Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 9

Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. FEBRÚAR 1993 9 Jóhann G 'rsson aöaleigandi Hagvirkis-fyrirtœkjanna. nn er meðal annars sakaður afbústjóra um að hafa á löglausan hátt leitast eigin skimii og meðeigenda með tilfœrslum eigna ogyfirtöku skulda í desember 1990. Be Valur Valsson, bankastjóri (slandsbanka. Bankinn hefur verið Hagvirki liðlegur, en krefur nú þrotabúið um 440 milljónir. Grunur leikur á að bankinn hafi verið plataður vegna lóðar í Smárahvamms- landi. Gísla J. Friðjónssonar og komu Hagvirki í raun ekkert við. Hag- virki-Klettur tók á sig skuld við Is- landsbanka upp á 50,7 milljónir, en það var vegna lóða sem bank- inn leysti til sín úr hendi gamla fé- lagsins og greiddi Hagvirki-Kettur þ\i' aldrei neitt af þessu. Hagvirki- Klettur „yfirtók" rúmlega 12 millj- óna króna skuld við sama banka, en þar var skuldari Vélsmiðjan Klettur, sem rann inn í Hagvirki- Klett, og þar með var það fyrir- tæki í raun að „yfirtaka" eigin skuld. Þá má nefna yfirtöku á skuldum við Lýsingu upp á 29,1 milljón, sem voru með sjálfskuld- arábyrgð fslandsbanka og Sjóvár- Almennra. Hagvirki-Klettur greiddi ekkert, en það gerði fs- landsbanki í júní 1991 og setur vegna þessa ffam almenna kröfu í þrotabú Hagvirkis. ÞROTABÚIÐ MEÐ YFIR- VEÐSETTAR OG VERÐ- LAUSAR EIGNIR Stór hluti greiðslna Hagvirkis- Kletts, 124 milljónir, var síðan fólginn í afhendingu fasteignanna Skútuhrauns 2 til 4 og Dalshrauns 16. Bústjórinn bendir á að fast- eignir þessar séu yfirveðsettar og einskis virði fyrir þrotabúið, markaðsvirði um leið ekkert. Bústjóri gerir fjölmargar aðrar athugasemdir við „greiðslur" Hagvirkis-Kletts, sem ekki verða tíundaðar hér. Almennt eru ásak- anir hans mjög í anda fréttar PRESSUNNAR frá því í septem- ber síðastliðnum um tilfærslur á eignum undan væntanlegu og óumflýjanlegu gjaldþroti. Himin- háar skuldir voru skildar eftir í gamla fyrirtækinu og verðlitlar eignir, sem þó eru bókfærðar á tæpan milljarð. Sem fyrr segir eru fasteignir þrotabúsins yfirveðsett- ar. Það eru einnig aðrar helstu eig- ur á nafni þrotabúsins, lóðir í Smárahvammslandi og á Val- húsahæð. Allar þessar eignir lenda óumflýjanlega á uppboði eða verða innleystar af veðhöfum og ganga því ekki á nokkum hátt upp í almennar kröfur. Reyndar gætu orðið talsverð effirmál vegna lóðanna í Smára- hvammslandi, sem Hagvirki tók á sínum tíma yfir frá hendi Frjáls ffamtaks. Sumar þessara lóða eru enn þinglýstar á Ftjálst framtak, aðrar eru enn á nafni Hagvirkis og íslandsbanki hefur leyst til sín að minnsta kosti fjórar stórar lóðir. Innlausnin er óbein, því hún hefur farið fram í nafni Steinvirkis hf., verktakafýrirtækis sem íslands- banki hefur eignast vegna gjald- þrots fyrrum aðstandenda þess. LÓÐ VEÐSETT FYRIR 70 MILLJÓNUM MEÐ RANGT TILGREINDU BYGGINGA- MAGNI Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR var bankinn um það bil að innleysa fimmta