Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 ÞETTA BLAÐ ER RUGLAÐ ... einsog það sem hefur skotið upp kollinum í hausnum á Bobby Fischerá undanförnum ára- tugum og lesa má um á blaðsíðu 30. í þeim hauser ekki heil brú í neinu sem ekki byrjar á E2 til E4 eða einhverju ámóta. ... eins og rekstur Seðlabanka íslands. Það skrímsli vex og vex á sama tíma og allt annað í þjóðfé- laginu skreppur sam- an. Og það eru engin takmörk fyrir því hvað þeim seðla- bankastjórum dettur í hug að eyða pen- ingum almennings í. Lesendur geta fengið innsýn í ruglið á blað- síðu 16. ... eins og þing- mennirnir okkar. Þeir segja okkur frá smekk sínum á tón- list, leikurum, sjón- varpi og mat á blað- siðu 26. Eftir að hafa hlustað á þau ósköp þakkarmaðurfyrir að þeir skuli vera niðri á þingi að karpa um EES í stað þess að spila plöturá út- varpsstöðvunum eða veljar bíómyndir í Sjónvarpið. ...einsog afiLilla klifurmúsar. Það fannst Mikka ref að minnsta kosti. Eins og sjá má á blaðsíðu 35 eru þeirfélagará leið á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu. Og spurningin er; leikur Örn Árnason Tryggvasonar klifur- músarhlutverk föður síns? ... einsog íslend- ingarallir. Þaðerí það minnsta skoðun bandarískra her- manna sem hafa ver- ið sendir á Keflavík- urflugvöll. Þegar þeir koma heim kaupa þeir sér tölvu og setj- ast niðurtil að út- húða landi og þjóð í sérútbúnu tölvuneti. Allt um þetta á blað- síðu 6. Er þá í lagi að flytja inn kjöt, Sveinbjörn? „Það hefur engin breyting orðið í þeim efnum. Það eru ákveðnar reglur í gildi, meginreglan er sú að kjöt verði að vera soðið. Frávik hafa verið leyfð í lokuðu umhverfi, sérstaklega í sambandi við kynn- ingar. Ég veit ekki hvernig þessu hefur verið háttað í þessu tilviki, ég yrði að gá að því til að getað svarað því nákvæmlega.“ Það hefur vakið athygli að á meðal þess sem boðið var upp á í kvöldverðarboði sem norsku konungshjónin héldu forseta íslands var hérapaté og hjartarlundir. Sveinbjörn Dagfinnsson er ráðuneytis- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu. F Y R S T F R E M S T BERA NORDAL. Fyrtist við og talaði um hneyksli. HARALDUR NOR- EGSKONUNGUR. Þrengslin urðu gífurleg og loftið þungt. BERU ÚTHÝST Á KON- UNGSFUNDl Haraldur Noregskonungur og Sonja Noregsdrottning voru, eins og kunnugt er, viðstödd opn- un málverkasýningu norska lista- mannsins Káre Tveter í menn- ingar- og listamiðstöð Hafnfírð- inga, Hafnarborg, á mánudag. Sonja drottning opnaði reyndar sýninguna. Sendir voru út hvorki fleiri né færri en eitt þúsund boðsmiðar á opnunina, hver gilti fyrir tvo og því var tvö þúsund manns boðið. Þótt Hafnarborg sé stórt og veglegt hús er borin von að þar rúmist tvö þúsund manns með góðu móti, enda kom það á dag- inn. Á boðskortunum var fólki gert að mæta fyrir klukkan tvö. Klukk- an korter í tvö þótti öryggisvörð- um hins vegar nóg komið af fólki í húsið og lokuðu því. Þeir sem mættu seinna komust ekki inn. Þeir sem úthýst var voru að sjálf- sögðu ekki par ánægðir með að komast ekki í návígi við kónga- fólkið, enda gátu þeir sýnt boðs- kort þess efnis að þeim hefði verið boðið sérstaklega. Það voru því margir æði fýldir yfir að þurfa frá að hverfa og með- al þeirra var Bera Nordal, for- stöðumaður Listasafns íslands. Bera mætti of seint og öryggis- verðirnir voru ekki til viðræðu um að hleypa henni inn, hún fyrtist við og talaði um hneyksli. Ekki er víst að Bera hefði verið ýkja ánægð þótt hún hefði komist inn því þrengslin þar voru gífurleg og loftið mjög