Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 37

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 37
FiMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 37 LÍFIÐ EFTIR VINNU Langdregið BISKUP (VlGAHUG REGNBOGANUM ......©............... Stuttmyndin Biskup í ivígahug hefur yfirbragð jskólamyndar, hún er lokaverkefni höfundarins, Stein- gríms Dúa Mássonar, úr kvik- myndaskóla í Lundúnum. Skóla- myndir eru misjafnar eins og aðr- ar kvikmyndir, þessi hlýtur að skipast í flokk þeirra slökustu. Hún verðskuldar vart annað en falleinkunn. I kvikmyndaklúbb- um fjölbrauta- og menntaskóla hafa sést tilþrif sem síst eru lakari. Myndin er kynnt sem vísinda- skáldskapur og líklega hefur verið ætlunin að hún yrði hreint ein- staklega frumleg, að maður segi ekki fríkuð. Það mistekst ansi hrapallega. Ekki eitt augnablik er myndin frumleg eða fyndin og aldrei geggjuð eða skrítin. Það er nefnilega ekki sama að láta allt flakka í belg og biðu og að leyfa frjóu ímyndunarafli að ríkja. Til þess þarf mikinn aga. Handritið er mestanpart vandræðalegt bull. Ekki bjargar hin tæknilega hlið myndarinnar heldur neinu. Kvik- myndataka er slæm, lýsing slæm, hljóðupptaka afleit. Það heyrast varla orðaskil hjá leikurunum, en það skiptir varla máli, því flestir standa þeir sig hörmulega. Kannski hafa þeir ekki vitað sitt ijúkandi ráð. Myndin er ekki löng, svona 35 mínútur. En á þessum stutta tíma nær hún að verða fjarskalega langdregin. Egill Helgason Hádegifyrir þá sem sakna mommu HÓTELÓÐINSVÉ ★★ HELSTU KOSTIR: SVOKALLAÐUR HEIMILISMATUR (HÁDEGINU, NOKKUÐ LIPUR ÞJÓNUSTA OG GARÐSKÁLINN ÞEGARVEÐRIÐ HEGÐAR SÉR SKIKKANLEGA. HELSTU GALLAR: STÖÐNUÐ OG BRASKENND ELDAMENNSKA, ÓFRUMLEGUR MATSEÐILL OG VONDURINNRISALUR. IMatsalurinn á Hótel Óð- insvéum er ágætur stað- ur fyrir þá sem vilja týn- ast. Hótelið er hálffalið uppi í Þingholtum þar sem kynslóðimar sem aldar eru upp í úthverfunum villast alltaf. En eins og á öllum stöðum sem eru góðir til að týnast á rekst maður alltaf á einhvern sem maður þekkir á Óðinsvéum og er kominn þangað í sömu er- indagjörðum. Fyrir utan möguleika á flótta undan úthverfafólkinu er ágætt að koma á Óðinsvé í hádeginu. Þá er boðið upp á svokallaðan íslensk- an heimilismat, sem er sá hluti danska eldhússins sem íslenskur landbúnaður getur staðið undir. Falskur héri, hakkað buff og svo framvegis. Og allt með sultu. Einnig fiskbollur, plokkfiskur og aðrar yfirunnar og -matreiddar gjafir hafsins. Þar sem flestir eru famir að borða pasta og grænmeti heima hiá sér er heimsókn á Óð- „Ekki eitt augnablik er myndin frumleg eða fyndin og aldrei geggj- uð eða skrítin," segir Egill Helgason í gagnrýni sinni á Biskup í vlgahug. insvé í hádeginu eins og flassbakk úr bemsku — ffá þeim tíma þeg- ar mamma var heima og áður en Jónas Kristjánsson og Sigmar B. Hauksson sögðu eldamennsku hennar stríð á hendur. Ef menn sakna ekki bernsk- unnar hafa þeir ef tdl vill ekki mik- ið erindi á Öðinsvé. Eldamennsk- an