. I því máli var mikið gert úr ábyrgð stjórnar- manna en Ingvar Sveins- son, sem var stjórnarformað- ur Töggs, var einnig fram- kvæmdastjóri og aðalper- sóna í því máli. Að lokum má bæta því við að Atli Gíslason var stjórnar- formaður KRON á síðasta starfsári þess fyrirtækis. Eins og kunnugt er af fréttum er KRON gjaldþrota og það með stæl, kröfurnar eru um 500 milljónir króna, hálfur millj- arður, en eignirnar nokkru minni, eða um tíu milljónir króna. ÍSLENSKIR TÓNLISTARMENN ERU RASISTAR Fatafellan og söngkonan Leoncie, sem að eigin sögn er indversk prinsessa með portúgalskt blóð í æðum, sagði nýlega í viðtali við danska Ekstrabladet að sér hefði verið kuldalega tekið af íslenskum tónlistarmönnum þegar hún reyndi að slá í gegn hér á landi. Leoncie hefur verið búsett á Islandi hátt í 9 ár og kveðst hafa neyðst til að fækka föt- um vegna kuldalegrar mót- töku íslenskra tónlistar- manna. „Þegar ég kom til íslands vildi ég bara syngja, eins og ég hafði gert í svo mörgum öðrum löndum. En þeir vildu ekki gefa mér tækifæri. Kannski af því ég er lituö. Tónlistarmennirnir komu með alla sína rasísku for- dóma, þeir eru hræðilegir," segir hún og bætir við að hún hafi verið ákveðin í aö láta eðjótana ekki komast upp með þetta. I viötalinu segist Leoncie fá 40 til 50 þúsund krónur fyrir aö troða upp. Ekki kemur fram hvort um íslenskar eða danskar krónur er að ræða, MACDONALD’S A LEIÐ TIL ÍSLANDS ,,Ég get ekki tjáð mig um þetta mál. Það kann að vera að sonur minn viti eitthvað um það, en hann er erlendis sem stendur," sagði Kjartan Jóhanns- son, fyrrverandi eigandi Asiaco, við PRESSUNA, en sonur hans, Kjprtan Kjartansson, er umboðsmaður MacDonald's-hamborgarakeðjunnar á íslandi. Menn frá móðurfyrirtækinu voru hér á landi nýverið að kanna möguleika á rekstri MacDonald’s-staða hér. Sam- kvæmt heimildum PRESSUNNAR heimsóttu þeir meðal annars sláturhús SS, Osta- og smjörsöluna og Vífilfell, auk bakaría. „Þeir hafa komið hingað og rætt við okkur um hugsanlega framleiðslu fyrir þá," sagði Steinþór Skúlason hjá Slát- urfélaginu við PRESSUNA. „Þeim leist vel á það sem þeir sáu og við uppfyll- um allar kröfur þeirra." Símon Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Vífilfells, bað hins vegar ritara sinn fyrir þau skilaboð til PRESSUNN- AR að hann hefði aldrei átt neina fundi með útsendurum MacDonald's-ham- borgarakeðjunnar. Ætlunin mun vera að opna þrjá til fimm staði í Reykjavík, einn á Akureyri og jafnvel víðar á landsbyggðinni. Hætt er við að taugatitrings fari að gæta hjá eigendum skyndibitastaða, ef af þessu verður, en skyndibitafíklar landsins geta verið kátir. en beri danska blaðið fram tölur að hætti innfæddra lesa þeir úr þeim sem svarar 400 til 450 þúsunda íslenskra króna. Viðtalið er tekið í til- efni þess að hún var aö hefja innreið sína á danskan mark- að. Þess má loks geta að í Bret- landi er til vinsældalistinn „UK demo chart" yfir vinsæl- ustu lögin sem ekki hafa ver- ið gefin út en send útvarps- stöðvum til kynningar. Á topp 100 þess lista í ágúst átti Leoncie alls 5 lög, það efsta, „Only You", í 45. sæti. BALDVIN AFTUR í AÐALSTRÆTIÐ Hann staldraði stutt við á Stöð 2, hann Baldvin Jóns- son. Eins og kunnugt er var Baldvin auglýsingastjóri Morgunblaðsins til margra ára. Það þóttu því mikil tíð- indi þegar hann réð sig á Stöð-2 síðasta haust. Hann keypti síðan Aðalstöðina af Olafi Laufdal og fjölskyldu fyrr í vikunni. Þótt ólíku sé saman að jafna, Morgunblað- inu og Aðalstöðinni, bæði að stærð og umfangi, eiga þessir fjölmiðlar þó eitt sameigin- legt. Þeir eru báðir í Aðal- stræti. Baldvin er því kominn aftur til upphafsins, — í viss- um skilningi. HALLVARÐUR, IÐUNN OG MACLEAN Saksóknari á Englandi hef- ur höfðað mál á hendur bóka- útgáfu þeirri sem hefur höf- undarrétt á bókum Alistairs MacLean metsölurithöfunar. Svo er nefnilega mál með vexti að MacLean lést 1987 en áfram halda að koma út bækur sem halda nafni hans á lofti. Bókaútgáfan á nokkra söguþræði eftir MacLean og hefur fengið ungan rithöf- und, Alastair MacNeiil, til að skrifa bækurnar í hans „stíl“. Nú þykir saksóknaran- um enska hins vegar ekki allt með felldu og vill fá skýring- ar á því