Pressan - 03.10.1991, Side 29

Pressan - 03.10.1991, Side 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991 29 LISTIM LIFIRI ..Midlarnir uilja ekki gefa þad upp hverjir þad eru fyrir handan sem láta þá teikna og oft vita þeir þad ekki sjálfir. Þess vegna vitum vid ekki hver tilgangurinn er med myndunumsagöi Erling Kristinsson, formadur midla- nefndar Sálarrannsóknafé- lugs Sudurnesja, sem stendur fyrir sýningu á myndum framlidinna í Keflavík. „Þetta er bara þaö sem miðlarnir sjá. Oftast eru þó einhver skilaboö sem fylgja þeim, en það er trúnaðarmál milli miðilsins og þess sem er í tíma hjá honum hverju sinni." SÁ SKYNDILEGA MANNSANDLIT í TEIKNIBLOKKINNI Á sýningunni voru teikn- ingar og málverk sem gerð höfðu verið i gegnum er- lenda miðla. Aðeins einn ís- lenskur miðill sýndi verk sín, Guðbjörg Guðjónsdóttir. Verk Guðbjargar héngu þó ekki á veggjunum heldur voru til sýnis í bókarmöppu sem gest- ir gátu flett. ,,Það eru mörg ár síðan þetta byrjaði hjá mér. En þaö var svo fyrir þremur árum sem þörfin ágerðist og það endaði með því að ég keypti teikniblokk,” sagði Guðbjörg. ,,Eg var svo einhvern tím- ann að góna á blokkina og þá sá ég skyndilega línur í efsta blaðinu i blokkinni og ég fór að skoða þetta betur. Ég náði svo í blýant og dró ofan í lín- urnar og smám saman varð til skýr andlitsmynd, andlit af manni sem ég þekkti ekki," sagði Guðbjörg. ÞAÐ MÁ HVER SEM ER EIGA MYNDIRNAR MÍNAR Guðbjörg segir aö hún finni, þegar minnst varir, þörf fyrir að draga línur í teikni- blokkina. Henni sé stjórnað af einhverjum sem hún viti ekki hver er. Guðbjörg hefur teiknað fleiri tugi andlits- mynda sem hún setti ofan í skúffu. Það hafi svo komiö í Ijós á miöilsfundi löngu seinna að myndirnar voru ekki ætlaðar henni heldur öðru fólki og því hafi hún far- ið með þær í hús Sálarrann- sóknafélagsins og skilið þær eftir þar. Guðbjörg sagði að þeir mættu eiga myndirnar sem þekktu einhvern á þeim, enda kæmi sér ekki við hvað yrði um þær, hún hefði ein- ungis verið verkfæri í hönd- um einhvers sem hún vissi ekki hver væri. ,,Ég hef ekki snert á blokk- inni síðan í fyrrahaust og ætla ekki að gera það fyrr en ég fæ einhverjar upplýsingar um hver það er sem ég er að vinna fyrir og hvaða tilgangi þetta þjónar." KUNNA EKKERT í TEIKNINGL Erling Kristinsson leggur áherslu á að miðlarnir, sem eiga verk á sýningunni, kunni ekkert fyrir sér í teikn- ingu. „Þeir geta bara alls ekki dregið beint strik skamm- laust," segir Erling og það eru orð að sönnu. Myndirnar eru eins og eftir unglinga sem hafa fengið sæmilega góða teiknikennslu í grunnskóla. Erling segir að ferlið sé í raun þrískipt. Myndirnar séu af látnu fólki héðan og það- an, teiknaðar af enn öðru látnu fólki sem stýri blýanti miðlanna. Þannig séu miðl- arnir ekki annað en verkfæri i höndum óþekktra aðila að handan. MEIRI ÁHUGI MEÐAL FOLKS EN VIÐ HÉLDUM Sýningin vakti nokkra at- hygli fjölmiðla, enda ekki á hverjum degi sem dauðir myndlistarmenn halda sýn- ingu á verkum sínum. Þarna Verndari eiganda sins. Eigandi myndarinnar tekur hana með sér í ferðalög og í svefni tekur indíáninn hann með sér í dul- arsali drottins, þar sem þeir hlusta á orð guðs. var að finna rúmlega 200 myndir, um 60 eftir erlenda miðla og svo eftir íslending- inn Guðbjörgu Guðjónsdótt- ur, sem átti langflestar mynd- irnar. Erling sagði að tilgangur- inn með sýningunni hefði að- allega verið sá að vekja at- hygli fólks á Sálarrannsókna- félaginu á skemmtilegan