þar er ekki merkileg. Þrátt fyrir að kokkarnir hafi raðað saman kunnuglegum réttum á seðilinn sinn er það ekki vegna þess að þeir geti eldað þá betur en aðrir. Hugmyndin er sjálfsagt sú að gera öllum til hæfis og eins og alltaf þegar það er reynt verður enginn sérstaldega glaður. Og enginn sér- staklega full heldur og tU þess er leikurinn gerður. Þeir sem vilja sækja eitthvað annað á veitinga- staði en tryggingu fyrir því að verða ekki sérstaklega fúlir ættu því að leita annað. Matsalnum á Óðinsvéum er skipt í tvennt. Fremri salurinn státar af þunglamalegum veitinga- húsa-húsgögnum sem valin hafa verið eftir pöntunarlista. Til að komast í garðskálann þarf að ganga í gegnum ffemri salinn og því er hann ónæðissamur, þvert ofan í þau skilaboð sem þung og dökk innréttingin reynir að senda gestunum. Garðskálinn er öllu þægilegri; sérstaklega á vorin og haustin þegar veðrið er fallegt séð „Þrátt fyrir aö kokkarnir hafi raðaö saman kunnuglegum réttum á seðilinn sinn er það ekki vegna þess að þeir geti eldað þá betur en aðrir," segir í gagnrýni um matsalinn á Hótel Óðinsvé. út um glugga en lífshættulegt ef menn dvelja lengi utandyra. Þjónustan á Óðinsvéum er kurteis og fumlaus en verður aldrei glæsileg. Fjórmenningar á Kjarvalsstöð- __________um______________ [RIS FRIÐRIKSDÓTTIR, KRISTJÁN STEINGRÍMUR, ÓLAFUR SVEINN GlSLASON & RAGNAR STEFÁNS- SON KJARVALSSTÖÐUM í vestursal Kjarvalsstaða ^^e*Psýna fjórir listamenn, ^Mtf^þau fris Friðriksdóttir, Kristján Steingrímur, Ólafur Gíslason og Ragnar Stefánsson. Það var einmitt Ólafur Gíslason sem hlaut Serra-verðlaunin fyrir stuttu, en sióðurinn var stofnaður að tilhlutan Richard Serra sem er höfundur að útiverkinu í Viðey og skal úthlutað úr honum til ungs, efnilegs og upprennandi skúlptúr- ista. Olafur uppfyllir þessi skilyrði prýðilega. Sýningin er því tilvalið tækifæri til að skoða hvað hann er að fást við. Það fyrsta sem maður tekur eff- ir í öllum verkum Ólafs er að þau byggjast upp á hvítmáluðum tré- kössum, af ólíkum stærðum, en allir eins gerðir. Sumir eru flatir og hanga uppi á vegg eins og mál- verk, aðrir eru eins og stöplar sem notaðir eru undir verk á sýning- um, og þeir minnstu passa í vasa. En hvers konar hlutir eru þetta? Málverk eða skúlptúrar? Lykilorð- ið að sýningu Ólafs er að finna í titlum að tveimur verkum, „fgildi". Kassarnir eru ígildi, sem þýðir væntanlega að þeir séu ígildi listaverka, þ.e.a.s. jafngilda lista- verkum eða eru staðgenglar fyrir listaverk. Kannski er réttara að tala um að kassarnir séu ígildi list- rænna verðmæta eða gæða. Framhald og meira afgagnrýni á síðu 39. 18.00 18.30 18.55 19.00 19.25 20.00 20.35 20.40 21.35 22.25 23.00 18.00 18.30 18.55 19.00 19.25 20.00 20.35 20.40 21.30 22.20 14.00 16.00 18.00 18.25 18.55 19.00 20.00 20.35 20.40 20.45 21.10 21.35 23.10 '»,»lWfW;WiW ■J.K.dLC 17.00 Undur veraldar. Ókannaðir hlutar eyjunnar Borneo. 18.00 Konungabókin. Heimildamynd um fagurlega mynd- skreyttar bækur frá Persíu. 