Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 26

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 Er hægt að leggja fjöregg þjóðarinnar i hendurnar á manni sem slátur, hlust- aráWÍUie Nelson og Ringo Starr, ogfinnst Þórshöfn mest speim- andi borg í heimi? Þingmenn eiga að endur- spegla þjóðina. Það er að minnsta kosti sú merking sem lögð er í orðið íulltrúa- lýðræði, sem við frónbúar eigum að búa við. Ef dæma ætti þjóðina af þeirri mynd sem dregin er upp af þing- mönnum í fjölmiðlum býr á íslandi hundleiðinleg og húmorslaus þjóð, sem getur ekki með nokkru móti talað um annað en byggðastefnu, versnandi afkomu sjávarút- vegsins, atvinnuleysi og nið- urskurð. Allir eru alltaf að rífast og enginn virðist hafa áhuga á neinu spennandi í daglegu lífi. Allir eru yfír- máta flokkshollir og beygja sig möglunarlaust undir aga forystusauðanna. Við nánari eftirgrennslan kemur þó annað og meira í ljós. Ýmis- legt leynist að baki stífum þingmannaandlitunum og það sem furðu vekur — ýms- ir þingmenn eiga töluvert sameiginlegt sem gengur þvert á flokksbönd. PRESSAN kannaði meðal annars hvort rokkarar leyndust meðal þingliðsins og spurði því þingmennina, til að gera flókið mál einfalt (ólíkt þingmönnunum), hvor hljómsveitin, Bídamir eða Rolling Stones, væri í meira uppáhaldi hjá þeim. í ljós kom að nær allur þingheimur veðjaði á Bítlana því aðeins fjórir reyndust meiri að- dáendur Rolling Stones. Það voru þau Vil- hjálmur Egilsson og Sólveig Pétursdóttir Sjálfstæðisflokki, Anna Ólafsdóttir Björns- son Kvennalista og Kristínn H. Gunnars- son Alþýðubandalagi. Þetta sýnir að eng- inn Rolling Stones-aðdáandi er í þingliði Framsóknarflokks né Alþýðuflokks, en þess ber að geta að ekki náðist í framsókn- armanninn Halldór Asgrímsson, sem ku vera yfirlýstur Rolling-Stones aðdáandi. Þeir sem ekkert höfðu um Rolling Stones né Bítlana að segja voru þeir Jón Helga- son, framsóknarmaður og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra, Ragnar Arnalds Alþýðu- bandalagi, Matthías Bjarnason Sjálfstæðis- flokki og Tómas Ingi Olrich undan sama væng. Þeir sem vildu hins vegar ekki gera upp á milli Bítlanna og Rolling Stones voru sjálfstæðisþingmennirnir Eggert Haukdal, Egill Jónsson, Guðjón Guð- mundsson og Lára Margrét Ragnarsdóttir og kvennalistakonan af Vestfjörðum, Jóna John Lennon er vin- saelasti bítillinn. Meira að segja nokkrir sjálfstæðis- þingmenn gengu þvert á flokksböndin og kusu hann. Valgerður Kristjáns- dóttir. í framhaldi af þeirri spurningu grennslað- ist PRESSAN fyrir um hver væri uppá- haldsbítillinn. Þar skiptu þingmenn hins vegar liði; nítján reyndust aðdáendur Johns Lennon en fimmtán voru Paul McCartney-aðdáend- ur. Aðeins einn nefndi Ringo Starr en enginn reyndist vera í aðdáendahópi George Harrison. Ellefu þing- menn vildu ekki koma upp um sig. Það athyglisverðasta við þessa niðurstöðu er tvímælalust það, að f áðdáendahópi McCartneys eru nánast ekkert nema sjálf- stæðismenn og alþýðuflokksmenn en Lennon-aðdáendur em meira og minna af vinstri vængnum. Þetta er annars kannski ekki svo undarleg niðurstaða í ljósi þess róttæka boðskapar sem John Lennon boð- aði í lifanda lífi. Frekar ætti að setja spurn- ingarmerki við þingmenn eins og Kristínu Ástgeirsdómrr Kvennalista og Kristin H. Gunnarsson Alþýðubandalagi, sem slæðast inn með aðdáendum McCartneys. Eru hér ef til vill á ferðinni leyndir íhalds- menn? Eða er ástæða til að spyrja sig hvort sjálfstæðisþingmennirnir Sólveig Péturs- dóttir, Smrla Böðvarsson, Vilhjálmur Eg- ilsson og Árni Johnsen séu í raun róttæk- lingar, þar sem þau em hrifnust af John heitnum Lennon? Þegar kom að spumingunni um matar- smekk þingmanna — hvort væri vinsælla pasta eða slátur — tóku nær allir þing- mennirnir afstöðu. Sögðu langflestir SLÁTUR með miklum áhersluþunga og sumir jafhvel í hneykslunartón, þar sem þeim fannst þessum mat ekki saman að jafna. Þó leyndust sex pastaunnendur meðal þingheims, þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kvennalista, Finnur Ingólfsson Framsóknarflokki, Jóhann Ársælsson Al- þýðubandalagi og úr Alþýðuflokknum Sighvamr Björgvinsson og Rannveig Guð- mundsdóttir. Miðað við hveitilengjuát landsmanna og alla þá spaghettistaði sem flæða um höfiiðborgina eru aðeins örfair þingmenn sem endurspegla breyttar mat- arvenjur landsmanna. Sjálfstæðismennirn- ir Árni M. Mathiesen, Friðrik Sophusson og Björn Bjarnason gám ekki valið og þá ekki Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem segist yfirhöfuð ekki gera upp á milli fjeðutegunda. Aðrar spumingar sem lagðar vom fyrir þingmennina snerust um uppáhaldsleikara af erlendum kynstofni svo og eftirlætis- plöm og -lag úr poppinu. Þeir sem ekki þekkja til poppsins komust upp með að nefna aðrar léttar tegundir tónlistar s.s. Millsbræður og örvar Kristjánsson. Þá var spurt um vinsælasta sjónvarpsefnið fyrir utan eftirlæd allra sem vilja láta líta út fyrir að þeir fylgist með, fréttir. Og til að kom- ast að heimsborgarahætti þingmanna var lögð fram spurningin um uppáhaldsborg- ina fyrir utan Reykjavík. Heimtur úr þingmannakönnuninni vom með ágætasta móti. Þeir sem svömðu á annað borð áleitnum spurningum PRESSUNNAR gerðu það af nokkurri samviskusemi. Þeir sem ekki náðist tal af vom ýmist staddir í údöndum eða kon- ungsveislum daginn út og inn og þrír neit- uðu að taka þátt í leiknum, þeir Hjörleifúr Guttormsson Norðfjarðarallaballi, Eykon Sjálfstæðisflokki og Ólafur Þ. Þórðarson Framsóknarflokki. Besm heimturnar vom úr þingliði Kvennalistans, en þar náðist í allar konurnar fimm. Ráðherrarnir voru nokkuð erfiðir viðfangs en þó náðist í þá Eið Guðnason umhverfisráðherra, Sighvat Björgvinsson heilbrigðisráðherra, Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra og Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra. Mikið var reynt til að ná í forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, þar sem vitað er að hann er mikill áhugamaður um tónlist, en hann var háll sem áll og rann PRESSUNNI úr greipum.___________________________________ Guðrún Kristjdnsdóttir, Telma L. Tómasson, Bergljór Friðriksdóttir.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.