þungt. Svo þungt reyndar að kona ein sem inni var féll í yfirlið. HANNES VINSÆLL í HÁ- SKÓLANUM Það varð enginn smáhvellur þegar Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var hleypt inn í Há- skóla íslands um árið. Eins og margir sjálfsagt muna var mikil andstaða gegn honum í félagsvís- indadeild og raunar innan alls Há- skólans. Var talað um að freklega hefði verið gengið á sjálfstæði Háskól- ans þegar Birgir ísleifur Gunn- arsson ákvað þrátt fyrir allt að gera Hannes að lektor í stjórn- málafræði. Lengi á effir voru ýms- ir sem ekki felldu sig við Hannes að tala um hvílíkt reginhneyksli þetta hefði verið. En nú virðist komið annað hljóð í strokkinn uppi í Háskóla. Nýverið var til umfjöllunar um- sókn Hannesar um að hann yrði hækkaður í tign úr lektor í dósent samkvæmt framgangskerfi Há- skqlans. tlmsóknin fékk mjög jákvæðar undirtektir í félagsvísindadeild þar sem andstaðan við Hannes var hvað hörðust áður. Yfírgnæf- andi meirihluti átján fundar- manna var hlynntur þessari mála- leitan, einn var á móti og fimm sátu hjá, en tólf greiddu atkvæði Hannesi í vil. Svanur Kristjánsson, gamall erkifjandi Hannesar, mun hafa verið á móti, en meðal þeirra sem sátu hjá voru Ólafur Þ. Harðar- son stjórnmálafræðingur, Þor- bjöm Broddason félagsffæðing- ur og Sigrún Stefánsdóttir fjöl- miðlafræðingur. ÍSLENSK STASISKJÖL Það er varla svo ýkja langt í jólabókaflóðið, en samt eru langt í frá öll kurl komin til grafar um hvað þar flýtur með. Vænleg sölubók hlýtur að telj- ast bók sem Ámi Snævarr ff étta- maður og Valur Ingimundar- son sagnfræðingur hafa tekið saman um íslenska kommúnista og sósíalista og tengsl þeirra við ríki austurblokkarinnar gömlu á dögum kalda stríðsins. Almenna bókafélagið gefur bókina út en meðal þess efnis sem þeir félagarnir hafa sótt í eru skjöl úr safni austur^þýsku öryggislög- reglunnar alræmdu, Stasi. Hermt er að ýmsar upplýsing- ar í bókinni kunni að koma nokk- uð óþægilega við einhverja Al- þýðubandalagsmenn, og jafnvel núverandi þingmenn flokksins. Eiríkur í Eiríki Eiríkur Jónsson útvarpsmaður er að hrinda af stað nýjum viðtalsþætti á Stöð 2 og er ætlun- in að hann verði með nokkuð öðru sniði en áður hefur sést í hérlendu sjónvapi. Hyggst Ei- rikur birtast á skjánum á hveiju kvöldi og eiga þættirnir að vera stuttir, snaggaralegir (nema hvað) og öðruvísi. Er þátturinn svipaður því sem menn eiga að venjast í útvarpi nema hvað nú er maðurinn (mynd? „Þetta er sami mað- urinn. Hins vegar er þetta sjónvarpsþáttur en hitt var útvarpsþáttur,“ segir Eiríkur. Hann lofar að vera sjálfum sér líkur — enda er hann það alltaf hvort sem hann er í útvarpi, á dag- blaði, sjónvarpi eða bílaverkstæði. „Fólkið sem birtist í þáttunum kemur öðruvísi fyrir sjónir en venjulega þvf myndataka er öðruvísi.“ Þó hvorki afskræmt né fegrað. Eiríkur viðurkenn- ir að hann sé spenntur og telur það meira en að segja það að vera með sjónvarpsþátt á hverju kvöldi sem á að vera allt í senn skemmtilegur, upplýsandi og ffæðandi. Oft hefur verið sagt að Eiríkur sýni aðgangs- hörku við viðmælendur sína og sé jafnvel ósvífmn, en að hans sögn er það fásinna. „Ég held að hver einasti viðmælandi minn mundi segja að ég væri kurteis... tiltölulega blíðlynd- ur.