Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 4

Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRBSSAN 18. FEBRUAR 1993 BÆTIFLÁKAR „íltisipiiiir flhfiiteflars- íeMuiiiif tanpsÉurmjifl lliisnHuiiiliaf ífliilt^tHii ámtótaí^lii- llpfiffluiiijti, fifflroni H «H tfp ili. ænr syuti VARAA/IAÐURINN MISNOTAÐUR „Ólafur Ragnar Grímsson (AbRn) kvaddi sér hljóðs í gœr um þingsköp. Ólafur taldi að ráðherrar vœru farnir að mis- nota varamannakerftð til að vtkja sér undan því að taka þátt í umrœðum oggera þingmönn- umgrein fyrirsínum ráðstöfun- um. Ólafi Ragnari var á þessari stundu efst í huga jjarvera Sig- hvats Björgvinssonar heilbrigð- isráðherra. Nú vœri ráðherra með varamann vegna veikinda. Öllum vœri kunnugt um hand- leggsbrot það sem ráðherrann hefði orðið fyrir. En á hinn bóg- inn hefði það komið fram í morgunútvarpi rásar 2 að ráð- herrann sinnti sínum störfum í þágu framkvœtndavaldsins. Það hefði einnig komið fram í auglýsingum í Alþýðublaðinu að ráðherrann mœtti á fundi Alþýðuflokksins og einnig ann- arrafélagasamtaka.“ hvað varð um þessa aðila sem töluðu hvað hœst utn aðfá Fi- scher og Spasskí hingað aftur á nýjan leik? Má skilja það sem svo að enginn áhugi sé lengur fyrir hendi á að sjá tvo af snjöll- ustu skákmönnum heims etja saman kappi.“ Björgvin Sigurðsson (DV. Guðmundur G. Þórarins- son, forseti Skáksambands íslands: „Haft var samband við þá Fischer og Spasskí um síð- ustu áramót. Þá var þeim boðið að koma hingað í febrúar, til að vera viðstaddir afmælishátíð í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá heimsmeistaraeinvígi þeirra, og tefla nokkrar táknrænar skákir. Spasskí hafði mikinn áhuga á að koma. Hins vegar strandaði málið á Fischer. Hann er staddur í Belgrad og óttast að fara þaðan, enda á hann yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm vegna brota á við- skiptasamningi Bandaríkjanna. Fischer er logandi hræddur um að verða framseldur og vill því ekki fara úr landi eins og er. Málið féll því um sjálft sig.“ uÉtaffl,sr ItffluiiMMii- Pffljipriil. Úr þingfréttum Morgunblaðsins. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra: „í bréfi mínu til Alþingis kom fram að ég gæti ekki setið „reglulega" á þingi. Handleggurinn var það illa leikinn að hann var ekki sett- ur í gifs, heldur spenntur saman með miklum vírum. Þeir valda óþægindum og því á ég erfitt með að sitja lengi. Ég treysti mér af heilsufarsástæðum ekki í langar setur og af þeim sökum hef ég ekki haft tök á að mæta reglulega í ráðuneytið, frekar en á Alþingi. Það er annars ein- kennilegt að Ólafúr Ragnar skuli koma með slíkar aðfmnslur. Þegar hann var sjálfur fjármála- ráðherra tóku aðrir ráðherrar sér fri frá þingstörfum og sendu varamenn sína fyrir sig, af þeirri ástæðu einni að þeir hefðu svo mikið að gera. Ég minnist þess ekki að Ólafur hafi þá gert at- hugasemd." ÁHUGALAUSIR SKÁKMENN „Á síðasta ári mœttust Fi- scher og Spasskí í miklu skák- einvígi sem blöðin hér heima fylgdust með af áhuga og í kjöl- farið varfarið að tala um ann- að einvígi þessara snillinga hér í Reykjavík í tilefni af 20 ára af- mœli einvígis þeirra 1972. En GÁLGAHÚMOR MISSIRMARKS „Fréttaritari Sjónvarpsins á Vestfjörðum gerðist svo fá- dœma smekklaus að ota hljóð- nema sínum upp í opið geðið á einni fiskvinnslukonunni, setn var að koma af fundi, þar sem húnfékk atvinnuleysi sitt end- anlega staðfest og spurði eftir- farandi spurningar: „Er ekki bara fint að nota spariféð og fara bara í frí?