Pressan - 03.10.1991, Blaðsíða 39

Pressan - 03.10.1991, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991 39 Ómar Siggeirsson verslunarstjóri i Herragarðinum Hvað ætiar þú að gera um helgina? „Ég œtla ad fara út á myndbandaleigu og ná mér í góda mynft á föstu- dagskoöldiö. A laugar- daginn, eftir vinnu, eru miklar líkur á aö ég kom- ist í sjóbirtingsveiöi í Kerl- ingardalsá, sem er ein- hvers staöar fyrir austan Vík í Mýrdal, og þar verö ég fram á sunnudag." líjf efjtisi ouuut Símsvari vikcinnar Við mæLuivi meö n M h n it 11 ' W *•: *»*! íli |S:J *• *:ÍÍÍ 1* ♦ÍÍÉ:| Að gtórbygglngar verðl iboðnar út á alþjóðlegum markaði það virðist orðið Ijóst að þessi þjóð ræður ekki við að byggja stærri hús en raðhús skamm- laust. Sjáið bara Hallgríms- kirkju. Kabarett á Rauðu myllunni þetta eru einu „sjóin" í bænum sem tilheyra nóttinni og öllu því sem í henni felst. Pílultaati, keilu og módel- Á Ömmu Lú rekst maður á: Sonju Sorelli, Erlu Harðardóttur og Gísla Blöndal, Guðmundu Þórisdóttur og Sigurð Gísla Pálmason, Svövu Johansen og Ásgeir Bolla Kristinsson, Sig- urð Kolbeinsson, Brynju Nord- quist og Magnús Ketilsson, Magnús Kristjánsson, Elínu Sveinsdóttur og Pál Dungal, Teit Lárusson, Dódó á Byigj- unni, frú Margréti og Baldvin Jónsson, Esther og Kalla í Pels- inum, Elísabetu Hilmarsdóttur hjá Flugleiðum, Willum Þór og fleiri. Björk Guðmundsdóttir söngkona „Góðan daginn. Settu eitthvað spennandi inn eftir pípið,- ef pú porir." Hinn Sinatra á Gamla kempan Haukur Morthens er ekki meö neina slorhljómsveit meö sér á Naustinu þessa dagana. Þaö eru þeir Eyþór Þorláksson á gítar, Guðmundur Stein- grímsson á trommur og Guðni Guðmundsson á hljómborö, sem leika meö Hauki á föstudags- og laugar- dagskvöldum á Naustinu í vetur. „Það er mesta furða hvað Nacistinci maður er,“ sagði Haukur Morthens, sem staðið hefur í eldlínunni frá því einhvern tímann stuttu eftir stríð. „Annars held ég að ég væri ekki að þessu ef mér fyndist ég vera þreyttur. Við spilum náttúrlega þau lög sem ég hef verið að syngja í gegnum árin auk annarra laga. En við er- um fyrst og fremst að leika góða danstónlist.“ Nú hefur þú verið kallað- ur Sinatra okkar íslend- inga: „Já, mér brá nú fyrst þegar ég heyrði þetta, það var Jón Múli sem átti upptökin að þessu fyrir mörgum árum. Ég vil samt ekkert vera að bera mig saman við neinn. Ég er að leika lögin mín og mér finnst bara best að vera bara ég sjálfur,“ sagði Haukur Morthens. flugi og öðru lágstéttar-sporti. Fyrir þau okkar sem eiga ættir að rekja til moldarkofanna er þetta sport góð aðferð til að fallast í faðma við uppruna sinn. Ári Þjóðviljans hann á það skilið, ekki síður en söngurinn, trén, börnin og hvað það nú heitir allt sem fengið hefur heilu árin undir sig. ÍNNÍ „Að klæðast stuttum pilsum upp á hvern dag er tilbreyting- aríaust. Ég bý þvi til síða kjóla sem eru álíka sexi og stuttu pilsin," segir tiskuhönnuðurinn Isaac Mizrahl. Af orðum hans má ráða að upphaf endaloka jarðarlitirnir tekið yfir skæru litina á karlmannapeysunum og stórkostleg munstur, eins Cosby var svo hrifinn af, eru orðin of- boðslega púkó. Klassísk munst- ur, jafnvel tweed, eru hins veg- ar aftur orðin smart. Og peys- urnar eiga ekki lengur að vera hryllilega stórar eins og Cosby vildi hafa þær, heldur temmi- lega stuttar, með vaff-hálsmáli og kannski svo litlar að þær kallist ekki lengur peysur held- ur prjónavesti. Þá er ekki átt við vestispeysur eins og Hans Kristján klæðist heimafyrir. Um jólin kemur út hjá Forlaginu ævisaga krist- jáns eldjárns, fyrrver- andi forseta, og fjallar hún um líf forsetans frá vöggu til grafar. Þaö er gylfi GRÖNDAL sem skrifar bókina og byggir hún miklu leyti á dagbókum og minnisblööum forset- ans. Önnur af sama stofni, en ööru eðli, er minningabók jónasar jónassonar útvarps- manns. Þaö er svanhild- ur konráðsdóttir, fyrr- verandi ritstjóri Mannlífs og höfundur bókarinnar „Neistar frá sömu sólu", sem skráir. Jónas þykir