Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 12

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 Tálbeitan í kókaínmálinu LÖNG SLÓB FJÁR- SVIKA OG PRFTTA Jóhann Jónas Ingólfsson, sem lagði gildruna fyrir Stein Ármann Stefánsson, skilur víða eftir sig sviðna jörð í viðskiptum í nafni Hollenska verslunarfélagsins. Jepparnir tveir sem Jóhann keypti með dags millibili í október en eru nú báðir skráðir á Féfang hf. Til vinstri er bíllinn sem Jóhann sveik út úr Birgi Ágústssyni, einum eigenda Bílaleigu Akureyrar. EINAR ODDUR Kristjánsson rumskaði af Vest- fjarðadvala sínum þegar Agnes Bragadóttir kíkti í heimsókn um daginn. Einar Oddur hefur látið satt kyrrt liggja í langan tíma og nánast brugðið upp huliðshjálmi þar til nú að Agn- esi tekst að draga hann fram í sviðsljósið — og þvílíkt sviðs- ljós; Einar Oddur var orðinn helblár af því að þegja svona lengi. En þögninni er lokið og Einar Oddur er búinn að hugsa það út að kvótakerfið sé della. Þýðir lítið fyrir Kristján Ragn- arsson að mótmæla því. Var það ekki annars Agnes sem tók niður lokaandvarp Einars Odds á síður Morgunblaðsins þegar hann hætti sem formað- ur VSf? Annars er þessi Vest- fjarðatúr Agnesar merkilegur því henni tókst að grafa upp að fyrirtæki Einars Guðfinnsson- ar á Bolungarvík var löngu dá- ið. Það sama verður ekki sagt um MARKÚS örn Antonsson sem hefur tek- ist að halda því leyndu í allt sumar að hann seldi orku úr landi í vor. Þar að auki hefur honum tekist að blanda Agli Skúla Ingibergssyni, fyrrver- andi borgarstjóra, inn í glæp- inn sem er reyndar svo leyni- legur að enginn skilur hann al- mennilega nema hvað hann virðist ganga út á það að Árni Sigfusson er hissa. Að öðru leyti hefur deila vikunnar snú- ist um það hvor hallast meira Ólafur Ragnar Grímsson eða FRIÐRIK Sophusson, núverandi fjár- málaráðherra. Þetta mál hefur reyndar verið allt hið dular- fyllsta, sérstaklega vegna þess að maðurinn með hallamálið, Sigurður Þórðarson ríkisend- urskoðandi, hefur sjálfur hall- ast út og suður. Oflofaðasta dauðastund ársins er þó tví- mælalaust dauði fórnarlambs- ins Jóhanns G. Bergþórssonar. Auðvitað var sauðurinn ekki dauður heldur bara að leika. Og ekki nóg með það heldur gekk fórnarlambið í lið með slátraranum í Blikki og stáli og nú má víst ríkissjóður fara að vara sig. Má gera ráð fyrir að Jóhanni takist að fá útflutn- ingsbætur á sjálfan sig að lok- um. En höfriun vikunnar kom frá PÉTRI Péturssyni, lækni á Akureyri. Hann hafnaði því fullkomlega að taka Ólaf „sterka“ Sigur- geirsson og kraffamenn hans í sátt. Ólafur hafði reyndar sjálf- ur hafið málaferli við Pétur en uppástóð í miðri þrætu að Pét- ur væri búinn að biðjast afsök- unar. Þess vegna vildi Óli sætt- ast en Pétur ekki. Pétur kann- ast hins vegar ekkert við eigin afsökunarbeiðni og vill því alls ekki sættast. Þetta er auðvitað fullkomlega óskiljanleg þræta en sem betur fer höfum við dómstóla til að greiða úr flækj- unni. Jóhann Jónas Ingólfsson, sá sem fíkniefnalögreglan notaði til að leggja gildru fyrir Stein Ár- mann Stefánsson á dögunum, á að baki langa slóð fjársvika og pretta, auk fíkniefha-, nauðgunar- og þjófnaðarbrotanna sem PRESSAN skýrði frá í síðustu viku. Frá því seint á árinu 1990 hefur hann rekið fyrirtækið Hol- lenska verslunarfélagið, en í slóð þess liggur Qöldi fjármálakæra bæði hérlendis sem erlendis. Jóhann hefur áður rekið fyrir- tækin Jóhann Ingólfsson hf. og fs- lensk-portúgalska