“ Blessuð konan kunni eflaust ekki að meta gálgahúmor spyrilsins, en sagði án þess að sjáanlega á hana kcemi: „Það er ekkert sparifé.“ Líklega er eitt af því sísta sem slíktfólk þarf á að halda, ein- mitt það augnablik sem það þarf að horfast í augu við hina óþolandi óvissu sem framtíðin ber í skauti sér, forkastanlega heimskulegar spurningar á við þessa frá fréttaritaranum á Vestfjörðum." Víkverji Morgunblaðsins. Hafþór Gunnarsson, fréttaritari Sjónvarpsins á Vestfjörðum: „Það eina sem ég hef að segja um þessa athuga- semd er að ég nenni ekki að elta ólar við Morgunblaðið í þessum Bolungarvíkurmálum né öðr- um. Mér fmnst aðfinnslan ein- faldlega ekki svaraverð.“ F Y R S T & F R E M S T Samgönguráðuneytið Tveir stjórar á fullum launum löngu efftir að þeír létu af störfu f tveimur ríkisstofnunum á vegum samgönguráðuneytisins eru greidd tvöföld ríkisforstjóralaun, til núverandi og fyrrverandi forstjóra. Þetta er hjá Vita- og hafnamálastjórn og Flugmálastjórn. Samningar þessir eru tilkomnir vegna skyndilegs brotthvarfs beggja forstjóranna sem virðist hafa gert þeim kleift að semja um sérstök launakjör. Á miðju síðasta ári lét Pétur Einarsson flugmálastjóri af störf- um, en uppsögn hans fyrr á árinu kom mjög á óvart. Pétur var einn þeirra embættismanna sem nutu æviráðningar en þau réttindi féllu að sjálfsögðu niður við uppsögn- ina. Þegar Pétur hætti gerði hann samkomulag við Halldór Blöndal samgönguráðherra um að hann mundi inna af hendi sérfræðiað- stoð fyrir ráðuneytið í tiltekinn tíma. Fyrir þessa sérfræðiaðstoð er greitt af fjárlögum Flugmála- stjórnar þannig að Pétur er þar áfram á launaskrá. Fólst sam- komulagið í því að Pétur héldi launum sínum sem flugmálastjóri en greiðslur til hans yrðu í því formi að hann fengi greitt fyrir út- selda vinnu sem verktaki. Flug- málastjórn greiðir því tveimur mönnum flugstjóralaun. Sam- kvæmt upplýsingum frá ráðu- neytinu á samningur þessi að gilda í tvö ár eða fram á mitt ár 1994. Aðrar heimildir segja að samningurinn sé í raun til fjög- urra ára, en það hefur ekki fengist staðfest. Ef gert er ráð fyrir að samning- uririn sé til tveggja ára og laun flugmálastjóra um 300.000 krónur á mánuði má gera ráð fyrir að þessi sérfræðiþjónusta Péturs kosti 7,2 milljónir króna. GEFUR HALLDÓRIMUNN- LEGAR SKÝRSLUR Þegar leitað var eftir því í sam- gönguráðuneytinu að fá skýrslur sem Pétur.hefði látið af hendi fyrir sérffæðiaðstoð kom fram hjá Þór- halli Jósepssyni, aðstoðarmanni samgönguráðherra, að Pétur gæfi ráðherra munnlegar skýrslur. Slíkir fúndir munu vera á tveggja til þriggja mánaða fresti. Auk þess situr hann fundi þar sem þau mál, sem hann tók að sér, eru til um- ræðu. Það sem Pétur gerir lýtur fyrst og fremst að endurskoðun laga um flugmál. Einnig snertir samn- ingurinn um evrópska efnahags- svæðið starfssvið hans. Mörg lag- anna sem Pétur er að skoða eru orðin æði gömul; svo sem lög um stjórn flugmála frá 1950, lög um gildistöku alþjóðasamnings um samræmingu nokkurra reglna varðandi loftflutninga milli landa frá 1949, lög um skrásetningu réttinda í loftförum frá 1966, lög um loftferðir frá 1964 og lög um loftferðir frá 1929.1 sumum tilvik- um á Pétur að semja ný lög en að- alatriðið er endurskoðun gildandi laga og tillögur um breytingar á þeim. En af hverju hætti Pétur svona skyndilega? f raun hefur aldrei fengist fullnægjandi skýring á því nema að um almennan starfsleiða hafi verið að ræða hjá honum. Á