í þessari minningabók vera einlægurog hispurs- laus aö vanda. HVERJIR ERU HVAR? Ritstjórnarstefna hins nafntogaöa timarits Playboy er alltaf jafn- traust. Hún felst fyrst og fr^mst í því að taka persónur fróttanna og klæða þær úr fötunum. I nýjasta blaöinu var þaö fyrrum Ung- frú Virginia, Tai Collins (sjá mynd). Tai þessi komst í fréttirnar þegarhun lýsti því yfir aö hún heföi sofið hjá Charles Robb, þing- manni frá Virginíu-fylki. Robb þessi segist lítið kannast viö máliö enda harðgrftur Lindu Bird, dóttur Lyndons B. Johnson, fyrrver- andi forseta. í sama blaði er umfjöllun um „The Big Ten", tíu virt- ustu háskóla Bandaríkjanna. Hún felst í því aö Playboy klæðir tíu stúdínur úr fötunum og kemur þar í Ijós aö naf ngiftin „big" á viö brjóst stúdínanna en ekki gæði námsins. POPPIÐ______________________ Ný hljómsveit kemur fram á sjónarsviðiö á Púlsinum í kvöld. Hún heitir Plato og leik- ur gamalt Hendrix- og Led Zeppelin-rokk. Guðfinnur Karlsson blæs í míkrófóninn, Starri Sigurðsson á bassa, Jón Örn Arnarson á trommur og Kristbjörn Búason á gítar. Á Tveimur vinum skemmta enski trúbadorinn Leo Gille- spie og látbragðsleikarinn og galdrakarlinn frá Oz, Mick M, í kvöld. .Það er Dömukvöld á Hótel Islandi í kvöld í boði morgunhæna Aðalstöðvarinn- ar. Á veitingastaðnum og kránni Staðið á öndinni leikur Hilmar Sverrisson á orgelið sitt, á Blúsbarnum leikur Sig- urður Björnsson rólegan kassagítarblús. Herdís Hall- varðsdóttir og Gísli Helgason verða á Fógetanum í kvöld. Sú Ellen verður á Gauknum fram á laugardag, Guömundur Rúnar (súrmjólk í hádeginu og ...) verður á LA Café í kvöld og Borgarsveitin, Anna Vilhjálms og Bjarni Ara verða í Borgar- virkinu í kvöld og annað kvöld. stuttu pilsanna sé að nálgast. Ekkert lifir mörg ár í heimi tískunnar. Og Oscar de la Renta segir: „Mér finnst að all- ar konur ættu að eiga að minnsta kosti einn síðan kjól.“ Þar hafið þið það. Það hefur engri konu tekist að standa lengi gegn smekk Oscars. ÚTÍ Nú er klæðaskápur Bills Cosby farinn úr tísku. Allur skápurinn eins og hann leggur sig og þá sérstaklega hið ævintýralega peysusafn. 'Nú hafa nefnilega ^ * GUÐBERGUR BERGSSON meö nýja skáldsögu Forlaginu fyrir jólin. Guöbergur sjálfum líkur er varla ofmælt bókin verði eitt mark veröasta rekaldið í jóla- bókaflóöinu svonefnda. Af Ijóöabókum sem koma út hjá Forlaginu um jólin má nefna bók eftir ÞÓRUNNI VALDIMARSDÓTTUR sem nefnist „Fuglar" og Ijóöabókina „Ort" eftir ÞÓRARIN ELDJÁRN sem samanstendur af hefö- bundnum kveöskap. Síö- asta bók Þórarins, Hin há- fleyga moldvarpa, kom út í vor og hlaut misjafna dóma gagnrýnenda. ,,Bílar eru hlutir sem vid höfum allt í kringum okkur en tökum lítiö eftir sem form- um,‘‘ segir Inga Ragnarsdótt- ir, sem er aö opna sýningu á verkum sínum um helgina í Nýlistasafninu. Verkin sem Inga sýnir eru listaverk búin til úr bílum sem hún hefur fundið í bílakirkju- görðum. Inga náer sér í bíl og klippir hann í sundur á alian mögulegan og ómögulegan hátt, fær sér svo logsuðutæki og sýður saman þar til úr verður hið athyglisverðasta listaverk. Inga segist velja bíl- inn vegna þess að hann sé svo allsráðandi í þjóðfélag- inu; hann er mjög þægilegur, mikill bölvaldur og algeng- asta dauðaorsök ungs fólks. „Er bíllinn kannski orðinn okkar goð en fær svo sína endanlegu stöðu upþi á vegg?“ spyr Inga. Hún sýnir líka verk úr svo- kölluðum stúkkmarmara. „Stúkkmarmari var mikið notaður í súlur í kirkjum í Evrópu á barokktímabilinu," segir Inga. Stúkkmarmari er gerður úr gifsi, fiskilími og lit- arefni. Inga notar allskonar liti sem ekki finnast í náttúru- legum marmara og verkin minna á víkingahjálma, bíl- vélar og vasa, svo eitthvað sé nefnt. Þessi verk voru fyrst sýnd í einu stærsta gallerii í Munc- hen í ágúst á þessu ári, en sýningin er fyrsta einkasýn- ing Ingu hér á landi. Hún er búsett í Þýskalandi. Endcirbozttar volkswagenbjöllur og BMW

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.