18.30 Edouard Manet. Þáttur um þennan nafntogaða im- pressjónista. SUNNUDAGUR 17.00 Mengun í Norðursjó. Frá sjónarhóli fiskanna. E 17.30 Gerð myndarinnar Drowning by Numbers. Þáttur um þessa mynd og leikstjórann, Bretann Peter Greenaway. 18.00 Samskipadeildin. Við mælum með... > Við dauðans dyr. Inspector Morse - Dead on Time. Bresk, 1991. Það ermikið fagnaðarefni að Sjónvarpið skuli hafa keypt pakka með nýjum myndum um Morse og Lewis aðstoðarmann hans. Hér rannsakar gamli maðurinn lát há- skólakennara og vitaskuld flækjast ástamál hans ögn inn íþað. ★ ★ ★ ★ MMTUDAGUR Fjörkálfar. Kobbi og klíkan. Táknmálsfréttir. ★Auðlegð og ástríður. Áströlsk sápa. ★ Sókn í stöðutákn. Breskt grín. Fréttir. Blóm dagsins. Fjöruarfi. ★ ★ ★ Til bjargar jörðinni. Síðustu forvöð. í þessum síðasta þætti er athygli beint að einstaklingum sem hafa lagt sitt af mörkum til umhverfisverndar. ★ ★ Eldhuginn. Framhaldsmyndaflokkur. Þeldökk- ur lögreglumaður sleppur úr fangelsi og fer að elta bófa. Nýjasta tækni og vísindi. Sigurður Richter sýnir mynd um brjóstakrabba. Þáttaröð sem mætti alveg missa sín. E Fréttir. h.iuiimiti Sómi kafteinn. Barnadeildin. Bresk þáttaröð um lífið á barnadeild á spítala. Táknmálsfréttir. Magni mús. ★ Sækjast sér um líkir. Fréttir. Blóm dagsins. Bláberjalyng. En engin ber. ★ ★ Leiðin til Avonlea. Sara og nágrannarnir. ★ ★ Matlock. Kántrísöngvari í gervi lögfræðings. ★ ★ ★ Átta menn úr leik. Eight Men Out. Amerísk, 1988. Mynd sem kemur á óvart. Flún fjallar um stór- hneyksli sem varð 1919 þegar hafnaboltamenn í liði Chicago létu múta sér til að tapa leik í úrslitakeppni. Myndin fangar tíðarandann afbragðsvel, hún er ágætlega leikin og hafnaboltaatriðin eru þannig úr garði gerð að engum þarf að leiðast. inrr^— (slenska knattspyrnan. Bein útsending frá leik í loka- umferð íslandsmótsins. Ekki fæst uppgefið hver hann verður en saman keppa: Valur og KR, (BV og KA, Víkingurog Breiðablik, FHog Fram og Þórog (A. (þróttaþátturinn. Logi sýnirof mikið golf. Múmínálfarnir. Bangsi besta skinn. Táknmálsfréttir. ★ Strandverðir. Frekar stæltir strákar, en vart hægt að búast við meiru. Fréttir. Lottó. Blóm dagsins. Melgresi. Það er nóg af því. Fólkið í landinu. Um heimsins höf í hálfa öld. Illugi Jökulsson spjallar við Jón Steingrlmsson skipstjóra. ★ Hver á að ráða? Næstsíðasti þáttur. Við erum að telja. ★ ★ ★ Ástarraunir. Crossing Delancy. Amerísk, 1988. Ansi hreint glúrin gamanmynd sem er byggð á þekktu leikriti. Ung kona í New York á í ástarsam- bandi við rithöfund. Amma hennar fær hjónabands- miðlara í málið til að finna skárri eiginmann. ★ ★ ★ ★ Við dauðans dyr. Inspector Morse - Dead on Time. Bresk, 1991. Það er mikið fagn- aðarefni að Sjónvarpið skuli hafa keypt pakka með nýjum myndum um Morse og Lewis aðstoðarmann hans. Hér rannsakar gamli maðurinn lát háskóla- kennara og vitaskuld flækjast ástamál hans ögn inn I það. Frábært sjónvarpsefni. SUNNUDAGUR 17.50 Sunnudagshugvekja. Þórarinn Björnsson guðfræð- ingur hugleiðir. 