hf., en það síð- arnefnda varð gjaldþrota árið 1989 og var það með stærri gjald- þrotum fram að þeim tíma. Síðla árs 1990 var Hollenska verslunar- félagið stofnað. Það hafði starf- semi sína í Faxafeni 9 og flutti meðal annars inn nærfatnað frá Cacharel í Frakklandi og snyrti- vörur frá Gosh. Sá rekstur virðist hafa gengið með eindæmum illa, ef marka má þann fjölda svika- og kærumála sem eftir liggja. Eftirgrennslan PRESSUNNAR leiddi í ljós að víða er sviðin jörð eftir viðskipti Jóhanns. Hér verður þó einungis stiklað á stóru í mál- um sem fengust tryggilega stað- fest. AUGLÝSINGASTOFA KÆR- IRTILRLR Fyrir síðustu jól auglýsti Hol- lenska verslunarfélagið vörur sín- ar töluvert og fékk auglýsingastofu í Reykjavík til að annast gerð aug- lýsinganna og koma þeim í fjöl- miðla, bæði ljósvakamiðla og dag- blöð. Fyrir þessu lagði auglýsinga- stofan út fjárhæðir hátt í eina milljón króna, sem ekki fékkst endurgreitt frá Hollenska þegar eftir var leitað. Jóhann gaf út víxil fyrir upphæðinni, en þegar hann fékkst ekki greiddur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir var Jóhann kærður til Rannsóknarlögregl- unnar fyrir fjársvik. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur einn starfsmaður fyrirtækisins verið kallaður í skýrslugjöf til RLR vegna málsins, en að öðru leyti liggur það óhreyft og hefur RLR sagt að mál afþessu tagi séu ekki forgangsmál hjá þeim. Heimildir blaðsins herma að Hollenska hafi fengið nokkur hundruð þúsund frá ffanska fyrir- tækinu Cacharel til að greiða aug- lýsingamar, en þeir peningar hafa eldd skilað sér til auglýsingastof- unnar. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur franska fyrirtækið gert árangurslausar tilraunir til að fá féð endurgreitt og svo mun um aðra sem fýrirtækið keypti vörur af erlendis. S VEIK BÍL AF EINUM KENNEDY-BRÆÐRA í október á síðasta ári keypti Jó- hann tvo bíla í nafni Hollenska verslunarfélagsins. Annar, dökk- blár yfirbyggður Nissan-pallbíll, var keyptur 17. október og greidd- ur með Subaru-biffieið og ávísun fyrir afganginum. Daginn eftir var bíllinn kominn í eigu Féfangs hf., fjármögnunarfyrirtækis Fjárfest- ingarfélagsins. Síðari bílinn, rauðan Chevrolet- jeppa, keypti Jóhann af Birgi Ág- ústssyni, einum eigenda Bílaleigu Akureyrar, fyrir milligöngu bíla- leigunnar. Gegn staðgreiðslu fékk Jóhann verðið lækkað í eina millj- ón og fimmtíu þúsund og fór greiðslan ffiam með ávísun. Þegar sú ávísun fékkst ekki greidd var skipt á henni og víxli, en reynt var árangurslaust að innheimta hann og hefur enn ekki tekist. Salan fór fram föstudaginn 18. október og skipti bfllinn þá um eigendur, samkvæmt upplýsing- um úr bifreiðaskrá. Eftir helgina, mánudaginn 21. október, var bíll- inn hins vegar kominn í eigu Fé- fangs hf., þótt ávísun Jóhanns til fýrri eiganda væri þá enn ógreidd. Heimildir PRESSUNNAR innan Hollenska fullyrða að Féfang hafi keypt bflinn af Jóhanni og greitt honum út fjárupphæð, en hann hins vegar tekið bílinn samtímis aftur á kaupleigu. Pétur Gunnarsson hjá Féfangi sagði í samtali við PRESSUNA að í raun væri ekkert sem bannaði fé- laginu að eiga viðskipti sem þessi, en þau væru hins vegar ekki stunduð. Hann vildi ekki tjá sig um viðskipti Féfangs og Hol- lenska, en taldi hugsanlegt að bíl- arnir hefðu óvart umskráðst um stund á nafn Hollenska þegar dæmin hér að ofan voru raldn fyr- irhann. Samkvæmt upplýsingum blaðsins notaði Jóhann hluta