“ Það skal tekið fram að þættirnir verða ekki tengdir fréttum og eru sjálfstæðir að öllu leyti. Barnið hefur fengið nafn... Eiríkur. VÍSIR AÐ ÍSLENSKUM KVIKMYNDASKÓLA Þrátt fýrir að líklega sé offram- boð á menntuðu kvikmyndafólki á íslandi hefur Böðvar Bjarki Pétursson, ritstjóri tímaritsins Kvikmynda, hleypt af stokkunum vísi að kvikmyndaskóla í samfloti við Vilhjálm Ragnarsson kvik- myndaframleiðanda og hjónin Guðnýju Halldórsdóttur leik- stjóra og Halldór Þorgeirsson. Skólinn, eða námskeiðið, tekur tvo mánuði og verður kennt fimm sinnum í viku, samtals 180 tíma. Farið verður í flesta þætti kvik- myndagerðar og geta leiðbeinend- ur og fyrirlesarar varla talist af verri endanum. Þar má nefna Sveinbjörn I. Baldvinsson handritshöfund, Kjartan Kjart- ansson hljóðmann, Sigurð Sverri Pálsson kvikmyndatöku- mann, Valdísi Óskarsdóttur klippara og Hilmar Oddsson leikstjóra. Námskeiðið kostar eitt hundr- að þúsund fýrir manninn. BJARNI ARA í MEMPHIS TENNESSEE Menn gleyma náttúrlega aldrei Elvis Presley, en sjaldan hefur rokkkóngurinn verið umtalaðri en nú í sumar, þegar liðin eru 15 ár ffá andláti hans. Því er líklega vel við hæfi að hinn íslenski Elvis skuli hafa valið sér þennan tíma til að fara í eins konar pílagrímsför til Memphis, þar sem Elvis var fæddur og upp- alinn 'og átti sitt óðal á sveitasetr- inu Graceland. Þessi ferðalangur er náttúrlega Bjarni Arason, Keflvíkingurinn með flauelsröddina, sem mun dvelja tvær vikur í Memphis en snúa aftur eftir það til að syngja á Café Jensen í Mjóddinni, væntan- lega endurnærður. HANNES H. GISSURARSON. Meirihluti kennara í félagsvísindadeild greiddi honum atkvæði. SVANUR KRIST- JÁNSSON. Brá ekki út af vananum og vará móti Hannesi. BÖÐVAR BJARKI PÉTURSSON. Stofnar skóla og læt- ur fjölda menntaðra kvikmyndagerðarmanna ekkert á sig fá. BJARNIARASON. I pílagrímsferð á Presleyslóðir. UMMÆLI VIKUNNAR „Þegar kirkjunnar menn taka að sér að stýrafundi ogsegja safnaðarsystkinum að halda kjafti ogþað séu ákveðin mál sem má ekki rœða ogsegja þeim að hunskast útþá geturþað ekki endurtekið sig í kirkju. “ ■■■■■■■ Gylfi Sveinsson leikmaður. En viðskiptovinina? „Það er ekki framtíðarstefha ÁTVR að hýsa starfsmenn okkar.“ Höskuldur Jónsson éfengisgoði Þeir hlýða ekki fyrr en búið er að skjófa þá! „Menn forðast að viðurkenna hina köldu staðreynd, að vestræn mannúð þ’rífst ekki, nema kald- rifjaðir morðingjar fái að horfa „Það má segja að það sé skylda að fara á klósettið þegar manni er mál. Ég geri ekki í buxurnar." Herbert Guðmundsson búddisti um leið inn í vestræn byssu- hlaup.“ Jónas Kristjánsson ritstjóri SVONA GETA NIÐURGREIOSL- URNAR LEIKIÐ MENN „Það er rétt að það var gengið hér í tvö ár þótt engin væri kindin og hóað og látið eins og það væri fullt af fé.“ Hjörtur Þórarinsson bóndi Það er ekki á rign- inguna bætandi „Ef það væri ekki svona gott veður myndi ég bara gráta.“ Ólafur Skúlason séttabiskup Máttur gráa fiðringsins „Ég skrifaði honum bréf fýrir um tveimur árum og síðan hringdi hann í mig. Ég er mjög hrifm af honum og hef víst lagt hug minn oghjartaíbréfið." Zita Rajcsnyi yngismær og skákkona íslensku bankamir bafa tapað 3,3 milljörðum á síðustuf fimm árum veqna lána til fólks og fyrirtaskja sem qátut ekki borgað. Pað jafngildir pví að bankastjórarnir hafi' hent 6,7 milljónum út um qiuggann á hverjum deqi sem bankarnir voru opnir. Eða &30 ipúsundum á hverjum klukkutíma sem Ipeir voru (vinnu. Eða 13330 krónum á hverri mínútu sem Ipeir sátu við skrifborðin sín oq 230 krónum á hverrí sekúndu. betta er dýr sjálfsali. k einum deqi gleypir hann!34 jpúsund fimmtíukalla eða 1,1 tonn af Ipeirri mynt. A síðustu fimm árum hafa bankarnir með Ipessum hættí týnt 1.373 tonnum af fimmtíuköll- um. Gáum að jpvíl

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.