lóðarreitinn, 3.150 fermetra reit undir fjölbýlis- hús, þegar í ljós kom að bankinn hafði verið plataður til að sam- þykkja veð upp á 69 til 70 milljón- ir á reitinn, sem er margfalt hugs- anlegt virði hans. Það gerðist á þann hátt, að þegar Hagvirki tiltók væntanlegt byggingamagn vegna lóðarinnar í lánsumsókn var gefið upp tiltekið magn, sem síðar kom í ljós að átti við lóðirnar aliar á svæðinu, en ekki bara þennan til- tekna reit. Á þeim reiti mátti gera ráð fyrir innan við þriðjungi bygg- ingamagnsins á svæðinu. íslandsbanki er því í vondum málum hvað Smárahvammsland- ið varðar og reynir nú að semja við Kópavogskaupstað um að hann taki til sín umræddan lóðar- reit og vill viðræður um söluverð. Bankinn getur vart búist við að fá nema brot af því sem reiturinn er veðsettur fyrir. Reyndar er með ólíkindum hvað íslandsbanki hefur verið Hagvirki sveigjanlegur á síðustu árum og var fýrirtækið þó þegar orðið mikið vandamál hjá gamla Iðnaðarbankanum. Bankinn virð- ist hafa samþykkt hinn umdeilda samning ffá því í desember 1990, enda í mun að tryggja eigin hags- muni, sem ekki voru tryggðir með öruggum veðum. AÐSTANDENDUR HAG- VIRKIS TIL SAMANS STÆRSTIKRÖFUHAFINN En hvernig sem bankinn ann- ars h'tur á hinn umdeilda samning þá hefur hann lagt fram umtals- verðar kröfur í þrotabú gamla fé- lagsins, alls 442 milljónir króna. Þar af eru aðeins 111 milljónir tryggðar með veðum og því til viðbótar hefur bústjóri hafnað kröfum ffá bankanum upp á 91,5 milljónir. Tap bankans gæti því numið 330 milljónum hið minnsta, en vitaskuld mun meiru ef hinar veðsettu eignir hrökkva skammt upp íveðkröfurnar. í raun er Islandsbanki ekki stærsti kröfuhafinn heldur Jóhann G. Bergþórsson sjálfur, fyrirtæki hans og aðstandendur gamla fé- lagsins. Þessir aðilar lögðu alls fram kröfur upp á rúman hálfan milljarð, 535 milljónir króna. Jó- hann vildi fá 116 milljónir, Aðal- steinn 157 milljónir og Gísli 41 milljón, en öllu þessu hafnaði bú- stjóri alfarið. Hagvirki-Klettur lagði fram 208 milljóna króna kröfu, en bústjóri samþykkti að- eins 19 milljónir. Þá vildi Verk- fræðistofa Jóhanns G. Bergþórs- sonar fá nær 13 milljónir, en bú- stjóri samþykkti aðeins 2 milljón- ir. Að öðru leyti eru helstu kröfur vegna opinberra gjalda alls 391 milljón, þar af 327 milljónir frá sýslumanninum í Hafnarfirði og 36 milljónir frá Gjaldheimtunni í Reykjavík. Þar fyrir utan má nefna 40 milljóna króna kröfu Blikks og stáls hf., sem lagði fram upphaf- lega gjaldþrotakröfu, 23 milljónir ffá Byggðastofnun og 22 milljónir ffá Hlaðbæ-Colas hf. DÓTTURFYRIRTÆKIÐ HAGTAK AÐ LEYSA HAG- VIRKI-KLETT AF HÓLMI Öllum þeim sem PRESSAN ræddi við bar saman um að staða Hagvirkis-Kletts væri í dag ískyggileg og fyrirtækið dauða- dæmt ef hinar tilfærðu eignir ganga til baka. Gildir þar einu þótt „verkefnastaða“ kunni að vera góð um þessar mundir, því slík staða kemur aðallega starfsmönn- um til góða miðað við þau lágu til- boð sem hafa verið í