Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 33

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 10. SEPTEMBER 1992 33 Um þessar mundir er hálföld f $ jm siðan hinn ástsæli drykkur 4L j gá^jH ÉæJml m fok Coca Cola byrjaði að renna @2. íl Æá niður i maga landsmanna. I Það var Bandarikjamaðurinn Dr. John Styth Pemberton apótekari sem hófað laga \ sírópið sem Coca Cola er blandað úr en sagt er að það hafi hann gert í látúnspotti bak við hús sitt seint á ni- tjándu öldinni. Þetta glundur seldi hann í apóteki þar nærri en ekki er vitað hvort kol- sýrðu vatni var bætt út í af slysni eða ásetningi. Hvað sem þvi líðurþá hitti hann á töfra- formúlu sem lagði undir sig heiminn í bókstaflegum skiln- ingi. Á upphafsárum innflutnings hér á landi fannst mörgum : sem þeir hefðu himin hönd- um tekið erþeirfengu dísætt | kókið í flösku og drykkurinn breytti tilverunni þar sem hann gafinnsýn inn í neyslu- heim hinna þróaðri hluta heims. I byrjun varýmsum vand- kvæðum bundið að hefja framleiðslu vegna heimsstyrjald- arinnar en á árunum á eftir jókst hún jafnt og þétt og nú, fimmtiu árum síðar, státum við íslendingar afþviað vera meðal þeirra þjóða heims sem hvað dugmestar eru við að innbyrða gosdrykki. Itilefni afafmælinu hyggst Vífilfell efna til mikillar tónlistar- veislu í verksmiðjuhúsi sinu á laugardagskvöld en þarkoma fram Sálin hans Jóns mins, Síðan skein sól, Bubbi Morthens, Todmobile, Jet Black Joe, 1000 andlit, Kolrassa Krókríðandi, KK, Pís ofkeik og Júpíters. Hátíð fer einnig fram að deginum til og verður Brúðuleikhúsið á ferðinni við Kringluna en auk þess Bubbi, KK og Baldur Brjáns töframaður, sem hyggst hluta menn í sundur. ínsælustu póstkortin Enginn fer til útlanda án þess að senda að minnsta kosti eitt póstkort heim, með stuttri lýsingu í skeytastíl á því helsta sem fyrir augu ber — veðrinu, fólkinu og landslaginu. Erlendir túristar sem sækja lsland heim virðast vera býsna duglegir við að skrifa vin- um og ættingjum og hefúr skapast hálfgerð hefð fyrir því hvaða póst- kort eru helst send yfir hafið. o Skemmtistaðurinn Tunglið verður opnaður enn á ný um helg- ina, glæsilegri en nokkru sinni. Það vantar svo sannarlega skemmtistað sem vit er í í miðbæ- inn en ósjálffátt kemur upp í hug- ann sú hugsun hvort menn séu orðnir brjálaðir með þessu ffarn- taki, hefur ekki staðurinn siglt í strand nokkrum sinnum nú þeg- ar? „Við erum vanir að láta verkin tala og höfum mikla reynslu í rekstri sem þessum,“ segir Skúli Mogensen, en hann mun ásamt Björóglfi Thor Björgólfssyni reka staðinn. „Við rákum Borgina tvö sumur og Björgólfur sá um Ing- ólfscafé. Nú höfum við ákveðið að gera þetta í eigin nafni og við er- Tunglið opnað á ný, að sögn rekstraraðila glaesilegra en nokkru sinni fyrr. Þeir Skúli og Björgólfur eru vanir að láta verkin tala og skeyta því engu þótt staðurinn hafi rúllað nokkrum sinnum. umfuUirafkraftiogsannfæringu. neðri hæðinni verður stiginn Þetta er besta hús í bænum undir skemmtanahald en það hefur strandað á því að rangir aðilar hafa staðið að rekstrinum." Smiðir hafa lagt nótt við dag í vinnu og útkoman er endurbætt Tungl í anda stríðsáranna, með viðeigandi