fjár- hæðarinnar sem fékkst úr þessum viðskiptum til að greiða upp ann- an bíl, Mitsubishi Colt, sem Hol- lenska hafði þá á kaupleigu hjá Fé- fangi. Báðir bílarnir standa fyrir utan fyrirtækið og eru notaðir í þágu þess. Birgir Agústsson hefur enn ekki séð peningana fyrir Chevrolet-jeppann, en hluti kaup- verðsins hefur þó fengist greiddur með vöruúttektum, meðal annars ógrynni sólgleraugna, samkvæmt upplýsingum blaðsins. „HEILDSALAN A SKÓLA- VÖRÐUSTÍG“ Jóhann þurfti að taka sér ffií ffiá fyrirtækisrekstrinum um síðustu áramót þegar hann hóf afþlánun í Hegningarhúsinu á Skólavörðu- stíg vegna nauðgunardómsins sem PRESSAN skýrði ffiá í síðustu viku. Þar kynntist hann Steini Ar- manni Stefánssyni, en hafði auk þess býsna frjálsar hendur um rekstur fýrirtækisins úr fangaklef- anum. Þessu tók Steinn Ármann eftir, meðal annarra, og meðal þeirra sem heimsóttu Stein var gantast með „heildsöluna á Skóla- vörðustígnum". Jóhann sinnti rekstri fýrirtækis- ins í gegnum síma og með því að fá í heimsókn „einn aðila frá fýrir- tækinu á hverjúm morgni kl. 8.30“, eins og Jóhann orðaði það í opnu bréfi til starfsmanna þess. Auk þess að nota síma og heim- sóknir gaf Jóhann starfsmönnum reglulega skrifleg fyrirmæli úr klefanum. Hann kom að auki í heimsókn í fyrirtækið í nokkra klukkutima dag einn — í fylgd fangavarðar — til að sinna mál- efnum fýrirtækisins á meðan á af- plánun stóð. Síðasta árið hafa nokkrir tugir starfsmanna hafið störf og hætt hjá Hollenska verslunarfélaginu, flestir vegna ógreiddra launa og annars óviðunandi vinnuað- stæðna. Fæstir hafa enn fengið laun sín greidd og nokkrir hafa kært fyrirtækið til Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Guð- mundur Ólafssson, lögffiæðingur VR, staðfesti að félaginu hefðu borist kærur vegna Hollenska og að innheimtubréfúm vegna þeirra hefði ekki verið svarað. VR sendi bréfin í innheimtu hjá Erni Clausen lögmanni, sem hefur því kynnst Jóhanni á flefii en einn hátt undanfarin ár. Örn var veij- andi Jóhanns í nauðgunarmálinu og í héraði í máli sem reis í kjölfar gjaldþrots fslensk-portúgalska. Nú er Örn hins vegar lögmaður Steins Ármanns, mannsins sem Jóhann lagði gildru fyrir í ágúst síðastliðnum. NÝTT FYRIRTÆKI — SAMI STJÓRNANDI f febrúar var stofnað fýrirtækið Þokki hf., sem skráð er á sambýl- iskonu Jóhanns, Margréti Þ. Stef- ánsdóttur. Þokki keypti fljótlega flestar eignir Hollenska verslunar- félagsins og hóf rekstur í sama húsnæði, með sama starfsfólki, á meðan Jóhann sat í fangelsi. Kaupverðið var um fjórar milljón- ir króna, samkvæmt heimildum blaðsins, meðal annars fýrir lager, innréttingar og húsgögn, sem Hollenska hafði ekki enn greitt. Þegar þeim kaupum var loldð fór Jóhann fram á það við skattyfir- völd að fá endurgreiddan virðis- aukaskatt af innbúinu. Ekki fékkst staðfest hvemig því erindi var tek- ið. Jóhann tók við rekstri Þokka þegar hann lauk afplánuninni, en Hollenska verslunarfélagið er enn til. Þefi sem eiga laun inni hjá fýr- irtækinu segjast bíða þess að það verði gert gjaldþrota, en enn hefúr ekki komið fram krafa um það, þrátt fýrir langa röð skuldunauta, banka, erlendra birgja, starfsfólks, viðskiptavina og annarra sem eiga kröfúr í eignalaust félagið.__ Karl Th. Birgisson Fyrir utan Faxafen 9 er enn skilti með nafni Hollenska verslunarfé- lagsins. Fyrirtækið heitir nú Þokki og er skráð á sámbýliskonu Jó- hanns. i

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.