hátt. Þannig hefði þetta bæöi verið til gagns og gamans gert. „Við erum ekki að reyna aö fá fólk til að trúa einu eða neinu, en margir sem komu á sýninguna fullir efasemda fóru héðan með allt öðru hugarfari. Hingað komu um 400 manns þá tvo daga sem sýningin stóð, sumir alla leið Hann fylgir eiganda myndar- innar hvert sem hann fer og kennir hann sér því aldrei meins. Sálarrannsókna- • félag Sudurnesja stóö fyrir sýn- ingu á verkum framliöinna lista- manna. Enginn veit hvers vegna hinir framliönu sendu okkur þessar myndir; hvort í þeim eru einhver skilaboö um lífiö fyrir handan eöa hvernig viö eig- um aö haga okkur hérna megin. En eitt er víst: Tilgangur- inn getur ekki veriö sá aö bœta einhverju viö listasöguna. frá Akranesi og Selfossi, og það ber vott um verulegan áhuga fólks á þessum mál- um,“ segir Erling. Óþekkt kona sem vildi ekki segja miðlinum deili á sér. Hann sagði að ætlunin væri að efna til fleiri sýninga af þessu tagi á næsta ári og þá frekar á landsvísu en bara bundna við Suðurnesin. FÆST VERKANNA KÆMUST Á EDEN-SÝNINGU Fyrir þá sem kynnu að hafa áhuga á að fara á myndlistar- sýningar dauðra í framtíðinni skal það áréttað, til vonar og vara, að það er nauðsynlegt að setja sig í stellingar áður en gengið er inn, vilji maður ekki verða fyrir vonbrigðum. Þeir eru nefnilega lélegir myndlistarmenn hinir dauðu og myndirnar alls ekki í þeim klassa sem maður á að venj- ast á sýningum verka sem listamenn hafa gert í lifanda lífi, — jafnvel þeir sem ekki hafa notið mikillar aðdáunar. Fæst verkanna ná einu sinni því að vera boðleg á sýning- um í Eden. Sumar myndirnar voru reyndar þolanlegar, sérstak- lega þær sem voru af gömlu og vinalegu fólki. Það má kannski ímynda sér að sýn- ingargestum hafi fundist þeir þekkja sum andlitin. Aðrar myndir voru af ind- íánum og blökkumönnum og nokkuð merkilegt að indíán- ar skuli hafa nennt að gera sér ferð hingað til íslands á miðilsfund. Nema þetta hafi verið íslendingar sem voru á miðju grímuballi „hinum megin" þegar þeir fengu skyndilega áríðandi fundar- boð. Bolli Valgarðsson Elfar Jónsson frá Suöurnesj- um. tengsl Karl Guö- mundsson eft- irlitsmaöur hönnunar Ráð- hússins fæddist á Akra- nesi eins og Inga Jóna Þórðardóttir fráfarandi for- maður útvarps- ráðs sem var að- stoðarmaður" ráðherra eins og íÆ' ' Guðmundur Malmquist for- stjóri Byggða- stofnunar sem er Framm- ari eins og Asgeir Elíasson landsliðsþjalf- ari sem er gamall blakmaður eins og ■ sem er bónda- sonur eins og Friðrik Pálsson forstjóri SH sem kvæntist hjúkrunarfræð- ingi eins og jtfk Einar Oddur Bk Kristjánsson HHB útgerðarmaður Jrx; sem skuldar K; 'fi® ingasjóði urmul IHk milljóna eins og Sigurður Ein- p T arsson forstjóri ■ V- stöövar Vest- W~ mannaeyja H.'. , sem er stúdent Má frá MR eins og Jón Ásbergs- son fram- kvæmdastjóri Hagkaups sem situr í Aka- demiu Café Óperu eins og Ingimundur Sigfússon for- stjóri Heklu sem er frímúr- ari eins og Karl Guð- mundsson, Lv<u4 faðir Hófiar feg jCTí' '1 urðardrottn- ingar Wí AD NÖ EP. 6E0RG EKKI LENGURVálNWVERN T'lMA PÁLT Llt-i iriSfMin tllKXmUut-u tí-rA kl Al I I hu< uvcecvCAUH AFHVER3UTAIAR HAHH EKKl I51ENS1 KU ÞESStSt.... s;;;..þEirA ER. GEORGBOOZE lHAHN ATLAR, yOV CAN FUCK 1 ÖODWmfTHoSE.. JMX3EW0KKUR OlXGUmH SlN... iHRÆDPURVIt) HOMKoNÍSTANA! J surturuHi EBTFBAeftRl fAWONEFORABLOW- 30B0RSOMEKIÍ.I.IN6: EN SURTUR ÞO..HV£R 'aöUM vK) At>GÉyrApaTk)?J

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.