húsgögnum, munum og myndverkum. Það verður hægt að sitja í rólegri „Cotton Club“- stemmningu á efri hæðinni en á dans. Rekstur kjallarans er í hönd- um Rósenberg-manna. Meiningin er að hafa góða dyragæslu og strangt eftirlit verður með 20 ára aldurstakmarki. Fólki undir þeim aldri verður því vikið úr röðinni strax svo það sé ekki fyrir þeim sem rétthærri eru. Að lokum má geta þess að Skúli og Björgólfur heita því að ekki verði lengri en tíu mínútna bið í röð fram að hús- fylli... f Rammagerðinni rammís- lensku, sem allir ferðamenn eiga erindi í, hefur póstkortið the Pearl með stórri mynd af Perlunni verið eitt alvinsælasta kortið í sumar og greinilegt að byggingin umdeilda hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Annað kort, geysivin- sælt, er The amazing Blue Lago- on - A Pool with Power og sýnir það sældarlegt fólk svamlandi í Bláa lóninu á sólríkum degi. Svo eru það tvö klassísk sem alltaf eru jafnvinsæl. Annað sýnir sjálfan Geysi í miklum ham og hitt Gull- foss í öllu sínu veldi og hefur reyndar verið svo mikil ásókn í það síðarnefnda að það er nú uppselt í Rammagerðinni. Fyrst verið er að fjalla um póst- kort á annað borð er ekki hægt að láta hjá líða að geta þeirra korta sem hvað lengst líf eiga að baki. Ber þar fýrst að nefna hið heims- fræga kort Icelandic Sheep sem sýnir íslensku sauðkindina í mikl- um vígahug uppi á þúfu. Kortið er ekki síst vinsælt meðal fslendinga, enda fmnst mörgum sauðkindin vera það besta sem völ er á þegar sýna þarf vinum í útlöndum hlý- hug. Þá er það kortið tvískipta með mynd af hrossum í haga og rolluskjátum í rekstri, með áletr- uninni Með beztu kveðju frá Is- landi, sem er enn í góðu gildi enda þótt löngu sé búið að fella zetuna úr íslenskri tungu. Og svo er það loks hið þjóðlega kort Kveðjur frá Árbœjarsafninu sem sýnir unga snót ásamt tveimur stúlkubörnum í peysufötum, en samkvæmt lauslegum útreikning- um ættu þær nú að vera komnar á miðjan aldur. Bókmenntaunnendur byrja að diskútera á mánudaginn, halda áfram fram á laugardag og fljúga sjálfsagt hátt. Bókmennta- hátíð að byrja Bókmenntahátíð hefst í Reykja- vík á sunnudaginn. Hún verður sett í Norræna húsinu á sunnu- daginn klukkan 17 og þar tala Lars-Áke Engblom, forstjóri Nor- ræna hússins, Thor Vilhjálmsson, Daninn Klaus Rifbjerg og Ólafur G. Einarsson menntamálaráð- herra og Vigdís Finnbogadóttir forseti. Reykjavíkurtríóið spilar. Svo byija menn að lesa upp og diskútera á mánudeginum og hætta ekki fyrr en á laugardag. Flest kvöld og í hádeginu verða rithöfundakynningar eða fýrir- lestrar í Norræna húsi eða Tjarn- arsal Ráðhússins. Svo eru líka um- ræður á svokölluðum skrifstofu- tíma um efhi á borð við skáldskap og sagnfræði, dauða módemism- ans, barna- og fullorðinsbækur, norrænar bókmenntir og heims- bókmenntir. Þótt hinn vinnandi lýður komist varla verður sjálfsagt krökkt af háskólastúdentum þessi síðdegi. Gestimir á þessari bókmennta- hátíð em varla jafrifrægir og síðast þegar komu hingað snillingar á borð við Gabriel Garcia Marquez, Isabellu Allende og Kurt Von- negut. En þó er von á mörgum ágætishöfundum: Anne Cath. Vestly frá Noregi er án efa sá sem er