hver sé raunverulega höfundur bókanna. Það er hins vegar spurning hvað Hallvarður Einvarðs- son ríkissaksóknari gerir hér heima, því þessar sömu bæk- ur koma út hjá bókaforlaginu Iðunni og seljast vel. Þegar Jón Karlsson, forstjóri Ið- unnar, hefur verið spurður um þessi tengsl hefur hann einfaldlega bent á það sem tíðkast erlendis. hallvarður EiNVAROssoN. Les hann Alistair MacLean/MacNeill? jón karlsson. Gefur út bækur sem saksóknari á Bretlandi sættir sig ekki við. ingvarsveinsson. Atli stjórnarformaður ákærði hann vegna slælegrar stjórnunar. ármann reymsson. pétur björnsson. Ákærðiren ekki stjórnarformennirnir. baldvin jónsson. Aftur til upphafsins. Fermdi séra Heimir Steinsson þig, Davíð? „Nei, þad gerdi hann ekki.” Davíð Stefánsson er eini full- trúi Sjálfstæðisflokks sem ekki hefur sagt sig úr útvarpsráði til að mótmæla þeirri ákvörð- un Olafs G. Einarssonar menntamálaráðherra að skipa séra Heimi Steinsson í emb- ætti útvarpsstjóra. LÍTILRÆÐI af heimaslátrun Það hefur stundum verið sagt að vandlifað sé í heim- inum en nú er ég farinn að hallasf að því að það sé jafn- vel enn flóknara að deyja eftir kúnstarinnar reglum. Mér svona einsog datt þetta í hug þegar ég sá í Irlöðunum að nokkrir kallar í Grindavik hefðu tekiö sig saman og framiö þann fá- heyrða glæp í sláturtíöinni að slagta með eigin hendi lömbunum sínum sem þeir ætluðu síðan sjálfir að éta í vetur. Mér skilst að með þessu hafi údæöismennirnir ætlaö að komast hjá þvi að borga ketmafiunni í landinu slátur- kostnað; þungbæran matar- skatt sem er aö sliga neyt- endur og gera útaf við hefö- bundinn landbúnað á ís- landi. Það er tæplega aðhláturs- efni þegar kostnaður við að slátra lambi er farinn aö nálgast þrjúþúsund krónur. Tvöhundruðkall á kílóið i sláturkostnað, góðir hálsar. Heimaslátrun er hluti af ís- lenskri menningararfleifð og þjóðleg íþrótt sem hér hefur verið stunduð í meira en ellefuhundruð ár og þykir enn sjálfsögð í sveitum landsins en kvað ekki sam- ræmast þeirri borgarmenn- ingu sem hefur veriö að festa rætur á stöðum einsog Grindavík. Síðustu fregnir herma að vísu að fyrir einstaka náð lögregluyfirvalda fái kallarn- ir í Grindavik að éta ketiö af lömbunum sínum sem þeir slátruðu sjálfir, en verði jafn- framt að urða ærnar. sem þeir leiddu til slátrunar, þó ekki fvrr en búið er að aflífa þær. Mér finnst tímabært að fara að endurskoöa l()g og reglur um slátrun almennt. ekki bara hér á landi heldur um heimsbyggð alla. Það vantar meira sam- ræmi í liig og reglur um urð- un almennt. Nú er tildæmis nýafstaðin sláturtíð í Persíu þarsem nokkurþúsund pakistanar voru á einum degi urðaðir lifandi og þótti víst sjálfsagt þar sem framboð var meira en eftirspurn. Þá var það að einhver hafði orð á þvi að huggu- legra hefði verið að afiifa mennina fyrst og urða þá svo, einsog plagsiður er meö ketfjöll, og Bush Bandaríkja- forseti baðst afsökunar á því að ekki skyldi hafa verið slagtað eftir kúnstarinnar reglum. Hér á landi er dilkaketiö ekki urðað fyrr en eftir að búið er að slagta, borga slát- urkostnaðinn á lögboðnum stöðum og húsaleigu fyrir skrokkana í einhver ár. Sannleikurinn er sá aö lög og reglur um slátrun al- mennt í mannlegu samfélagi eru alltof flókin, jafnvel fyrir grindvíkinga. Heimaslátrun þykir til- dæmis óæskileg ef menn taka sér hamar i hönd og af- lífa kellinguna sína, en eng- inn segir orð við því þó kálf- um sé slátrað með nákvæm- lega sömu aðferð í haughúsi á lögbýli í sveit og er kálfa- ket þó hugsað til manneldis. Enginn spyr um hollustu- hætti þegar villibráð er skot- in og gert að á staðnum, en sauðfé verður að slagta und- ir ströngu eftirliti lækna og eftir amerískum staðli um sauðfjárslátrun. til að halda sláturkostnaði í hámarki, og víst vissara fyrir grindvík- inga semog aðra að standa klárir á því að ketmafían þarf að fá sitt. Hitt er svo annað að úrþví verið er að leggja staðla stór- veldanna til grundvallar ái blóðvellinum, þá væri lík-| lega ráð að bjarga heiminum með þvi að stofna til einnar allsherjar sláturtíðar og ná sláturkostnaðinum niður með því að urða lifandi allt sem lífsanda dregur. Flosi Ólafsson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.