gangi. Jó- hann G. Bergþórsson bindur miklar vonir við að málaferlin við ríkissjóð vinnist og fyrirtækið nái þá til sín nokkrum hundruðum milljóna króna, en sú trúa virðist byggð á sandi. Rifja má upp að þegar undirréttur sýknaði ríkið af kröfu um endurgreiðslu á 108 milljóna króna söluskatti var kraf- an lögð fram í átta liðum og höfn- uðu dómararnir þrír öllum liðun- um. Fari Hagvirki-Klettur í gjald- þrotaskipti standa eftir fáein önn- ur skyld en mun minni fyrirtæki. Þar má nefna Verkffæðistofu Jó- hanns G. Bergþórssonar, sem hef- ur hannað fyrir Hagvirki. Verk- fræðistofan er skráð fýrir nokkr- um fasteignum, svo sem Vestur- braut 22 og Stekkjarhvammi 10, auk þess sem hún er skráð fyrir nokkrum fbúðum sem Hagvirki hefur reist, svo sem í Álfholti í Hafnarfirði. Það var einmitt verk- fræðistofan sem ætlaði að kaupa SH-verktaka og yfirtaka verkefni SH áður en það fýrirtæki var tekið til gjaldþrotaskipta. Þá má nefna dótturfyrirtækið Hagtak, en Jó- hann hefur að undanfömu gjam- an beitt því fýrirtæki í forvölum. Loks má nefna strætisvagnafýrir- tækið Hagvagna, en PRESSAN hefur áður greint ítarlega frá samningi þess fýrirtækis við sam- starfsfélag sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu. Hugsanlegt gjald- þrot Hagvirkis-Kletts mundi án efa hafa talsverð áhrif á Hagvagna, því 10 vagnar sem það fýrirtæki notar eru í eigu Hagvirkis-Kletts, sem keypti þá af Kópavogsbæ. Friörík Þúr Guðmundsson Aðalsteinn Hallgrímsson, einn eigenda gamla Hagvirkis. Krefur þrotabúið um 157 milljónir vegna persónulegra ábyrgða. Áein- býlishúsi hans, eins og á húsum annarra helstu eigenda, hvíla þung veð frá (slandsbanka. Nú hafa Jóhann G. Bergþórsson og Svavar Skúlason keypt þá Aðalstein og Gísla J. Friðjónsson út úr Hagvirki-Kletti. Jóhann G. Bergþórsson svarar bústjóra fullum hálsi Engar eignir gefnar og eigendum ekki hyglað Jóhann G. Bergþórsson í Hag- virki-Kletti hefur sent frá sér ítar- lega greinargerð vegna ásakana Ragnars H. Hall, bústjóra Hag- virlus, þar sem Jóhann mótmælir flestöllum ásökunum Ragnars sem röngum. Jóhann segir það rangt hjá Ragnari að þegar hinn umdeildi samningur var gerður í desember 1990 hafi staða Hagvirkis verið slík að taka hefði orðið fýrirtækið til gjaldþrota. Forráðamenn fýrir- tækisins hefðu þá haft fulla ástæðu til að telja framtíð fyrir- tækisins góða og eignir í því sam- bandi í raun langt urnffam skuld- ir. I þessu sambandi nefnir Jó- hann margumrædda meinta skattinneign hjá ríkinu og að þá hafi ekki verið annað vitað en framkvæmdir vegna Fljótsdals- virkjunar færu í gang. Jóhann segir að engar athuga- semdir hafi komið frá bústjóra um kaupverðið, þegar Hagvirki- Klettur keypti eignir af Hagvirki fýrir 616 milljónir. Fullyrðingu um gjöf á eignum sé hafnað, enda niðurstaða frlandsbanka að verð- ið hafi verið of hátt. Yfirtaka lána sé greiðsla og því rangt að tala um gjöf. Jóhann segir þá fullyrðingu ranga að með samningnum hafi verið stefnt að