víðlesnastur á íslandi, hún er höfundur bókanna um Óla Alex- ander. Klaus Rifbjerg er hvað þekktastur núlifandi danskra rit- höfunda, en Christoph Ransmayr er Austurríkismaður sem skrifaði skrítna bók um skáldið Óvídus sem kom út á íslensku. Á íslensku kemur líka senn út bók eftir Frakkann Pascal Quignard, Allir heimsins morgnar, sem þekkt kvikmynd var gerð eftir. Hann er gestur hátíðarinnar og líka Þjóðverjinn Hans Magnus Enzensberger sem eitt sinn var róttækur samfélagskrítíker og er kannski enn. Frá Englandi kemur svo Martin Amis sem er með frægari rithöfund- um og blaðamönnum af yngri kynslóð, um- deildur maður sem er ekki mjög vinsæll hjá femínistum. MÆLUM MEÐ Karlfatafelluflokkum í anda Chippendales til að skemmta á íslenskum öldurhúsum. Þetta er flokkur fimmtán íturvaxinna karlmanna sem slegið hafa í gegn í Evrópu að undanförnu og mættu gjarna hafa viðkomu á íslandi. Nýju samskiptamunstri kynjanna þar sem eðlilegt þykir að ganga að honum eða henni og segja „mér Iíst vel á þig og ég sé að þér líst vel á mig. Gerum eitthvað íðí.“ Að látbragðsleikur ástarinn- ar verði telann til kennslu í grunnskólum landsins því það eru alltaf allir að mis- skilja alla. Að bandaríski eðalísinn Hágen-daaz verði seldur hér á landi enginn annar ís jafnast á við hann og það er orðið fr ekar þreyt- andi að þurfa alltaf að fljúga til New York eða Evrópu til að kom- ast í hann. IIMINII að vera með köku í ofninum og kveikt ljós þegar verið er að reyna að selja eða leigja íbúð. Rann- sóknir hafa leitt í ljós að þeir sem það gera selja íbúðina fýrr og hinir sem eru að reyna að leigja geta leigt íbúðina á uppsprengdu verði gjöri þeir slíkt hið sama. Ilmandi kökulykt gerir að verkum að íbúðin verður heimilislegri og log- andi ljós stækka íbúðina. „Show“ í anda Ólafs Laufdal þar sem fram fer djassdanssýning og söngdagskrá með Rósu Ing- ólfsdóttur, sem einnig sýnir und- irföt, eru löngu úti þrátt fyrir að menn haldi enn í þá von að slíkar uppákomur trekki. Að ekki sé tal- að um þar sem dans- og söngva- sýning úr kvikmyndum MGM frá áratugnum ’40 til ’50 fer fram. Það fer um mann hrollur þegar minnst er á slíkar uppákomur. Sú kynslóð sem nú heldur til á skemmtistöðum bæjarins er mun villtari en sú kynslóð sem endaði föstudags- og laugardagskvöldin fýrst í Hollywood, síðan í Broad- way og svo á Hótel fs- landi. Samfara gjaldþroti Ólafs Laufdal varð sjóbissnessinn í anda hans i einnig gjald- þrota. Það tekur óra- f langan tíma að kóma sér upp úr gjald- þroti og á það jafnt við um stefnur sem ^ menn. |» ú K E M S T EKKI I G E G N U M V I K U N A ... nema þú gætir aðhalds í fjármálum án Uess að eiga góðan gallajakka , án þess að borða nóg af tómötum ... nemaþú eýjirsómajfj samíegt ftáísmen ... áii |)oss að ffróð- urselja tré í Vina- skógi Mikið gasalega erþetta lekker maður, þessi Haraldur Noregskóngur. Ég rakst á hann ágöngu um miðbœinn á þriðjudaginn oggetsvarið fyrirað hann sendi mér augnatillit sem hefði mátt misskilja á hvaða vegsem var. Miðað viðþœrfréttirsem maðurfœrafkóngafólk- inuþessa dagana getur maður ekki ímyndað sérhvað kóngurinn varað meina.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.