18.00 Ævintýri úr konungsgarði. 18.30 Fyrsta ástin. Ástfangnir sænskir unglingar. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Bernskubrek Tomma og Jenna. 19.30 F1 Vistaskipti. Ömurð. 20.00 Fréttir. 20.35 Sjö borgir. Sigmar B. í Glasgow — vonandi gleymir hann ekki vísakortinu. 21.10 ★ Gangur lífsins. Yfirleitt fellur allt í Ijúfa löð að lokum. 22.00 Lifandi eftirmyndir Jóhönnu. Bresk spennumynd í tveimur hlutum sem byggð er á sögu Fay Weldon. Eins við er að búast af höfundinum er söguþráður- inn fáránlegur í meira lagi: Læknir, sem er skilinn við konu sína, hefur látið gera af henni þrjár lifandi eftir- myndir og ætlar að láta þær taka við hlutverki henn- ar. 23.20 Sögumenn. Þáttaröð þar sem sögumenn frá ýms- um löndum láta móðann mása. Flér eru þættirnir kynntir, en fulltrúar íslands eru Vilborg Dagbjarts- dóttir, Þórður frá Dagverðará og Iðunn Steinsdóttir. Er þetta góð hugmynd? FIMMTUDAGUR 16.45 Nágrannar. 17.30 Með afa. Örn Árnason og skrípó. E 19.19 19.19. 20.15 Eiríkur. Eiríkur Jónsson þarf ekki lengur að vakna á morgnana. Spurning hvort hann verður jafnófýrir- leitinn í sjónvarpi og í útvarpi? 20.30 ★ ★ Fótboltaliðsstýran. Lið sem á erf- itt uppdáttar. 21.25 Ættarveldið. Þriðji og síðasti hluti framhaldsmyndar sem gerð er eftir metsölubókum Jackie Collins. Sápa, kynlíf og sápa. 23.00 ★ Draugabanar II. Ghostbusters II. Amerísk, 1989. Fyrri draugabanamyndin var frábærlega skemmtileg og frumleg, þessi er næstum alveg mis- lukkuð. Því miður. Brandararnir eru ófyndnir, draug- arnir leiðinlegir, draugabanarnir daufir, en Sigourney Weaverfögur. E uiimiirn— 16.45 Nágrannar. 17.30 Á skotskónum. Teiknimynd um stráka í fótbolta. 17.50 Á ferð með New Kids on the Block. 18.15 TrýniogGosi. 18.30 Eerie Indiana. E 19.19 19.19 20.15 Eiríkur. Jónsson. 20.30 HKæriJón. 21.00 ★★Lovejoy. Síðasti þátturinn um fornmunasalann kærulausa. 21.55 ★★ Skóladagar. School Daze. Amerísk, 1988. Leikstjórinn Spike Lee hefur ekki misstigið sig alvar- lega síðan hann varð snögglega frægur fyrir rúmum fimm árum. Þessi mynd, sem fjallar um líf í háskóla fyrir svört ungmenni, hlýtur þó að teljast lánlausasta verk hans. í aðra röndina er hann að hæðast að ung- lingamyndum sem tröllriðu öllu á þessum tíma, en í hina röndina er hann að gera ofurvenjulega ung- lingamynd. 23.55 ★★ Stríðsógnir. CasualtiesofWar. Amerísk. 1989. Brian de Palma þurfti líka að gera Víetnam-mynd, eins og allir hinir. Að flestu leyti er henni þó ofaukið þessari mynd, sem fjallar á hrottafenginn hátt um deild bandarískra hermanna sem tekur innfædda stúlku höndum og hefur hana til að gagnast dátun- um, enda var hún engum til framdráttar sem tók þátt í gerð hennar. Michael J. Fox og Sean Penn of- leika báðir. 01.50 ★★ Skammhlaup. Pulse. Amerísk, 1988. Ekki af- leitur vísindaskáldskapur. Heimiíistækin fara að hegða sér undarlega. E 09.00 Með afa. örn Árnason spilar á gítar 10.30 Lísa í Undralandi. Teiknimyndaflokkur. 