því að gera upp við alla nema ríkissjóð og í því sam- bandi að gera upp við útvalda kröfuhafa eða aðra sem hefðu við- skiptalega stöðu gagnvart Hag- virki eða Hagvirki-Kletti. Jóhann mótmælir því eindregið að með samningnum í desember 1990 hafi Hagvirki-Klettur yfirtek- ið rekstur Hagvirkis og að nánast öllum eignum Hagvirkis hafi verið ráðstafað. Hann bendir í því sam- bandi á bókfærðar eignir upp á 1.100 milljónir hjá gamla fýrirtæk- inu. Jóhann viðurkennir þó að þessar eignir (fasteignir og lóðir) hafi verið fullveðsettar. Þá segir Jóhann alrangt að eigur Hagvirlds hafi verið notaðar til að greiða skuldir hluthafa. Lán frá 1986 í eigin nafhi hluthafanna hafi runnið til fyrirtækisins og í raun verið skuld þess. Loks viðurkennir Jóhann þó að sú fullyrðing bústjórans, að eignir þrotabúsins hafi í nokkrum tilvik- um verið notaðar til greiðslu á kröfum sem Hagvirki-IGettur hafi með samningnum tekið að sér að greiða, eigi við rök að styðjast. Hér er átt við 50,7 milljóna króna skuld við Islandsbanka sem Hag- virki- Klettur tók á sig, en greidd var með lóðum á nafni Hagvirkis. Jóhann segir hins vegar að það hafi verið skilningur Hagvirkis- Kletts að íslandsbanki hefði „við- urkennt skuldskeytingu í þessu sambandi" og skuldajöfnun átt sér stað. Þrátt fyrir ftrekaðar tilraunir PRESSUNNAR náðist ekki í Jó- hann G. Bergþórsson. Asakanir bústjóra styðja frétt PRESSUNNAR STAKK 700 MILLJONUIVI UNDflN MEfl „ENDUR- SKiPOLAGNinmr Frétt PRESSUNNAR i september þar sem greint var frá tilfærslum eigna undan væntanlegu þrota- búi... Þann 3. september síðastliðinn, nokkru fýrir fýrirséð gjaldþrot Hagvirkis/Fómarlambsins, birti PRESSAN frétt og greindi frá því að með samningnum í des- ember 1990 hefðu eignir upp á urn 700 milljónir króna verið færðar undan fýrirséðu þrota- búi. „f væntanlegu gjaldþrota- máli verður það þungamiðja meðferðarinnar hvort salan á vélum og tækjum Hagvirkis og um leið skuldayfirfærslan í því dæmi hafi falið í sér mismunun kröfuhafa. Reynist það niður- staðan er óhjákvæmilegt að reynt verði að fá þessum gjörningi rift og viðkomandi eignir teknar inn í þrotabúið," sagði í fréttinni. Guðmundur B. Úlafsson, fjármálastjóri Hagvirkis, ritaði nokkmm dögum síðar svargrein í Morgunblaðið og fór háðulegum orðum um frétt PRESSUNNAR. Hann sagði meðal annars að það væri fjarstæða að tengja endurskipulagninguna undanskoti eigna, hvað þá skulda. /greinargerð bústjóra er bent áfjölmörgatriði sem renna stoðum undirfrétt PRESSUNNAR. Vegna óveðsettra eigna vill bústjóri fá til baka um 350 milljónir frá Hag- virki- Kletti og því til viðbótar segir , Jjjófar 0„ orlæpamer bustjórinn veðsettar eignir sem , .* . y —— Hagvirki fékk í skiptunum yfirveð- settarogþrotabúinueinskis virði. i ... og þáverandi fjármálastjóri Hagvirkis svaraði f Morgunblað- inu og sagði það fjarstæðu að „tengja endurskipulagninguna undanskoti eigna". Zrriíi ------“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.