undan mun hins vegar töluvert hafa gengið á gagnvart flugráði og var síðasti fundur Péturs með ráð- inu mikill átakafundur. Sömuleið- is var hart sótt að honum vegna „flugskólamálsins“ og sérstæðrar sölu á flugskýli á Reykjavíkurflug- velli. AÐALSTEINN HÉLT FULL- UM LAUNUMí TVÖ ÁREN FÓR SÍÐAN Á SÉRSTAKAN EFTIRLAUNASAMNING En þetta samkomulag við Pétur er ekki einsdæmi í samgöngu- Matthías Bjarnason: Hafði tvo vita- og hafnamálastjóra á launaskrá á sama tíma. Halldór Blöndal: Fær munnlegar skýrslur frá Pétri. Aðalsteinn Júlíusson: Hætti sem vita- og hafnamálastjóri 1985 en hefur haldið laununum síð- ráðuneytinu. Því til viðbótar má nefna samkomulag sem gert var við Aðalstein Júlíusson, fyrrver- andi vita- og hafnamálastjóra, sem lét af störfum árið 1985, þá 59 ára. Brottför Aðalsteins var hluti af tilfæringum þáverandi sam- göngumálaráðherra, Matthíasar Bjamasonar. Matthías setti Her- mann Guðjónsson, núverandi vita- og hafnamálastjóra, í starfið eftir að hann og Aðalsteinn höfðu náð „samkomulagi", eins og Aðal- steinn orðaði það, um starfslok hans í samtali við PRESSUNA. Eftir því sem komist verður næst mun Aðalsteinn hafa haldið full- um launum sem vita- og hafna- málastjóri tvö fýrstu árin eftir að hann hætti. Síðan fór hann á eftirlaun sam- kvæmt 95 ára reglunni (saman- lagður starfs- og lífaldur tryggir þá eftirlaun) og tók þá við sérstakt samkomulag sem tryggði honum fúllar greiðslur eins og hann væri enn í starfi. JAFNGILDIR 17 MILLJÓNA KRÓNA AUKAÚTGJÖLD- UM FYRIR RÍKIÐ Fól samkomulagið í sér að Að- alsteinn fengi greitt aukalega frá vita- og hafnamálastjórn þannig að sú upphæð að viðbættum eftir- launum jafngilti launum eftir- manns hans. Uppbótin jafngildir um 107 þúsund krónum á mán- uði í dag. Frá því Aðalsteinn lét af störfúm hefúr hann því fengið ná- Pétur Einarsson: Enn með full laun flugmálastjóra fyrir sér- verkefnaþjónustu sína. lægt 17 milljónum króna umffam það sem lífeyrisgreiðslur hans segja til um ef tekið er tillit til framfærsluvísitölu. Þar vega reyndar þungt launagreiðslur til hans tvö fyrstu árin. f bréfi frá fjármálaráðuneytinu árið 1988 til eftirmanns Aðalsteins eru þessir skilmálar útskýrðir: „Með tilliti til þess, að framan- greind áform um að raska ekki verulega tekjum Aðalsteins frá því sem ella hefði verið hafi verið markmið samkomulagsins, [sic] telur fjármálaráðuneytið eðlilegt að greiðslur á grundvelli sam- komulagsins verði ákveðnar sem hálf Iaun ríkisforstjóra á BHMR- kjörum með 20 stundir í fasta yfirvinnu eða 67.633 kr. sbr. ffam- angreint. Fyrrverandi vita- og hafna- málastjóri hefur greint fjármála- ráðuneytinu frá ósk þess efnis að greiðslur þessar verði í formi greiðslu á reikningum fyrir út- selda vinnu af verkfræðistofú hans. Ráðuneytið tekur ekki af- stöðu til þess að öðru leyti en því, að verði sú leið farin miðast reikn- ingar við það að kostnaður ríkis- sjóðs vegna samnings þessa verði ekki meiri en að framan greinir þegar tekið hefur verið tillit til launatengdra gjalda og skatta.“ Þessi bréfaskipti fóru ffam eftir að Hermann hafði leitað effir túlkun ráðuneytisins á samkomulaginu. Að sögn Aðalsteins hefur hann allan tímann, sem þetta sam- komulag hefúr verið í gildi, skilað inn verkefnum. Hann sagðist að- spurður hafa verið fyllilega sáttur við að hætta á sínum tíma. Hins vegar hefði vinnuffamlag sitt get- að verið meira ef eftir því hefði verið leitað. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.