10.50 Spékoppar. Teiknimyndaflokkur. 11.15 Ein af strákunum. 11.35 Mánaskífan. 12.00 Landkönnun National Geographic. 12.55 Bílasport. E 13.25 Visasport. E 13.55 Samskipadeildin. Síðasta umferð íslandsmótsins í fótbolta. Leikir sem geta skipt máli í baráttunni á toppi og botni. 16.00 David Frost ræðir við Warren Beatty. Hefur kvenna- bósinn frægi sofið hjá þrjú þúsund konum eða eru þær bara þúsund? Þetta viljum við vita. E 17.00 ★ Glys. Sápuópera. 17.50 Létt og Ijúffengt. Matur. 18.00 Popp og kók. Um popp og bíó. 18.40 ★★ Addams-fjölskyldan. 19.19. 19.19. 20.00 ★ ★ Morðgáta. Pínulítið eru þeir farnir að verða þreytandi þessir þættir og alveg er Angela Lansbury mátulega aðlaðandi. 20.45 ★ ★ Stanley og fris. Stanley and Iris. Amerísk, 1990. Við og við neyðast stórstjörnur af sauðahúsi Roberts de Niro til að leika í væmnum vandamálamyndum eins og þessari sem fjallar um einmana og hrakið fólk sem sameinast um lestrarkennslu. Jane Fonda leikur móti de Niro. Ágætlega gert, en samt óáhuga- vert. 22.30 Kóka kóla-rokk. Bein útsending frá verksmiðju Vífil- fells. Þar leika Sálin, Síðan skein sól, Júpíters, Þúsund andlit, Todmobile, Bubbi Morthens, Jet Black Joe, Kolrassa krókríðandi og KK-bandið — allt í tilefni af því að það eru fimmtíu ár síðan þeir fóru að fram- leiða kók á íslandi. Auðvitað var það fýlgifiskur stríðs- ins og Kanans. 01.00 ★★ Leyfið afturkallað. Licence to Kill. BreskJbandarisk, 1989. Frekar reyndist nú Timothy Dalton fúll James Bond. E SUNNUDAGUR 09 09. 09.: 09.- 10. 10 11.1 ii.: 12.1 .00 Kormákur. 10 Regnboga-Birta. 20 ÖssiogYlfa. 45 10 35 00 30 00 13.1 15.- 17.1 18.( 18.: 19. 20.1 20. : 21.: 22. 23. Dvergurinn Davíð. Prins Valíant. Maríanna fyrsta. Lögregluhundurinn Kellý. í dýraleit. ★ ★ Grjótgarðar. Gardens ofStone. Amerísk, 1988. Coppola hefði átt að láta Apocalypse Now nægja. Með þessari mynd sem tengist Víetnamstríðinu aug- lýsti hann eigin hugmyndafátækt. Samt vel leikin. E ítalski boltinn. Bein útsending. Besti fótbolti í heimi. Paui McCartney. Heimildamynd um mikla tónleika- ferð sem bítillinn fór árið 1990. E Listamannaskálinn. Þýska tónskáldið Paul Hindem- ith. Atli Heimir telst víst til nemenda hans. E Lögmál listarinnar. Breskur myndaflokkur um fólk sem á peninga til að kaupa sér list. ★ ★ ★ ★ Kalli kanína og félagar. Ekta amerískt skrípó. 19.19. ★ Klassapíur. Leiðinlegar, Ijótar og vitlausar amerísk- ar kerlingar. ,25 ★ ★ Root fer á flakk. Breskur gamanmyndaflokkur. ,20 Örlagasaga. Fine Things. Amerísk. ,55 ★ ★ Arsenio Hall. ,40 ★ ★ Peggy Sue gifti sig. Peggy Sue Got Married. Amerísk, 1986. Coppola aftur. Þolanlega skemmtileg mynd og stundum frekar snjöll, þótt líklega verði að teíja hana-enn eitt merkið um það hversu Coppola er útbrunninn. Kathleen Turner er of gömul fyrir hlutverkið og Nicholas Cage er óþolandi að vanda. E 00 00 50 ★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt © Ömurlegt E Endursýnt efni

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.